Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1974 25 Vinarkveðja: Gísli Ingibergs- son rafverktaki Þar sem hann hefur nú lokið jarðlífsgöngu sinni, langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Þau verða að vísu ákaf- lega fátækleg, en bakvið þau liggja djúpar tilfinningar, vegna svo margra minninga, sem rifjast upp í huga mér við yfirlit okkar kynna, sem hófust fyrir liðlega 32 árum. Þá vorum við báðir ungir, fullir af lífsþrótti og framtíðar- draumum. Hann var kaupstaðar- barn, en ég sveitadrengur. Það voru ýms vandamál, sem upp komu í þá daga, í samskiptum unglinga, engu siður en nú. Sum þeirra voru þess eðlis að manni fannst stundum erfitt að komast yfir þau. Þá stóð aldrei á Gísla að rétta fram hlýja hönd og hugarfar til hjálpar, væri þess kostur. Ég man eftir atvikum hjá okkur báðum, sem virtust svo stór, en eru þroskuðum mönnum ekki svo mikilvæg nú. Þau hverfa manni samt ekki úr minni. Að glíma saman við þau vandamál, er samt svo mikils virði að þau gera menn að mönnum og vini að vinum. Þá var þess vegna mér mikill fengur að fá að kynnast Gisla eins og hann var, traustur, hógvær, og reglusamur og góður vinur. Hafi ég ekkert mótast af mannkostum hans við þessar aðstæður, er það áreiðanlega ekki honum að kenna. Eftir margra ára samstarf okkar, fer ekki hjá því að margar minningar rifjist upp f huga mínum við þessi vegamót lifsins. Þó að við síðar höfum ekki hitst nema endrum og eins bera þær minningar birtu og yl i sál mína og fylla hug minn söknuði yfir að vita af því að við eigum ekki eftir að sjást, hittast og talast við, hérna megin grafar. Það var ein- mitt við vegamót, að ég hitti Gisla síðast í sumar, með konu og dóttur. Milli okkar fóru nokkur vinaleg orð, að vanda og að lokum gengum við hvor sína götu. Þannig er lifið. Þetta var smækkuð mynd af okkar kynnum, menn hittast og kveðjast. Fyrir nokkru síðan dó gamall húsbóndi okkar, frændi minn, og lærifaðir okkar beggja. Ég hafði hugsað mér að kveðja hann með nokkrum orðum, sem fórst þó fyrir. Hins vegar las ég ummæli Gísla eftir hann. Fyrir þau vil ég þakka honum. Hann sagði reyndar það sem ég hefði sjálfur viljað segja. Ég er með þessu að sýna fram á hvað lífið er skrítið. Hvernig menn mótast af þeim, sem þeir umgangast, lifa og starfa með. Menn veita þessu kannski ekki athygli, fyrr en við nánari athugun. Maðurinn veit stundum ekki hvað hann hefur átt, fyrr en hann hefur misst það. Um leið og ég lít til baka á liðna tíð, er mér efst í huga þakklæti fyrir allt það góða, sem Gisli sýndi mér. Hafi ég haft þroska til að læra eitthvað af því, sem ég efast ekki um, þakka ég guði fyrir að hafa kynnst honum. En vilji guðs ræður. Gísli er horfinn sjónum okkar, sem eftir stöndum og minnumst hans. Kannski er maður orðinn gamall á þessa lifs mælikvarða, en ein- hvern veginn fínnst mer vinunum fjölga, hin síðari ár, sem hverfa bak við móóuna miklu. Fátt kysi ég fremur, nær kall mitt kemur, en hann yrði meðal þeirra sem tækju á móti mér, með sínu hlýja handtaki líkt og áður og við fengjum að starfa saman við þennan eilífðar ljósgjafa. Ég bið guð að geyma hann og senda konu hans og börnun og öðrum ætíingjum styrk í sorginni, við hið sviplega fráfall. Far þú í friði friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðjón Ormsson. Fæddur 10. október 1920. Dáinn 23. október 1974. í SVIPTIBYLJUM hins mann- lega lífs eru það stundum hinir sterku stofnarnir, er lenda í þeim strengnum, sem ekkert fær staðist. Við, sem enn stöndum utan þessa strengs, erum óþyrmilega minnt á þessa staðreynd, er við hvörflum huga heim að Langa- gerði 2, og virðum fyrir okkur verksummerkin eftir þá hel- storku, er þar hefur nú knúið dyra. Húsbóndinn, Gísli Ingibergs- son, rafvirkjameistari, önnur meginstoð þess fyrirmyndar- heimilis, er horfinn i svo skjótri svipan, að þetta trausta heimili riðar nú á grunni. Ég segi ekki til falls, þvi von min er sú, að heimilið fái staðist þessa raun, að því marki, sem til má ætlast að 1/2" borvélar fyrir tré og járn til afgreiðslu strax. G. Þorsteinsson og Johnson Ármúla 1, simi 8-55-33. hann það sjálfur með sinni prúð- mannlegu og farsælu framgöngu í öllu sínu lifi og ábyrgðarmikla og vandasama starfi, þar sem í engu mátti út af bera, svo öryggi ann- arra væri ekki stefnt í þann voða, sem óbætanlegur gat orðið. Þessi siðbúnu orð min eru hér fram sett sem örlitill virðingar- og þakk- lætisvottur fyrir það, sem Gisli var mér og mínum á hinni löngu, en þó svo allt of stuttu samleið okkar. Gisli Ingibergsson, þessi prúði og hægi, en þó atorkusámi elju- maður, sem enn gat aldurs vegna átt langan starfsdag fyrir hönd- um, er nú horfinn úr okkar hópi, en verk hans og minningar um liðnar samverustundir, skipa sér á bekk með þvi besta í huga mínum um ókomnaframtíð. Ég votta eiginkonu, börnum og öðrum aóstandendum dýpstu samúð mína og fjölskyldu minnar. Friðþjófur Hraundal. Fleiri sólargeislar Lægra verð! Þrátt fyrir alþ/ódlega verdbólgu hefur okkur tekist að lækka verðið á sólargeislanum frá Flórída. Fáið yður TROPICANA í fyrramálið. Það kostar minna en áður. mannlegur máttur megni, og er þar fyrir að þakka, hvaó vel var til þess vandað að allri gerð, bæði af húsbóndans hálfu og hinna, sem að unnu og eftir standa. Fyrir skömmu siðan brá nokk- urri bliku á loft hvað áhrærði heilsufar Gísla, en svo var hún dauf og fór að þvi er virtist dvin- andi, að ekki sýndist ástæða til þess að óttast svo mjög um að vá væri fyrir dyrum, en þetta reyndist aðeins svikalogn. Vetur konungur hefur nú gengið í garð að Langagerði 2 i tvenns konar merkingu þeirra orða, eftir óvenju bjart og sælu- rikt sumar, þvi fer ekki hjá þvi, að nú kólni um sinn. Þá er gott að geta ornað sinum innra manni við yl þess liðna i „von um vor vetrar eftir bylinn". Ekki var það ætlun mín að rekja hér út i hörgul æviferil Gfsla Ingibergssonar, eða sveipa hann einhverjum yfirdrifnum sæmdarljóma frammi fyrir þeim, sem ekki til þekktu. Slíkt hefði ekki verið að skapi Gisla. Og fyrir þeim, sem hann umgekkst í sínu daglega lifi og starfi, þarf ekki að kynna manninn, svo vel gerði SÓL HF. PHILIPS oi) CARAVELL frystikistur „model 1975” $ £HI.LIP.S. stórkostlegt tírval-allar stæróir HEIMILISTÆKI SF. Verið velkomin í verzlanir okkar Sætúni 8 og Hafnarstræti 3 símar 15655 - 20455.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.