Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.02.1967, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1967. - KENNEDY Framhald af bls. 10. að um samsæri hefði verið að ræða, en auðvitað hefði Warren-nefndin átt að ve'a mjög vakandi gagnvart þeim möguleika sem öðrum. Þá heldur Lane því einnig fram, að það sé ekki einleik- ið, hvernig farið hefur fyrir svo mörgum þeirra, sem vic- að var um eftir morðið, að gátu gefið vitneskju um marg víslega hluti til upplýsingar á morðinu. Alls hefðu hvorki meira né minna en 14 slíkra manna dáið með undarlegum hætti síðan 22. nóvember 1963. Allir vita, hvernig fór fyrir Oswald og Ruby, en svo eru það öll hin. Lögreglumaður- inn Tippit- var myrtur sama dag og forsetinn var myrtur, og telur Lane sig færa rök að því, að Oswald hafi ekki verið morðingi Tippits eins og almennt hefur verið álitið bæði af Warrennefndinni og öðrum. Lane nefnir konu nokkra, sem borið hefur, að Oswald hafi ekki myrt Tipp- It og skýrði þessi kona Lane frá því, að lögreglumaður hafi ógnað sér, eftir að hún hafði látið vitnisburð sinn frá sér fara. Annar maður, sem var vitni að því, er Tippit var myrtur, Warren Reyn- olds að nafni, sá mann hlaupa fram hjá, sem var með skammbyssu. Lýsing hans á byssumanninum var mjög frá brugðin Oswald og því hefði hann ekki verið fenginn til þess að benda á sökudólginn, er lögreglan lét hin ýmsu vitni benda á þann, sem þau þóttust hafa séð fremja verk ið, úr hópi manna, eins og venja er, þegar verið er að rannsaka atburði sem þennan (line-upp). Tveimur dögum síðar var Reynölds skotinn í höfuðið. Hann lifði þetta af enda þótt hann lægi um skeið fyrir dauðanum og var þið skoðun hans, að á sig hefði verið ráðizt, vegna þess sem hann sá 22. nóvemlber. Maður að nafni Darrel Wayne Garr.er var síðun handtekinn og ákærður fy.ir morðtilraun á Raynold, en síðan birtist dansmær nokkur að nafni Bettý Mooney Mc Donald með fjarverusönnun fyrir Garner þess efnis, að hann hefði verið um nóttina, sem skotið var á Reynolds hjá henni og var Garner síðan látinn laus vegna framburðar hennar einsamallar. Fáeinum dögum síðar var ungfrú Mc Donald (handtekin fyrir ósæmilega hegðun og flutt til aðalstöðva lögreglunnar í Dallas — þar sem líkami hennar látinnar fannst klukkustund síðar. Sagði lög- reglan að hún hefðd hengt sig. Ungfni McDonald hafði verið nektardansmær í nætur klúbb Jack Rubys. Mark Lane heldur því fram, að vegna atburða af þessu tagi, þá hafi íbúar Dallas, sem vissu um eitthvað, sem var í ósamræmi við hina „opin- beru skoðun" á morðinu, orð- ið hræddir við að gefa upp- lýsingar sínar og hætt við það þess vegna. Þannig hafi maður að nafni. Domingo Benavides, sem gat gefið mjög mikilvægar upplýsingar, samlþykkt að tala við Lane, en kvöldið áður en til viðtals- ins skyldi koma, birtust tveir leynilögreglumenn frá lög- reglunni í Dallas og hefðu þeir skýrt milligöngumanni þeirra Lanes og Benevides, að ekkert gæti orðið úr viðtal- inu og færi nú fram rannsókn á starfsemi Lanes. Hinn sið- astnefndi sá Benevides ekki eftir þetta, en í ljós kom, að hann hafði bókstaflega flúið samkv. frásögn tengdaföður hans, því að bróðir Benevides, sem líktist honum mjög hefði verið myrtur, eftir að Benevides hefði sagt, að það hefði ekki verið Oswald, held ur einhver allt annar, sem hann sá hlaupa burtu, þegar lögreglumaðurinn Tippit var myrtur. Þegar Benevides þvarf á brautu, hefði annar maður með suðuramerísku nafni, sem líktist nafni Bene- vides tekið við starfi hans. Ekki voru liðnar nema fáein- ar vikur, er sá maður var skotinn í höfuðið, en hann lifði það af. Lögreglan í Dall- as hefur aldrei náð að hand- taka þá, sem réðust á þessa tvo menn. Þá nefnir Mark Lane einn- ig, að strax eftir að Jack Ruby skaut Oswald, þá haíi félagi Rubys, George Senator að nafni, farið með tveimur blaðamönnum til fbúðar Rubys. Senator þessi hefur síðar gefið í skyn, að hann hafi vitað um áform Rubys um að skjóta Oswald, áður en úr því varð. Hvað Senator sagði blaðamönnum er ekki vitað, en innan fárra mánaða voru þeir báðix dauðir. Ann- ar þeirra fannst hengdur í fbúð sinni, hinn var skotinn til bana í herbergi blaða- manna í opinberri bygginga á Langasandi og sagði lögreglan að sá atburður hefði gerzt vegna mistaka. William Whaley, leigubil- stjórinn, sem átti að hafa ek- ið Oswald frá staðnum, þar sem forsetinn var myrtur, beið bana í bifreiðaárekstri og Lee Bowers, sem kvaðst hafa séð, eins og greint var frá hér að framan, reyk eða skotglampa frá gras'hólnum framundan bifreið forsetans, lét lífið nokkrum mánuðum eftir að Lane hitti hann að máli og var það einnig í um- ferðarslysL Þannig rekur Mark Lane hvert dæmið af öðru, sem hann telur, að gefi til kynna, að óþægilegum vitnum hafi verið hiklaust rutt úr vegi af þeim, sem greinilega var mik- ið í mun, að hið sanna að hans áliti kæmi ekki í ljós. Alls hefðu 14 manns, eins og greint var frá hér að framan, sem veitt gátu upplýsingar, látið lífið frá því 22. nóv. 1963, allir með óvenjulegum hættL SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM KVIKMYN ; - - -- * D 1 .. 1 R Háskólabió: NEVADA SMITH Aðalhlutverk: Steve McQueen, Karl Malden, Brian Keith o.fl. FLESTIR munu minnast kvik- myndarinnar „The Carpetbagg- ers“, sem Háskólabíó sýndi síð- astliðið sumar. >að er stórbrotin mynd, eín af minnisstæðustu myndum, sem hér voru sýndar í kvikmyndahúsum síðastliðið ár. Ofanefnd kvikmynd er gerð eft- ir sömu sögu: „The Carpetbagg- ers“ tftir Harold Robbins. Og Nevada Smitíh er einn af helztu persónunum í þeirri sögu. Munu þeir, sem sáu Carpetbaggers í sumar (eða „Fjármálatröllið" ins og myndin er víst nefnd i þýðingunni) enn minnast þess, hve rækilega hann tók „uppeld- isson“ sinn, Jónas Cord, í gegn með hnefaslætti undir lok mynd arinnar. í ofannefndri mynd hefur ver ið gripið niður framar í sögunni, BRÆÐURNIR KAMPAKATU TEIKNARI: JÖRGEN MOGENSEN ; J A M E S James Bond FLEMING f dulmálsskeytinu frá yfirmanni leyni- þjónustunnar „M“ sagði ........ að leyniþjónustumennirnir hefðu gert KVIKSJÁ húsleit í skrifstofu Rufus B. Saye í Dem- antahúsinu í Hatton Garden ...... og fundið þar fyrirmaeli til „Winters", að hann ætti að myrða Tiffany Case. Gefið mér samband við klefa ungfrú Case. Fljótt! FROÐLEIKSMOLAR ítalinn var beztur Þegar franski kardínálinn Og höfðinginn Mazarin lét á sínum tíma kalla á sinn fund ítalskan leikaraflokk, sem síðar átti eftir að verða þekkt ur um heim allan, undir for- ystu hins stórkostlega „Harle- kin“ Dominique (1637—88) var það ekkl án mótspyrnu frá frönskum leikurum, sem kröfðust þess hver og einn að einungis væru töluð franska á leiksviðinu. Þar sem hvorki Mazarin né leikararnir gátu útkljáð málið, fór það fyrir hæstarétt þ.e.a.s. konunginn — Lúðvík 14. Hann tók dag einn á móti fulltrúum beggja aðila, hinum vinsæla franska leikara Baron og foringja ítalska flokksins „Harlekin". Þegar Baron hafði með mik- illi mælsku mælt fyrir hönd frönsku leikaranna, gaf kon- ungur Dominique merki um að nú væri röðin komin að honum: — Hvaða mál óskar hans hátign eftir að ég tali ítölsku eða frönsku? spurði Dominioue. — Talaðu hvaða mál sem þú vila, svaraði kon- unguriinn, og Dominique var ekki lengi að koma með at- hugasemd að nú þyrfti hann ekki að segja meira því nú væri málið unnið. — Þú hefur rétt fyrir þér, svaraði konung ur og brosti, — og ég stend ætíð við orð mín. tekinn sá þáttur úr ævi Nevada Smiths — hans rétta nafn er Max Sand — sem telja verður dramatiskastan. Faðir Sands var hvítur, en móðlr hans Indíáni. Myndin hefst á þvi, að þrir vopnaðir bófar ríða fram á Sand skammt frá heimili hans og spyrja hann til vegar heim til föður hans. Segjast vera gamlir kunningjar hans úr borgarastyrjöldinnL Grandalaus segir Sand þeim til vegar, en ræingjarnir riða áfram, taka hús á foreldrum hans. og hyggjast pína föður hans til að segja til gulls, er þeir telja hann hafa falið. En faðirinn veit um ekkert gull, og þorpararnir skilja ekki fyrr v:ð húsið en þeir hafa myrt hjónin bæði við hinar hroðalegustu pyndingar. Ríða síðan á braut. Það er þannig köld aðkoma fyrir Sand, þegar hann kemur heim, og verður honum það einna fyrst fyrir að bera eld að heimili sínu og brenna húsið og lík foreldra sinna til ösku. Síðan fjallar myndin mestöll um viðleitni hans til að Ieita uppi þorparana þrjá og koma fram hefndum á þeim með eig- in hendi. Er sú viðureign öll mjög spennandi, leikurinn berst víða um Bandaríkin. Eitt sinn fréttir hann af einum glæpa- mannanna í fangelsi nokkru. Hafði sá verið dæmdur fyrir bankarán. Gerir Sand sér þá •hægt um hönd og brýzt inn I sama banka, til að komast 1 sama fangelsi. Síðan skipuleggur hann flótta með morðingjanum, og þegar frelsið blasir við, gerir hann upp sakirnar við hann. — Og þannig heldur leikurinn áfram. Þetta er ákaflega spennandi mynd, í kúrekastíl, þótt ekki verði henni jafnað til The Carp- etbaggers. Efnið í Nevada Smith er miklu einhæfara, fjallar eins og áður segir mest um leic að mönnum-^íil að myrða. Carpet- baggers sýnir okkur hins vegar miklu breiðari þjóðlífsmynd, fræðir okkur um kaldrifjaða við skiptahættþ auk þess sem ástir og fjölbreytilegt tilfinningalif er leitt fram á sviðið. En því verður ekki neitað, að Nevada Smitlh er á margan háti vel gerð mynd innan síns tak- markaða sviðs. Þótt hroðalegt sé á að horfa, þá mun hið „viilta vestur“ 19. aldar sýnt þarna 1 nokkuð raunsannri mynd. Leik- ur er yfirleitt góður, og bardaga- og átakasenur lifandi. Og eins og áður getur, er mynd þessi mjög spennandi nær allt í gegn. Það er helzt undir lokin, að þar kemur nokkur slaki á, en þá er reynt að læða ákveðnum boð- skap inn í myndina, sem er f sjálfu sér góðra gjalda verður, en mér finnst nokkuð misheppn aður í útfærslunni, og lok mynd arinnar eru sannast sagna nokk- uð snubbótt. — Um þetta kunna þó að reynast skiptar skoðanir, og er sjón sögu ríkari. Á undan myndinni voru birt sýnislhorn úr ,Rauðu skikkjunni* og þóttist ég þar kenna Borga.r Garðarsson meðal annarra kappa, en hann og Gísli Alfreðs- son leika báðir í þeirri myn<L Þar sem nú fer mjög að stytt- ast í sýningar á þeirri forvitn»- legu mynd, þá er líklega betra fyrir þá, sem hafa hug á að sjá Nevada Smith að draga það ekki lengi úr þessu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.