Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1967. 31 H.2.11Í7, KL.I/ V” **• KLUKKAN 14 var A- ogNA- hins vegar eins til fimm stiga Ý átt hér á landi. Á Kili og hiti og úrkomulaust. | % Stórhöfða voru 8 vind'stig og Lægðin suður af landinu ❖ *;• víða 5 til 7. Norðan og austan grynnist en færist lítið úr lands gékk á með éljum, og stað. Því er gert ráð fyrir % $ þar Var víðast eins tií fimm hægri austlægri átt í dag og ❖ stiga frost. Sunnar.Iands var svipuðu veðurfari. .;. *•* ♦*• - ALÞINGI Framhald af bls. 8 í sambandi við björgun eða að- stoð, að það sé viðurkenningar- vert. Þess vegna höfum við lagt til að niður falli þau gömlu á- kvæði, sem segja, að af hluta áhafnar megi greiða, áður en skipti fari fram, ákveðna fjár- hæð að dómi skipherra, til þeirra, er mest hafa lagt sig fram við björgunina, én í stað- inn komi ný ákvæði, sem heim- ili yfirstjórn Landhelgisgæzlunn ar að greiða af hluta landhelgis- sjóðs ákveðna fjárhæð til þeirra, er mest hafa lagt sig fram við björgunina. Við gerum af ásettu ráði ráð fyrir því, að það sé yfir- stjórn Landhelgisgæzlunnar, sem hafi þessa heimild, en ekki skip- herrann, kannski í þeim tilfell- um, sem þekkt eru, orsakað það, að þeir hafa sjálfir skorizt úr leik í sambandi við þessa viður- kenningu, en það teljum við alls ekki vera rétt og höfum þá fylli- lega haft hliðsjón af þeirri skyldu, sem á þessum manni hvíl ir um borð í einu skipi og þó kannski sérstaklega á skipum Landhelgisgæzlunnar, þannig að með því að setja þetta ákvæði inn þannig orðað, teljum við tryggt, að í þessum einstöku til- fellum, sem gert hefur verið ráð fyrir fram til þessa, að hægt væri að verðlauna einstaklinga um borð í þessum skipum, verði það tryggt áfram, en við bætist, að það sé hægt jafnframt að tryggja skipherrann og ég held, að það sé þannig í huga allra þeirra, ''sem í allsherjarnefnd deildarinnar eru, að það sé þeirra vilji, að þetta sé fram- kvæmt þannig. En fram til þessa hefur eldra ákvæði gildandi laga ekki verið notað. - AFMÆLI Framhald af bls. 14 störf hans hér áður og fyrr í stúkunni, vill hann lítið um það tala, en segir að þar hafi Krist- jana kona sín unnið að ekki síð- ur ásamt mörgu sínu nánasta skylduliði, sitt framlag hafi ekki verið meira en annara. Kona hans er nálæg og brosir við og þau hvort til annars. Hún varð 81 árs á s.l. ári. Þau eru búin að þola margt og njóta margs í sameiningu í 56 ár. Það er áreiðanlega happasælast fyrir hvern og einn að temja sér bind- indi, segir Halldór, það er heilla- ríkast fyrir einstaklinginn, heim- ilið og þjóðfélagið, þó sumir virðist vera á annari skoðun. Við kveðjum og göngum út á húströppurnar, orðið er dimmt af nóttu. Það er svali af flóanum og það heyrist bárugjálfur frá vörinni. Það er ljós niður við sjávarhúsið og verið er að gera að afla. — Og þá er ein spurning að lokum; hvað er að segja um landhelgina og sjávarútveginn. — Landhelgina, segir Halldór og réttir úr sér, hærur hans bærast í þorrakulinu er hann hvessir gömul sjómannsaugu út yfir náttmyrkann flóann. — Það er búið að opna hana of mikið, fló- inn okkar er ekki nógu vel var- inn. Það á að loka fyrir snurru- voðina, þetta er rányrkja gagn- var ungviðinu og rányrkja borg- ar sig aldrei, — en það eru nú annars ekki allir sammála um það, bætir hann við og brosir. Við kveðjumst og ég stíg upp í bílinn. Og er bíllinn rennur af stað úr hlaðinu í Vörum minnist ég þessarra 600 milljóna sem ríkið okkar heimti inn af þegn- um sínum síðastliðið ár fyrir áfengi, og hversu mikið skorti á að ungviðið, bæði í sjó og á landi, nyti verndar þeirra reyndu og vitibornu, — og mér varð á að hugsa: Mundi Halldór ekki vera mér samþykkur um það, að þetta væri rányrkja líka; — en það yrðu nú ekki allir sammála um það heldur. Ég flyt Halldóri í Vörum heillaóskir og þakkir og vænti þess að hann bíði fagurt ævi- kvöld og að hann fái að sjá það rætast að forráðamönnum þjóð- ax; okkar lærist betur en nú er, að vernda ungviðið, í sjó og á landi, til aukinni velgegndar landi og lýð um ókomin ár. Indriði Indriðason. - ÍÞRÖTTIR Framhald af bls. 30 26—16 fyrir ÍKF og höfðu þeir þá þegar náð því forskoti sem tryggði þeim sigur. Ármenning- arnir náðu reyndar að minnka bilið undir lok leiksins en góð- ur endasprettur ÍKF manna inn- siglaði réttlátan sigur þeirra. Ár- Lið Ármanns átti slæman leik þetta kvöld og má sannarlega gæta að sæti sínu í deildinni ef ekki rætist úr leik þess, sem þó eru líkur fyrir þegar Birgir og Hallgrímur ná fullri heilsu. ÍKF liðið sýndi mjög góðan baráttu- vilja og léttan leik. Hilmar með 16 stig og Guðjón með 13, áttu mestan þátt í skoruninni en liðið I heild barðist mjög vel og átti góðan varnarleik, ekki sízt akkeri liðsins, þjálfari og upp- byggjari gegnum árin, Ingi Gunnarsson. - 10 ÁRA AFMÆLI Framhald á bls. 25 Mr. Carroll Foster, forstöðumað- ur Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna, Mr. Frank Ponzi, Iistfræðingur, Mr. Charles E. Luckett jr„ sendiráðsfulltrúi, Ragnar Stefánssón, menntaskólakennari. Varamenn eru Birgir Thor- lacius, ráðuneytisstjóri, og Orton Hicks, blaðafulltrúi. Fyrsti framkvæmdastjóri Menntastofnunarinnar var frú Doris Finnson, til 1. apríl 1964, en síðan þau John Berg (1964—• 1966) og frú Betty Þorgilsson. Ennfremur starfar nú hjá Ful- bright-stofnuninni frú María Hreinsdóttir. Fulbright-stofnunin minnist 10 ára afmælisins með sérstakri athöfn í hátíðasal Háskólans, miðvikudaginn 22. febrúar kl. 5,15, og verður aðalræðumaður J. William Fulbright öldunga- deildarþingmaður. (Frá Fulbright-stofnuninni). - KÍNA Framh. af bls. 1 um frá Sinkiang í vestri til Heil ungkiang við landamæri Síberíu. Margt bendir og til þess að fjöl- margir bændur og verkamenn hafi yfirgefið vinnu sína í landa mærahéruðunum. Peking-stjórnin hefur nú byrj- að að draga úr menningarbylt- ingunni, þessu geysiumfangs- mikla þjóðfélagstfyrirbrigði, þar sem stuðningsmenn Maós, RauðU varðliðarnir, hafa hrifsað valdið úr höndum flokksins og embættis manna hans um landið gjörvallt. Boðar Dagbl.að Alþýðunnar, mál gagn kommúnistaflokksins, nýtt tímabil og virðist forsætisráðherr ann Chou En-lai nú hafa töglin og hagldirnar í landinu, en hann hefur eftir öllu að dæma meiri áhuga á raunhæfri stjórn en stjórnmálalegum fræðikenning- , um. Kemur þetta heim og saman við það, að varnarmálaráðherran Lin Piao er horfinn úr sviðsljós- inu og hefur ekki til hans spurzt í þrjá mánuði. Moskvuútvarpið sagði í kvöld, að hersveitir Maós hafi tekið á sitt vald borg eina í Szechwan héraðinu. Japönsk útvarpsstöð Skýrði einnig frá því, að vand- ræðaástand ríkti í héruðunum Fukien og Shantung og í borg- inni Tientsin. Moskvu-útvarpið sagði, að í Honanhéraðinu hefði herinn gengið í bandalag með andstæðingum Maós í tveimur stórum borgum. Útvarpið sagði, að liðsauki hfði verið kvaddur í flýti til hafnarborgarinnar Tients in í NA-Kína, en stuðningsmehn Maós gætu ekki náð þar undirtök unum. Útvarpið skýrði einnig frá fleiri héruðum í Miðaustur-Kína þar sem ríkir hernaðarástand og andstæðingar Maós hafa undirtök in. - GENF Framh. af bls. 1 fyrir ráðstefnuna bent banda- rískum embættismönnum á at- hugasemdir Roschins varðandi Vietnam-málið og bandarískar heimildir segja, að ekki sé álit- ið að þær muni standa í vegi fyrir að sáttmálinn verði gerð- ur. Kiesinger forsætisráðherra V- Þýzkalands sagði í ávarpi í v- þýzka útvarpinu í dag, að bann við dreifingu kjarnorkuvopna væri ekki raunverulegt afvopn- unarmál. Kjarnorkuveldin mundu eftir sem áður halda hin um miklu kjarnorkuvopnabirgð- um sínum og þau gætu bætt við þær hvenær sem væri. Hann sagði að ríkisstjórn sín mundi beita sér fyrir því að fyrirhug- aður sáttmáli muni ekki hindra v-þýzkar rannsóknir og efna- hagsþróun. „Við göngum ákveðnir að þessu máli“, sagði Kiesinger, „og munum ekki gangast inn á neina hættulega samninga.“ Kiesinger sagði ennfremur, að þótt hér væri ekki um af- vopnunarmál að ræða gæti sátt málinn ef til vill gert sitt til að tryggja heimsfriðinn og leitt til eftirlits með vígbúnaði, en þá einungis með þeim fyrir- vara að hagsmunir allra landa verði teknir með í reikninginn. Sagði hann, að hið raunveru- lega vandmál og mikilvægasta verkefnið á okkar tímum væri að stöðva vígbúnaðarkapphlaup kjarnorkuveldanna. Meðal fundarmanna á Gen- far-ráðstefnunni er sagt, að vegna þess óróa, sem orðið hafi hjá þjóðum, sem ekki hafa kjarnorkuvopnum að ráða, hafi Bandaríkin og Stóra-Bretland ákveðið að leggja ekki fram samningsuppkast gegn dreifingu kjarnorkuvopna í byrjun ráð- stefnunnar. Á meðan munu Vesturveldin tvö með samninga viðræðum reyna að bæla niður óttann hjá kjarnorkuvopnalausu löndunum við að sáttmálinn muni þýða, að rannsóknir þeirra á friðsamlegri hagnýtingu kjarn orkunar verði stöðvaðar. Kiannur blaðamaður lórst í S-Vietnam Saigon, 21. febrúar (AP). HINN víðkunni blaðamaður og rithöfundur dr. Bernard B. Fall fórst, í dag af völdum jarð- sprengju, er hann var á könnun- arleiðangri ásamt bandarískum hermönnum í norðurhluta S- Vietnam. Dr. Fall var einn f r e m s t i Vietnam-sérfræðing- ur heims og fylgdist einnig með erfiðleikum Frakka i Vietnam á sínum tíma. Dr. Fall. skrifaði bækur um Vietnamstríðið: „The Two Vi- etnams", og „Street Without Joy“. Einnig ritaði hann bókina „Indo-China at War“. Dr. Fall er einn af fáum vestrænum blaðamönnum, sem fengið hefur tækifæri til að ræða við Ho Chi Minh forseta N-Vietnam. Dr. Fall var prófessor í alþjóð- I legum viðskiptum við Howard I háskólann í Washington D. C. Dr. Bernard B. Fall Vísa á bug fregn um samningaviöræður Hanoi, Saigon, 21. febrúar AP - NTB. HANOI-STJÓRNIN vísaði í dag á bug fregnum um að hún ætti í ieynilegum samningaviðræðum við Bandaríkin. Sagði stjómin, að fregn þess efnis, að fulitrúar landanna tveggja ræddust við í Nýju Dehii væri staðleysa einber. Þessi yfirlýsing Hanoi-stjórnar- innar kom aðeins einum degi eft- ir að kinverska Alþýðulýðveldið réðst heiftarlega á mögulegar friðarumleitanir milli Hanoi og Washington. Yfirlýsing kín- versku stjómarinnar var birt í Dagblaði alþýðunnar í Peking, og er hún skoðuð sem mótmæli Peking-stjórnarinnar gegn því að Hanoi-stjómin semji, ef Banda- rikjamenn hætti loftárásum á N-Vietnam. Frá S-Vietnam berast þær fregnir að bandarískar sprengju- flugvélar hafi gert árásir á stóra n-vietnamska vöruflutningalest, sem var að flytja vopnabirgðir suður á bóginn. Eyðilögðu flug- vélarnar 86 farartæki af þeim 127 sem í lestinni voru. Að því er heianildir í Saigon herma hafa 344 hermenn Viet Cong og n-vietnömsku stjórnar- innar fallið í smábardögum víða um S-Vietnam síðan um helgi. Sömu heimildir segja að banda- rísk orrustuþota hafi verið skot- in niður yfir N-Vietnam í dag og sé áhafnarinnar saknað. Til þessa hafa Bandaríkjamenn því misst - NÝTT SKIP Framh. af bls. 32 loðnunót, og fer að því búnu á loðnuveiðar. Einig verður þorskanót um borð. - Skipstjóri á Bretting verður Tryggvi Gunnarsson frá Brett- ingsstöðum, 1. vélstjóri Sigurð- ur Gunarsson, bróðir skipstjór- ans, og 1. stýrimaður er Sævar Sigurpálsson. Framkvæmda- stjóri Tanga hf. er Sigurjón Þor bervsson. 475 orrustuflugvélar í bardögum yfir N-Vietnam. - SEYÐISFJARÐ- ARMÁLIÐ Framh. af bls. 32 isfirði eftir innbrotið, en hann er búsettur í Rvík. Mun hann hafa haldið sig í höfuðborg- inni síðan innbrotið var fram- ið, en í fyrradag fór hann til Austfjarða undir því yfir- skini að fara til annars fjarð- ar en Seyðisfjarðar. í fyrradag fór snjóbíll tvisvar yfir Fjarðarheiði, en maðurinn var í hvorugt skipti farþegi með bílnum. Hins vegar sást hann í gærmorgun rennblautur á Seyðisfriði og leit helzt út sem hann hafi gengið heiðina. Tók hann sér far með snjóbílnum til baka í gær. Mbl. hafði í gærkvöldi tal af Erlendi Björnssyni, bæjarfógeta á Seyðisfirði og staðfesti hann, að hann hefði beðið rannsóknar- lögregluna um að kveðja mann- inn til yfirheyrzlu. Lögreglunni þótti ferðalag mannsins svo grunsamlegt, að á- kveðið var að kveðja hann til yfirheyrzlu strax og hann kæmi til Reykjavíkur, og í gærkvöldi var maðurinn handtekinn að heimili sínu hér í borg. Hann hefur ekki játað neitt, en úrskurð ur um gæzluvarðhald verður gef in út í dag. Að sögn Sverris Einarssonar fúlltrúa yfirsaka- dómara leikur mikill grunur á sekt mannsins. í gærkvöldi var kveðinn upp úrskurður um húsrannsókn hjá manninum og fannst þá paki merktur FÍ (Flugfél. íslands) og í honum voru um 60 — 65 þúsund krónur. Er það um það bil hélm- ingur þess fjár, sem stolið var á Seyðisfirði. Seðlarnir voru sum- ir sviðnir og blautir, en einnig var nokkuð af smámynt. VANTAR BLADBURÐARFÓLK 1 EFTIRTALIN HVERFI: Sólheimar I Lambastaðahverfi Baldursgata Stkipholt II Skólavörðustígur Kaplaskjólsvegur Túngata Meðalholt Lautfásveg I Sjafnargata Talið við afgreiðsluna, sími 22480 i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.