Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1974 THE OBSERVER Pólverjar fara eigin leiöir í samskiptum við Bandaríkin EDWARD Gierek formaður pólska kommúnistaflokksins var fyrir skömmu í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum, og vakti sú ferð meiri athygli en flest það sem pólskir stjórnmálaleiðtogar hafa tek- ið sér fyrir hendur að undanförnu. Var þetta í fyrsta skipti sem pólskur stjórnmálaleiðtogi fór til Was- hington, og almennur fögn- uður greip um sig í Póllandi þar sem alþýða manna er mjög hlynnt samskiptum við vestrænar þjóðir. Venjulega eru pólsk blöð fáorð um bandarísk málefni, en þagnarmúrinn varð heldur betur rofinn í tilefni af Was- hingtonferð Giereks. Frétta- ritarar sendu óspart fréttir úr ferðinni* á bezta sjónvarps- tímanum voru fluttar langar frásagnir með kvikmyndum, og í 5 daga voru forsíður dagblaðanna lagðar undir efni úr ferð þessari, sem var farin að orka á fólk eins og nokkurs konar pílagrímsferð. Auk þess var mikið fjallað um tengslin milli Póllands og Bandaríkjanna í forustugrein- um. Fréttaritari hins viðlesna dagblaðs Zycie Warszawy hafði eftir orð Kissingers utanríkisráðherra, sem létu vel í eyrum Austur- Evrópubúa: Sú er skoðun okkar, að „þíðan" tákni ekki aðeins batnandi samskipti Bandarikjanna og Sovétríkj- anna, heldur nái hún einnig til þeirra vina, sem við eigum frá fornu fari í löndum Austur-Evrópu. Stefan Olszowski utanríkis- ráðherra Póllands sté feti framar en Kissinger, er hann lýsti því yfir við bandaríska blaðamenn, að „það væri misskilningur að telja sam- skipti Póllands og Bandaríkj- anna einvörðungu til komin vegna batnandi samskipta milli Moskvu og Washing- ton". Að mati almennings f Póllandi má rökstyðja þessa fullyrðingu með þeirri stað- reynd, að Gierek er fyrsti kommúnistaleiðtoginn sem hittir Gerald Ford hinn nýja forseta Bandaríkjanna. Á meðan pólska sjónvarpið sýndi kvikmynd af Gierek og föruneyti hans um Williams- burg í Virginíu, þar sem var höfuðvígi Pólverja í Banda- ríkjunum, skrifuðu stjórn- málaritarar I Moskvu mikla lofgjörð um samskiptin við Bandaríkin. „Pðlverjum er ferð þessi ekki aðeins tákn um það, að sú vinátta þeirra og Banda- ríkjamanna, sem á gömlum merg stendur, er tekin að blómstra á nýjan leik. Þeir líta einnig þannig á, að nú hafi tekizt nýjar tengdir með þjóðunum, og er þar um að ræða árangur af stefnu Sovétríkjanna í. alþjóðamál- efnum," skrifaði leiðarahöf- undur einn í Moskvu. Síðar í greininni segir: „Pólverjar líta á Bandaríkin serp föðurland Washingtons og Jeffersons, en jafnframt sem fósturland Kosciuszko og Pulaski . . .", en þeir voru pólskir aðalsmenn, sem studdu Bandaríkjamenn í frelsisstríðinu. Meðan á Bandaríkjaför Giereks stóð, var margt rætt og ritað um Pólverja, sem setzt höfðu að í Bandaríkjun- um. Næstum hver einasta fjölskylda í Póllandi á ein- hverja ættingja í Bandaríkj- unum. Og á hverju sumri fyllast borgir og bæir i Pól- landi af jórtrandi Bandaríkja- mönnum, sem hafa skrapað saman nægu fé til þess að sækja gamla landið heim og leika ríka frændur. Þá fjölluðu pólsku blöðin um efnahagssamskipti ríkj- anna, meðan á heimsókn Giereks stóð. Gierek var við- staddur undirritun samninga í Washington, sem fjölluðu um samvinnu á sviði tækni og vísinda, sem og um jafna aðstöðu kaupsýslumanna, sem færu milli Póllands og Bandaríkjanna. Ríkin urðu ásátt um að hefja í samein- ingu kolaiðnað, og enn- fremur að draga úr viðskipta- hömlum stn á milli varðandi landbúnaðarvörur. Það síðastnefnda kemur sér vel fyrir Pólverja, þar sem Bandaríkjamenn standa mjög framarlega I framleiðslu dýrafóðurs og tilbúins áburðar, og geta jafnframt keypt við góðu verði pólskar landbúnaðarvörur. Zygmunt Symanski sér- fræðingur I efnahags- málum skrifaði eftirfarandi I Zycie Warszawy, en þar er fjallað um bandarísk efna- hagsmál með orðum, sem sjaldan eru viðhöfð nú á tímum, og hvað sízt I Banda- rlkjunum sjálfum: „Bandaríkjamenn hafa á sér orð fyrir að vera tækni- þróaðasta þjóð veraldar. Enn- fremur eru Bandarlkjamenn taldir ríkasta þjóð heims. Það er alkunna,aðöllum þjóðum leikur hugur á viðskiptum við þá. Kunn alþjóðleg fyrirtæki eru upp með sér af því að geta keppt með góðum ár- angri á hinum geysimikla bandaríska markaði, enda þótt I litlum mæli sé." Höfundur gerði grein fyrir því, að viðskipti Pólverja og Bandarlkjamanna hefðu aukizt verulega á slðasta ári, og hefðu þá numið 560 millj- ónum dollara, en líkur væru á, að þau næmu 700 millj- ónum dollara á þessu ári. Sérfræðingar telja, að þau verði komin upp I 1.000 milljónir dollara árið 1976. Gjaldeyrisstaðan er sem stendur Bandarlkjamönnum mjög I hag, þar sem Pólverjar hafa stofnað sér I miklar skuldir að undanförnu vegna kaupa á bandarískri tækni- þekkingu. Meðal þeirra bandarísku fyrirtækja, sem tekið hafa upp samstarf við pólsk fyrir- tæki fyrir pólskan og erlend- an markað, má nefna Inter- national Harvester, Siger, Clark og Koehring. Eftir að Gierek sneri heim til Póllands varð bandarísk- um diplómat að orði: „Svo virðist sem okkur semji lang- bezt við þær þjóðir, sem eru I öðru hernaðarbandalagi en við, og hafa allt aðra hug- myndafræði I stjórnmálum." 7 Vil kaupa góðan notaðan jéppa. Skipti á Volkswagen Variant '66. Upplýsingar í sima 97-2423. Keflavik Til sölu í smiðum glaesilegar hæðir og raðhús. Einnig eldri Ibúðir af ýmsum stærðum. Eigna og verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik, simi 3222. 19 ára stúlka með verzlunarskólapróf óskar eftir atvinnu. Uppl. I sima 35715. Blómasúlurnar, sem ná frá gólfi til lofts, eru komnar aftur. Upplagðar til að skipta með stofum. Blómaglugginn, Laugavegi 30, sími 1 6525. Til sölu í Safamýri mjög glæsileg ibúðarhæð i tvi- býlishúsi. Há útborgun óskast. Þeir, sem hafa áhuga sendi tilboð merkt: „8759" fyrir mánud. 11. nóv. Til sölu ónotuð: myndavél FUJICA St801 og kvikmyndatökuvél MINOLTA Autopack-8 D4. Upplýsingar i sima 15400 milli kl. 7 og 9 i kvöld og annað kvöld. Miðaldra kona óskast til innanhússstarfa hjá eldri manni i kaupstað á Vesturlandi. Uppl. í síma 23971 e.h. Foco krani 1 'h tonn til sölu. Uppl. i síma 82553. Nýr 14 feta hraðbátur til sölu. Selst með góðum greiðsluskilmálum. Nánari upp- lýsingar i sima 25140 á skrifstofu- tíma og 81962 eftir kl. 1 9.00. Óska eftir konu 65—70 ára til að sjá um heimil Upplýsingar í sima 21852. Hestamenn Reiðtygi til sölu. Upplýsingar i sima 92-2542. Húseigendur athugið Tökum að okkur málningarvinnu t.d stigaganga i fjölbýiishúsum, nýbyggingar og viðhaldsvinnu á ibúðum. Gisli, simi 32778, Hjálmar simi 30277. Bótagreiðslur Almannatrygginganna í Reykjavík Útborgun ellilífeyris í Reykjavík hefst að þessu sinni föstudaginn 8. nóvember. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. Barnlaust par óskar eftir íbúð, gjarnan i Hafnar- firði eða nágrenni. Góðri umgengni og reglusemi heitið. Vinsamlega hringið i sima 84108. JHðrgtMtiiMið nucivsincRR ^£«-»22480 NÝKOMIN BORÐSTOFUSETI BÆSUÐ — BRÚN — GRÆN VIÐARLITUR BORÐ: 2 STÆRÐIR STÓLAR: 5 GERÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.