Morgunblaðið - 28.03.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.03.1963, Blaðsíða 24
Rafmagn rofnaði á Siglufirði, kirkjuklukkur hringdu sjálf- krafa, skemmdir urðu á húsum MJÖG sterkur landskjálftakippur varð um kl. 11.15 í gær- kvöldi og varð hans víða vart á landinu. Sterkastur mun hann hafa verið fyrir norðan land eftir þeim lýsingum að dæma, sem Morgunblaðið aflaði sér í gærkvöldi og nótt. — Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar, sem Morgunblað- ið fékk um tvöleytið í nótt, átti kippurinn upptök sín í aðal- landskjálftabeltinu norður af íslandi eða í rösklega 100 km fjarlægð frá norðurströndinni, ekki langt frá Grímsey. Vitað um þrennt sem slasaðist MORGUNBLAÐIÐ náði í nótt tali af Þórði Sighvatz á Sauðárkróki. Skýrði hann frá því, að geysimikill landskjálfti hefði orðið norður á Skaga og sagðist hann vita til þess, að bóndinn á Fossi á Skaga hefði slasazt illa, þegar hann reyndi að koma sér og fjölskyldu sinni út um glugga á bænum. Mun húsið hafa leikið á reiðiskjálfi og fólkið gripið til þess ráðs að forða sér út um glugga, en bóndinn skorizt illa, og var ráðgert að flytja hann til Sauðárkróks í bíl í nótt. Þá sagði Þórður, að sprungur hefðu myndazt með niðurföllum í nýja sjúkrahúsinu á Sauðárkróki í versta kippnum. Þá fór margt fólk út úr húsunum og meiddust tvær konur, önnur datt niður stiga, þegar hún hugðist hlaupa út úr húsi sínu, en ekki var Þórði kunnugt um meiðsli hinnar. Reykvíkingar urðu kipps- ins áþreifanlega varir. Hlutir færðust úr stað í húsum og var ekki laust við að sumt fólk, sem til blaðsins hringdi, væri hálf skelkað. Á Akur- eyri og Siglufirði virðist kipp urinn hafa verið 'mun sterk- ari. Þar hljóp fólk út á götur, einhverjar skemmdir urðu á húsum, rafmagnið rofnaði um skeið á Siglufirði, og kirkjuklukkur þar tóku að hringja sjálfkrafa. Þar fund- ust enn hræringar, þegar blaðið fór í prentun. Svo og fannst kippur í Haganesvík kl. 2.05 í nótt. Veðurstofan skýrði Mhl. frá því, að styrkleiki sterk- asta kippsins hafi a.m.k. ver- ið 5 stig, og var því hér um að ræða meiri háttar land- skjálfta. Til samanburðar má geta þess, að jarðskjálftinn á Dalvík 1934, sem olli miklu tjóni, var rúm 6 stig, en þess ber þá að gæta, að hann átti upptök sín skammt frá Dal- vík, eða í aðeins 20 km fjar- lægð frá bænum. Hér á eftir fara frásagnir fréttaritara Mbl. og þeirra, sem blaðið náði tali af í gær- kvöldi. Forseli íslonds i opinbern heimsókn til Bretlnnds | FORSETA ÍSLANDS ogl frú hans hefur borizt boð \ frá brezku ríkisstjórninni t um að koma í opinbera I heimsókn til Bretlands áí hausti komanda. t Hafa forsetahjónin þegið í boðið. Síðar mun verða á- i kveðið nánar um heim- sóknartímann. Skrifstofa Forseta íslands. REYKJAVlK: Fólk, sem býr á efstu hseðum há- hýsisins að Sólheimum 23, hringdi í Veðurstofuna og skýrði frá því, að þar uppi hefði kippurinn verið svo sterkur, að rúm hefði færzt úr stað og lausir munir hvers kon ar verið á hreyfingu. Þá var hringt frá húsi einu i Smáíbúðahverfi til Veðurstofunn ar, en þar býr erlend kona. Sagð- ist hún hafa orðið mjög hrædd við kippinn og farið með börnin fram í forstofu til að geta hlaupið með þau út ef jarðskjálftinn héldi áfram. Þetta eru dæmi um verkanir jarðskjálftans í Reykjavík, en fjölmargir hringdu til Veðurstof unnar og blaðanna og höfðu svip aðar sögur að segja. M.a. hringdi slökkviliðsmaður til Morgunblaðs ins, en hann var staddur á 3. hæð hússins að Skúlagötu 58 er kipp urinn var. Hann sagði, að ljósa- krónan í loftinu hefði sveiflazt til, myndir skekkzt á veggjum og fólk ruggað til í stóluim. Akureyri: Fréttaritari Morgunblaðsins á Akureyri, Sverrir Pálsson, hringdi til Mbl. skömmu fyrir mið nætti í nótt og kvaðst þá fyrir nokkru hafa átt tal við Árna Frið geirsson, bryta og húsvörð í Menntaskólanum, sem fylgist með jarðskjálftamælinum þar í hús- inu. Sagði hann að Akureyringar heíðu orðið varir við mjög harð an jarðskjálftakipp um kl. 11,15 í gærkvöldi og stóð aðalkippurinn j í eina til tvær mínútur. Síðan ' fylgdu tveir vægari í kjölfarið. Fólk hefur ekki haldizt við inni í húsum, sagði Sverrir, og æði margt beðið átekta úti á götum eða við útidyrnar, enda ekki á- rennilegt að vera innan dyra eins harður og jarðskjálftinn var. Hér í mínu’ húsi, sagði fréttaritarinn, lék til dæmis allt á reiðiskjálfi. Árni Friðgeirsson skýrði mér frá því, að nálin á jarðskjálfta- mælinum eigi að sýna dálitla hræringu áður en aðalútslagið kemur, ef kippurinn á upptök i fjarlægð, en nú brá svo við að mælirinn fór alveg úr sambandi og tók nokkurn tíma að koma honum í samt lag aftur. Hyggur hann því, að aðalupptökin séu hér í nánd. Siglufjörður og Eyjafjörður: Sverrir Pálsson hringdi aftur til Mbl. í nótt og sagðist hafa haft samband við Siglufjörð, þar sem hann talaði við HaLldór Gestsson á símstöðinni. Klukkan var þá 00.30. Halldór sagði, að fólk hefði orðið skelkað á Siglu- firði, enda hefði rafmagnið farið og bærinn mynkvast um stund, kirkjuklukkur farið að hringja sjálfkrafa, og fólk hlaup- ið út úr húsum, einkum þeix, sem búa við fjallsræturnar, af ótta við skriðuföll, en þó var ekki vitað til að nein skriða hefði fallið. Sagði Sverrir, að ekki hefði hann náð í Ólafsfjörð, en vitað væri að þar hefði rafmagnið einnig farið. Þá sagðist hann hafa náð sam- bandd við Þorstein Valdimarsson í Hrísey: ,Kippurinn var ekki harður hér, en langvinnur hrist- ingur“, sagði Þorsteinn. Ennfremur náði Sverrir í Grenivík og talaði við Magnús frá Skógi. Hann lýsti kippnum mjög sterkum, allt iék á reiði skjálfi, nótnabunki féll af orgeli hans niður á gólf, og hlutir úr skápum. „Og nú kemur einn kippur", sagði Magnús. „Ég leit á klukkuna", sagði Sverrir, “og hún var 00.01, en rétt skömmu síðar fann ég kippinn hér á Ak- ureyri, svo augljóst er, að hann hefur fundizt tæpri mínútu fyrr í Grenivík en hér á Akureyri. Við fyrri frétt mína héðan get ég bætt því við, að þær skemmdir urðu í sterkasta kippnum að reykháfur hrundi í Hafnarstræti 105.“ Breiðamýri: Loks talaði Sverrir við Ingu Jósefsdóttur á Hreiðamýri og sagðist henni svo frá: Rétt áður en hörðustu kipp- irnir komu sáu tveir menn blossa á suðurloftinu og fannst öðrum þeir vera hvítir en hinum dá- lítið rauðleitir. Ég talaði austur í Mývatns- sveit og höfðu þeir ekki séð neitt óvenjulegt þar í kvöld, en höfðu tekið eftir óvenjulegum bjarma fyrir nokkrum dögum í átt til Öskju. Ekki kváðust Mý- vetningar hafa orðið varir við ösku eða neina brennisteinisfýlu. Kippirnir urðu það harðir á Breiðumýri, að bækur duttu úr skápum, veggljós datt á gólf og myndir skekktust á veggjum. fsafjörður: ÍSAFIRÐI, 27. marz. Hér varð harkalegur og lang- TAUGAVEIKI kom uPp fyrir nokkrum vikum í svissneska skiðabænum Zermatt, en síðar fór að bera á veikinni í Suður- Englandi, New York og loks hef ur eitt tilfelli komið fram í Dan- mörku. Morgunblaðið átti tal við land- lækni í gær, dr. Sigurð Sigurðs- son, og spurðist fyrir um, hvort íslenzk heilbrigðisyfirvöld hefðu ur jarðskjálftakippur kl. 23.16. Telja menn, að hann hafi varað um hálfa aðra minútu. Fólk vaknaði, og margt manna hljóp út á götur með börn sín 1 fang- inu. Ekki er mér kunnugt um skemmdir, en allt lauslegt í hill- um dansaði til og frá, svo að ekki er ólíklegt að eitthvað hafi brotn að, t. d. í verzlunum. — Garðar. Varmaiand í Stafholtstungum: Hér varð mjög snarpur jarð- skjálftakippur kl. um 23.16 og stóð lengi. Hér í skólanum lék allt á reiðiskjálfi, lausir munir kipptust til, og skólastúlkur hrukku úr fastasvefni. Ein kennslukona hér var á sínum tíma stödd í barnaskólahúsinu á Hnífsdal, þegar það fauk. Fékk hún taugaáfall við kippinn núna í kvöld. — E, Pá. Selfoss: Síimritarinn, sem var á vakt um miðnætti á Selfossi, sagði Morgunblaðinu, að hann hefði orðið var við jarðskjálftaikipp um kl. 11,17. Hann hafi verið heldur vægur og sér virzt hann standa all lengi. Kvaðst simritar- inn ekki hafa tekið eftir því að hlutir hreyfðust úr stað, en hann hefði aftur orðið var við minni kipp um 10 minútum eftir þann fyrri. Morgunblaðið átti einnig tal við ÓLa Þ. Guðbjartsson, kenn- ara á Selfossi. Hann kvaðst hafa orðið var við kippinn um kl. 11.20 eða um það bil. Hann taldi að kippurinn hefði verið fremux vægur og varð þess ekki var að hlutir færðust úr stað. Seyðisfjörður og Egiisstaðir Á Seyðisfirði var búið að loka símstöðinni en þó tókst að ná gert nokkrar ráðstafanir vegna veikinnar. Landlæknir sagði, að hann vissi ekki til þess, að íslendingar hefðu dvalizt í Zermatt. Engar ráðstaf anir yrðu gerðar hér fyrr en til- fella yrði vart. Landlæknir sagði ennfremur, að bólusetning gegn taugaveik- inili væri til, en til hennar yrði ekki gripið fyrr en í síðustu lög, þar sem fólk yrði yfirleitt veikt af slíkri bólusetningu. sambandi við símritara þar. Hann sagði að hann og fleiri hefðu verið að vinna í sí.mstöðvarhús- inu, en enginn orðið var við jarð skjálftakipp. Símritarinn hringdi til f!ug< turnsins á Egilsstöðum og spurð- ist fyrir um, hvort nokkur þar hefði orðið var við kippinn, en svo var ekki. Þetta voni einu staðir-nir, sem Mbl. tókst að ná sambandi við á Austfjörðum um miðnætti j gær. Kefiavík: Hringt var til Morgunblaðsins frá Keflavík og Keflavíkurflug- velli eftir jarðskjálftakippinn og urðu menn greinilega varir við hann þar. Myndir skekktust á veggjum og hlutir hreyfðust úr 'stað. Kippurinn var snarpur og hans varð vart víðar á Suðurnesj- um, svo sem í Hafnarfirði. • SIGLUFJÖRÐUR: Síðustu fréttir frá Siglu- firði: Stefán Friðbjarnarson frétta ritari Mbl. á Siglufirði símaði í nótt, að skömmu fyrir kl. 2 hefði enn fundizt kippur þar í bæ, en vægur. Sterkasti kippurinn stóð yfir í 2—3 mín- útur. Þá léku hús hér á reiði- skjálfi. Húsin Túngata 10 og Túngata 10B sem eru sam- byggð steinhús löskuðust í harðasfa kippnum og mynd- aðist smárifa á samskeytum þeirra sem er um 2 metra löng og 4—5 sm breið. Einnig mun reykháfur hafa hrunið á einu íbúðarhúsi, Hvanneyrar braut 5B. Ekki er vitað um slys á mönnum á Siglufirði. Þotur sáu blossa SAMKVÆMT upplýsingum frá Keflavíkurflugvelli urðu vamar- liðsþotur, sem staddar voru i nágrenni Hornaf jarðar, varar við eldblossa í suð-vestri. Sáu flug- mennirnir engin ský, sem líklegt þótti að eldingar hefðu komið frá en ekki gat Veðurstofan skýrt frá því í nótt, hvað hér væri um að ræða. Fann kippinn úti á sjó Skipstjóri á einum Siglufjarð- arbátnum, sem kom úr róðri i gærkvöldi, kvaðst, þegar hann kom að landi á Siglufirði eftir miðnætti í nótt, greinilega hafa fundið mikinn landskjálftakipp er hann var á leið til lands. Engar ráðstafanir hér vegna taugavelki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.