Morgunblaðið - 16.11.1975, Side 22

Morgunblaðið - 16.11.1975, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1975 l'r bók Kristjáns Eldjáms: Hagleiksverk Hjáknars í Bólu Dr. Kristján Eldjárn hefur sent frá sér bók um útskurð og smíSisgripi Bólu-Hjálmars, Hagleiksverk Hjálmars I Bólu, og er saga þeirra sögS I máli og myndum. Morgun- blaðiS hefur fengiS leyfi höfundar og forlags (Helgafells) til aS prenta valda kafla úr bókinni og myndir sem þeim fylgja — og eru sýnishorn þessa merka þáttar I listsköp- un Bólu-Hjálmars birt hér, enda merkur þáttur þjóSar- sögu. HEIMILDIR UM HAGLEIKSIÐJU HJÁLMARS Bólu-Hjálmarssögu samdi Brynjúlfur Jónsson frá Minna- núpi upp úr heimildum sem Simon Dalaskáld hafði safnað. Um tréskurð Hjálmars segir svo í sögunni (bls 49): „Það var kunnugt, að Hjálmar var hagleiksmaður og einkar skurðhagur. Smíðaði hann rúmbríkur, rúmfjalir og prjónastokka og seldi með góðum hagnaði Allt var það útskorið með ýmsum myndum, t. a. m. af Adam, Evu og höggorminum o. fl. Þótti það meistaralega gjört af ólaerðum manni." Einnig segir í sögunni (bls. 137) að þá er Hjálmar fór að kvonbænum eftir lát konu sinnar hafi hann haft með sér til gjafa útskorna rúmfjöl og spegil í útskorinni umgjörð, hvort tveggja mjög haglega gert. Þá er og sagt að hann hafi smíðað silfurbúnar svipur og gefið vinum sínum sumar (bls. 48). Aðrir sem ritað hafa æviágrip Hjálmars hafa lítið til mála að leggja um hagleiksverk hans. Jónas Jónsson telur krossmörk á leiði meðal smíðisgripa hans. Líklega hafa það þó frekar verið leiðisfjalir. Nokkra áherslu leggur hann á þá tekjubót sem Hjálmar hafi haft af skurðlist sinni. Kann þetta hvort tveggja að vera eftir heimildum manna í Skagafirði. Ennfremur hyggur Jónas að rúnir þær og ristingar, sem Hjálmar var á æskuárum kærður fyrir að hafa í fórum sínum, hafi í rauninni verið útskurður hans. Þetta er miður sennilegt þar sem menn voru þá alvanir útskornum hlutum mjög áþekkum hagleiksverkum Hjálmars. Auk þess er „rúnir og ristingar" ekkert annað en stuðlastirðnað orðasamband sem fleiri nota, t. d. bæði Gísli Konráðsson og Jón Þorláksson á Bægisá. En fróðleikshnýsni og fjölþættar gáfur Hjálmars hafa meðal annars beint honum að rúnum og þær hafa verið honum tamar. Sér þess vott bæði í handritum hans og skurðverkum. Sigurður Guðmundsson málari var kunnugur Hjálmari og lét hann lýsa fyrir sér skálanum í Flatatungu. „Hans sögu- sögn met ég mikils," segir Sigurður rhálari í óprentuðu riti sínu um hagleiksverk íslendinga, „því hann var vel skurð- hagur maður og hafði einmitt þess vegna tekið eftir öllum fornum skálum, hvar sem hann fór. Hann er og gamall maður og skynsamur og hafði mikla ánægju af þess konar." Það hefur verið sumarið 1856 sem Sigurður kynntist Hjálmari og enn er Hjálmar á lífi þegar Sigurður skrifar þessi orð. Það er þvi athyglisvert að Sigurður skrifar „var vel skurðhagur", eins og hann sé að benda til þess að Hjálmar hafi fengist við útskurð á yngri árum en síður um það leyti sem þeir kynntust. í kveðskap Hjálmars sjálfs er ekki margt að finna um hagleiksverk hans; virðist skáldið ekki hafa haft mikla hvöt til að fjölyrða um slikt: Handverks nafn að hræsna með hlaut eg ei né lærði, mig og fátæk börn á beð búkarls hnauki nærði. Raunar má viða sjá í kvæðum hans að hann bar virðingu fyrir verklegum iþróttum, hagleik og smekkvísi í störfum og búrekstri, enda hafa menn haft álit á honum sem verk- högnum manni. Til dæmis er sagt að hann hafi eitt sinn verið fenginn sérstaklega út á Sauðárkrók, þegar hann bjó í Grundargerði, til að segja fyrir um hvernig haganlegast yrði hlaðinn grjótgrunnur undir timburhús sem þar átti að reisa. Og ekki er heldur brennt fyrir að vottur sjáist um tréskurðinn í skáldskap hans. Þannig segir hann í Ijóðabréfi til Þórdisar Gísladóttur, konu séra Gunnlaugs Gunnlaugssonar á Stað í Hrútafirði, sem hann orti i Bólu um 1840: Handverki venst eg helst ónýtu, horfa í blöð og tálga spýtu, rispa með penna og raula stef. Veggskápur f Þjóðminjasafni, „Blöndalsskápur“, úr furu. Veggskápur f Þjóðminjasafni „Vfdalfnsskápur**, úr furu, geirnegldur, nú bæsaður og lakkaður. Kistiil, var lengi f eigu Ingi- bjargar Jóhannsdóttur frá Lýt- ingsstöðum f Tungusveit, Skagafirði. Þarna minnist hann á skáldskap sinn og útskurð í sömu andránni, enda er það einmitt um þessar mundir að hann fæst hvað mest við skurðlist. Þegar hann vikur að hagleiks- Kistill, sem var f eigu Sigurðar Nordals prófessors, „Nordals- kistill“, úr furu, geirnegldur, botninn nýr. verkum sínum seinna á ævi er svo að sjá sem hann hugsi til þeirra í fortíð, „hinnig tíðar" eða „forðum", og kemur það vel heim við það sem síðar verður sagt um feril hans sem skurðlistarmanns: Hægra mér þótti hinnig tíðar, þá fjör og kraftur fleytti mundum, hamar, töng, hnífur, hefill, exi, sveifla sveðju grass eður saegögnum. Þannig er fyrsta erindið sem Hjálmar skrifar í syrpu sina frá 1852. Og í kvæðinu Raupsaidurinn, sem hann kvað síðasta árið sem hann lifði, „til gamans i ellinni til að hlæja að", eru þessar stökur um íþróttir hans sjálfs: Telgdi eg forðum tré með egg, teygði járn og skírði, Fjölnis brúðar skóf af skegg, skeið á vatni stýrði. Tætti eg ull og bjó úr band, beitti hjörð um vetur, heitum kopar hellti í sand, hjó á fjalir letur. Af siðustu orðunum í seinna erindinu mætti ef til vill álykta að Hjálmar hefði verið að hugsa um útskurð sinn fremur en ritstörf er hann kvað þessa alkunnu vísu: Blómstrum skreyta leturs lönd líst mér ellin banni, von er stirðni helköld hönd hálfniræðum manni. En hvað sem um það er, má segja að nú sé upptalið það sem Hjálmar sjálfur og aðrir hafa á bækur fest um hagleiks- verk hans og má ekki minna vera. En þá er að leita á vit verkanna sjálfra, enda var leikurinn alltaf til þess gerður. Þau eru óljúgfróðust um hagleiksmanninn. Vandinn er að þekkja þau úr fjöldanum, feðra þau rétt. SKRÁ UM HAGLEIKSVERK HJÁLMARS í BÓLU 1 VEGGSKÁPUR í Þjóðminjasafni (Þjms. 15608), „Blönd- alsskápur", úr furu, 71,5 sm á hæð, 54 sm á br., en fjalirnar ofan og neðan hurðar, sem standa nokkuð út af, eru 61,5 sm langar. Dýpt skápsins er 25 sm. Negldur er hann allur með járnnöglum og ofan á honum eru tveir járnkrókar til að festa hann á vegg; skrá er í hurðinni vinstra megin og ómerkileg látúnsfluga um skráargatið. Framhliðin öll og hurðin er útskorin. Umgerðarfjalirnar eða brikurnar fjórar eru aiþaktar undnum teinungum sem í stórum dráttum minna mikið á skurðverkið á Vídalínsskáp (nr. 2); þó eru brúnirnar allar ávalari hér og um leið er upphleypingin meiri, reyndar óvenjulega mikil meðal verka Hjálmars. Tilbreytni er mjög mikil í meðferð teinunganna og sumir eru tvöfaldir og samanfléttaðir. Þrátt fyrir fjölbreytnina er samhverfing í verkinu sem heild og sést slikt víða i verkum Hjálmars. Brúnir umgerðarfjalanna eru tilskornar og fylgja útlinum teinunganna. Hurðin er 38x47 sm. Hún er gerð sem rammi af fjórum fjölum og spjald fellt í. Á fjölunum að neðan og til beggja hliða eru teinungar, en á fjölinni að ofan,er þessi áletrun og tvö bönd dregin í. Ano MDCCCXL (þ.e. 1840). Spjaldið í hurðinni er óútskorið, en á það mitt er negldur (með trénöglum) sérskorinn teinungur og á honum miðjum marg- blaða blóm. Báðum megin við þennan teinung er skáphurðin slétt og óskorin og kemur þetta fyrirkomulag nokkuð á óvart en fer ekki illa. í skápnum eru tvær hillur, en þegar hann er opnaður kemur í Ijós að hægt er að láta þverfjölina að neðan falla niður og birtist þá á bak við hana skúffa geirnegld og með tveimur látúnshringum í framhlið. Á milli þeirra er með fögru flúri útskorið nafn Guðrúnar Þórðardóttur Blöndal og mun helst eiga að lesa það G Th Bl^ndhal, en upphafsstafirnir eru svo kirfilega umvafðir fléttuflúri að erfitt er að greina þá. Annað er auðlesið. Skápinn ánafnaði safninu Guðrún Blöndal, fyrrum kennslukona I Reykjavík. Áður hafði átt hann amma hennar og nafna, Guðrún Þórðardóttir, kona Björns Auðunssonar Blöndals, sýslumanns í Hvammi I Vatnsdal. Fylgir sú saga skápnum fortakslaust að Hjálmar hafi skorið hann og gefið frú Guðrúnu. Naumastættiaðvera hætta á að þetta hafi farið milli mála á svo beinni og skammri leið, enda kunnugt úr annarri átt vinfengi Hjálmars við Hvammsfólk og vingjafir hans til þess. í Bólu-Hjálmarssögu er frá því sagt að Hjálmar og Guðný kona hans færu í kynnisför til frændkonu sinnar Guðrúnar sýslumannsfrúar í Hvammi sér til afþreyingar eftir þjófaleitina hjá þeim 28. nóvember 1 838 og var þeim einkar vel tekið af sýslumannshjónunum. „Færði Hjálmar þeim rúmbríkur, kistil og prjónastokk, allt haglega útskorið, og silfurbúna svipu, er hann hafði einnig smíðað sjálfur og var svo vel gjör, að þau höfðu hana til sýnis" (bls. 101). Hvort skápurinn hefur verið meðal þeirra hluta, sem Hjálmar færði hjónunum, eða hann hefursmíðað hann handa frúnni og sent

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.