Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977 Okunnur „Kjarval” undir vegg- klœðningu? VERIÐ er að framkvæma breytingar á Isafoldarhúsunum f Austurstræti og er fyrirhugað að bókaverziun tsafoldar flytji f húsnæði það, sem verzlunin Rfma var áður f. Er það eins konar tengibygging milli ísa- foldarhússins og húss SlS, sem stendur næst fyrir austan. Þegar veggklæðning var rifin niður af gafli StS-hússins kom f Ijós stórt málverk, sem málað hefur verið á gafi SlS- hússins og segja listfróðir menn að þar sé um að ræða ósvikinn Kjarval. Aðeins hluti þessa listaverks er enn óskemmdur. Upphaflega hefur þessi tengibygging verið með risi, en síðan hefur nýtt þak verið sett á hana. Við þessa breytingu á þaki hússins hefur allur efri hluti listaverksins orðið utan hússins og er hann mjög svo veðraður orðinn. Hafa menn jafnvel ekki tekið eftir listaverkinu eða þeim hluta þess, sem er upp fyrir núver- andi þak, en þegar grannt er skoðað og hinn heillegi hluti er þekktur, má greinilega sjá út- línur efri hluta verksins. Þegar listaverkið hefur verið málað hefur það náð upp í mæni hússins, sem áður var með lágu risi eins og áður er getið. Ekki er fyllilega ljóst, hve myndin er gömul, en gizkað hefur verið á að hún hafi verið máluð einhvern tima um 1940. í gær var unnið að þvf að klæða vegginn að nýju og var því myndin að hverfa aftur svo sem hún hefur geymzt til þessa dags. Litirnir i myndinni eru svart og hvftt. Niður undan þakinu sést á fætur kvenna, sem standa á blómum skrýddum grunni. Er sú kona, sem greini- legast sést á köflóttum kjól eða pilsi. Ef einhverjir kynnu að kunna sögu þessa listaverks, væri Morgunblaðið þakklátt., létu þeir blaðið heyra. Óven ju lífleg sala í byggingavörum ÓVENJU góö sala hefui verið í byggingavörum ýmiss konar undanfarið miðað við árstfma, sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. afiaði sér hjá þremur stórum byggingavöru- verzlunum á höfuðborgar- svæðinu, og þá ekki síður í vörum til útivinnu við byggingar heldur en í vör- um til innivinnu. Ekki voru verzlunarstjórarnir þó alveg á eitt sáttir um það hvað ylli þessari lff- legu sölu; tveir þeirra töldu tíðarfarið ráða þar mestu en einn hafði þá trú, að þeim, sem auraráðin hefðu, þætti hyggilegra að fjárfesta sem fyrst f þess- um vörum, þar eð þeir væntu hækkana á næst- unni. Hjá Byggingavöruverzlun Kópavogs var Morgunblaðinu tjáð að sala í byggingavörum hefði verið góð undanfarið, hinir stærri verktakar væru flestir hverjir með viðamikil verkefni á prjónunum, og ekki væri síður sala f svokölluðum útivörum en innivörum, sem væri óvenjulegt miðað við árstíma. Mætti gera ráð fyrir að tíðarfarið hefði mest áhrif á þann söluþátt. t þeirri deild byggingavöru- verzlunar Jóns Loftssonar sem selur hinar grófari byggingavörur fékk Mbl. þær upplýsingar, að sala hefði verið mjög góð undan- farið og mun meiri en yfirleitt tíðkaðist á þessum árstfma. Hin Framhald á bls. 28 Skjálftahrina í Öxarfirði Skinnastað öxarfírði 14. ft*b. ALLSNÖRP skjálftahrina varð í öxarfirði í nótt og stendur enn þótt heldur sé að draga úr henni. Á mælitæki á Skinna- stað mæidust 40 kippir frá mið- nætti til hádegis f dag f 15—30 km fjariægð héðan. Voru sumir all snarpir sá sterkasti liðlega 3 stig og upptök sennilega úti f firði. Fundust kippirnir mest á fremri bæjum í Núpasveit og ytri bæjum f Öxarfirði. Varð sums staðar talsverður titring- ur og glamur í húsum. Er þetta fyrsta meiri háttar hrinan á þessu svæði frá því á gamlárs- dag. Annars er allt tfðindalftið, land á kafi f snjó og hreppaveg- ir þungfærir, en yfirleitt fært um þjóðvegi. Tfðarfar er ann- ars gott og stillur miklar. — Séra Sigurvin. Vængir: 46% hluthafa óska hluthafafundar MORGUNBLAÐIÐ hafði í gærkvöldi samband við Guðjón Styrkársson stjórnarformann Vængja og innti hann eftir því hvort það væri rétt, að 46% hluthafa í Vængjum hefðu óskað eftir hluthafafundi innan skamms. Guðjón kvað það rétt vera, því bor- izt hefði bréf frá hluthöf- um sem segðust eiga 46% hlutabréfa og hefðu þeir óskað eftir hluthafafundi. Kvað hann fundinn verða haldinn, en hins vegar benti hann á, að aðalfund- ur félagsins væri á næstu grösum. 20% hluthafa geta óskað eftir hluthafafundi samkvæmt lögum félags- ins. r Björn Jónsson, forseti ASI: Tel líklegt að tek- iðverði jákvætt, undir tilmæli VSÍ „TILMÆLI Vinnuveit- endasambandsins til okkar um, að við komum sam- eiginlega fram gagnvart ríkisvaldinu í komandi kjarasamningum, hafa enn Borholan í Ölfusi: Hitinn var 160 stig í botni Þorlákshöfn, 14. feb. BJARTSVNI rfkir nú um að bor- holan á Bakka I Ölfusi til hita- veitu fyrir Þorlákshöfn ætli að gefa góða raun. Hún var hita- mæld fyrir helgi og reyndist vera 160 stig f botni en borað hefur verið niður í 503 metra og nú er holan f nánari athugun. Hreppsnefnd Ölfushrepps hef- ur lagt inn beiðni til Jarðborana ríkisins þess efnis að boruð verði önnur hola en þeir munu frekar vilja dýpka þessa sem fyrir er. En allt er þetta í athugun sem stend- ur og vona menn nú allt hið bezta um árangur. —Ragnheiður. Fíkniefnamálin: Sex manns 1 gæzlu- varðhaldi RtJMLEGA tvftugur tslend- ingur var á sunnudaginn úr- skurðaður f allt að 30 daga gæzluvarðhald vegna ffkni- efnamálanna, sem nú eru f rannsókn. Þá var í fyrrinótt framlengt um allt að 30 daga gæzluvarðhald manns, sem set- ið hafði inni f 20 daga vegna þessara sömu mála. Sitja þá 6 menn f gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar ffkniefnamálanna. Þetta hafa reynzt viðameiri rannsóknir en f upphafi var talið og er ekki talið fært af rannsóknarmönnum að skýra frá málavöxtum enn sem kom- ið er. ekki verið rædd hjá okkur og verða ekki rædd fyrr en á næsta miðstjórnarfundi á fimmtudag og því get ég lítið sagt um þetta að svo stöddu,“ sagði Björn Jóns- son, forseti Alþýðusam- bands íslands, er Morgun- blaðið spurði um viðbrögð sambandsins við þessum tilmælum. Björn Jónsson sagði hins vegar, að hann byggist við þvi, að Alþýðusambandið myndi kanna það, hvort VSÍ og ASI ættu einhver sammerkt áhugasvið. „Við gerðum það i síðustu samn- ingum, þótt það bæri að visu ekki Framhald á bls. 28 Fundu lambhrút í KarLsdrætti Skálholti 14. feb. A LAUGARDAGINN fóru fimm menn úr Biskupstungum á tveim- ur jeppabflum f Hvftárnes. Gekk ferin prýðilega og voru þeir að- eins einni klukkustund lengur að fara leiðina en það tekur að sum- arlagi en þá tekur aksturinn venjulega tvo tfma. Á sunnudag- inn óku þeir sfðan á fs yfir Hvftár- vatn I Karlsdrátt. t Karlsdrætti fundu þeir félagar lambhrút frá Sigurjóni Kristinssyni á Vega- tungu. Lambið var f ágætis hold- um, enda nægir hagar þótt uppi undir jöklum sé. Þeir sögðu snjó- lítið á hálendinu, en 18 stiga frost var á sunnudagsmorguninn. — Björn Idnadarrádherra rædir um hreinsi- tæki vid Alusuisse IÐNAÐARRÁÐHERRA, dr. Gunnar Thoroddsen, er farinn ut- an til Sviss, þar sem hann mun eiga viðræður við forystumenn svissneska álfélagsins Alusuisse. Um er að ræða framhaldsviðræð- ur við álfélagið vegna málefna álversins í Straumsvík. Gunnar Thoroddsen skýrði Morgunblað- inu frá því fyrir allnokkru að á þessum fundi myndi hann leggja aðaláherzlu á uppsetningu hreinsitækja við verksmiðjuna i Straumsvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.