Morgunblaðið - 25.04.1964, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.04.1964, Blaðsíða 11
Laugardagur 25. april 1964 MORGUNS! A&IÐ 11 Sigvaldi Thordarson MEÍ) hæfckandi sól og komu þrekmikill hann var í þeirri bar- si rnars eftir mildan vetur, var lokið lífi hérna megin grafar, eins mikilhæfasta arkitekts þessa lamds, Sigvalda Tho-rdarsonar. — Hann var búinn að eiga við lang varandi vanheilsu að stríða, en lét ekki hlut sinn við ofurefli siúkdómanna fyrr en hann mátti ti:. Sigvaldi stundáði nám í hús- gerðarlist í Danmörku, en kom heim til íslands meðan á stríðinu etóð og án þess að hafa lokið íullnaðarprófi. Hann hóf þegar störf við húsateikningar og bygg ingar hér i bænum, og hafði nóg að gera. — Að styrjöldinni lok- inni tók hann sig uþp á ný, hélt til Danmerkur og lauk þá fulln- aöarprófi frá Akademíinu. — Sýnir þetta dúgnað Sigvalda O'g staðfestu, að ná því marki, sem hann hafði sétt sér, þrátt fyrir erfiðleika á slíku fyrir mann, sem hefur þegar haslað sér völl í atvinnulífinu og hefur fyrir heimili að sjá. Að námi loknu gerðist Sigvaldi bratt einn mikilvirkasti húsa- meistari stéttarinnar og ötull í íélagssamtökum arkitekta. — Þrátt fyrir annir tók Sigváldi oft þátt í samkeppnam og með góð- um árangri m. a. um skólabygg- ingar, fegrun og útlit Tjarnarinn- ar í Reykjavík o. fl. Hann hafði stórbrotna skapgerð og var ákveð inn mjög í skoðunum enda báru verk hams í stáli' og steini vott um sterkan persónuleika. >ó var hann þolinmóður við leit að góð- um úrlausnum verkefna sinna. Hann varð að vonum brátt um- deildur maður og naut þess a.m.k. stundum að lifa lífinu við alík skilyrði. Þegar þrek hans var mest og lifið lék við honum var það ekki é margra manna færi að deila við ihanm um eitt eða annað því harð- ur var hann og ákveðinn þegar sjúkdómar sóttu fast að honum beitti hann þeim mun meiri Ih'irku við sjálfan sig og fannst Oikur, samstarfsmönnum hans oft undravert hve þrautseigur og — / kvikmyndasal Framh. á bls. 13. fullkomin og landslagið, þrungið dapurleik og einmanakennd, und- irstrikar áhrifakraft myndarinn- ar. Persónurnar eru raunar um- vafðar umhverfi sínu. Tónlist til að spenna upp verkið er ekki not- uð eins og oftast í myndum, en náttúruhljóð eru notuð til að auka á áhrif hennar og sú litla tónlist sem notuð er, er náinn hluti myndarinnar og sker sig ekki æpandi út úr og mættu ýms- ir af læra. Eitt stíleinkenni er jékennandi fvrir Antonioni og hafa margir stælt það eins og annað eftir hann. Persónurnar líta sjaldan hver á aðra, stundum sitt í hvora áttina eða framhjá hver annarri, eða snúa baki við myndavélinni atriðið út í gegn. Þetta mætti í fljótu bragði líta á sem tækni- brellu, en það undirstrikar enn ferkar sambandsleysið á milli þessa fólks og einangrun þess. Hinn minnisstæði endir, þar sem Sandro grætur yfir ístöðu- leysi sínu og brestum og Claudia lyftir hendi sinni til að strjúka yfir hár hans, hikar og lætur hana síga, en tekst svo að fram- kvæma þetta tákn fyrirgefningar innar, sem hann hefur ekki einu sinni hugrekki til að biðja hana um, máist seint úr huganum. Og maður hefur á tilfinningunni að þetta eigi eftir að endurtaka sig. En hin sömu leiðinlegu viðbrögð, sem áttu sér stað í Cannes við frumsýningu myndarinnar, berg- máluðu i leiðinda flissi sumra sniðugra áhorfenda í Bæjarbíói, sem gefur tilefni til fremur dap- urlegra hugleiðinga um smekk þeirra og kímnigáfu. Þetta er mynd sem á skilið að vera mikið sótt og hvort sem hún vekur hrifningu þina eða andúð, þá hlýtur hún að vekja hugsun þína. Pétur Óiafsson. áttu. Á þeim vettvangi, sem undir- ritaður kynntist honum bezt, meðal arkitekta ráðhúss Reykja- víkur, var Sigvaldi mikilvirkur, sérlega áhugasamur og einlægur í skoðunum sínum. — Hann var trúr köllun sinni sem arkitekt og bar mikla virðingu fyrir viðfangs efninu. — Er mikili missir að svo ágætum mönnum, hvar svo sem þeir í flokki standa. — Eftirlif- andi samstarfsmenn Sigvalda við ráðhús Reykjavíkur kveðja hann með miklurn söknuði og virðingu fyrir störfum hans, um leið og samúðar kveðjur eru fluttar öll- um saknandi ættingjum hans og vinum. Þór Sandholt. Kveðja frá Akritektafélagi lslands EINN hinn bezti og þekktasti úr hópi vorum er horfinn. Að kveldi hins 16. þ. m. lézt Sigvaldi Thordarson, arkitekt, aðeins 52 ára gamall. Eftir standa verk hans hér í Reykjavík og víðsvegar um land- ið og tala sínu máli. Vitna þau um mikið starf hæfileikamanns. Sigvaldi teiknaði fjölda húsa og mannvirkja,. ýmist einn eðá í samvinnu við aðra arkitekta. Mörg þeirra ber að telja með því bezta, sem hér hefur verið gert á þessu tímabili. Og þegar athugað er, að aðeins eru liðnir tæpir tveir áratugir síðan Sigvaldi lauk háskóláprófi í byggingarlist, undr ast maður afköstin. Verkefnin voru margþætt, svo sem íbúðarhús, skólar, skrifstofu- hús, hótel, sjúkrahús, iðnaðarhús o. fl. Sigvaldi réði yfir mikilli tækni- legri þjálfun, samhliða hinum listrænu hæfileikum og fylgdist vel með nýungum á sviði bygg- ingartækni, enda bera byggingar ingar hans vott um, að þær eru tæknilega vel hugsaðar. Hann mat gildi lista í byggingarlistinni og notaði oft sterka liti til að undirstrika lag og útlit húsanna. Sigvaldi var mikill starfsmaður og góður, hvort. sem var í starfi sínu sem arkitekt eða í félagsmál- um. Hann sat í stjórn félags vors og nefndum og vann af áhuga að félagsmálum vorum. Vér eigum á bak að sjá mikilhæfum arkitekt og góðum dreng. Vér vottum ekkju hans, frú Kömmu N. Thordarson, og öllum ástvinum hans vora dýpstu hlut- tekningu. Mætti endurminningin um Sig- valda Thordarson veita þeim huggun. Aðalsteinn Richter, formaður. ÚTBOÐ • • OIEum frjáls innflutníngur á salti til íslands — Athugasemd frá Kol & Salt VEGNA urnmæla er fram komú í fréttaauka ríkisútvarpsins í fyrrakvöld teljum vér nauðsyn- legt að birtar verði eftirfarandi leiðrétting og skýringar: 1) Það er alrangt, að einokun sé á saltinnflutningi til íslánds. Ollum sem fást við verzlun er heimilt að annast þennan inn- flutning, enda stumda hann fieiri aðilar en þeir, sem nefndir voru í fréttaaukanum. 2) Það kom skýrt fram, að nú- verandi vetrarvertíð væri sér- stæð hvað aflamagn snertir, og virtist ríkja fullur skilningur á erfiðleikum að gera að aflanum hjá hinum ýmsu verstöðvum, miðað við allar aðstæður. Hins vegar þótti það goðgá, að nægar saltibirgðir væru ekki jafnan fyrir hendi. Skýringin er þó auð- sæ og sama eðlis. Það óraði eng- am fyrir því, að með tilkomu þorsknótarinnar væri að gerast byl'ting í veiðiaðferðum, sem or- sakaði langvarandi mokafla, ef ekki heims metafla. Það er ekki einungis, að reynsla undanfar- inna ára reyndist fánýj viðmiðun, þegar vér gerðum áætlun um inn flutningsþörf á salti fyrir vertíð- ina og ráðstafanir voru gerðar í því skyni að fullnægja þesssaxú þörf, heldur hefur það komið í ljós, að auka þarf stórum salt- geymslur, ef viðhlítandi birgðir eiga að vera fyrir hendi til þess að mæta svo ört vaxandi afla- magni. Eins og málum er háttað í dag var ekki hægt að búa sig undir þennan ófyrirsjáanlega afla og eyður hafa skapazt, þrátt fyrir 30% meiri innfluting en sl. ver- tíð, vegna þess að það líður venjulega mánuður frá því að undirbúningur er hafinn um skipaleigu til saltflutninga, þar til farmurinn er kominn í los- unarhöfn. Með öðrum orðum þurftum vér að sjá það fyrir þann 20. marz sl., að metafli bærist á land 20 apríl, þegar vertíð er venjulega að fjara út. Vér teljum, að það sé ósanngjarnt að álasa oss fyrir tímabundinn saltskort á núverandi vertíð, miðað við allar aðstæður, en álítum hins vegar nauðsynlegt að hefjast þeg ar handa við undirbúning næstu vertíðar, s.vo hið sama endurtaki sig ekki. Tilboð óskast í sölu á götuljósabúnaði vegna Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Útboðsskilmálar eru af- hentir í skrifstofu vorri Vonarstræti 8. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. Stúlka óskast til skristofustarfa. Verzlunar- eða kvennaskóla- menntun æskileg. — Upplýsingar á skrifstofu okkar. NATAN & OLSEN H. F. FundarboS Stofnfundur félags til varna gegn hjarta- og æða- sjúkdómum verður haldinn í Tjarnarbæ í dag laugardaginn 25. apríl kl. 2 e.h. UNDIRBÚNINGSNEFND. Þú ætlar til útlanda í vertíðarlokin? Já, vió hjónin förum til London með Flugfélaginu. Hún til að verzla og ég til að sjá mig um í heimsborginni. Þetta kostar ekkert, Flugfélag’ð velt'r 25 % afslátt, hvorki meira né mmna en 3038 krónur fyrir okkur bæði. bað er lika nauðsynlegt að lyfta sér upp öðru hverju! Leitið upplýsinga um fágu fargjöldín hjá Flugfélaginu eða ferðaskrifstof - z/zr ICELAJVDAJFl Ný verzlun á Húsavík Húsavík, 22. apríl: — NÝ VERZLUN ve'rður opnuð á morgun á Húsavík. Ber hún nafn ið Hringey og er til húsa við Garðarsbraut 20. Húsnæðið þar hefur verið aukið og endurbætt. Hringey verzlar aðallega með tilbúinn fatnað kvenna og karla, svo og snyrtivörur. Eigandi verzl unarinnar er Stefán Benediktsson áður afgreiðslumaður. — Fréttaritari. London, 22. apríl: Sagt var í London í dag, að Sir Harold Caccia, sem um þessar mundir starfar sem ráðuneytisstjóri í brezka ut- anríkisráðuneytinu sé meðal þeirra er helzt koma til greina í stöðu framkvæmda- stjóra Atlántshafsbandaiags- ins. i:\AH ER CORDOVÖX ? ★ Cordovox er alger nýjung á sviði hljóðfærasmíði. . ★ Harmónika, sem ásamt magnara og rafeindaút- búnaði framleiðir auk tóna hamónikunnar tóna einhvers af 20 öðrum hljóðfærum. ★ Cordovox er framleitt af Scandalli stærstu har- mónikuverksmiðju Evrópu og Chicago Musical Instruments Co. U.S.A. ★ Grettir Björnsson harmónikuleikari mun kynna þetta glæsilega hljóðfæri í verzluninni í dag frá kl. 12—2. ★ Kynnið vður einm'g hið fiölbreytta úrval af Scandalii harmónikum og Amplivox mögnurum. RÍN, Njálsgötu 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.