Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980 íþróttaráð Reykjavikur: Þörf verður fyrir allt svæðið í Laugardal fyrir íþróttir og útivist ÍÞRÓTTARÁÐ Reykjavikur sam- þykkti á fundi sinum á fimmtu- datcinn, aA heina því til borKaryf- irvalda að við skipulaifsvinnu og fyrirhugaða endurskuðun á áætl- un um umhverfi oj? útivist, yrði haft í huga að þðrf er á öllu svæðinu i LauKardal fyrir iþrótt- ir og útiveru i framtiðinni. Að þessari samþykkt stóð meirihluti iþróttaráðs, fulltrúar Sjálfstæðis- flokks og Aiþýðubandalags, þeir Sveinn Björnsson, Júlíus Haf- stein og Gísli Þ. Sigurðsson. — Hjá sátu hins vegar fulltrúar Alþýðuflokks og Framsóknar- flokks, þeir Sigurður Jónsson og Eiríkur Tómasson. Ályktunin sem samþykkt var, og gerð er í tilefni áfangaskýrslu samstarfsnefndar um „Líf í borg“ er svohljóðandi: Um nokkurn tíma hafa tillögur samstarfsnefndar íþróttaráðs, æskulýðsráðs og umhverfismála- ráðs um nýtingu Laugardals legiö frammi í íþróttaráði. I tillögunum kemur fram m.a. að „samstarfs- nefndin telur augljóst að þörf verði fyrir allt svæðið í framtíð- inni til íþrótta- og útivistarat- hafna í framhaldi af því sem þegar er í áætlun" og er minnst á ýmis slík verkefni. íþróttaráð fellst á tillögur nefndarinnar og óskar eftir að þær verði teknar til greina við skipulagsvinnu og fyrirhugaða endurskoðun á áætlun um um- hverfi og útivist." Tillagan var samþykkt með 3 atkvæðum, hjá sátu þeir Eiríkur Tómasson og Sigurður Jónsson, sem lögðu fram svohljóðandi bók- un: „Við undirritaðir erum ekki reiðubúnir til þess að taka afstöðu til tillögunnar fyrr en fyrir liggja ákveðnar tillöguteikningar um annars vegar íþrótta- og útivistar- aðstöðu í Laugardal og hins vegar íbúðarbyggð í austurhluta Laug- ardals." Sendiherrahjónin í hópi gesta í sendiráðsbústaðnum 17. júní sl. Islenzkur barnaskóli starfræktur í London: Fréttapistill frá íslend- ingafélaginu í London í FRÉTTAPISTLI frá íslend- ingafélaginu í Lundúnum segir að bækistöðvar íslenzka barna- skólans verði fluttar úr húsnæði Flugleiða í september nk. „Jó- hann Sigurðsson, forstjóri Flug- leiða í London, veitti íslendinga- félaginu leyfi til að nota húsnæði í kjallara Flugleiða i Grosvenor Street, London um óákveðinn tíma og þar hefur kennsla farið fram frá því að skólinn var stofnaður í janúar 1979. Nú hefur frú Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari og sendiherrafrú í London leyft félaginu afnot af húsnæði í sendiherrabústaðnum í 101 Park Street, að fengnu sam- þykki sendiherra, Sigurðar Bjarnasonar, á meðan þau hjón dveljast í London, fyrir skólann og bókasafn barnanna. En bókasafn- ið var stofnað fyrir rúmu ári síðan í minningu Einars Vésteins Val- garðssonar. Frú Ólöf hefur sýnt skólanum mikinn áhuga allt frá byrjun og opnar þetta boð hennar nýja möguleika, þar sem hingað til hefur ekki verið aðstaða fyrir bókasafnið. Áætlað var í byrjun að það yrði staðsett í skólanum og því gert aðgengilegt fyrir nemend- ur og foreldra þeirra. Skólinn byrjar sunnudaginn 14. september nk. og hefst eins og að venju kl. 10.30 f.h. Kennslu lýkur kl. 12.30. Sigurborg Ragnarsdóttir er ráðin kennari frá síðastliðnu hausti. 12—15 börn sækja tímana að jafnaði, en aðstaða er einnig fyrir foreldra til að sitja og spjalla, meðan á kennslu stendur og einnig aðstaða fyrir yngstu börnin til að föndra og leika sér. Skólinn er opinn fyrir alla, sem áhuga hafa á að viðhalda íslenzku- kunnáttu barna sinn. Mennta- málaráð íslands veitir nú styrk til skólans, en hann felst í kennslu- bókum og fjárstyrk til greiðslu á kennslu. Þjóðhátíðardagurinn var hald- inn hátíðlegur 15. júní, með úti- skemmtun með svipuðum hætti og í fyrra, og var aðsókn mjög góð. Sendiherrahjónin, Sigurður Bjarnason og Ólöf Pálsdóttir, höfðu opið hús fyrir íslendinga og gesti þeirra 17. júní, eins og undanfarin ár, þrátt fyrir að þessi siður hafi nú verið lagður niður í flestum íslenzkum sendiráðum. Fjölmennt var og vel veitt eins og að venju." Jónína Ólafsdóttir, formaður ís- lendingafélagsins. Fyrsta dansk/íslenska Lingua- phone tungumálanámskeiðið Á NORRÆNA málaárinu, skóla- árinu 1980—1981, hefur Linguap- hone Institute gefið út dansk/ íslenskt tungumálanámskeið. Er -það unnið í samráði við Hljóð- færahús Reykjavíkur, umboðsað- ila Linguaphone á íslandi. Nám- skeiðinu fylgir handbók á íslensku með nákvæmum skýringum við hvern kafla, málfræðiágripi, dansk/íslensku orðasafni o.fl. Is- lenska handbókin er unnin af Jónasi Eysteinssyni og Sölva Eysteinssyni, en ráðgjöf um ís- lensku gerðina veitti Hjálmar Ólafsson. Hin 35 mismunandi tungumál sem fáanleg eru á Linguaphone námskeiðunum hafa hingað til einkum verið seld hérlendis með dönskum og enskum skýringar- texta. Tilkoma dansk/íslenska námskeiðsins færir íslendingum hins vegar fyrsta „íslenska" Linguaphone námskeiðið og er vonast til þess að það opni enn fleirum leið til aukinnar norrænn- ar málakunnáttu. Linguaphone tungumálanám- skeiðin hafa verið í stöðugri þróun s.l. 60 ár. Talið er að fjöldi nemenda sé nú kominn yfir fjórar milljónir alls staðar að úr heimin- um. Námskeiðin byggjast upp á samverkandi þjálfun heyrnar- og sjónminnis, texti er leikinn af hljómplötum eða segulbandsspól- um (kassettum) um leið og fylgst er með í textabók. Ýmsar æfingar ásamt málfræðiágripi o.fl. byggja síðan upp talgetuna. Má í raun segja að Linguaphone námskeiðin bygist upp á sömu aðferð og ungbörn nota er þau iæra móð- urmálið, þ.e. að hlusta fyrst... og herma svo eftir. Frá messu ortodoxra, sem sögð er vera fögur og hátiðleg. Ortodox messa í Dóm- kirkjunni á morgun FYRSTA ortodoxa messan hérlend- is verður haldin i Dómkirkjunni i Reykjavik á morgun kl. 13:30. Syngja þá ortodoxir prestar frá Austur-Evrópulöndum messu. sem kennd er við heilagan Jóhannes Chrysostomus, en i frétt frá frétta- fulltrúa biskups segir, að messan innihaldi annars konar söng og atferli, en menn eigi að venjast við siðdegismessur Dómkirkjunnar. Ortodoxir kirkjuleiðtogar, sem koma til landsins í dag, halda í næstu viku fundi í Skálholti til að undirbúa viðræður sínar við lút- erska kirkjuleiðtoga. í messunni prédikar Metropolitan Emilianos og fjallar hann um trú og hefð orto- doxra og verður kirkjugestum boðið upp á lesefni við kirkjudyr til útskýringar, en ortodoxir hafa sagt að íslendingar gætu fengið nokkra innsýn inn í hefð og siði ortodoxu kirkjunnar. Sem fyrr segir hefst messan kl. 13:30 og stendur í um það bil tvo tíma. Hið nýja dansk/islenska tungumálanámskeið sem Hljóðfærahús Reykjavikur býður nú upp á. • «•••»«■«• « • ■••■-•■*•• ■»•■•■■• *»•»»-»*« ••«••* • » * « ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.