Morgunblaðið - 16.11.1975, Page 23

Morgunblaðið - 16.11.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÖVEMBER 1975 23 hann eftir kynnisförina eins og Ifklegt má þykja (sbr. ártalið 1840), verður að liggja milli hluta, en öldungis víst hlýtur að teljast aðskápurinn sé hans verk, meira aðsegja vandaðasta verk hans sem nú er til og merkasti lykill að verkum hans yfirleitt. Hjálmar hefur lagt sig fram þegar launa skyldi drengskap þeirra f Hvammi og Guðný lét ekki sitt eftir liggja. Til Guðrúnar orti hún kvæðið Líðandi stund og sendi henni 1839. 2, VEGGSKÁPUR í Þjóðminjasafni (Vídalfnssafn nr. 67). „Vídalfnsskápur'', úr furu, geirnegldur, nú bæsaður og lakkaður. Hæð framhliðar 65 sm, br. 51 sm, dýpt 25,5 sm. Þverfjalirnar fyrir ofan og neðan hurðina skaga nokkuð út fyrir til beggja hliða, 9,5 og 11 sm að br. og 55,5 sm langar. Hliðacfjalirnar eru 10—10,5 sm breiðar. Öll framhliðin með hurðinni er þakin útskurði. Á þverfjölina fyrir ofan hurðina er skorin áttablaðarós f miðju og út frá henni gengur stórgerður bandfléttuskurður til beggja hliða. Á þverfjölinni fyrir neðan hurðina er stórskorinn blaðastrengur eða teinungur. Hliðar- fjölunum er skipt í tvennt að endilöngu og eru samfelldir blaðastrengir upp eftir þeim öllum, nokkru smágerðari á innri og mjórri reitunum og ekki eins báðum megin hurðar. í ytri reitunum ná strengirnir alveg út á kant og er hann laufskorinn í samræmi við þá. Hurðin er 44,5 sm á hæð og 30,3 sm að breidd. Á henni er mynd af syndafallinu: Skilningstréð er í miðju, að neðan með einum stofni, en er ofar dregur slær hann sér út og greinist margvíslega og fléttast og vinst alla leið upp í topp og endar með rósum efst. Undir trénu standa Adam og Eva allsnakin. Eva stendur til vinstri og hefur hár ofan á hæla en heldur á einhverju sem hlýtur að eiga að vera epli. Hún leggur eyrað að snjáldri höggormsins sem vindur sig um stofn trésins og teygir fram álkuna til þess að hvísla freistingarorðunum að konunni. Hinum megin stendur Adam, með hár ofan á herðar. Hann heldur á eplinu en virðist ekki enn búinn að taka þann munnbita sem æva skyldi. Ofan við syndafallsmyndina stendur með stórkarlalegum gegnumþræddum rúnum hialmar þ.e. Hjálmar, en neðan við adamokheua, þ.e. Adam og Eva (stafirnir kh eru bundir og ekki ótvíræðir). Beggja megin við myndina eru blaðastrengir með andbverft undn- um blöðum eins og annars staðar á skápnum. Koparlykill fylgir skápnum og koparlauf er um skráargat. Tvær hillur eru f skápnum. Jón Vídalin konsúll og Helga kona hans arfleiddu safnið að skáp þessum og barst hann safninu 21. september 1910. Ekki er nú vitað hvar Vídaltn fékk hann, en sú sögn fylgir honum að hann sé eftir Hjálmar. Við það bætist svo að nafnið Hjálmar er skorið á skápinn og þar eru Adam og Eva og höggormurinn sem einmitt var tamt viðfangsefni Hjálm- ars eins og segir í Bólu-Hjálmarssögu. Með vissu má því eigna Hjálmari skápinn, enda bersýnilegt þegar vel er gáð að handbragði að Vídalinsskápur og Blöndalsskápur eru eftir sama mann. Þessir tveir skápar eru mestu stórvirki Hjálmars í tréskurði sem nú eru kunn. 4. KISTILL, var lengi i eigu Ingibjargar Jóhannsdóttur frá Lýtingsstöðum ÍTungusveit, Skagafirði, úr furu, 1.37,5, br. 20, hæð 23 sm, allur negldur með sivölum trénöglum. Kistillinn er allur útskorinn. Á framhlið er skilningstréð og ris upp eftir miðju með beinum stofni en út frá toppinum greinist mikið laufskrúð sem fyllir allan flötinn beggja vegna. Vinstra megin við tréð stendur Eva og réttir fram eplið en hægra megin Adam og teygir fram höndina á móti því. Bæði eru nakin og með stutt hár. Ofan við höfuð þeirra er ormurinn og vindur sig um tréð; snýr haus hans að höfði Evu. Ofan við tréð er mynd sem minnir á kross og akkeri. Á göflunum eru undningar og fléttuverk, ekki eins á báðum, og aftan á stórgert opið skurðverk í sama stíl. Á lokinu er i miðju engill með kórónu, viðvaningslegar gerður en hitt, en umhverfis svofellt höfðaletursband: madamiingi / biör / geinarsdott / irak. (ii gæti táknað stafinn í eða upphafsstaf, Ingibjörg; er þó ef til vill ritvilla fyrir ai). Skil eru alls staðar milli stafa. Höfðaletrið er blátt áfram, ekki sérlega fallegt, frábrugðið letrinu á flestum þeim hlutum sem hér á eftir eru eignaðir Hjálmari Væri ekki hægt að þekkja þegar I stað að báðar leturgerðirnar væru eftir sama mann. Það eru þær þó, svo sem betur mun skýrast siðar. Kistill þessi er vafalaust eftir Hjálmar. Augljóst er að hann er verk sama manns og Vídalinsskápur; það sýna bæði syndafallsmyndin og skurðhöndin, en auk þess eru góðar heimildir fyrir þvi að kistillinn sé verk Hjálmars. Það er nafn Ingibjargar Einarsdóttur, húsfreyju á Merkigili i Austurdal í Skagafirði, sem á kistlinum er, en hún var langamma Ingibjargar Jóhannsdóttur sem bar hennar nafn (Ingibjörg — Lilja — Jóhann Lárus — Ingibjörg). Á Hjálmar að hafa gert kistilinn og gefið í sátta og yfirbóta skyni fyrir gamlar væringar og mótgerðir og hefur Ingibjörg Jóhannsdóttir skýrt skemmtilega frá þeim atburðum öllum. Ber frásögn hennar að mestu saman við Bólu-Hjálmarssögu og skal ekki hirt að rekja hana hér að öðru en því að rimma varð milli Jóns Höskuldssonar á Merkigili og Hjálmars út af spýtu sem báðir vildu eigna sér; vildi Ingibjörg kona Jóns stilla til friðar en fékk þá ómaklegt högg af Hjámari. Ingibjörg Jóhannsdóttir sagði að innan á lok kistilsins hefði verið límt blað með kvæði sem Hjálmar hefði ort til langömmu hennar skrifað með rauðu bleki Það er nú að mestu glatað, en sjálf hafði Ingibjörg lært úr fyrsta erindinu þessar Ijóðlinur: Tvinnastokkinn treflahrund taki og eignast nái. Framhald á bls. 46 m-m mmmmm Kynningar kvöld §M9 HÓTELSAGA SUNNUDAGUR 16. NÓV. 1975 ARABÍSKUR RÉTTUR COUS COUS (Byggt á lamba og kjúklingaréttum) Kvikmyndasýning Bingó og dans JANIS CAROLL ÁSAMT HLJÓMSVEIT RAGNARS BJARNASONAR OPNAÐ KL. 19.00 Borðum haldið til kl. 20.30 Borðapantanir hjá yfirþjóni IFeróamióstöóin hf. iCENTRAL TRAVEL PHONE 11255 TELEX 2154 I AÐALSTRÆTI 9 REYKJAVÍK ICELAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.