Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 33
HVAÐ ER AD GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980 33 Björn Birnir á Kjarvalsstöðum: Síðasta sýn- ingarhelgin BJÓRN BIRNIR sýnir um þessar mundir tæplega 60 verk, teikningar, kol- og akrílmyndir, í vestursal Kjarvalsstaða. Sýningin stendur fram á þriðjudagskvöld. Björn hefur áður haldið einkasýningar í Norræna húsinu 1977, Chicago I.V. 1979, Davenport Iowa 1979, auk þess sem hann hefur sýnt víðs vegar í Kanada. Hann stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólan- um 1949—52. Lauk prófi í skeytilist og skiltagerð frá Bergenholts Dekorations Fagskole í Danmörku 1955 og prófi í fjarvíddar-, flatar- og rúmteikningu við Indendors Arkitekt Akademie. Árið 1979 lauk hann svo MS-prófi við Indiana State University í Terrehaute. — Já, það hefur vissulega orðið mikil breyting hjá mér síðan ég sýndi í Norræna húsinu 1977, sagði Björn Birnir við blm. Mbl. — Umhverfisbreytingin hefur haft sín áhrif. Ég veit ekki hvort sjá má áhrif bandarískrar málaralistar í verkum mínum, en hitt fer ekki á milli mála, að umhverfið setur sitt mark á það sem maður fæst við. Ég var þarna í Terrehaute í Indiana í svokölluðum Graduate School, sem er nokkurs konar framhaldsskóli eftir háskólanám. Þar líta prófessorarnir til manns með ákveðnu millibili, gefa manni einkunn og eru til ráðgjafar. Og þess er vel gætt, að maður hafi allt til alls. Aðstaðan þarna var frábær og kennslan einnig, og dvölin þarna var mér afar mikils virði. — Um stíltegundir get ég aðeins sagt það, að ég er engri þeirra trúlofaður, en hyllist til að mála afstrakt í olíu og akríl, en fígúratíft þegar ég teikna eða mála í vatnslit, sagði Björn að lokum. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22 fram á þriðjudagskvöld 9. september. Útbreiðslunefnd Fyrsta ráðs málfreyja á íslandi Björn Birnir við eitt verka sinna á sýningunni i vestursal Kjarvalsstaða. Bíóin um helgina Tónabíó sýnir myndina Hnefinn (F.I.S.T.), sem byggð er á ævi eins voldugasta verkalýðsforingja Bandaríkjanna. í aðalhlutverkum eru Sylvester Stallone, Rod Steiger og Peter Boyle. Laugarásbíó hefur nýhafið sýningar á rokkmyndinni American Hot Wax. í aðalhlutverkum Tim Mclntire, Chuck Berry og Jerry Lee Lewis. Gamla bíó sýnir nýja ensk-bandaríska mynd, International Velvet. Aðalhlutverk leika Tatum O’Neal, Christopher Plummer og Nanette Newman. Stjörnubíó sýnir myndina Löggan bregður á leik (Hot Stuff), sem fjallar í léttum dúr um nokkuð óvenjulegar aðferðir lögreglunnar við að handsama fanga. Aðalhlutverk: Dom DeLuise, Jerry Reed, Luis Avlos og Suzanne Pleshette. Hafnarfjarðarbió sýnir í dag myndina Ævíntýrið í orlofsbúðunum með Robin Askwith og á morgun, sunnudag, Skot í myrkri, Clouseau-mynd með Peter Sellers. Bæjarbió sýnir myndina Rothöggið, gamansama mynd um einkaspæj- ara. Austurbæjarbíó sýnir nýja bandaríska gamanmynd, Frisco Kid. Aðalhlutverk leika Gene Wilder og Harrison Ford. Háskólabíó sýnir nýja bandaríska stórmynd, Flóttinn frá Alcatraz. í aðalhlutverkum eru Clint Eastwood, Patrick McGoohan og Roberts Blossoin. Hafnarbió sýnir myndina Undrin í Amityville, bandaríska hrollvekju með Rod Steiger og James Brolin. Nýja bíó sýnir Óskarsverðlaunamyndina A Triumph, með Sally Field í aðalhlutverki. Myndin fjallar um baráttu starfsmanna í dúkaverksmiðju í einu Suðurríkja Bandaríkjanna fyrir stofnun félags eða samtaka til að ná fram kjarabótum. Regnboginn. Salur A: Sólarlandaferð, ný sænsk gamanmynd. Salur B: The Reivers, ævintýramynd í gamansömum dúr með Steve McQueen. Salur C: Vesalingarnir, Les Miserables, byggð á sögu Victor Hugo. Aðalhlutverk: Anthony Perkins og Richard Jordan. Salur D: Fæða guðanna, byggð á sögu H.G. Wells. Aðalhlutverk Majore Gornter, Pamela Franklin og Ida Lupino. Borgarbíó sýnir myndina Óður ástarinnar (Melody in Love). Leikstjóri Franz X. Lederle. Tónlist Gerhard Heinz. Aðalhlutverk Melody Bryan, Sascha Hehn og Claudine Bird. útbreiðslustarfið mun auðveldara'. Væntanlega verða fleiri kynn- ingarfundir haldnir úti á lands- byggðinni á næstunni. Á þessu ári eru liðin 7 ár frá stofnun fyrstu málfreyjudeildar- innar, Keflavíkurdeildarinnar. Nú eru starfandi tvær deildir í Kefla- vík, ein í Hafnarfirði og þrjár í Reykjavík. Markmið samtakanna er að stuðla að frjálsum og fordóma- lausum umræðum á hvaða sviði mannlífsins sem er. Mikil áhersla er lögð á tjáningu, en í því felst æfing í að semja ræður og flytja, eða taka til máls á opinberum vettvangi. Annar liður er fundar- stjórn og fundarsköp, samstarfs- hæfni og því að þjálfa forystu- hæfileika. Fundurinn á Rein er haldinn til að kynna tilgang og starfsemi Alþjóða málfreyjudeilda (Inter- national Toastmistress’ Club). Boðið verður upp á kaffi og er öllum heimill aðgangur. Mdlfreyjur kynna starfsemi sína í DAG kl. 14.00 hefst kynningar- fundur Málfreyjufélagsins í fé: lagsheimilinu Rein á Akranesi. í fréttatilkynningu frá félaginu seg- ir: „Samtökin hafa nú gefið út handbók á íslensku og gerir það Frá sýningu Septem '80. Ljósin. RAX. Myndlist: Septem ’80 á Kjarvalsstöðum í DAG kl. 14.00 verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýningin Septem ’80. Er þetta sjöunda sýning Septem-hópsins svo- kallaða, þeirra Guðmundu Andrésdóttur, Jóhannesar Jóhannessonar, Karls Kvar- ans, Kristjáns Davíðssonar, Sigurjóns Ólafssonar, Valtýs Péturssonar og Þorvalds Skúlasonar, en Steinþór Sig- urðsson, sem hefur sýnt með hópnum, er ekki með að þessu sinni. Á sýningunni eru 60 olíu- málverk og 5 skúlptúrverk. Til greina getur komið að sýningin verði sett upp í Gallerí Háhóli á Akureyri, er sýningartíma lýkur á Kjar- valsstöðum, 21. september. Sjá nánar um sýninguna á miðonnu Mhl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.