Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐI®, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRUAR 19«7. 23 SÍÐAN 1 XJMSJÁ BALDVINS JÓNSSONAR STORKOSTLEG STUTTU áður en Petula Clark söng lagið „Downtown" fannst henni kominn tími til að haetta að syngja„ekki haetta að fullu en smátt og smátt. Hætta að þeytast á milli heimshorna, en í staðinn eiga eitthvert einkalíf með fjöl- akyldu minni“. Þetta kom í samtalí sem blaðamaður átti við hina frægu stjörnu. I dag er hún með efsta lagið á vinsældarlistanum, og 28. apríl sjwigur hún fyrir John- son forseta í Hvíta húsinu. Lag hennar, „This ls my song“ var samið af Charlie Chaplin sem titillag í mynd hans „Greifaynjan frá Hong Kong“. Petulu gekk ekki sérlega vel á framabrautinni, þar til lag hennar „Downtown" kom til sögunnar. „Skyndilega var ég orðín stjarna, ég hafði fundið nýja heimsálfu til að sigrast á“. Petula segist hafa byrjað að syngja 7 ára gömul og að henni detti ekki í hug að hætta strax. Fyrir stuttu kom það fram i Cannes, að plötur Petulu seldust í meir en 7 milljón eintökum árið 1966, og að engin önnur einstök stjarna seldi jafnmikið af plötum. Með eiginmanni sínum, sem jafnframt er umboðsmaður hennar á hún tvær telpur, þriggja og fimm ára. Hún segist aldrei hugsa um pen- inga, af því fái hún ekkert nema höfuðverk. Samt sem áður græðir hún óhemju pen- inga, og er þar enginn eftir- bátur frægra kvikmynda- stjarna eins og Sophiu Loren o. fl. Hún á hús í París sem kost- ar £40.000 og sumarhús í Vallauris á Riviera-strönd- inni. Einnig á hún nýjustu tegund af Rolls-Royce. Hin- um miklu vinsældum, sem lag hennar, „This is my song“ hefur fengið, gerði han mjög undrandi. Lagið var upphaf- lega ætlað fyrir franskan markað, en upp á grín söng hún það einnig á ensku, og leið ekki á löngu þar til lagið komst í efsta sæti, Foreldrar hennar eru mjög ánægðir, yfir hve dóttur- inni gengur vel og hún hefur samband við þau reglulega. Hún segir að formúla fyrir lögum sínum sé, léttur og líf- legir taktur, góðir textar og söngvar fullir af gleði, og eftir vinsældunum að dæma virð- ist formúlan vera rétt. Hún var einnig spurð að því, hvernig hún myndi taka því, ef frægðin hyrfi á brott, ■Petula svaraði, að henni yrði alveg sama, „þvi að ég á mína fjölskyldu og það er fyrir öllu“. MICHAEL CAINE Aldur 33 ár. Hæð 185 cm. Háralitur: ljósleitur. Augu- Blá. Æviágrip. Bjó til einstaklega góðar ávaxtakökur áður en hann byrjaði að leika í kvik- myndum árið 1953. Hann býr nú í lúxus íbúð í London og segir að aðalánægja sín í lífinu sé pen- ingar, tea, hávær hljómlist (músik) og að framleiða kvik- myndir sjálfur. Fyrsta stórmynd: The Ipcress File. Næsta mynd: Hurry Sundown. SVÖR VIÐ SPURNINGU VIKUNNAR Svörin við spurningu vikunnar, um óróa unga fólksins er kom á síðunni þernn 11. þ.m. voru öll á þann veg, að það hefðu verið bítla-tónleikarnir, sem haldnir voru í Austur- bæjarbíó. Þetta var það, sem allir vissu og það sem við vild- um fá fram, var það, hvort eitthvað hefði verið gert á hlut unglinganna, eða hvort þetta hefði verið nokkurskonar „út- rás“ sem unglingarnir hefðu þurft að fá. Þó fengum við eitt svar frá ungri stúlku ofan úr Mosfellssveit, sem telur orsakirnar vera þessar: agaleysi á heimilum fjölmargra ungl- inga, eirðarleysi sjálfra unglinganna, of mikil fjárráð ungl- ingnna og að lokum, enginn samastaður fyrir unglingana. Einnig taldi hún vera til mikilla bóta, tillögu tveggja þing- manna um stórt samkomuhús fyrir unglingana. ísland: 1. (1). I,m A Reliever .................. Monikees 2. (4). Oh What A Kiss ....... The Rocking G'hosts 3. (-). Party Line .................. The Kinks 4. (-). Let’s Spend the Night Together Rolling Stones 5. (3). Dandy ...................... The Kinks 6. (-). Rugby Tuesday ............. Rolling Stones 7. (2). Happy Jack .................... The Who 8. (6). In The Country ............. Cliff Richard 9. (7.) Friday On My Mind ...............Easybeats 10. (10). East West ............ Herman’s ^lermit’s England: 1. (1). This Is My Song ............ Petula Clark 2. (4.) Reiease Me ...... Engelbert Humperdinck 3. (2). I’m A Believer .................. Monkees 4. (-). Here Comes My Baby ............. Tremeloes 5. (5). Let's Spend The Night Together . Rolling Stones 6. (8). I’m A Man ................. Spencer Davis 7. (3). Matthew And Son ............. Cat Stevens 8. (-) Panny Lanc/Strawberry Fields For ever ..................... The Beatles 9. (-). Peek-A-Boo ........ New Vaudeville Band 10. (-). I Won’t Come In While He’s There Jim Reeves „H0RNAUGAÐ" KVIKMYNDAGAGNRYNI UNGA PÓLKSINS Björn Boldurston Þórdur GuSmundsson GÓÐIR lesendur. Áður er kvikmyndagagnrýni okkar hefst íhér á síðu unga fólks- ins, þykir tilhlýðilegt að gera grein fyrir tilbomu hennar og markmiði. — Það er stað- reynd, að æskan er sú kyn- slóð, sem einna mest sækir kvikmyndahús. Nú, þegar þau eru orðin fjölmörg og úr- val kvikmynda enn meira, reynist því mörgum erfitt að velja úr og hafna. Við mun- um reyna, eftir fremsta megni, að vera réttlátir og koma á framfæri almennum skoðunum verðandi kvik- myndir .hverju sinni, ef það mætti verða einhverjum til gagns og ef til vill örlítillar ánægju. Við munum leitast við að hafa greinarkornin sem fjölbreytilegust og aðgeng:- leg og vonum að tilraunin falli í góðan jarðveg. Tónabíó: Vegabréf til vítis. ítölsk, enskt tal, danskur texti. Upphaf og söguþráður. Bandaríkin og Rússland hafa misst nokkra leyniþjónustu- menn á dularfullan hátt. Leyni- þjónustur beggja landa taka höndum saman, um að koma í veg fyrir frekara manntjón. Bandaríkjamenn leggja til hetjuna, setta til höfuðs glæpa- flokki þeim, sem valdur er að morðum leyniþjónustumann- anna. Náunginn er harðdugleg- ur, og svo snjall í höfðinu, að ekkert kemur honum á óvart. Meira þarf ekki að segja um efni myndarinnar. Allir geta ímyndað sér framhald sögunnar og endalok. Taka myndarinnar er nokkuð mmm Á LAUGARDAGKVÖLDIÐ var fslandsmótinu haldið áfram, og voru þá leiknir eftirtaldir leikir, 2. flokkur kvenna, Valur — Vík- ingur og vann Valur þann leik með eins marks mun, eða 4:3. í annari deild kvenna vann Breiðablik Grindavík 16:6. í fyrsta flokki karla voru háð- ir 2 leikir, F.H. vann Ármann 11:8 og Vikingur vann Val 13:10. góð og litir ágætir. Efnisþráður- inn slitnar nokkrum sinnum ger- samlega í sundur, þannig að líkja mætti við, að nokkrir kaflar væru rifnir innan úr miðri skáldsögu. Leikararnir eru flest- ir ásjálegir, en leikurinn oft á tíðum svo ósannfærandi að spennan fellur gersamlega niður í ekki neitt. Áhorfendur leyfa sér til dæmis, að hlæja góðlát- lega að mörgum glæsilegustu höggunum. Uppfærsla atriða virðist miða að þvi að gera myndina for- vitnilega, jafnt fyrir unga sem gamla. Meðferðin er þó þannig, að myndin verður ekki talin góð. En allsæmileg kvöldskemmtun er hún, fyrir tæpar fjörtíu krón- ur. Viðtöl. Að sýningu lokinni leituðum við álits tveggja kvikmyndahús- gesta á því, sem fyrir augu hafði borði. Kristján Jessén, nem- andi í M.R., kvað of mikið af grófum morðum og myndin I heild væri lélegri en aðrar ámóta. Sólveig Svavarsdóttir áleit myndina ágæta, svona til að koma manni í gott skap og aðalleikarinn væri fallegur i framan. Aftur á móti væri myndin illa leikin. /• SCPHIA LOREN Aldur: 32 ár. Hæð: 172.5 cm. Háralitur: Dökkbrúnn (hnetu- brúnn) Augu: Brún. Æviágrip: Sophia Loren ólst upp við mikla fátækt í Napólí, kom fram í aukahlutverkum í kvik- myndum 14 ára gömul, og varð síðan fræg fyrir kynþokka. Hún er, gift kvikmyndaframleiðand- anum Carlo Ponti, og lifa þau kyrrlátu heimilislífi og eru lát- laus í klæðaburði. Frægustu myndir: E1 Cid, The Gun, Two Women, Marriage Italian Style. Næsta mynd: Countless from Hong Kong.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.