Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1977 Verkfalli aflýst Lissabon — 14. febrúar — Reuter RÍKISSTJÓRN Mario Soares f Portúgal hefur tekizt að koma f veg fyrir sólarhrings verkfall um 80 þúsund opinberra starfs- manna, sem boðaó hafði verið á morgun, en í þess stað verður dagurinn „baráttudagur", að þvf er fulltrúar stjórnarinnar skýrðu frá í dag. Stjórnin sat á stöðugum fundum með forsvarsmönnum starfsmannafélaganna um helg- ina, og varð þessi niðurstaða málamiðlun deiluaðila. Talið er að sumar róttækar fé- lagsdeildir munu hafa þetta sam- komulag að engu, en allt útiit er fyrir að starfsemi opinberra stofnana verði þó með eðlilegum hætti. Mótmæla með- ferð á banda- rískum blaða- manni í Tékkó- slóvakíu Washington 14. febrúar. Reuter. BANDARISKA utanrfkisráðu- neytið hefur borið fram harðorð mótmæli við stjórn Tékkóslóvakfu vegna tfmabund- ins varðhalds fréttamanns banda- rfska stórblaðsins New York Times, Paul Ilofmanns, f gær. Jafnframt var gefið til kynna, að stjórn Sovétrfkjanna hefðu verið tjáðar áhyggjur Bandarfkja- stjórnar yfir handtöku andófs- mannsins dr. Yuris Orlovs. Hofmann var í gær tekinn út úr járnbrautarlest á leið til Vinar frá Prag, honum haldið í 2 klukku- stundir án þess að hann fengi að hafa samband við nokkurn mann og minnisbækur hans og skjöl gerð upptæk. í mótmælaorðsend- ingu utanrikisráðuneytisins segir að Hofmann hafi sem blaðamaður verið í löglegum erindagjörðum. Mario Soares forsætisráðherra hélt i dag til Lundúna, sem er fyrsti viðkomustaður hans á ferðalagi um Evrópu, en tilgang- ur - ferðarinnar er að afla stuðnings við umsókn Portúgals um aðild að Efnahagsbandalag- inu. Að undanförnu hefur minni- hlutastjórn Soaresar átt i vök að verjast vegna óánægju launþega með kaup og kjör. Sjómenn hafa verið i verkfalli undanfarnar þrjár vikur, og hafa um 90% fisk- veiðiflota landsmanna stöðvazt af þeim sökum. Farmenn hafa efnt til samúðarverkfalla með fiski- mönnum. Þá standa yfir vinnu- deilur í fataiðnaði, og hafa um 30 þúsund manns tekið þátt í skyndi- verkföllum til að leggja áherzlu á kröfur sínar. Kýpur: Denktash og Makaríos búast við löngum og ströng- um samningaviðræðum Nikósiu — 14. febrúar — Reuter. LEIÐTOGAR tyrkneska þjóðar- brotsins og hins grfska á Kýpur búast við löngum og erfiðum samningaviðræðum áður en vænta megi samkomulags í mál- efnum fbúa eyjarinnar, en telja báðir að horfur séu á lausn deil- unnar. Rauf Denktash, leiðtogi Tyrkja, segir að samkomulags sé. vart að vænta fyrr en eftir 12—15 mánuði, og Makarfos erkibiskup, leiðtogi Grikkja, hefur látið f Ijós vonir um að vgrulega miði f sam- komulagsátt á þessu ári. Að loknum viðræðum sínum við Denktash og Makaríos sagði Kurt Waldheim, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, að ákvörðun um nýjar samningaviðræður sýndi að „nýr andi“ væri kominn í samskipti þjóðarbrotanna. Waldheim verður viðstaddur fyrstu samningafundina í Vín. Fátt eitt hefur frézt um efni þess umræðugrundvallar, sem nú ligg- ur fyrir, en mikilvægasta atriðið er, að Kýpur verði framvegis „tví- skipt sambandsríki “. Enn er ekki ljóst hvernig deiluaðilar túlka þetta orðalag, en svo virðist sem þeir leggi ekki sama skilning i það. SAPNkaærrð^Í^ Valenun "f-Xur flóUa „kkhóimi "'""'"“jjffsmenn einI?l.6, ^húsettur ' c“* Ærumeiðingar APN um Vesselov eru njósnabrigzl — segir Lennart Hane, sem kært hefur ólöglega útgáfu sov ésku fréttastofunnar í Svíþjóð, í samtali við Morgunblaðið MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær samband við Lennart Hane mál- flutningsmann f Stokkhólmi og spurði hann um tildrög þess að hann kærði sovézku APN-fréttastofuna þar f borg fyrir brot á lögum um prentrétt, en eins og fram hefur komið f fréttum er enginn ábyrgðarmaður skráður að tfmariti fréttastofunnar, auk þess sem það fyrirfinnst ekki á skrá yfir blöð og tfmarit, sem út koma í Svíþjóð. Lennart Hane hafði þetta að segja: „Skjólstæðingur minn heitir Pavel Vesselov. Hann flúði frá Rússlandi árið 1944 og hefur verið hér í 33 ár. Hann hefur unnið að því mörg undanfarin ár að sameina fjölskyldur, sem hafa sundrazt, þannig að einn eða fleiri fjölskyldumeðlimir eru í frjálsu landi en öðrum er haldið eftir nauðugum. Vesse- lov hefur tekizt að sameina um tuttugu fjölskyldur, og þar af eru sextán fjölskyldur í Svi- þjóð. Um þessar mundir berst hann fyrir því að Valentin Aga- pov, sem strauk af sovézku skipi fyrir nokkru og er nú bú- settur í Svíþjóð, fái til sin konu sína og dóttur, sem eftir eru i Sovétríkjuum. Mál þeirra hefur vakið mikla athygli, ekki sízt eftir að kona Agapovs var flutt á geðveikrahæli. í Sovétríkjun- um kemur út blað, sem ungir kommúnistar gefa út. Fyrir skömmu birtist í þessu blaði löng grein um feril Vesselovs allt frá því er hann bjó í Rúss- landi og eftir að hann kom til Svíþjóðar. Greinin hefur að geyma margs konar óhróður og falskar ásakanir. Því er haldið fram að hann sé njósnari fyrir CIA, og ennfremur að hann njósni um flóttafólk í Svíþjóð," sagði Lennart Hane. „Hér er sem sagt um að ræða ærumeiðingar og brot á lögum um útgáfu- og prentrétt, og svo héfur þessi grein verið þýdd úr rússnesku yfir á sænsku og birtist i fréttabréfi því, sem APN gefur út hér. Það er vegna birtingar greinarinnar hér í Svíþjóð, sem APN hefur nú verið stefnt, en í viðbót við hin ærumeiðandi ummæli um Vesselov þá brýtur útgáfa rits- ins i bága við sænsk lög, en þau mæla svo fyrir að ábyrgðarmað- ur skuli vera að tímaritum. Þau þurfa að vera skráð, og þess skal auk þess getið í „hausn- um“ hvar viðkomandi tímarit eða blað er prentað og hver annast dreifingu en ekkert þessara skilyrða er uppfyllt í sambandi við útgáfu þessa rits.“ Þá sagði Lennart Hane: „Þegar ég fór að undirbúa kæruna á hendur APN hafði ég samband við fréttastofuna, og bað um að fá að tala við rit- stjóra blaðsins, sem heitir „Bulletin“. Ég var beðinn um að hringja næsta dag sem ég og gerði, en þá var ég enn beðinn um að hringja næsta dag. Þá hringdi ég og bað um að fá að tala við yfirmann fréttastof- unnar. Mér var tjáð að yfirmað- urinn væri ekki við, — ég skyldi reyna aftur „á morgun". Enn hringdi ég og ekki var yfir- maðurinn við, en þá vildi ég fá að vita hver hann væri. Mér var sagt að hringja „á morgun“. Lennart Hane kvaðst hafa kært hina ólöglegu útgáfu blaðs APN, en enn sem komið væri hefði niðurstaða ekki fengizt í þvi máli. Þá sagðist hann um þessar mundir eiga í málaferl- um vegna ærumeiðandi um- mæla um einstaklinga í blaði, sem út kemur á vegum komm- únista nyrzt í Sviþjóð, og heitir Nordskensflamman. Væri dóms að vænta í þvi máli í lok fébrú- ar. Gífurlegt tjón í skógareldum Melbourne — 14. febrúar — Reuter MIKLIR skógareldar geis- uöu í Ástralíu um helgina. Þrjár milljónir sauðfjár og um 80 þúsund nautgripir hafa farizt í eldunum, og auk þess hafa fimm menn látið lífið. Eldarnir geis- uðu í Suður-Ástralíu, Tasmaníu og Viktoríu, sem varð verst úti. Lýst hefur verið yfir neyðar- ástandi i Viktoríu-fylki. Þar hafa um 100 fjölskyldur misst heimili sín og 17 manns hafa slasazt al- varlega af völdum eldanna. I Viktoriu koma upp skógareldar á hverju sumri að heita má, en á þessum árstíma fer hitastigið þar oft yfir 38 stig á Celsíus. Yfirmenn brunavarna í Viktóríu segjast nú hafa náð tök- um á eldunum, þannig að þeir séu hættir að breiðast út, en þar eru nú um 5 þúsund manns við slökkvi- og björgunarstörf. Stúdenta- óeirðir Kaíró — 14. febrúar — NTB TIL ÓEIRÐA kom meðal stúdenta í Kaíró um helgina þegar vinstri sinnaðir stúdentar dreifðu flug- ritum þar sem hvatt var til verk- falla. Aðrir stúdentar við háskól- ann blönduðu sér í málið, sem lyktaði með því að átta menn voru handteknir. Einn særðist. Háskólinn í Kaíró hefur verið lokaður frá því að óeirðirnar miklu voru í borginni i janúar s.l. Um helgina kom einnig til átaka við háskólann í Alexandriu, en þar særðist enginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.