Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974 33 Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jöhanna v Kristjönsdóttir þýddi , ió mig að koma. Þegar vió komum þangað, baö hann mig að verða þessum ákveðna manni samferða aftur til Bandaríkjanna og sjá um hann kæmist í gegnum tollinn og skilja síðan við hann. Hann sagði mér þetta væri gert í þína þágu, en að þú mættir aldrei fá að vita, að ég hefði komið nálægt þessu á neinn hátt. En það var svo mikil- vægt að ég varð að taka þátt I þvi, vegna þess að hann þorði ekki að treysta neinum öðrum til þess. Ég var látin sjá manninn einu sinni og siðan fylgdumst við að í leigu- bil út á flugvöll og sátum saman í vélinni til New York. — Guð minn almáttugur! sagði Huntley Cameron. — Ég skal drepa hann! Ég skal sjá til þess að hann leiki aldrei svona á nokkurn mann framar. Og þú hefur gert þetta? — Já, ég gerði það, sagði hún. — Eg hélt þú væriir með ein- hverjar ráðagerir i huga gegn stjórninni, þú hefur leikið slíkar kúnstir áður. Af því sem hann sagði dró ég þá ályktun þú legðir þig í mikla hættu og ég mætti ekki bregðast þér. Því kom ég með manninn. — Og hvað svo? Hafði svo eng- inn samband við þig? Hann var að reyna að átta sig á því í huganum, hvaða afleiðingar það gæti haft að King hafði búið svo um hnútana að rekja mátti slóð mannsins til Elizabethar, frænku hans. Hún hafði komið með morðingjann til Bandaríkjanna. En áður en hann leyfði sér að velta fyrir sér, hvað gæti legið 'þarna að baki, vildi hann fá að vite meira um mála- vexti og hvað sterkar likur væru á því að- rekja mætti slóð mannsins til hans. V — Og hvað svo. Þið ferðuðust saman, og þú skildir wið hann j flugvellinum. — Nei, svtíraði Elizabeth. — Nei, ég skildi ekki við hann þar. Enginn varáþar til afl sækja hann og hann átti ekki i neiy hús að venda. Hann hefur verið i íbúð minni siðasta hálfa mánuðinn. Þangað til King kom aftur frá Vestur-Þýzkalandi. Þá lét hann sækja hann. — Ætlarðu að segja mér að hann hafi búið hjá þér i hálfan mánuð! Hann trúði ekki sinum eigin eyrum. Hann starði á hana eins og naut á nývirki, örvita og neitaði að trúa þvi sem hann heyrði stúlk- una segja. Ægileg hætta vofði yfir honum nú. Þetta var ótrúlegt. Þetta gat ekki átt sér stað! —Hvað er hann að gera hingað, Huntley? Hún talaði lágt og ró- lega. Stundin var kominn og hann gat ekki annað en svarað henni. Og hún hræddist það svar sem hann kynni að gefa henni. — Hvað sagði King þér — hann hlýtur að hafa sagt þér eitthvað? Hann varð að tefja tímann, hann vissi ekki hversu mikið hún vissi, eóa hvort hún hafði getið sér til um eitthvað. í tvær vikur hafði hún verið ein með þessum manni. Og hún var farin að skynja eitthvað. Þess vegna hafði hún komið til Freemont. Til að ræða það við hann augliti til aug- litis. — Hann bar i mig lygar og aftur lygar, sagði Elizabeth. Hún fann til rósemdar núna. Huntley Cameron var sá aóili, sem nú var skelfingu lostinn. Hann virtist hafa elzt um mörg ár á þessum fáu minútum. — Hann sagði að maðurinn væri í einhverjum tengslum við Mafiuna. Hann sagði mér einberan þvætting og bætti þar um í gróðurhúsinu, rétt við nefið á þér í kvöld. Og þá lét hann mig lofa því aftur, að ég segði þér aldrei frá því að ég væri viðriðin þetta mál. — Þú segir að þetta séu lygar. Huntley greip þetta hálmstá eins og drukknandi maður. — Hvernig getur þú vitað að það er ekki sannleikurinn? — Vegna þess að ég þekki manninn, sagði hún. — Hann sagði mér að vísu ekki mikið af sjálfum sér. En ég veit hann er atvinnuhermaður, en ekki eitur- lyfjabraskari eða á snærum Mafi- unnar. Hún beið. Hann svaraði engu. Hún tók sígarettu úr gullsleginni öskju og kveikti í. — Ég fer til lögreglunnar, frændi. Ég ætla að hreinsa að minnsta kosti sjálfa mig, svo að þér er eins gott að segja sann- leikann. — Það er rétt sem þú segir um manninn, svaraði hann og hellti sér skjálfandi höndum viskii í glas. — Hann er atvinnumorðingi. Og hvað með það? — Tókst hon- um kannski að komast yfir þig meðan hann bjó hjá þér eða hvað? Hann hló kulahlátri og horfði á hana. Á þessu augnabliki hataði hann Élizabethu meira en flest annað í heiminum. Hún hafði ris- 'ið gegn honum. Hún hafði sigrað hann og hann sá i augum hennar að hún naut sigursins. — Launmorðingi, endurtók hann. — Hann skýtur mann fyrir peninga, skilurðu. Hvernig lízt þér á það? Fer um þig sæluhroll- ur við tilhugsunina um að hafa látið slikan mann samrekkja þér? — Hvern á að drepa? spurði hún. — Þú ert morðinginn, Huntley, og ekki hann. Þú og Eddi King. Hver er hann? — Ef þú ferð til lögreglunnar, sagði hann, — þá veiztu hvað það hefur upp á sig. Kannski þú getir snúið þig út úr því, já ég sagði kannski. En það er langt frá þvi víst þeir trúi á sakleysi þitt. En við skulum athuga, hvað það hefói í för með sér. Ég yrði hand- tekinn. King lika. Og þessi maður. Og allt kemst upp, Elizabeth. Þáttur okkar allra í málinu og ekki hvað sizt litla sæta ástar- ævintýrið þitt ótinds Iaunmorð- ingja. Það gerist er þú ferð til lögreglunnar, hvorki meira né minna. Hann hallaði 'sér aftur í sætinu og reyndi að slaka aðeins á og þóttist tala í alvöru. Hún færi ekki til lögreglunnar. Hann skyldi sjá til þess. Hann gat séð til þess að frænka hans kæmist ekki frá Freemont. Ef hann kallaði verð- ina á vettvang kæmu þeir innan fárra sekúnda. Og hann borgaði þeim vel. Síðan myndi hann snúa sér að Eddi King. — Ég hef engan áhuga á að fara til lögreglunnar, sagði Elizabeth. Ég hef aldrei ætlað mér það. En ég varð að segja eitthvað svo að þú fengist til að vera hreinskilinn við mig. Skyndilega varð hún að setjast niður, hún hafði svo ákafan hjartsslátt að henni fannst hún vera að springa og fæturnir skulfu og vildu ekki bera hana.f|> Moróingi... maður sem skaut og drap fyrir nokkur þúsund dollara... hún greip hendi fyrir augun og reyndi að ná valdi yfir sér. Hefði það skipt einhverju máli? Hún vissi að ást hennar á Bruno Keller var það fegursta sem hún hafði kynnzt á ævi sinni. Það skipti i Dúnninn fundinn I Mbl. sJ. laugardag var skýrt frá því, að 6 kilóum af æðardún, að verðmæti 140 þúsund krónur, hefði verið stolið úr dúnhreins- unarstöð SlS á Kirkjusandi. Frétt þessi hafði þau áhrif, að til lögreglunnar hringdi um helgina maður, sem ekki vildi láta nafns sins getið, og skýrði frá þvi, að dúninn væri að finna í bil inni í Súðarvogi. Fór lögreglan á stað- inn og stóð það heima, dún- pokarnir voru á palli númera- lauss vörubils. Komst allur dúnn- inn til skila. Velvakandi svarar í slma 10-100 kl. 1 0 30 — 11.30, frá mánudegi til föstudags ^fisheppnuð viðskipti *Reynir Grímsson, Braga- götu 29, kom að máli við okkur og sagði^sinar farir ekki sléttar í samskiptum við danskt fyrirtæki, sem verzlar með úr. Fyrirtæki •þetta hafði á sínum tíma auglýst varning sinn í blöðum hér, og gátu menn skrifað og fengið úrin send. Reynir sagðist hafa freistazt til að skrifa til Gammelgaards Ur- Import í Kaupmannahöfn, og hefði hann skömmu siðar fengið sent frá þeim svo kallað sportúr með skeiðklukku og ýmsum öðr- um útbúnaði. Urið er af Cimier- gerð. Urið kostaði 3.500 krónur, en þegar innflutningsgjöld og annar kostnaður hafði verið lagður ofan á þetta verð var úrið komið upp í 6.000 krónur, en það þótti Reyni allmikið og meira en hann átti von á í fyrstu. Hann gerði sér þó ekki rellu út af þvi, en leysti út úrið, sem sent var I póstkröfu. Kálið var ekki sopið þótt i ausuna væri komið, því þegar Reynir fór að athuga úrið kom i ljós, að það gekk alls ekki eins og sagt var í auglýsingunni, t.d. var skeið- klukkan góða varla annað en skífan þegar til átti að taka. Nú fór Reynir með úrið til úrsmiðs, sem gat frætt hann um það, að úrið væri með afbrigðum lélegt, hann gæti ekki fengið í það vara- hluti hér á landi. Þetta væri svo- kallað skólaúr, og hefði hann getað fengið betri vöru fyrir helming þess, sem hann hafði gefið fyrir sportúrið. Reynir sagðist ekki gera ráð fyrí^ því að hann fengi leiðrétt- ingu á þessum viðskiptum, heldur sæti hann uppi með úrið. Hins vegar sagðist hann vilja vara aðra við, sem kynnu að hafa glapizt á þessari girnilegu auglýsingu. Sagðist hann vita til þess, að mikið af úrum frá þessu danska fyrirtæki lægi hér á tolli og biði þess að vera leyst út. Saga Reynis sannar það, að ekki er allt gull sem glóir. Sannast sagna erum við hissa á því, að nokkur skuli kaupa úr, án þess að hafa gengið úr skugga um að varahlutaþjónusta sé fyrir hendi og ábyrgð sé tekin á vörunni. Auk þess er það löngu vitað, að úr og klukkur er hagkvæmt að kaupa hér á landi, og verð á þessum nauðsynlegu gripum lægra hér en í flestum nágrannalöndum. % Ómerkilegt áróðurshjal Vilhjálmur Vilhjálmsson skrifar: „Laugardaginn 2. nóvember s.l. var á dagskrá útvarpsins í hvorki meira né minna en eina og hálfa klukkustund svokallað austur- þýzkt kvöld. Stjórnandi þáttarins, Franz Gislason sagnfræðingur, notaði tímann vel í þágu vina sinna austur frá, dásamaði óspart dýrðina í austri og fékk sér til liðsinnis hóp manna, sem kepptist við að lýsa unaðsemdinni, er þeim náðarsamlegast hlotnaðist að verða aðnjótandi í nokkurn tfma. Þátturinn var frá upphafi til enda ein lofrolla um hið „fagra mannlíf“ og „manneskjulega kerfi“, sem fóík þetta fékk að kynnasflí meðan dvöl þeirra stóð yfir í y^stur-Þýzkalandi, og ósköp hlýturaBfið hér uppi á islandi að vera folki þessu dapurlegt miðað við dásemdina i AusturÞýzka- landi. En það var ekki hjal þessa saklai^sa meðreiðarfólks Franz •GIslasonarT fyrrnefndum þætti, sem korn mér til að senda Velvak- andá’fámnar línur, heldur vísvit- andi ósannindi varðandi siðari heimsstyrjöldina og ekki sízt ýmislegt sem hefði mátt koma fram, en af einhverjum ástæðum var þagað yfir. £ Að fara lipurlega með sannleikann Ekki var minnzt á hernað- arbandalag Stalíns og Hitlers né skiptingu þeirra á Póllandi i bróð- erni. Ekki var minnzt á það, að síðari heimsstyrjöldin hófst formlega með því, að eitt vesturveldanna, Bretland, sagði Hitler strið á hendur, þegar árásin var gerð á Pólland. Stalín beið aðeins sins hluta án þess að hreyfa legg eða lið. Ekki var minnzt á morðin á foringjum pólska hersins, sem átti sér stað á rússneskri grund. Ekki var minnzt á það, að Hitler reisti Þýzkaland úr rústum Weimar-lýðveldisins með sömu harðstjórn og Walter Ulbricht siðar beitti Austur-Þjóðverja. Ekki var minnzt á þau þræla- tök, sem austur-þýzka þjóðin var tekin með múrnum mikla, sem lokaði heila þjóð inni i vinnubúð- um. Ekki var minnzt á uppreisn. verkamanna i Austur-Berlín laust eftir 1950, sem barin var niður með rússneskum skriðdrekum. Ekki var minnzt á, að það voru Vesturveldin, sem með árás vestanfrá á Hitlers-Þýzkaland og með fórnfúsri hjálp við Rússa, björguðu austurvígstöðvunum. Það var heldur ekki minnzt á það, að hið frjálsa Vestur-Þýzka- land varð sterkast allra þjóða heims eftir að hafa verið rúið inn að skinni eftir ófarir striðsins, sem Hitler leiddi yfir það, og þar eru allir frjálsir ferða sinna út og inn og geta talað og hugsað eins og fólki sýnist, án íhlutunar og yfirvalda. Þannig var heldur ekki minnzt á, að með árás vestanfrá losuðu Vesturveldin Rússa undan hæl nasismans, en þakkirnar voru „Kalda stríðið" og innlimun flestra nágrannaríkja Rússa í net sovézkra heimsvaldasinna, þ. á m. Austur-Þýzkalands. Það er i sjálfu sér ekki óeöli- legt, að holskefla margskonar áróðursþátta tröllriður nú dag- skrá útvarpsins. Áróðursþátt- urinn „Austur-þýzkt kvöld“ er í fullu samræmi við starfsaðferðir núverandi meirihluta útvarps- ráðs, sem senn sér fyrir enda valdaferils sins. En tímann skal nota vel meðan tækifæri gefst. Og vel á minnzt, — hvenær var tekinn upp sá háttur að minnast afmæla þjóða og þjóðarbrota í Ríkisútvarpinu eins og hér hefur verið gert? Er þetta ný stefna Utvarpsráðs, eða ráðstöfun dag- skrárdeildar? Verður þessari stefnu framfylgt i framtiðinni? Vilhjálmur Vilhjálmsson." — Victor Borge Framhald af bls. 5 anna, m.a. Concertgebouw I Amster- dam, Konunglegu sinfóníuhljóm- sveitinni T Kaupmannahöfn, Phil- harmoniu hljómsveitinni i London og sinfóniuhljómsveitunum i Phila- delphia, Cincinnati, Detroit og Cleveland. Siöastliðið sumar kom hann fram með sinóníuhljómsveit- inni i Houston og er sagður hafa bjargað þvi, að hægt yrði að halda áfram sumarhljómleikum hennar. Heimili á Victor Borge I Greenwich í Connecticut og hús i St. Croix á Jómfrúreyjum. Þar dvelst hann i frí- stundum með eiginkonu sinni, Sönnu og fimm bömum þeirra hjóna, sem flest eru uppkomin og gift, en koma með barnabörnin að hitta þennan skemmtilega afa, þegar tækifæri gefst. Eða þá að fjölskyldan fer saman F siglingu, þvi að Borge er ákaflega elskur að bátum., „Stóru B-in þrju i minu lifi," segir Borge, „eru — Beethoven, Bach og Bát- arnir". Þess má geta, að veuföfejóri'á árshátíð Sinf^niuhljómsKflkarionpr verður Gunnar Thoroddsi ráðherra — og að venju teikurinn með þvi að hljómsveitin leikur Vinarvalsa. AðgöngumWasala að árshátiðinni hefst þriðjwdaainn 12. nóv. að Hótel Sögu og vJK jafnframt tekin frá borð. voizrawijui I m n^*#tarianar u heWHMns- þá SERVERSLUN MEÐ SVÍNAKJÖT i SÍLD & FISKUR Beigstaóastræti 37 sími 24447 Verk smidju útsala Opin fimnUudagn frá kl.2-9 á útsölunni: Flækjulopi Hespulopi Flækjuband Endaband Prjónaband Yéfnaðarbútar Bílateppabútar Teppabútar Teppamottur ALAFOSS HF IMOSFELLSSVEIT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.