Morgunblaðið - 16.11.1975, Qupperneq 48
;lYsin<;asíminn er*.
22480
IHíröttnlíIttííííi
AUCíLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Ittorgunblaöib
SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1975
Þorskurinn:
Ljósraynd Sv. Þorm.
HJÁLMURINN BJARGAÐI — Segja má að hjálmur hafi bjargað þvi að ekki varð mikið slys á
Bræðraborgarstíg í gær, þegar bifreið ók f veg fyrir pilt á skellinöðru svo pilturinn hentist af hjólinu
og skall í götuna. Pilturinn slapp án verulegra meiðsla en á götunni mátti sjá málningu sém skrapazt
hafði af hjálminum við höggið, svo mikið var það. Sjá má meira um slysin á bls. 3.
Staðfestist nú æ
betur hve alvar-
legt ástandið er
„ÞAÐ staðfestist betur og betur
með hverri rannsóknaferð sem
farin er, hversu alvarlegt ástand
þorskstofnsins er orðið,“ sagði
Sigfús Schopka, fiskifræðingur,
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann um borð i rannsóknaskipinu
Bjarna Sæmundssyni í gær, en þá
var skipið statt við þorskrann-
sóknir á Eyjafirði. 1 þessari ferð
Bjarna Sæmundssonar hefur
verið reynd ný gerð af poka, sem
er með 160 millimctra möskva-
stærð, sem hugsuð er til að
vernda þorsk- og ýsustofninn
betur. Hins vegar hefur verið lög-
leidd ný möskvastærð í pokum á
næsta vori og eiga þá öll skip að
nota 135 mm möskva.
Sigfús Schopka sagði, að frekar
lítið hefði fundizt af þorski í þess-
ari ferð, sem nú væri hálfnuð.
Helzt væri það að 4—5 ára fiskur
fyndist en lítið af eldri fiski eða
yngri. Það væri að visu algengt að
lítið væri um fisk á þessum árs-
tíma, en miðað við sama tima á
undanförnum árum staðfestist
klæðningin er tvöföld og hvaða
möskvastærð er notuð í kiæðn-
ingu hefur líka mikið að segja, “
sagði Guðni Þorsteinsson fiski-
fræðingur er hann var spurður
um nýju möskvastæðina.
Hann sagði, að þegar væri séð,
að 160 mm möskvastærðin kæmi
að góðu gagni á þorsk- og ýsu-
veiðum, en ljóst væri að hún væri
of stór á karfaveiðum. Um þessar
mundir væri notuð 120 mm
möskvastærð. Þá væri spurningin
hvort leyfa ætti tvær gerðir af
möskvastærð, aðra sem notuð yrði
við veiðar á þorski og ýsu og hina
við veiðar á karfa. Það kallaði á
annað vandamál, sem væri eftir-
litið. Strangt eftirlit þyrfti til að
fylgjast með að sjómenn notuðu
réttar möskvastæðir og gæti það
orðið nokkuð erfitt. — Það er
alltaf erfitt að sjá fyrir öllu, sagði
Guðni.
íslenzku varðskipin láta til skarar skríða:
það betur og betur hve lítið væri
eftir af þorski í sjónum.
„Þessi nýja möskvastærð á
poka, þ.e. 160 millimetrar, er
fyrst og fremst hugsuð til að
vernda þorsk- og ýsustofninn
betur. Að vísu segir möskva-
stærðin ekki allt. Hvort
Engin
hækkun
á áfengi
STÖÐUGUR orðrómur var í
borginni fyrir helgina um að
hækkun yrði á mánudag á
áfengi og tóbaki og munu ýms-
ir hafa birgt sig vel upp af
þeim sökum.
Af þessu tilefni hafði Morg-
unblaðið tal af Höskuldi Jóns-
syni ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu, og spurði
hann hvað hæft væri f þessum
orðrómi. „Ég hef nú ekki heyrt
af þvf að hækkun standi til og
þætti með ólíkindum að slfkt
hefði ekki borizt mér til eyrna
ef til stæði,“ svaraði Höskuld-
ur. Hins vegar virtist ráðu-
neytisstjórinn ekkert ókátur
yfir þessum orðrómi, taldi lfk-
ur á að hann glæddi söluna og
þar af leiðandi kæmi aukið fé f
rfkiskassann.
Klippt á báða togvíra brezks
togara úti af Vestfjörðum 1 gær
VARÐSKIPIÐ Þór skai um há-
degisbilið f gær á báða togvfra
brezks togara, sem var á veiðum
um 33 sjómflur úti af Straumnesi
á Vestfjörðum. Eru þetta fyrstu
átökin á Islandsmiðum milli
skipa Landhelgisgæzlunnar og
brezkra togara eftir að fiskveiði-
lögsagan var færð út f 200 sjómfl-
ur og undanþágusamningarnir
um veiðar brezkra togara innan
50 mflnanna runnu út. Þessi at-
burður bar upp á sama dag og
væntanleg var til landsins brezk
sendinefnd til viðræðna við fs-
lenzk stjórnvöld um hugsanlega
lausn á landhelgisdeilu þjóðanna,
og f samtali við Morgunblaðið f
gærdag sagði utanríkisráðherra
að hann treysti sér ekki til að
segja um það hvort þessi atburð-
ur á miðunum myndi hafa ein-
hver áhrif á framvindu viðræðn-
anna sem f hönd færu.
Samkvæmt upplýsingum Hálf-
dáns Henrýssonar, fulltrúa hjá
Landhelgisgæzlunni, var það um
kl. 12.04 í gærdag að varðskip
skar á báða togvíra brezka togar-
ans Primella H-98 en skipið var
þá að ólöglegum veiðum um 33
sjómílur úti af Straumnesi á Vest-
fjörðum. Hafði togarinn neitað að
hifa inn trollið þrátt fyrir ítrek-
aðar viðvaranir skipherra varð-
skipsins. Primella var þarna að
veiðum ásamt 4 öðrum brezkum
togurum innan um islenzk fiski-
skip, en eins og kom i ljós í land-
helgisgæzluflugi í gær er megin-
floti brezku togaranna eða alls um
50 skip að veiðum úti af Aust-
fjörðum um þessar mundir. Hafa
þeir hlýtt viðvörunum varðskipa
sem þar eru og híft þegar varð-
skip er í nánd, enda þótt trollið sé
oftast komið út aftur óðar og varð-
skipið er úr augsýn.
Morgunblaðið sneri sér til Pét-
urs Sigurðssonar, forstjóra Land-
helgisgæzlunnar, vegna þessa at-
burðar og spurði hvers vegna
hefði verið látið til skarar skríða
gegn brezku togurunum á þessum
tima. Pétur svaraði því til, að
varðskipin hefðu margsinnis ver-
ið búin að aðvara brezku togarana
úti fyrir Vestfjörðum, sem þar
hefðu verið að veiðum innan um
íslenzk skip. „Þeir hlýða okkur
engu, benda á einhverja ákvörð-
un brezku ríkisstjórnarinnar sem
við ekki þekkjum né viðurkenn-
um, svo að við töldum okkur ekki
eiga annars úrkosta en hverfa að-
gerðir,“ sagði Pétur.
Morgunblaðið hafði einnig tal
Þýfið var ósnert
RANNSÓKNARLÖG-
REGLAN yfirheyrði í gær
þjófana tvo sem stálu VA
milljón króna úr af-
greiðslu Vængja, en eins
og kom fram í Mbl. í gær
voru þjófarnir gripnir á
föstudagskvöldið.
Að sögn rannsóknarlögreglunn-
ar eru þetta tveir piltar um tví-
tugt. Þeir höfðu vitneskju um
þessa peningasendingu og hirtu
pakkann milli klukkan 3 og 4 á
fimmtudaginn. Peningarnir voru
faldir á heimili annars þeirra og
fannst öll upphæðin, ein og hálf
milljón, ósnert við húsleit á föstu-
dagskvöld. Peningarnir voru í
vörzlu lögreglunnar í fyrrinótt en
í gær átti að afhenda pá eigand-
anum, Búnaðarbanka Islands.
Þrír rannsóknarlögreglumenn
unnu að rannsókn málsins, þeir
Eggert Bjarnason, Haukur
Bjarnason og Sigurbjörn Víðir
Eggertsson. Einnig nutu þeir
aðstoðar rannsóknarlögreglunnar
í Kópavogi. Piltarnir tveir voru í
haldi íogreglunnar I gær en ekki
var fullljóst hve lengi þeir yrðu í
haldi.
Gylfi Jónsson varðstjóri með pen-
ingapakkann. Hann var kyrfilega
innsiglaður og þvf ekki hægt að
mynda innihaldið.
Viðræður
við Breta
hefjast á
mánudags-
morgun
SEINNI hluta dags f gær var
Roy Hattersley, aðstoðarutan-
rfkisráðherra Breta, væntan-
legur til landsins ásamt Ed-
ward Bishop, aðstoðarsjávarút-
vegsráðherra og sex manna
fylgdarliði til viðræðna við fs-
lenzka ráðamenn um land-
helgisdeiluna og hugsanlegt
samkomulag til lausnar.
Eundir viðræðunefnda
beggja landanna hefjast þó
ekki fyrr en um kl. 10.30 á
mánudagsmorgun f Ráðherra-
bústaðnum, en ekki er með
öllu útilokað að einhverjar
óformlegar viðræður eigi sér
stað f dag samkvæmt þeim
upplýsingum er Morgunblaðið
gat aflað sér f gær.
Þá er einnig endanlega af-
ráðið að fslenzka viðræðu-
nefndin fari utan til Bonn og
eigi þar fund með v-þýzkum
ráðamönnum á miðvikudag.
af utanríksráðherra, Einari Ág:
ústssyni, og spurði hann hvort
hann teldi að þessi atburður á
Vestfjarðamiðum niyndi hafa
einhver áhrif á þær
viðræður við brezku sendinefnd-
ina sem i hönd færu en
Einar kvaðst ekki treysta
sér til að svara þvi. Hins vegar
taldi hann ekki mega líta svo á
sem samband væri milli þessarar
Framhald á bls. 47
Síðustu fréttir:
RÉTT áður en Morgunblaðið fór f
prentun bárust þær fregnir að
varðskipið Týr hefði klukkan
15.08 skorið á togvíra brezka
togarans Boston Marauder FD-
168 frá Fleetwood. Var togarinn á
veiðum 35 sjómflur útaf Hvalbak.
15 ára piltur stal
nær hálfri mOljón
Keflavíkurlögreglan handtók f
vikunni 15 ára pilt vegna nokk-
urra stórinnbrota þar í bæ á und-
anförnum vikum og mánuðum.
Hefur pilturinn viðurkennt að
hafa verið afkastamikill við inn-
brot á þessum tíma og haft upp úr
krafsinu nær 500 þúsund krónur f
peningum og valdið skemmdum
fyrir eitthvað á aðra milljón.
Síðasta stórinnbrot piltsins var
nú i vikunni, þegar hann brauzt
ásamt 14 ára félaga sinum inn i
Gagnfræðaskóla Keflavíkur. Þar
stálu þeir tæpum 200 þúsund
krónum f peningum og unnu svo
miklar skemmdir á húsnæði skól-
ans að það er metið á tæpa millj-
ón. Þá hefur pilturinn viðurkennt
tvö innbrot í kaupfélagið i Kefla-
vík og stolið þaðan 2—300 þúsund
krónum. öllum peningunum, að
undanskildum 160 þúsund úr síð-
asta innbrotinu, hefur pilturinn
éytt f „hið ljúfa Iíf“, eins og það
var orðað.