Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAtíSMÁL - ATBAFNALÍF — umsjón Sighvatur Blöndahl Hin nýja Piper Cheyenne II skrúfuþota Arnarflugs. Piper Cheyenne II skrúf uþota Arnarflugs hagkvæm til leigu Við komu Piper Cheyenne II skrúfuþotu Arnarflugs til íslands fyrir skömmu vaknaði fljótlega sú spurning hvort hún gæti keppt við áætlunarflug Flugleiða á flugieið- um til og frá íslandi. Morgunblað- ið innti Halldór Sigurðsson, sölu- stjóra Arnarflugs eftir því hvern- ig nýja þotan stæði í samkeppn- inni. Halldór sagði þotuna standa nokkuð vel að vígi og væri mun hagkvæmari á mjög mörgum leið- væri að láta þotuna bíða meðan ákveðnum verkefnum væri sinnt. Þyrfti því ekki að miða allar áætlanir við áætlunarflug, sem yfirleitt væri ekki nema ákveðna daga vikunnar. Halldór sagði kjörið fyrir kaupsýslumenn að taka vélina á leigu væri hægt að fullnýta sætafjöldann, sem er sjö sæti. Eftirfarandi tafla sýnir glögglega samanburðinn milli áætlunarflugs og þess að fljúga um, auk þess sem leigutakar gætu með litlu þotunni: ráðið tíma sínum að vild, og hægt ðc *o lc J3 U •o 2 a c U» . •O 3 IU « > §> u c a— u5 ■c -3 ðð u- <73 3 4* _ > 4, >” Aberdeen 1.501.500 214.500 258.200 Álaborg 2.071.740 295.963 346.400 Álasund 1.527.240 218.177 385.190 Bergen 1.630.200 232.886 315.600 Dublin 1.669.800 238.543 268.800 Færeyjar 937.200 133.886 168.400 Gautaborg 2.244.000 320.571 342.000 Glasgow 1.570.800 224.400 258.200 Hamborg 2.461,800 351.686 356.200 Jan Mayen 990.660 141.522 Kaupmanna- höfn 2.469.720 352.817 346.400 Kulusuk 858.000 122.571 108.400 Ixindon 2.164.800 309.257 298.600 Meistaravík 1.036.200 148.029 Narsassuaq 1.386.660 198.094 161.400 Oslo 2.046.000 292.286 315.600 Stavanger 1.731.180 247.311 315.600 Sönderström 1.517.340 216.763 Sumburgh 1.329.240 189.891 Þrándheimur 1.818.300 259.757 387.600 í vélinni eru mjög glæsilegar innréttingar eins og sést glöggt á þessari mynd. Efnt til Norrænna áldaga hér á landi NORRÆNU samtökin Skanaluminium hafa árlega haldið ráðstefnu um efni tengt framleiðslu og úrvinnslu á áli og hafa þessar ráðstefnur verið haldnar til skiptis á Norðurlöndunum. Að þessu sinni verður ráðstefnan haldin í Reykjavík, eða dagana 15.—16. sept- ember nk. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Norrænir áldagar á íslandi. Skanaluminium, sem fyrir ráðstefn- unni stendur, eru samtök fyrirtækja í hinum ýmsu greinum áliðnaðar á Norðurlöndum, og hafa þau það hlut- verk að miðla upplýsingum um ál og notkunarmöguleika þess. Dagskrá Áldaganna nú í ár er tvíþætt. Fyrri dagurinn ber yfirskrift- ina „Aliðnaðurinn og samfélagið“ og verða þá flutt eftirtalin erindi: Skilyrði arðbærrar álframleiðslu — Um 13% aukning byggingafram- kvæmda á öðrum ársf jórðungi Haakon Sandvold, aðalforstjóri, Árdal og Sunndal Verk a.s. Á1 á níunda áratugnum. — Dag Flaa, forstjóri, Norsk Hydro. Á1 og orka. — Dr. Dietrich Alten- pohl, prófessor, Swiss Aluminium Ltd. Heilbrigðismál í álframleiðsluiðnaði. — Dr. Chr. Schlatter, Eiturfræðideild tækniháskólans og háskólans í Z-rich. Á1 og orkuaðlandi iðnaður á Islandi. — Dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðlabanka íslands. Fundarstjóri verður Ragnar S. Hall- dórsson, forstjóri íslenska álfélagsins hf. Síðari daginn er dagskráin meira tæknilegs eðlis og erindi flutt í tveimur sölum. Annars vegar "erður fjallað um notkun áls í bílaiðnaði, en hins vegar Byggingaframkvæmdir á öðrum ársfjórðungi þessa árs jukust tals- vert frá því sem var á þeim fyrsta, samkvæmt niðurstöðum ársfjórð- unglegrar byggingakönnunar Landssambands iðnaðarmanna, en fyrirtæki með um 19,3% heild- armannafla í byggingarstarfsemi tóku þátt í byggingarkönnun sam- bandsins Að magni til er aukningin áætluð tæplega 13% og er það svipuð aukning og talin er hafa orðið á sama tímabili í fyrra. Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar nú og á fyrsta ársfjórð- ungi þessa árs var starfsmanna- fjöldi við byggingarstarfsemi sem hér segir: Verktakastarfsemi Húsasmíði Húsamálun Múrun Pípulagning Rafvirkjun Veggf. og dúklagn. Alls Sú aukning er hér kemur fram verður fyrst og fremst rakin til þess, hversu árstíðabundin bygg- ingarstarfsemin er fremur en til þess að um umtalsverðan aftur- bata sé að ræða frá seinasta á< i. í þessu sambandi má minna á það að um mitt ár 1978 munu allt að 8.900 manns hafa verið við störf í byggingarstarfsemi, þannig að umsvifin eru allverulega minni nú en þá. Enda þótt atvinnuástand í byggingarstarfsemi megi teljast gott um þessar mundir er þó ljóst að mönnum þykir óvissu gæta um framtíðarverkefni. Miklar fram- kvæmdir eru nú í gangi við raforkuver, hitaveitur og önnur opinber mannvirki. Engin ný 31.03. 1980 30.06. 1980 3.495 4.460 975 1.255 380 500 430 535 320 350 680 695 60 55 6.340 7.850 verkefni eru hins vegar í augsýn er dregið gætu að einhverju marki úr áhrifum þess mikla samdráttar sem fyrirsjáanlegur er í þessum framkvæmdum með haustinu. Þá er það kunnara en frá þurfi að segja að skipulags- og lóðamál á höfuðborgarsvæðinu hafa verið í ólestri að undanförnu og er þar nú mikill skortur á lóðum. Þetta kemur gleggst fram í uppsprengdu verði þeirra fáu lóða er ganga kaupum og sölum. Loks hafa síhækkandi vextir komið illa niður á húsbyggjendum og þar með á byggingarstarfseminni. Við þetta bætist að ýmsar óheillablikur eru nú á lofti í efnahagsmálum þjóð- arinnar. Þjóðartekjur og kaup- máttur drógust saman á seinasta ári vegna versnandi viðskipta- kjara og framhald hefur orðið á þessari þróun í ár. Almenn tekju- rýrnun í þjóðfélaginu kemur alltaf mjög illa niður á byggingariðnað- inum, einkum vegna þess hversu takmarkaðir fjármögnunarmögu- leikar húsbyggjenda eru. Ef ekki rætist fljótlega úr þeim þrenging- um sem útflutningsframleiðslan nú virðist vera í verður þess ekki langt að bíða að áhrifa þeirra sjáist merki í, byggingariðnaðin- um. Ýmislegt má þó gera til þess að vinna á móti þeim sveiflum í byggingarframkvæmdum er fylgt hafa í kjölfar hagsveiflna, t.d. með aðgerðum í fjármögnunarmálum húsbyggjenda og með opinberri fjárfestingu. Vonast verður til að núverandi yfirvöld séu fær um að draga lærdóm af biturri reynslu í þessum efnum. Álverið i Straumsvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.