Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1967, 5 Æskufólk fær aögang að tveim samkomusölum í Templarahöllinni BLAÐAMAÐUR við Mbl. skoð- aði nýlega húseign Góðtemplara- reglunnar, sem verið er að hyg'g.ia á Skólavörðuholtinu á horni Eiríksgötu og Baróns- stígs. Hófust byggingar- framkvæmdir í ársbyrjun 1963 og er unnið að því að húsið verði fullgert á hausti komanda. Mun æskufólk Reykja víkur ásamt Góðtemplararegl- unni hafa þar aðgang að tveim ÚR CLLUM ÁTTUM komusölum, en Góðtemplara- reglan mun reka skemmtanir fyr ir æskufólkið í samráði við Æskulýðsráð Reykjaívikur. í byggingunni hittum við fyrir Svein Helgason, stórkaupm. sem etr einn af Stjórnarmeðlimum Templarahallarinnar. Hann sýndi okkur húsið sem er þrjár hæðir ásamt kjallara. Er það mjög nýtízkuleg og falleg bygg- ing. í kjallar hússins, sem er um 520 ferm. verður samkomusalur um 200 ferm. að stærð, stórt eld- húsi, sem er fyrir allt húsið (gengur lyfta frá því á efri hæð- irnar), tvö snyrtiherbergi, mið- stöðvarherbergi, herbergi fyrir loftræstingartæki, sem eiga að vera mjög fullkomin og skapa mátulegt hita- og rakastig í söl- um hússins. Þá eru þar einnig tvö minni herbergi. — Á fyrstu hæð hússins sem er um 420 ferm. verður glæsilegur samkomusalur með gluggum á þrjá vegu, suður, norður og austur, og parketgólfi. Þá verða þar tvö snyrtiherbergi, fatageymsla og skrifstofurher- bergi. Önnur hæð, sem er um 400 ferm., verður eingöngu til afnota fyrir Góðtemplararegluna. Þar verður fundarsalur, kaffi- stofa, minni fundarherbergi og skrifstofa Stórstúkunnar auk tveggja snyrtiherbergja. Þriðja hæð, sem einnig er um 400 ferm. var fullgerð í júní sl. Er hún mjög smekklega innréttuð sem skrifstofuhæð og er nú leigð Hagtryggingu H/F og Félagi ísl. bifreiðaeigenda til 5 ára. Gat Sveinn þess að hæðin væri leigð nú til að létta undir reksturs- kostnaði hússins. Gengið verður inn í bygging- una frá Eiríksgötu og komið inn í fallega og bjarta forstofu. Létt- byggður breiður stigi úr óeldfim um harðvið, nær frá kjallaran- um og upp á 3. hæð. — Verður húsið allt olíukynt. Sveinn veitti góðfúslega upp- lýsingar um bygginguna og þá starfsemi sem enn er vitað til að rekin verður í húsinu. Fara hér á eftir svör hans við spurning- um blaðamanns. — Um áramótin 1962—63 fóru fram samningar við Borgarstjórn um að Borgarstjórn keypti Frí- kirkjuveg 11 af Góðtemplara- reglunni og í ársbyrjun 1963 hóf- um við byggingarframkvæmdir á lóð þeirri er Borgarstjórn Reykjavíkur hafði úthlutað Góð- templarareglunni á Skólavörðu- holti á horni Eiríksgötu og Barónstígs. Hafa byggingafram- kvæmdir staðið yfir svo til lát- laust síðan eftir því sem pen- ingar hafa verið til. Hefur þar fyrst og fremst verið um að ræða söluverð á eigninni við Frí- kirkjuveg 11 ásamt byggingar- sjóði, sem Góðtemplarareglan átti. Ennfremur lán, sem húsráð- ið hefur útvegað og nokkur hundruð þúsund frá stúkum, stúkuf élögum og vinveittum aðil- um utan reglunnar í formi svo kallaðra gjafabréfa, sem eru undanþegin skatti. Stendur sú söfnun ennþá yfir og er tækifæri fyrir þá, sem vilja styðja og efla bindindisstarfsemi að kaupa þessi gjafabréf. Eru þau seld m. a. á skrifstofu Stórstúku ís- lands í Lækjargötu 10 a. Þá hefur Borgarstjórn Reykjavíkur þegar styrkt okkur með 200 þús. kr. á ári sl. þrjú ár og Alþingi með 400 þús. kr. á ári tvö síðastliðin ár. — Áður en gengið var frá sið- ustu fjárlögum ríkis og Reykja- víkurborgar hafði húsráð Templ- arahallarinnar átt mörg viðtöl við borgarstjóra í sambandi við fjárútvegun til byggingarinnar og hafði hann alltaf tekið okkur vel og viljað aðstoða okkur. Stakk hann upp á að hann og húsráð Templarahallarinnar hefði samband við dómsmála- ráðherra og fjármálaráðherra til að athuga möguleika á því að Al- þingi og Reykjavíkurborg hækk- uðu byggingarstyrki hússins, Reykjavíkurborg úr 200 þús. kr. í 500 þús. kr. næstu 3 ár, Al- þingi úr 400 þús. í eina milljón í þrjú ár. Þannig að möguleikar væru á því að koma byggingunni í notkun á hausti komanda. — Þaá hefur alltaf verið til umræðu að í húsinu yrðu tveir glæsilegir samkomusalir, sem æskufólk þessarar borgar hefði aðgang að ásamt Góðtemplara- reglunni, enda mun hún reka þarna áfengislausar skemmtanir í samráði við Æskulýðsráð Reykjavíkur. Ráðherrarnir tóku málaleituninni vel og fengu Al- þingi til að hækka styrkinn í eina milljón. Ennfremur fékk Borgarstjóri Borgarstjórn til að hækka styrkinn í 500 þús. krón- ur. — Ég er ekki í nokkrum vafa um það að ungt fólk getur skemmt sér vel án áfengis sér- staklega ef því eru sköpuð góð Sveinn Helgason, storkaupmaður, einn af stjómarmeðlimum Templarahallarinnar. ý ' ■■ - •.; k ' • ý ; mmm TemplarahöUin á Skólavörðuholtinu. f Templarahöllinni er léttbyg gður breiður stigi af nýjustu gerð. Er hann úr óeldfimum harðvið. skilyrði. Góðtmplarareglan með sitt litla húsnæði í Templara- sundi hefur ekki getað nema mjög takmarkað laðað unga fólk ið til sín — að miklu leyti vegna þess að húsakynni hennar hafa ekki staðizt samkeppni við full- komna skemmtistaði hér í borg- inni, — og trúi ég því ekki að æskan vilji helzt skemmta sér þar, sem áfengi er haft um hönd. Ég hef oft mætt á skemmtanir hjá Ungtemplarafélaginu Hrönn og séð hvernig unga fólkið þar hefur skemmt sér vel og byggt upp sin eigin skemmtiatriði, frumleg og skemmtileg. ;— Ég tel það hafa verið hamingjuspor, þegar ég gerðist bindindismaður fyrir 40 árum. Postulínsveggflísar Ensku postulínsflísarnar komnar aftur. Stærð: 7%xl5 og 15x15 cm. — Gott verð. LITAVER Grensásvegi 22 og 24. .- -......................... Nauðungaruppboð Velskipið Dalaröst NK-25, eign Meitilsins h.f., Þor- lákshöfn verður að kröfu Fiskveiðasjóðs íslands og Lúðvíks Gizurarsonar, hrl., selt á nauðungarupp- boði, sem haldið verður í skrifstofu minni, Mið- stræti 18 Neskaupstað, þriðjudaginn 28. febrúar 1967 kl. 14. Uppboð þetta var auglýst í 57., 58. og ’9. tbl. Lögbirtingablaðsins 1966. Borgarfógetinn í Neskaupstað. Farfuglar Árshátíð félagsins verður í Lindarbæ föstudaginn 24. febrúar og hefst kl. 8,30. Aðgöngumiðar fást í verzluninni Húsið, Klapparstíg. ■ Fjölmennið og takið með ykkur gesti. STJÓRNIN. Bezt ú ðuglysa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.