Morgunblaðið - 16.11.1975, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 16.11.1975, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1975 47 Ford vitnar í réttar- höldum gegn Fromme Sacramento — 15. nóv. — Reuter. Myndsegulband með vitnis- burði Geralds Fords Bandarfkja- forseta 1 réttarhöldunum gegn Lynnette Fromme var sýnt I réttarsalnum f Sacramento f gær. Sýningin tðk 20 mfnútur og þar kom m.a. fram, að forsetinn kvaðst ekki geta gert sér grein fyrir þvf hvort hann hefði heyrt, að Fromme hafi tekið f gikkinn á byssunni eða ekki þegar hún beindi skotvopninu að honum, en lögfræðingar hennar hafa haldið þvf fram, að hún hafi ekki ætiað að myrða forsetann, heldur aðeins leggja áherzlu á mðtmæii sfn gegn mengun og þá kröfu, að mál George Mansons yrði tekið fyrir að nýju. Fromme er ein af ’„fjölskyldu“ Mansons, sem myrti Sharon Tate og fleiri árið 1969. Hingað til hafa tvö vitni i mál- inu haldið þvi fram, að heyrzt — Norræni Framhald af bls. 1 stuðningi íslendinga við stofnun bankans. Ræða hans verður birt i heild síðar. Síðdegis mun Jón Skaftason taka þátt f umræðunum. Fulltrúar íslands í Norður- landaráði eru auk Ragnhildar þeir Jón Skaftason, Ásgeir Bjarnason, Gils Guðmundsson, Sverrir Hermannsson og Axel Jónsson. Hinir þrír síðastnefndu tóku sæti í ráðinu í forföllum Magnúsar Kjartanssonar, Jó- hanns Hafsteins og Gylfa Þ. Gísla- sonar. Framkvæmdastjóri Is- landsdeildar Norðurlandaráðs er Friðjón Sigurðsson, skrifstofu- stjóri Alþingis. — Marokkó Framhald af bls. 1 Gano, ráðherra, sem fer með áætl- ana- og þróunarmál i spænsku stjórninni, hélt til fundar við Boumedienne Alsírforseta i dag til að skýra fyrir honum þátt Spánar i samkomulaginu, en Alsír hefur lagt á það áherzlu að efnt verði til Þjóðaratkvæðagreiðslu meðal íbúa Spænsku-Sahara um framtið landsins. Alsír hefur til þessa lagzt ein- dregið gegn því að Marokkó legði undir sig Spænsku-Sahara og hef- ur verið lögð á það áherzla að íbúar Spænsku-Sahara hefðu sjálfir úrslitavald um framtið landsins. Herrera, upplýsinga- málaráðherra Spánar sagði í gær, að ekki yrði gerð grein fyrir sam- komulaginu í smáatriðum fyrr en í næstu viku, en áreiðanlegar heimildir i Madrid herma, að við- brögð Alsír við samkomulaginu bendi til þess, að enn sé ekki útilokað að átök geti orðið um framtíð Spænsku-Sahara. — Klippt á Framhald af bls. 48 aðgerðar varðskipsirís í gær og þess að hún gerist sama dag og brezka sendinefndin er væntan- leg til landsins til viðræðna við islenzka ráðamenn. Ekki tókst að ná í dómsmálaráð- herra til að spyrja hann hvort vænta mætti frekar aðgerða af hálfu islenzku varðskipanna nú næstu daga. Kaffisala í Ytri-Njarðvík SYSTRAFÉLAG Ytri- Njarðvikursóknar heldur kaffi- sölu í Stapa í dag og hefst hún kl. 15.30. Þar verður ýmislegt til skemmtunar svo sem tizku- og danssýning, söngur, gamanvísur og happdrætti. Eitt af markmið- um systrafélagsins er að stuðla að kirkjubyggingu i Ytri- Njarðvikursókn en þar er að rísa af grunni stór og vegleg kirkja. hefði þegar tekið var í gikkinn. Þetta er í fyrsta sinn, sem forseti Bandarikjanna ber vitni fyrir rétti með aðstoð myndsegulbands. — Fólkið sjálft Framhald af bls. 19 Alveg bráð- nauðsynlegt Við höfum alltaf reynt að fylgjast mjög vel með því sem er að gerast í þessum málum. Við höldum t.d. fundi með verzlunarstjórum allra búð- anna og fólki úr einstökum deildum á hverjum einasta mánudagsmorgni. Þar eru svona 10 manns — fólkið úr búðunum, við Guðlaugur Berg- mann og Colin Porter, sem er hönnuður okkar. Á þessum fundum berum við saraan bækur okkar, ræðum um hvað sé spurt, hvað viðskiptavinirnir vilji og annað þess háttar. Þetta er alveg bráðnauðsynlegt. London er ennþá miðstöðin — Frá hvaða landi kaupið þið mest? — Við kaupum langmest frá Englandi. Einnig þó nokkuð frá Hollandi. 1 Englandi byrj- aði þessi alda með Bítl- unum og við vorum fyrstir til að taka við okkur hér á landi, þannig að við gátum bókstaflega valið úr beztu fyrir- tækjunum þegar við fórum á stúfana. Þetta á að sjálfsögðu sinn þátt í því hvernig fyrir- tækið hefur stækkað og fært út kviarnar. Englendingar fram- leiða vandaða vöru, og enda þótt Frakkar séu góðir og eigi í sumum tilfellum hugmynd- irnar, þá taka Bretarnir upp eftir þeim, en það er bara sá reginmunur, að verðið er allt annað. Þú ferð kannski til Parísar og sérð þar flfk, sem er búin til þar og er rándýr. Svo kemurðu til London og sérð sams konar flfk þar, jafnvand- aða. Munurinn er bara sá, að hún er þrisvar sinnum ódýrari, og á henni er miði sem á stendur „Made in England", en ekki „Made in Franee". Tízkan mjög fjölbreytt* — Hvað er mest f tfzku núna? — Eins og sakir standa er tízkan mjög fjölbreytt. Það sem við seljum mest af eru buxur, buxur og aftur buxur í ótrúlega mörgum efnisgerðum t.d. denim — tereline og ull — riflað flauel — finflauel og kakhi. Það eru svo margar gerð- ir af buxum og það er ekki nóg að buxur séu buxur með tveim- ur skálmum. Það verða að vera sérstök snið og fjölbreytni, sem er helzt fólgin i allskonar smá- atriðum — saumum, vösum og þess háttar. Hins vegar er eitt, sem ég er viss um — og veit raunar að muni slá i gegn á næstunni. Það eru gallabuxur meö þröngum skálmum — sigarettuskálmum, eins og Ameríkanarnir kalla þetta. Þessar buxur held ég að verði aðeins f tízku hjá kvenfólki en þær eru Iangflestar í síðbuxum hvað sem hver segir, sama er að segja um samfestingana „Jum suits“, ég held að sú tízka muni örugglega ná fótfestu hér. Það er nefnilega þetta, sem hefur breytzt. Kvenfólkið lætur ekki lengur segja sér hvað er í tízku. Það lætur ekki skipa sér að fara i pils ef þvf finnst þægilegra að vera í síðbuxum og lætur ein- faldlega ekki taka þær frá sér. Svo eiga þær auðvitað allar pils eða kjóla til að fara I þegar þeim dettur f hug, þvf eins og ég sagði áðan, tfzkan er geysi- lega fjölbreytt um þessar mundir. — Hvað með skótfzkuna? Þunnt og þykkt — Það eru nokkur ár siðan ætlunin var að koma þvi inn hjá fólki, að þykku sólarnir væru búnir að vera. Það tókst bara ekki. Sumt fólk vill ekki fara niður á jörðina aftur. Það vill fá að vera á sfnum þykku sólum og háu hælum hvað sem hver segir, sérstaklega kven- fólkið, þótt stefnan i skótízk- unni sé þunnur botn með háum hæl. Við höfum haft Gatsby- skótfzkuna (fínlegir skór með þunnum botni og háum hæl) frá opnun skóverzlunar okkar og hafa þeir notið vaxandi vin- sælda. Mest eru áberandi hjá kvenfólkinu víð og há stígvél (svokölluð Baggy Boots) en einnig njóta kúrekastígvél (cowboy boots) mikilla vin- sælda, sagði Sævar Baldursson að lokum. HÉR KEMUR TILROfllfl. SEM HÚ HEFIIR BEfllfl EFTIR Undanfarnar vikur hafa keppinautar okkar lagt sig sérstaklega fram um að bjóða mönnum upp á hag- stæð hljómtækjakaup, og hafa ýms dágóð tilboð komið fram. — Þetta gerum við nú reyndar alltaf, hvenær sem er og hvernig svo sem á stendur, og er sú samstæða, sem hér er sýnd, glöggt dæmi um það. — Hér er um að ræða vandaðan, 20 sinus/RMS watta, sambyggðan for- og kraftmagnara teg. A-245 frá SUPERSCOPE verksmiðjunum bandarísku á- samt tveimur SUPERSCOPE S-26A hátölurum og fullkomnum sjálfvirkum plötuspilara frá BSR i Eng- landi, teg. BDS-80 með ADC K-7E segulþreif. — Samstæða þessi kostar kr. 79.600,00, og teljum við, að hagstæðari hljómtækjakaup gerist ekki um þessar mundir. — Við erum ekki að varpa neinni rýrð á keppinauta okkar með þessu, síður en svo, þeir eru margir hverjir hinir gegnustu menn, en hins vegar viljum við vekja athygli á því, að við beitum nú annari innkaupaaðferð en flestir þeirra. Okkar aðferð byggist á þvi, að kaupa frá mörgum verk- smiðjum (við erum nú með einkaumboð fyrir tíu valda hljómtækjaframleiðendur i sex þjóðlöndum), ekki einni eða tveimur, og velja saman tæki í sam- stæður. Ennfremur kaupum við það eitt frá hverjum og einum framleiðanda, sem hann framleiðir sjálfur (ekki það, sem framleitt er fyrir hann af öðrum, þó undir hans eigin vörumerki sé) og útilokum þannig, eftir því, sem slíkt er hægt, milliliða álagningu. — Það er þessi mismunur i innkaupaaðferðum, sem gerir hinn stóra gæfumun. NESCO HF Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja. Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Simar: 19150-19192-27788

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.