Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974 21 Þingsályktun- artillöaur Rafvæðing strjálbýlis — út- breiðsla sjónvarps — þróun- arsvæði — varanleg gatnagerð Rafvæðing dreifbýlis. Steingrímur Hermannsson o.fl. leggja fram tillögu til þingsályktunar um rafvæðingu dreifbýlis. Efni: Ríkisstjórnin láti vinna og leggja fram á Al- þingi fyrir vorið 1975 tveggja ára ályktun um áframhaldandi rafvæðingu strjálbýlis. ÍJtbreiðsla sjðnvarps. Steingrímur Hermannsson o.fl. flytja þingsályktunartil- lögu um útbreiðslu sjónvarps. Efni: Ríkisstjórnin láti gera þriggja ára áætlun um út- breiðslu sjónvarps, m.a. til báta á fiskimiðum. Að því sé stefnt, að öll býli og bátar á fiskimið- um megi njóta sjónvarpsút- sendinga að þessari áætlun framkvæmdri. Ölafur Ragnar Grímsson.og Karvel Pálmason leggja til, að Alþingi álykti um skiptingu landsins í þróunarsvæði. Alykt- unin geri ráð fyrir, að ríkis- stjórnin leggi fram frumvarp á yfirstandandi þingi um þessa skiptingu. Skipting i þróunar- svæði verði í samræmi við byggðavanda einstakra héraða. Hún verði lögð til grundvallar i fjárfestingarmálum, skattamál um, húsnæðismálum, sam- göngumálum, menntamálum og heilbrigðismálum. Atvinnuupp^ bygging verði öflugri þar sem byggðavandinn er mestur. Skipulagning opinberrar þjón- ustu taki mið af skiptingu landsins í þróunarsvæði, en sú skipting verði endurskoðuð á f jögurra ára fresti. Varanleg gatnagerð Helgi F. Seljan o.fl. flytja þingsályktunartillögu um auk- inn stuðning við varanlega gatnagerð í þéttbýli og rykbind- ingu þjóðvega. Efni: Ríkis- stjórnin auðveldi sveitarfélög- um varanlega gatnagerð. Stefnt verði að 5 ára framkvæmda- áætlun i þessu efni, sem taki til allra þéttbýlisstaða með 200 íbúa eða fleiri. Áætlanagerðin miðist við lánsfjárútvegun til sveitarfélaga, hlutur sveitar- félaga í bensínskatti verði auk- inn. Ríkið taki á sig stóraukna hlutdeild í rykbindingu þjóð- vega, er liggja um þéttbýlis- staði. Könnun á fjárhagsstöðu fyrirtækja Karvel Pálmason og Ölafur Ragnar Grfmsson flytja þings ályktun um könnun á raun- verulegri fjárhagsstöðu at- vinnufyrirtækja. Skal rikis- stjórnin skipa níu manna nefnd til þessarár könnunar, sam- kvæmt tilnefningu stjórnmála- flokks og nokkurra launþega- samtaka. Nefndin skipti með sér verkum og hraði störfum, og skal Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki Islands veita henni þá sérfræðilega aðstoð, sem þörf er á, en rikissjóður griða allan kostnað við störf hennar. Flutnings- menn telja könnun þessa nauðsynlega varðandi efna- hagsráðstafanir, er miða að þvi að flytja fjármagn frá launþeg- um til atvinnufyrirtækja í land- inu. Fvrirspurnir SL. þríðjudag voru lagðar fram á Alþingi nokkrar fyrirspurnir til ráðherra. Ingólfur Jónsson spyr, hvort fyrirhugað sé að lækka verð á rafmagni til húshitunar á þann veg, að rafhitun verði ekki dýrari en olíuhitun. Fyrir- spurninni er beint til iðnaðar- ráðherra. Ölafur Ragnar Grfmsson spyr um, hvort ríkisstjórnin muni leggja fram á yfirstandandi þingi frumvarp til laga um virkjun Bessastaðaár í Fljóts- dal og ef svo sé hvort stefnt sé að því, að virkjunin taki til starfa árið 1978. Karvel Pálmason og Geir Gunnarsson spyrja fjármála- ráðherra, hvort ríkisstjórnin hafi í hyggju að nýta fjárlaga- heimild til handa Hafnarbóta- sjóði um 50 m.kr. lántöku, til að létta greiðslubyrði hafnarsjóða. Helgi F. Seljan spyr mennta- málaráðherra: 1) hve mörg fé- lagsheimili hafa notið styrktar úr sjóðnum frá upphafi, hve mörg muni njóta framlags á yfirstandandi ári og um byggingu og byggingaráform félagsheimila 2) Hver staða sjóðsins sé gagnvart félags- heimilum og 3) hvort sjóðurinn hafi tekið þátt í viðhaldi eldri félagsheimila og þá hve mörg- um og að hvaða marki. fliwnci Lagafrumvarp: Framkvæmdasjóður Suðurnesja GUNNAR SVEINSSON, vara- maður Jóns Skaftasonar á þingi, flytur frumvarp til laga um Framkvæmdasjóð Suðurnesja. Verkefni sjóðsins skal vera að veita lán til einstaklinga, fyrir- tækja og sveitarfélaga á Suður- nesjum, til atvinnuuppbyggingar. Tekjur sjóðsins skulu vera: 2% af veltu verktakafyrirtækja á Kefla- víkurflugvelli, 1/3 af aðstöðu- gjöldum, sem greidd eru af starf- Kosið 1 fjár- veitinganefnd Kjörið var í fjárveitinga- nefnd sameinaðs þings í fyrradag. Kosningu hlutu: Jón Árnason (S), Steinþór Gestsson (S), Pálmi Jóns- son (S), Lárus Jónsson (S), Ingvar Gíslason (F), Þórarinn Sigurjónsson (F), Gunnlaugur Finnsson (F), Karvel Pálmason (SFV), Jón Á. Héðinsson (A) og Geir Gunnarsson (K). semi á vellinum, 4% af veltu frf- hafnar og 2% af veltu flughaf nar. Markmið flutningsmanns með flutningi frumvarpsins er, sam- kvæmt greinargerð er því fylgir, að sjóðurinn stuðli að þeirri at- vinnuuppbyggingu á Suður- nesjum, í útgerð, fiskvinnslu og öðrum greinum, að landshlutinn verði atvinnulega séð undir þá tíma búinn, að varnarliðið hverfi úr landi. Rangæingar — Breiðfirðingar Spilakvöld verður í Lindarbæ föstudaginn 8. þ.m. kl. 8.30. Fcxrmenn félagsins gera grein fyrir félagsstarfi vetrarins. Stjórnirnar. Höfum til sýnis og sölu mjög fallegan Tundirbird árg. '71. SVEINN FORD FORD HUSINU EGILSSON HF SKEIFUNN117 SÍMI 85100 Uppmælingaflokkur í mótasmíði ca. 4 — 6 menn óskast við stórbyggingu úti á landi. Upplýsingar gefur Þorgeir Kristjánsson. Sími 97-8144. Bílstjóri Óskast til að keyra sendiferðabíl og til aðstoðar í vörugeymslu. Þarf að vera vanur bílstjóri og reglusamur. Kristjánsson H.F. Ingólfsstræti 12. Coca Cola, Draghálsi 1. Stúlka óskast á rafmagnslyftara. Þarf að hafa bílpróf. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 82299. Atvinna óskast Ungt par óskar eftir vinnu. Hafa bæði stundað nám við V.í. og hafa reynslu í hinum ýmsu störfum. Listhafendur vinsamlegast hringi í síma 28219 eftirkl. 7. Sendisveinn Óskum eftir að ráða ungling til sendi- sveinastarfa. Uppl. veitir starfsmannastjóri á skrifstofu okkar. Skúlagötu 20. Sláturfélag Suðurlands. Verkamenn Óskum eftir að ráða karlmenn til ýmissa starfa í fyrirtæki voru. Allar nánari uppl. veitir starfsmannastjóri á skrifstofu okkar Skúlagötu 20. Sláturfélag Suðurlands. Matsvein og háseta vantar á 250 tonna togbát sem gerður er út frá Reykjavík. Siglingar fyrirhugaðar.. Upplýsingar hjá skipstjóranum í síma 16074. ‘ Framkvæmdastjóri óskast til iðnfyrirtækis í fataiðnaði úti á landi. Verksvið fjölbreytt og áhugavert, en nokkurrar verzlunar- og bókhaldsþekk- ingar er krafist. Fyrirtækið er í þéttbýli í góðum sam- göngutengslum bæði við Reykjavík og aðra þéttbýlisstaði í viðkomandi lands- fjórðungi. Húsnæði á staðnum er fyrir hendi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu vorri að Höfðabakka 9, Reykjavík og er þar svarað frekari fyrirspurnum varðandi starfið. HANNARR S.F. Reks trarráð gja far Sími 38130.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.