Morgunblaðið - 16.11.1975, Page 11

Morgunblaðið - 16.11.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NOVEMBER 1975 11 Mðlarinn 1930. Þá var bjart yfir veröldinni og maður trúði á heimsbyltingu, nýja jörð, nýja sögu, nýtt endurreisnar- tfmabil." dauð“, og streyttust þeir sömu í tvivíðum flötum, hvort sem þeir áttu hér erindi eða ekki. AUt þetta ætti að geta kennt okkur að loka aldrei dyrum fyr- ir öðrum gildum, þótt eitt þeirra sé öðrum gildum vin- sælla um stund og þykir meir i anda framúrstefnu, þyki taka öllu öðru fram og vera hið eina sanna. Jón og félagar hans, Gunn- laugur Scheving, Snorri Arin- bjarnar, Þorvaldur Skúlason, Jóhann Briem o.fl. hófu mann- inn til öndvegis í málverkum sínum á þessum árum og lands- lagið varð einungis hluti af bak- grunninum á stundum. Þetta var sjaldnast fólk undirheima, álfar né draugar, heldur mað- urinn á götunni i virkt sinni og smæð, jafnt hin rómantíska óspillta ungfrú sem hin lífs- þyrsta nautnakona heimsborg- arinnar. Seinna var þessu öllu varpað fyrir borð og figúran gerð út- læg úr málverki framúrstefnu- manna um árabil. Fólk hafði ekki undan að melta svo stór- stígar breytingar, og sfst af öllu hér á hjara veraldar þar sem framúrstefnur voru littþekkt fyrirbæri- og andstaðan gegn þeim því skiljanleg. Það var síður en svo að Jóni og félögum hans væri tekið fagnandi hendi hér heima, list þeirra var hérlendum málurum framandi og hvað þá almenn- ingi, en þeir nutu álits fyrir góða skólun og frama þeirra erlendis. Myndheimur þeirra þótti hrjúfur einkum það atriði að staðsetja venjulegt fólk inn i myndirnar, siíkt þótti gera þær einum of hversdagslegar og í mótsögu við hið upphafna, guð- dóminn í náttúrunni. Á sýningunni i Listasafninu er röð fágætlega vel málaðra og fallegra mynda, sem Jón málaði í Kaupmannahöfn, svo sem nr. 45 „Model“, 64 „Madame" 65 „Bláklædda konan" 72 „Kona 34 Kvöld f Kaupmannahöfn (1934) Eigandi Gunnar M. Guðmundsson. með blóm“ og 155 „Madame". — Sama er að segja um mynd- irnar nr. 37 „Model" og 38 „Svartagil", sem báðar eru mál- aðar 1940 og eru, sem hinar myndirnar, margslungnar i út- færslu og magnaðar í lit. Litur- inn er þykkur, safaríkur, mett- ur og efniskenndur, og auðsæ er nautn málarans af starfi sfnu, hann gengur allur inn í verk sitt og virðist mála af ofur- kappi og upp á líf og dauða. Hann var þá líka staddur þar I umhverfi, sem hann fékk hljómgrunn fyrir slík vinnu- brögð, og jöfnum höndum aðdá- un félaga sinna sem lof gagn- rýnenda. Heimkominn skorti hann aftur á móti algjörlega slíka uppörfun og andlegan stuðning og hann fer að endur- taka sig, mála gömul mótív frá Hafnarárunum og jafnvel mála inn í áður fullgerðar myndir, líkast því að hann vildi mála í og yfir kvöl minninganna, vegna skorts á lífsnauðsynlegu eldsneyti og vettvangs til áframhaldandi þroska og frama. Það er skoðun mín, að af áð- urnefndum málurum og félög- um Jóns var það sízt að skapi hans að setjast að hér i fámenn- inu. Hann var hinn umbúða- lausi heimsborgari í eðli sinu, er hér var komið sögu, sem nú var skyndilega horfin af þvi rómantíska sviði, slitinn úr tengslum við félaga sina og eðl- islægt umhverfi, en festur við þröngan kost og fásinni þeirra tíma i heimahögum. Hinn mikli spanski heim- spekingur og húmanisti Jose Ortega y Gasset reyndi að svara spurningunni, hvernig gæti staðið á því að nútimalistamenn óttuðust hin mögnuðu, grósku- miklu form hins lifandi likama. Hvernig bætir hann þau upp með flatarmálsformum? Hann minnist þess, að samsvarandi fyrirbæri myndrænnar flatar- málsdýrkunar eru ekki óþekkt i listasögunni. Hann skýrir „ikonoklasmen" (afnám helgi- mynda), sem trúarlegt fyrir- bæri, sem birtist á tímabilum, sem stjórnast af hræðslu við samprófun við við alheiminn. — Hér má bæta þvi við að Iista- menn taka hiklaust afstöðu gegn viðurkenndum fræðisetn- ingum varðandi listir. Ný gildi fæðast á því augnabliki er lista- menn rísa upp gegn ríkjandi fræðisetningum, viðurkennd- um gildum. Til skilningsauka á framúrstefnum er mikilvægt að vera sér meðvitandi um þessa afneitunartilhneigingu lista- manna á fyrri gildum á öllum timum. Þetta er ekkert annað en lögmál framþróunar og við veröum að meðtaka þessar stað- reyndir sem eðlilegan hlut. En það er erfitt að yfirgefa gróin myndheim sinn og fórna honum til hags fyrir önnur gildi þegar menn standa mitt i rífandi framþróun innan marka hans líkt og Engilberts. Skyndilega var það vottur aft- urhalds og stöðnunar er var áð- ur framúrstefna, nú mátti fígúaranhelztekkisjástí mynd nema þá mjög færð í stilinn, helst afskræmd. Jón streyttist gegn þessum viðhorfum lengi vel, og það var alveg rökrétt afstaða hvað honum viðkom, og þó virðist þetta hafa valdið röskum á sálarlegu jafnvægi hans, þvi að hann hefur álitið sig framúrstefnulistamann og öll þau mörgu nýju gildi sem ruddu sér braut á þessum árum fóru sannarlega ekki framhjá honum, jafn opnum og vakandi listamanni. Hann mun því hafa verið farinn að efast um fersk- leika listar sinnar, svo sem ým- is hliðarspor sýna, og síðustu árin, sem hann starfaði af full- um krafti, vann hann nær ein- göngu í abstrakt — expressjón- isma, umbúðalausum og litrík- um. Þar á undan getur að líta örhrifa viðleitni við að finna sinni skapgerð og upplagi sínu eðlilegan farveg í margvisleg- um tilraunum með liti og form. Það fór ekki hjá því að í odda skærist á milli hlutlægra og óhlutlægra myndlistarmanna, og því miður bar listamönnum okkar ekki gæfa til að deila málefnalega. Deilur verða per- sónulegar hér úr hófi fram rætnar og félagar heilsast ekki á götu árum saman og vilja yfirleitt ekki vita af tilvist hvors annars félagshyggja er lítt raunhæf og félög klofna af þeim sökum. Þeir sem byggt höfðu Listamannaskálann gamla, og um árabil staðið f fylkingarbrjósti í félagsmálum og veðsett hús sin til þess að skáli sá risi af grunni, lutu i lægra haldi i Félagi islenzkra myndlistarmanna og hrökkluð- ust þaðan, félaginu sjálfu og íslenzkri myndlistarmennt til ómælds skaða. Öumdeilanlega hafa allar innbyrðis deilur milli myndlistarmanna gert menn- ingarsviði þeirra meira ógagn, og stéttinni i heild, en allt mis- viturt andóf utanfrá. Listamað- urinn Jón Engilberts var einn þeirra sem fremst stóðu í eid- línunni, var í röðum útskúfaðra á sýningar félagsins um langt árabil. Má auðsætt vera að slík stöðnuð framvinda hafi ekki fallið að skapi leitandi og fram- sækins könnuðar á sviði mynd- listar og haft miður holl áhrif á hinn skapstóra en þó viðkvæma mann. Hin litla þjóð þarf á öllu sínu bezta að halda-til að sýna hér styrk sinn og stöðu. — Jón Engilberts gat alltaf gert góð myndlistarverk hvar sem hann bar niður, en þetta var naumast rökrétt né æskileg þróun, og hann varð aldrei jafn heill í vinnubrögðum sem á áratugin- um góða 1934—44, auk þess sem hann tók slikar myndir fram og málaði og krukkaði í þær, sennilega f þeirri trú að hann væri að lifga þær upp. Slíkt hefði hann mátt láta ógert því að nær öllum listamönnum verður hált i slikum vinnu- brögðum. Það er meinlegt að hugsa til þess, að þegar Jón hafði misst heilsu og eðlilegt vinnuþrek, þá hélt maðurinn (fígúran) aftur innreið sína inn í myndlistina endurnýjaður og ferskur, enda voru myndlistarmenn orðnir leiðir á hinu stöðuga lita og flatabruðli, fram og aftur í tvo áratugi, og nær því á svip- stundu breyttist svið heimslist- arinnar og holskefla af nýjum gildum ruddi sér braut. — Það hefði legið vel við Jóni Engil- berts að lenda mitt í slíkri bylgju á því skeiði er hann hafði fullt starfsþrek og óheft- an lifsþorsta, og þá hefði góð tæknileg undirstöðuþekking hans og frjó skólun sannarlega notið sin til fulls. En mönnum er það ekki í sjálfvald sett á hvaða tíma þeir eru bornir. Hæfileikar Jóns innan hins grafiska sviðs fengu ekki held- ur að njóta sín, hér var hvorki skilningur, grundvöllur né markaður fyrir slikt og mál- verkið hið eina er gildi hafði sem stofuprýði og eitthvað gaf i aðra hönd. Jón var mjög góður teiknari, svo sem menn geta sannfærst um á þessari sýn- Framhald á bls. 28 45 Model. Eigandi Tove Engilberts.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.