Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974 KARDIMOMMUBÆR- INN OPNAÐI í GÆR Nú er unga fólkinu aftur boöiö upp á heim- sókn í ' Kardimommu- bæinn, en hann var fyrst sýndur í Þjóðleikhúsinu 1960. Slíkum vinsældum átti leikurinn þá að fagna, aö hann var sýndur í tvö ár samfleytt. Aftur var hann sýndur síóar en alls hafa tæplega 60 þús. manns séð Kardi- mommubæinn og hefur ekkert barnaleikrit, sem sýnt hefur verið á ís- landi, átt slíkum vinsæld- um að fagna. Það er vel til fundið hjá Þjóðleik- húsinu að taka upp sýn- ingar á þessu bráðfyndna leikriti með jöfnu milli- bili, því unga fólkið vex úr grasi og þetta leikrit bregzt engu barni og reyndar ekki neinu full- orðnu fólki heldur, því það er ekki síður fyrir fullorðna þótt það sé samið fyrir börn. Á æfingunni, sem við fylgd- umst með, var t.d. liæði eldra fólk og börn og ekki var unnt að gera upp á milli hvor aldursflokkur- inn skemmti sér betur. Um 50 leikarar leika í Kardimommubænum. Þá frægu fíra, Jesper, Kasper og Jónatan leika þeir Bessi Bjarnason, Randver Þorláksson og Þórhallur Sigurðsson. Soffíu frænku leikur Guðrún Stephensen og leikstjóri er Klemenz Jónsson. 9 manna hljóm- sveit undir stjórn Carls Billichs leikur. Soffía frænka. Hanna Valdfs Guðmundsdóttir leikur Camillu. Nú er eitthvað á seyði. Svipmyndir frá æfingu Þarna er yngsti leikarinn í Kardimommuhænum, Guð- mundur Klemenzson, en hann leikur úlfaldastrák. Einar Sveinn Þórðarson leikur Tommy. í Þjóðleikhúsinu Þðrður Þórðarson leikur Remó. Hljómsveit Kardimommubæjar ber sig Einn af köttunum I bænum. Fjöidi dýra kemur fram í leikritinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.