Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 19
19 ------------------------------------- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1977 iii iinm m—whbbb—ra I Iprðltlr | Góð æfing Sigurðar sagði til sín og hann vann með yfirburðum Björgvin Björgvinsson, bezti maður fslenzka landsliðsins f leiknum f Hafnarfirði & sunnudagskvöldið skorar eitt marka sinna Ljósm. Mbl Kr. 01. Sigurvegarar f Skjaldarglfmu Ármanns. Halldór Konrððsson er varð þriðji, Guðmundur Freyr Halldórs- son sigurvegari og Guðmundur Ölafsson er varð annar. Guðmundur Freyr vann Ár- mannsskjöldinn í 15. tilraun SIGURÐUR Jónsson, skíðamaður frá ísafirði, var yfirburðasigurvegari á skfðamóti sem fram fór dá tsafirði um helgina. Sigr- aði Sigurður bæði í svigi og stórsvigi, og var áberandi öruggari en keppinautar hans, enda sennilega í margfalt betri æfingu en þeir. Sem kunnugt er hef- ur Sigurður dvalið ytra við æfingar í vetur og segir það greinilega til sín. Sigurður sigraði í sviginu á 89,94 sek. samanlagt, en Hafþór Júliusson, Isafirði, varð annar á 96,88 sek. og Gunnar B. Ólafsson, einnig frá Isafirði, varð í þriðja sæti á 100,58 sek. I stórsviginu POLSKA meistaraliðio SLASK notaoi helgina til þess að rasskella Islenzka landsliðið I handknattleik tvlvegis, svo og 2. deildar lið KA. Sigraði SLASK landsliðið með 10 marka mun á Akureyri, 25—15, og með 7 marka mun I Hafnarfirði 24—17. Úrslit I leiknum við KA urðu svo 32—25. þannig að samtals skoruðu Pólverjarnir 81 mark gegn 57 I leikjunum þremur. Telja verður leiki SLASK við lands liðið hæpinn ávinning fyrir okkar menn, sem greinilega eru orðnir þreyttir og leikjaleiðir. Væri senni- lega skynsamlegast að gefa leik- mönnunum sæmilega hvlld frá erfið- um æfingum fyrir keppnisferðina til Austurrlkis. í öllum leikjum lands- liðsins við SLASK kom fram áber- andi viljaleysi okkar manna — þeim virtist nokkurn veginn sama hvernig leikurinn færi og fegnir þegar honum var lokið. SLASK-menn tóku leikina llka með hæfilegri alvöru, voru þó jafnan ákveðnir I að sigra, enda ekk- ert leiðinlegt fyrir þá að koma heim fékk Sigurður tímann 149,66 sek. Hafþór Júliusson varð annar á 153,66 sek. og í þriðja sæti varð Haukur Jóhannsson frá Akureyri á 155,18 sek. I kvennakeppninni var hins vegar um meiri baráttu að ræða, og fóru leikar svo að Margrét Baldvinsdóttir frá Akureyri sigr- aði í Alpatvíkeppninni. Hún varð sigurvegari í svigi og önnur I stór- svigi á eftir Steinunni Sæmunds- dóttur. A skíðamótinu á Isafirði var einnig keppt i 15 km göngu karla og varð Halldór Matthíasson sigurvegari, Björn Ásgrimsson frá Siglufirði sigraði í 10 km göngu 17—19 ára, Gottlieb Konráðsson frá Ólafsfirði i 7,5 km göngu 15—16 ára og Egill Rögn- valdsson frá Siglufirði sigraði svo I göngu 13—14 ára pilta, sem gengu 5 km. eftir að hafa sigrað tslenzka landslið- ið margsinnis. KA — SLASK Á föstudagskvöldið lék SLASK við KA I íþróttaskemmunni á Akureyri og áttu heimamenn við rámman reip að draga. Það má þó ef til vill segja að það hafi verið nokuð gott hjá þeim að skora 23 mörk hjá jafn sterku tiði og SKAKer, en einhvern veginn var það samt þannig að mað- ur hafði það á tilf inningunni að SLASK-menn tækju leikinn mátu- lega alvarlega. Að venju skoraði Klempel flest mörk Pólverjanna, eða 13 talsins, en auk hans vakti leik maður númer 10, Sokolwski. verð- skuldaða athygli. Sigurður Sigurðs- son skoraði flest mörk heimamanna, 8. Hörður Hilmarsson 5. Ármann Sverrisson 3 og aðrir minna. LANDSLIÐIÐ BURSTAÐ Á laugardaginn fjölmenntu Akur- eyringar I íþróttaskemmuna til þess að sjá landslið Íslands leika gegn SLASK liðinu Áhorfendur áttu að sjálfsögðu von á fjörugum og góðum GUÐMUNDUB Freyr Ilalldórs- son Ármanni bar verðskuldaðan sigur úr býtum I 65. Skjaldar- glímu Ármanns, sem glfmd var I leik, en annað kom á daginn. SLASK hafði algera yfirburði og sigraði með 25 mörkum gegn 15. Það var aðeins rétt I byrjun sem landsliðið stóð I SLASK. Þannig var jafnt 3 gegn 3. eftir stuttan leik, en þá tók SLASK á rás og leiddi I leikhléi með 16 mörkum gegn 10. Í slðari hálfleiknum breikkaðí bilið enn frekar og leiknum lauk með sigri Pólverjanna 25—15. eins og fyrr getur. Aðeins einn leikmanna fslenzka liðsins sýndi eitthvað umtalsvert I leik þessum. Var það Þórarinn Ragn- arsson sem barðist allan tlmann af miklum krafti Vörn liðsins var yfir- leitt hriplek og markvarzlan slök, einkum I fyrri hálfleik. Markhæstur Pólverjanna i leik þessum var Klempel með 10 mörk, en fyrir ísland skoruðu: Jón Karlsson 4, Ólafur Einarsson 3, Geir Hall- steinsson 2. Þórarinn Ragnarsson 2. Þorbjörn Guðmundsson 1, Þorbergur Aðalsteinsson 1 og Ágúst Svavars- son 1. fþróttahúsi Vogaskólans s.I. Iaugardag. Guðmundur, sem er 35 ára gamall verzlunarmaður, vann nú hinn eftirsótta skjöld f fyrsta skipti f 15. tilraunum, en hann 24—17 I HAFNARFIRÐI Á sunnudagskvöld var svo leikið ! Hafnarfirði og var þar hið sama uppi á teningnum. Nánast engin hreyfing á vörn Islenzka liðsins — allir leik- mennirnir á hælunum, örþreyttir eft ir erfiða leiki og æfingar að undan- förnu. Sóknarleikur íslenzka liðsins var einnig með eindæmum bragð- laus og óákveðinn. Aðeins einn leik- maður reyndi eitthvað og gat eitt- hvað. Sá var Björgvin Björgvinsson. en jafnvel hann var þó nokkuð langt frá slnu bezta — skorti snerpu. Aðeins einu sinni I leiknum var staðan jöfn, 1—1, en siðan tóku Pólverjarnir leikinn algjörlega I sinar hendur. Staðan I hálfleik var 11 — 8, eftir að Pólverjarnir höfðu komist um tlma 6 mörk yfir I hálfleiknum. Björgvin Björgvinsson skoraði 4 mörk I leik þessum, Geir Hallsteins- son 4. Ágúst Svavarson 3. Þorbjörn Guðmundsson 2. Viggó Sigurðsson 2, Viðar Simonarson 1 og Þórarinn Rsgnarsson 1. SIGB.G/ STJL. hefur keppt f Skjaldarglfmunni frá árinu 1962. Keppendur voru með færra móti aó þessu sinni eða 6 að tölu og var keppnin ákaflega bragð- dauf. Tilþrifamiklar glímur sáust vart og flestar glfmurnar voru litið augnayndi fyrir þá örfáu áhorfendur, sem komu til að fylgjast með Skjaldarglfmunni. Undirritaður gerði sér það til dundurs að telja alla viðstadda og reyndust þeir vera 49 að tölu og eru þá allir meðtaldir, keppendur, starfsmenn, áhorf- endur, bæði fullorðnir og börn. Áhugi á glímu virðist því í lág- marki, og er gerð grein fyrir þeirri hlið málsins á öðrum stað i íþróttablaðinu. Röð keppenda varð þessi: vinningur 1. Guðmundur F. Halldórs Á 4‘A 2. Guðmundur Ólafsson Á 4 3. Halldór Konráðs Víkverja 2'A 4. Guðni Sigfússon Á 2 5. Óskar Valdimarsson V l'A 6. Árni Þór Bjarnason KR lA Nafnarnir Guðmundur Freyr og Guðmundur Ólafsson glímdu strax í 1. umferðinni og skildu þeir jafnir. I næstu umferðum báru þeir báðir sigur úr býtum í glimum sínum og þegar kom að siðustu umferðinni, bjuggust allir við þvi að þeir yrðu að glfma aukaglímu um skjöldinn. En í síðustu umferðinni gerðust þau óvæntu tíðindi að Guðmundur Ólafsson náði ekki að leggja Halldór Konráðsson þrátt fyrir harða atlögu og skildu þeir jafnir, en Guðmundur Freyr lagði Árna Þór Bjarnason léttilega og tryggði sér þar með sigur. I glímulok af- henti Hörður Gunnarsson Guðmundi Frey Ármannsskjöld- inn, en það mun sfðast hafa gerst árið 1963 að Ármenningur hreppti skjöldinn, en það var Kristmundur Guðmundsson. Sem fyrr segir var þetta '65. Skjaldarglíma Ármanns en 78. Ármannsglíman en undir því nafni gekk glímukeppni þessi fyrstu 14 árin. Er þetta elsta iþróttamót landsins, en það var fyrsj haldið stofnár Armanns, 1889. Guðmundur Freyr er 36. skjaldarhafinn. Oftast hefur Ármann J. Lárusson unnið skjöldinn eða 8 sinnum, Sig- tryggur Sigurðsson vann hann 7 sinnum og Sigurjón Pétursson sex sinnum. —SS SLASK lék þreytt landslið grátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.