Morgunblaðið - 24.11.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.11.1976, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480 Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. Námslánin Mikið hefur verið rætt og ritað um námslánin að undanförnu. Sýnist þar sitt hverjum, enda eru ýmsar hliðar á því máli, ef grannt er skoðað. Þau sjónarmið virðast vera nokkuð ráðandi hjá almenningi, að námsmenn eigi að mestu að sjá um sig sjálfir, eins og algengast var fyrr á tíð, en þó eru þeir áreiðanlega margir — og einkum þeir sem einhver kynni hafa af námskostnaði — sem eru þeirrar skoðunar, að nútfmaþjóðfelag eigi að rétta námsmönnum höndina og gera þeim námið auðveldara með þvf að styðja þá f erfiðleikunum. Fyrrnefnd andúð almennings á m.a. ræturað rekja til baráttuaðferða núverandi forystumanna námsmanna. Það er rétt sem fram hefur komið að ósamræmi og mismunun er enn milli skóla og ekki síður hitt, að mönnum er yfirleitt ekki auðið að lifa neinu lúxuslffi af tekjum sínum og námslánum. Á það er einnig að Ifta að námslánin eru vísutölubundin í endurgreiðslu, en slfkt er ekki regla f okkar þjóðfélagi. Aftur á móti bentu sumir viðmælendur Morgunblaðsins á, að námslánatil högun sé með þeim hætti, að hún gæti dregið úr áhuga námsmanna að vinna, og benti Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri meðal annars á, að lán hefði alltaf verið minnkað þegar námsmaður, honum vandabundinna var „duglegur að vinna sér inn á sumrin", eins og hann segir. Þá kom einnig fram f samtölunum hér f blaðinu, að námslánin eru enn að einungis litlu leyti sniðin fyrir svokallaða verkskóla. Það er fráleitt að námsmenn séu settir hjá, vegna þess að þeir hafa unnið fyrir meiri tekjum en lánasjóður ákveður, að sé fjárþörf námsmanna, og kemur þetta að sjálfsögðu við ýmsa í sjómanna- og iðnskólum, svo að dæmi séu tekin, en auðvitað vinna margir háskólastúdentar baki brotnu allt sumarið og er þeim svo refsað með því, að þeim er sagt, að þeir hafi fengið of miklar tekjur, þá mánuði. sem þeir unnu Pétur H. Pálsson f Stýrimannaskólanum sagði m.a., að reglurnar um vinnutekjur með tilliti til lána, séu hæpnar, þar sem „ þær draga úr löngun manna til að vinna, og einnig koma þær oft illa niður á þeim, sem virkilega þurfa að vinna fyrir sér", eins og hann komst að orði. Það gefur auga leið, að við eigum ekki að halda í kerfi, sem dregur úr þvf ,að íslenzkir námsmenn hafi löngun til að vinna fyrir sér, kynnast lifnaðar háttum þjóðar sinnar og atvinnulffi um land allt. Sem betur fer er ekki heldur mikið um. að svo sé, því að námsmenn eru drjúgur vinnukraftur og sýna oft og einatt mikinn dugnað, ekki sfður en fyrr á árum, þegar þeir hlutu hvorki styrk né stuðning af opinberri hálfu og urðu að bjarga sér upp á eigin spýtur. En sú fullyrðing að framhaldsnám hlyti að falla niður, um leið og námslán væru afnumin hefur verið afsönnuð með mörgum dæmum, bæði fyrr og sfðar. Margir vinna nú fyrir sér með námi án slfkra námslána. En f mannúðarþjóðfélagi eins og okkar hlýtur að vera unnt að hlúa að námsmönn- um með glaðara geði en oft kemur fram f samtölum manna f milli. Sigrfður Jónsdóttir á ísafirði, segir m.a „Það virðist vera, að þeir, er stóðu að þessum logum um námslánin, hafi látið giepjast af áróðri, sem haldið hefur verið uppi nú á seinustu árum gegn námsfólki og menntamönn- um yfirleitt, en eiknum þó á sviði hugvfsinda og lista. Það hafa dunið yfir mann f útvarpi og blöðum yfirlýsingar um það, hvflfkur feiknabaggi þeir séu á þjóðinni og hvers konar eyðsluseggir og letingjar þeir séu og óþurftarlýður f þjóðfélaginu. Veit ég að vfsu. að til eru menn f röðum námsmanna, sem hafa svikizt um nám og misnotað sér námsaðstöðu og lán, en þeir eru áreiðanlega sárafáir miðað við þá mörgu, sem rækja nám sitt og skila góðum árangri." Hún segir ennfremur, að þvf sé mjög á loft haldið, að þjóðfélagið hafi ekki efni á að kosta menn til mennta, en spyr jafnframt, hvort það hafi efni á að hjálpa ekki hverjum þeim til náms, sem hefur löngun, vit og vilja til að menntast og mannast á hvaða sviði sem er, eins og hún kemst réttilega að orði. Það kemur fram f úttekt Morgunblaðsins, að meðallán greidd f haust, eru 137,4 þúsund á hvern lánþega hér heima, en erlendis 226,4 þúsundir. Meðallán f Háskóla íslands er 136.3 þúsund, 195.8 í Kennaraskólanum, 184,3 f Tækniskóla íslands, 85.7 þúsund í Stýrimannaskólanum og 76.3 f Vélskóla íslands. Meðallán erlendis eru 226.2 þúsund krónur og mest f Danmörku 235 þúsund. íslenzkum námsmönnum erlendis veitir áreiðanlega ekki af þeirri aðstoð, sem þeir fá með námslánum og sá tvískinnungur vekur athygli, sem fram kemur f úttekt Morgunblaðsins, að jafnvel þótt framfærslukostnaður á mánuði f Danmörku sé talinn vera 69 þúsund krónur á mánuði er sú gjaldeyrisyfirfærsla, sem leyfileg er á mánuði, aðeins rúm 53 þúsund krónur. Slfkt smásmygli ætti ekki að rfkja í opinberu Iffi á íslandi. í úttekt blaðamanna Morgunblaðsins á námslánum, segja þeir, að það séu einkum tvö atriði sem Kjarabaráttunefnd námsmanna berst fyrir: í fyrsta lagi, að eðlilegt tillit sé tekið til fjölskyldustærðar, en f reglugerð varðandi útreikning haustlána segir, að taka skuli tillit til framfærslukostnaðar barna, en aðeins ef námsmaður er einstætt foreldri. . . Hvemig f ósköpunum er hægt að hafa :.Jikar reglur f nútfmaþjóðfélagi? Á að refsa námsmönnum fyrir að eignas' börn, svo að ekki sé nú talað um, ef þeir eignast börn f hjónabr .di! Slfku verður að breyta, svo fáránlegt sem það er. Morgunblaðið tekur undir þær kröfur námsmanna, að þessu atriði verði vikið til hliðar og réttlæti komið á, hvað þetta snertir. Námsmenn eru fullorðið fólk, en engin börn. Sumir Ijúka ekki námi fyrr en um þrftugt. Slfk ákvæði, sem fyrr eru nefnd, brjóta hreinlega í bága við ef ekki heilbrigða skynsemi, þá a.m.k. allar aðstæður í þjóðfélagi okkar. í öðru lagi er þess óskað, að ekki sé gerður sá greinarmunur, sem nú er, á framfærslukostnaði námsmanns, sem býr utan foreldrahúsa annars vegar, og r msmanns, sem býr enn f foreldragarði hins vegar, en sá sfðarnefndi fær nú - ðeins 40% námslána. Það mun talið eðlilegt að námsfólk, sem nýtur ókeypis fæðis og húsnæðis f heimahúsum, fái lægri lán. En hér er ekki tekið tillit til þeirra mörgu, sem verða að greiða fyrir uppihald sitt til foreldra; með þvf er börnum efnalftilla foreldra torveldað að halda áfram námi eins og bent er á f fyrrnefndri úttekt. Þannig er háttað hjá mörgu námsfólki, að það á ekki efnaða foreldra, og verður að borga með sér. í raun og veru er það óskiljanlegt, að slfku fólki skuli refsað fyrir að búa í heimahúsum, því að það getur jafnvel verið þjóðfélagslega hagkvæmt, vegna þess að þetta námsfólk tekur ekki húsnæði frá öðrum og á því ekki hlut að því að auka á húsnæðisvandræði hér á landi, sem nóg eru fyrir. Að sjálfsögðu á það námsfólk, sem býr hjá efnalitlum foreldrum, að fá tækifæri til að sitja við sama borð og aðrir. Annað samrýmist ekki jafnréttis- og réttlætiskröfum. Hér virðist því ýmsu þurfa að breyta til batnaðar og hvetur Morgunblaðið til þess, að mál þetta sé skoðað í heild, vankantar sniðnir af og augljóst óréttlæti afnumið. Hitt er svo annað mál, að námsmenn mega ekki grfpa til baráttuaðferða, sem vekja tortryggni á hagsmunum þeirra og andúðalmenn- ings f landinu. 17 Frá ráðstefnu Sambands sjálfstæðiskvenna og Hvatar í Reykjavík um áfengis- og fíkniefnamál: Frá fundi Landssambands sjálfstæðiskvenna og Hvatar á Hótel Sögu. Þjóófélags- vandamál, sem leiðir böl yfir þúsundir ísl. heimila Laugardaginn 23. október s.l. var haldin í Reykjavík ráðstefna um áfengis- og fikniefnamál á vegum Landssambands Sjálfstæðiskvenna og „Hvatar", félags Sjálfstæðiskvenna i Reykjavík. Ráðstefnan stóð frá kl. 9:30 til kl. 17. með hádegisverðarhléi. Flutt voru fimm framsöguerindi fyrir hádegið, en síðdegis fóru fram pallborðsum- ræður. Ráðstefnan, sem var öllum opin, var fjölsótt, umræður miklar og áhugi á, að öll ábyrg öfl í þjóðfélaginu, ekki hvað sízt stjórnmálaflokkarnir, sameinuðust í baráttunni gegn því þjóðfélagsmeini, sem neyzla áfengis og annarra fikniefna er orðin í dag í landinu. um þessi mál víðar um landið á vegum Sjálfstæðiskvenna Skipaði fundarrit ara Jónínu Þorfinnsdóttur og Margréti S.Einarsdóttur. Utan við pólitiska flokkadrætti Formaður Landssambands Sjálf stæðiskvenna frú Sigurlaug Bjarna- dóttir, alþm , setti ráðstefnuna og bauð gesti velko'mna Ræddi hún mikilvægi þess að stjórnmálaflokkar og félaga- samtök tækju til meðferðar málefni af sllku tagi sem hér yrði nú fjallað um. Taldi hún að pólitískir flokkadrættir ættu að vera slíkum málefnum óvið- komandi og lagði áherzlu á nauðsyn þess, að sameinast í átaki, þar sem átaks væri þörf til úrbóta I ýmsum þjóðfélagsmálum Líkti hún varnarað- gerðum í áfengis- og fíkniefnamálum við aðgerðir í slysavarna- og björgunar- málum Taldi hún að ef konur tækju sig saman gætu þær áorkað miklu í vörn gegn þessum málum sem og á öðrum sviðum þjóðlífsins Minntist hún á að fyrirhugaðar væru ráðstefnur var Jó Áfengi mest misnotaði vímugjafinn Fyrstur framsögumanna hannes Bergsveinsson, læknir. í upphafi ræddi hann um hina ýmsu vímugjafa sem menn hafa fundið upp — upphaflega í læknisfræðilegum til- gangi — en eru nú orðnir skaðlegir sem vímugjafar og eru vaxandi vanda- mál í hinum vestræna heirrii. Sagði hann áfengi vera þann vímugjafa sem mest væri misnotaður hérlendis hing- að til Minntist hann á gerð og efna- samsetningu áfengis og sagði að etan- ol væri það efni sem skaðlegast væri í áfenginu. Ræddi hann síðar um áhrif vinand- ans á líkamann og þá skaðsemi sem það veldur Svo sem skemmd á hinum ýmsu heilafrumum og lifraskemmdir. Miðtaugakerfið verður háð áfenginU og skortur þess veldur óróa, kvíða, skjálfta og jafnvel krampa. Sálræn þörf verður einnig mikil — enda áfengi oft notað upphaflega til þess að draga úr feimni, óframfærni og vanmáttarkennd. Sé um langvarandi drykkjusýki að ræða koma fram líffæraskemmdir Þá ræddi hann um „gæsluvistar- sjóð", sem hann taldi að nauðsyn bæri að efla Gæsluvistarsjóði er ætlað að standa undir rannsóknum á neyslu- venjum íslendinga hvað varðar áfeng- isneyslu. Áfengisneysla hefur aukist gífurlega frá árinu 1965—1975, og er áberandi hvað aldurinn hefur færst neðar og einnig hve áberandi áfengis- neysla hefur aukist meðal kvenna og unglinga Meðalaldur karla sem byrjunaraldur áfengisneyslu er 1 6,5 ár en kvenna 1 7,9 Áfengisneysla leiðir iðulega til mikils heilsu- og eignatjóns og félagslegs skaða Drykkjusýki er geðsjúkdómur sem í eðli sínu er ólæknandi en unnt að halda niðri Veigamikill þáttur í starfsemi geðsjúkrahúsa er meðferð drykkjusjúkra. Lagði hann áherslu á að til þess að draga mætti úr áfengisneyslu þjóðar- innar væru fyrirbyggjandi aðgerðir það sem athygli manna hlyti að beinast að Taldi hann að gera ætti áfengi minna aðgengilegt, m a méð þvi að hafa fáa útsölustaði, hátt verð á sterkum drykkjum og stuðla fremur að neyslu léttra drykkja en sterkra. Vinna bæri að breyttu almennings- áliti t.d með fræðslu í skólum sem miða að þvi að einstaklingurinn finni ánægju I lífinu án neyslu áfengis eða annarra fíkniefna Með aukinni fræðslu í fjölmiðlum sem vinna á móti áróðri beinum og óbeinum Efla geðvernd með þvi að draga úr .þáttum uppeldis sem stuðla að sálrænum truflunum Lauk hann máli sinu með því að ræða byggingu geðdeildar við Land- spitalann sem hann taldi mjög mikil- væga Hækkun sekta við áfengislagabrotum Þá tók til máls næsti framsögumaður Ingibjorg Benediktsdóttir, fulltrúi i Sakadómi Reykjavíkur. Ræddi hún fyrst um efni núgildandi áfengislaga, skýrði þau — tilgang þeirra og refsiákvæði Þá ræddi hún um frumvarp til breyt- inga á áfengislögunum sem borið var fram á AIÞ'ngi s.l. ár. Taldi hún fulla ástæðu til þess að hækka sektir við brotum á áfengislögunum. Sagði frá því að 2586 einstaklingar hefðu gist fangageymslur lögreglunnar vegna áfengisneyslu á s.l. ári Flestir þeirra væru „fastagestir" hjá lögreglunni. Væri þetta ósvipaður fjöldi nú og árið 1 972. Þá ræddi hún um hin svoköll- uðu áfengiskaupaskírteini sem væru eitt af ákvæðum áðurnefnds frum- varps. Taldi hún litlar líkur til þess að þau myndu megna að koma i veg fyrir leynivinsölu eða kaup barna á áfengi sem þó væri tiigangur þeirra Þá ræddi hún nokkuð um ólöglega áfengissölu og taldi lögregluna hafa unnið Þ^r mikið og gott starf við að upplýsa slík mál Sagði hún að meðal- verð á brennivinsflösku hjá leynivín- sala myndi nú vera um kr. 6 000 - 10.065 kærur bárust Sakadómi Reykjavíkur á siðasta ári vegna ölvunar við akstur. Sagði hún það um- hugsunarvert hversu mikið er um ölv- un við akstur hér i borg miðað við íbúafjölda. Þá sagði hún þátt ölvunar í afbrotum svo sem innbrot og likamsár- ásir vera mræddi hún um framkvæmd áfengislaganna sem hún taldi ábóta- vant. Og taldi aðstöðuleysi t.d. á sjúkrahúsum koma þar til Benti hún á mikilvægi þess að efla framkvæmd áfengislaganna og auka fordómalausa áfengisfræðslu Taldi hún aukið sam- starf félaga og einstaklinga sem áhuga hafa á þessu málefni mikilvægt spor í rétta átt. Varhugavert að berja niður áfengi með vímugjöfum Næstur flutti framsöguerindi Hauk ur Kristjánsson, yfirlæknir slysadeild- ar Borgarspítalans Hóf hann mál sitt með því að þakka það tækifæri sem sér hefði verið boðið með þvi að ræða þetta mikilsverða mál. Kvaðst hann taka það fram að hann teldi sig enga sérþekkingu hafa á áfengismálum yfirleitt, en byggði er- indi sitt á fenginni reynslu sem yfir- læknir slysadeildar. Taldi hann varla réttlætanlegt að tala um áfengisdrykkju sem sjúkdóm frá læknisfræðilegu sjón- armiði heldur fremur frá félagslegu sjónarmiði Þá ræddi hann um nauðsyn þess að auka fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerð- ir sérstaklega með tilliti til æskunnar. Læknisfræðilegar aðgerðir geta oft ver- ið erfiðar vegna ástands þeirra sem koma ofurölvi og slasaðir á slysadeild Taldi hann varhugavert að berja niður áfengisneyslu með öðrum vímugjöfum sem gæti oft orðið til þess eins að skapa vítahring Þá taldi hann áberandi hversu kon- um hefur fjölgað meðal hins svokallaða „útigangsfólks". Ræddi hann síðar nokkuð skýrslur um áfengisneyslu og benti á að ekki kemur þar fram neysla smyglaðs áfengis. Benti hann á að vel gæti verið að þjóðfélagsleg ögun væri minni hérlendis en annars staðar og ylli það jafnvel því að íslendingar drekka mun verr en aðrar þjóðir Þá sagðist hann telja vinnutímastytt- inguna skapa ákveðið tómarúm hjá fólki sem kemur jafnvel fram í aukinni áfengisneyslu. Sagði hann reynslu sína benda á þá staðreynd að drykkjusiðir hér I Reykjavík og nágrenni hafa farið versnandi þegar fólk hætti að vinna á laugardögum. Það virtist sem viss „tómstundaleiði" angraði fólk. Þá taldi hann einnig hið gífurlega peningaflóð ýta undir drykkjuskap Kynslóðabilið svokallaða sagði hann vera hinn mesta bölvald og taldi að samheldni fjölskyldunnar gæti komið I veg fyrir drykkjuskap Skemmtanir megi teljast til lífsnauð- synja og þarf að færa skemmtanir I betra horf en nú er, brúa þarf kynslóða- bilið með áfengislausum skemmtun- um Áfengisneysla er mikið tískufyrir- brigði í dag og þarf að breyta þar almenningsálitinu Gróði af áfengis- sölu er þess eðlis að ríkiskassinn þolir ekki að hún falli niður. En þá má benda á að hið opinbera verður I flestum tilvikum að bæta það sem drukkin veldur sjálfum sér eða öðrum Reyna verður að reisa þar skorður við of- drykkjunni þannig að þessi þjóðar- plága hverfi. Hann lauk máli sínu með þeim orð- um að mikið væri nú rætt um verndun gróðurs og dýra gegn mengun og nauðsyn væri að vernda menn ekki síður en annað I llfríkinu gegn mengun og þá blaði yrði áfengisneysla þar efst á siðgæði fólks fyrir heilbrigðum skemmtunum. Unglingar komast upp með að brjóta lög, með því áð útivistar- tími er ekki almennt virtur og þeim er hleypt inn á skemmtistaði þó þeir hafi ekki aldur til. Þá ræddi hann þátt fjölmiðlanna sem hann taldi mjög áhrifamikla Frétt- ir í fjölmiðlum væru oftast um það neikvæða svo sem stríð, morð, rán og slys Æsifréttir virtust vera látnar sitja í fyrirrúmi I stað þess að flytja meira af jákvæðum fréttum. Almenningsálitið er afar mikilvægt þegar rætt er um áfengis- og fíkniefnamál og fjölmiðlar eru þar glfurlegir áhrifavaldar. Fjöldasamtök svo sem foreldrafélög. kennarar, íþróttafélög, kirkjufélög og kvennasamtök þurfa að taka höndum saman til að stöðva þá óheillavalda sem eyðileggja þjóðlíf okkar. í lokin lagði hann ríka áherslu á að fjölskyldan yrði áfram að vera hornsteinninn I þjóðfélaginu Besta vórnin athafnasemi í leik og starfi Næstur tók til máls Ásgeir Guð- mundsson, skólastjóri. Ræddi hann um mikilvægi sam- skipta innan fjölskyldunnar sem hefðu verið mikil hér áður fyrr en hefði smá saman breytzt með breyttu þjóðfélags- fyrirkomulagi Þá ræddi hann starfsemi skólanna sem hann taldi vanbúna að ýmsu leiti og benti á nauðsyn þess að búa betur að skólunum sem I æ ríkara mæli væri ætlast til að tækju að sér hlutverk heimilanna I uppeldismálum. Þá sagði hann breytingar á námsefni margar og miklar Samkvæmt grunnskólalögun- um er nú gert ráð fyrir auknum félags- málaþætti sem ætti að geta orðið til góðs. Slíkt myndi t.d. auka ábyrgð nemenda fyrir félagsstörfum innan skólans. Þá ræddi hann fjölgun frldaga skóla- nemenda sem annarra sem fjölgað hefði um helming á síðustu árum Taldi hann bestu vörnina gegn óheil- brigðu líferni fyrir unga sem aldraða vera vinnu og athafnasemi I leik og starfi Þá taldi hann skemmtanavenjur eldri borgara hafa áhrif á skemmtanir barna og unglinga Benti I því sambandi á afstöðu fólks til vinveitingalausra skemmtistaða Vanræksla heimilanna virðist fara vaxandi og tími fjölskyldunnar til sam- eiginlegra tómstunda fara minnkandi Nauðsyn þess að hefja áróður fyrir bættu fjölskyldulífi er aðkallandi Skemmtanaiðnaðurinn brýtur niður Frá pallborðsumræðunum: Ingibjörg Benediktsdóttir, Ásgeir Magnússon, Lilja Harðardóttir, Jóhannes Bergsveinsson, Ásgeir Friðjónsson, Elín Pálmadóttir, Helga Gröndal, Ólafur Haukur Árnason og Jónas Jónasson. þó þeir séu langt leiddir. Ég veit um lækningu sem ekki bregst — Það er trúin á Jesum Krist. Sú trú gefur nýtt líf án áfengis. Vinir mínir ég er sjálfur lifandi dæmi um slíkt Sigurlaug Bjarnadóttir þakkaði framsögumönnunum frábær erindi og sagði ma Það væri sannarlega ástæða til bartsýni ef þær tillögur og ábendingar sem hér hafa komið fram yrðu að raunveruleika. En orð eru til alls fyrst Þá gaf hún orðið laust. Til máls tóku Steinar Guðmunds son, sem kvaðst telja það merkilegt framtak af hálfu stjórnmálaflokks að ríða á vaðið með ráðstefnu sem þessa og skoraði á sjórnmálamenn að koma á stofn leiðbeiningastöð Jóhanna Jónasdóttir, sem kvað það m.a. nauð- synlegt að breyta almenningsálitinu, meðal unglinga þætti það sjálfsagt að neita áfengis á skemmtistöðum og I heimahúsum. Og Maren Guðleifs- dóttir, sem kvaðst vilja láta presta húsvitja. Áfengisvandinn erfiðasti þáttur prestsstaf*fsins Siðasti framsögumaður var séra Halldór Gröndal Ræddi hann áféngisvandamálið út frá þeirri reynslu sem hann hefur I sinu starfi. Sagði hann stærsta og erfiðasta þáttinn I prestsstarfinu vera afskipti af áfengissjúklingum og vandamönnum þeirra. Sagði hann það algengt að sjúklingurinn sjálfur leitaði sjaldnast eftir aðstoð heldur náinn ættingi eða vinur. Enda sagði hann áfengissjúkl- ingur er meistari I að blekkja aðra. Hann sagði það mikið vandamál hversu seint væri yfirleitt leitað hjálpar Heimilið væri jafnvel komið í rúst Þessi mál eru viðkvæm fyrir maka og börn hins sjúka og það er skref að taka fjárræði og sjálfræði af mönnum Það er eitt sem oft vill gleymast þegar rætt er um þessi mál, en það er fjölskylda þess sem hér á hlut að máli Allt snýst um að koma þeim sjúka á réttan kjöl en hver sinnir niðurbrotnum aðstandend- um. Börn og unglingar eru afar við- kvæm, finna fljótt að eitthvað er að Hvernig eiga börn að skilja loforð á loforð ofan sem sí og æ eru svikin Siðan ræddi hann ýmiss samtök drykkjumanna og aðstandenda þeirra. Minntist sérstaklega á Al-Anon samtök- in sem eru samtök aðstandenda drykkjusjúklinga Tvær slíkar deildir eru hér starfandi önnur I safnaðarheim- ili Langholtssóknar hin I Grensássókn. Þá sagði hann frá samtökum táninga Al-Aten sem viða eru starfandi erlendis og starfa á svipaðan hátt og Al-Anon samtökin. Taldi hann nauðsyn á afvötnunar- stöð hér á landi Að lokum sagði sér H: lldór Gröndal Það er álit mitt að enginn áfengis- sjúklingur sé vonlaus. Við höfum eng- an rétt til þess að dæma menn úr leik Líflegar pallborðsumræður Eftir hádegið setti Ólöf Benedikts- dóttir form Hvatar fundinn Þá hófust pallborðsumræður sem Elin Pálma- dóttir stýrði. Auk framsögumannanna Jóhannesar Bergsveinssonar, Ingi- bjargar Benediktsdóttur og Ásgeirs Guðmundssonar, tóku þátt I þeim Lilja Harðardóttir hjúkrunarfræðingur á Slysadeild, Ásgeir Friðjónsson saka- dómari I ávana- og fikniefnamálum, Helga Gröndal húsmóðir, sem á sæti I Æskulýðsráði Reykjavikur, Ólafur Haukur Árnason formaður Áfengis- varnaráðs, og Jónas Jónasson, út- varpsmaður Var borinn fram fjöldi fyrirspurna, sem pallborðsmenn svör- uðu og ræddu. Hófust fyrst umræður um fíkniefni, enda höfðu þau minna komið inn í myndina í framsöguerindum. Skýrði Ásgeir Friðjónsson m a frá þvi, að síðan í maí hefði verið unnið að mjög umfangsmiklum smyglmálum. Ef hægt væri að slá því föstu að öllu þvi magni, sem á þeim tima hefur verið smyglað til landsins, hefði verið dreift, þyrfti verulega að endurskoða afstöðuna til þessa máls, m a hvað snerti stærð markaðarins. Ástandið væri þó enn mun betra en í öðrum löndum. Jóhannes Bergsveinsson upplýsti að á geðdeild og slysavarðstofu þekktu menn þessi fikniefni — þau leyndu sér ekki Sagði hann að á Kleppsspítala væri þó nokkur hópur af fólki, sem neytti fíkniefna Langflest tilfellin væru þó blönduð, þ.e. áfengi og önnur efni. Lilja Harðardóttir, hjúkrunarfræð- ingur, sagði að margir kæmu á slysa- deild undir áhrifum lyfja, sem fengið hefðu þau út á lyfseðil frá læknum. Oft væri öllu blandað saman Helga Gröndal sagði m a að fyrir nokkrum árum hefðu meðlimir Æskulýðsráðs fengið kynningu á útliti og lykt fikni- efna á ráðstefnu En þá hefði orðið sú stefna að ræða þau ekki mikið opinber- lega, þar sem reynslan frá Bandaríkj- unum hefði verið að því meira sem um þau var rætt, þvi meiri neyzla Ólafur Haukur Árnason sagði m a að áfengi væri fiknilyf Gegn því réði viðhorf samfélagsins. fræðslan ein sér breytti þar ekki um Jónas Jónasson sagði m a að barist væri við þennan vanda á mörgum vigstöðvum Lagði hann áherzlu á að þekking væri undir- staða i þessum efnum. Ekki er rúm til að rekja umræður frekar Yfir 30 fundarmanna lögðu fram skriflegar spurningar, sem pallborðs- menn svöruðu og ræddu sin á milli Dugði timi varla til, en að pallborðsum- ræðum loknum var orðið gefið frjálst, og tóku til máls séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir, Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli og Maren Guðleifsdóttir. Var þá orðið mjög áliðið og sleit Ólöf Benediktsdóttir ráðstefnunm Abendingar og niðurstöður Hér fara á eftir nokkrar ábendingar sem fram komu á ráðstefnunni og niðurstöður i stuttu máli Áfengi verður ekki útrýmt úr þjóðfé- laginu, til þess er það of rótgróið En þjóðarheill krefst þess. að dregið verði verulega úr neyzlu þess og. að viðhorf Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.