Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980 Sigurður Gunnars- son Minningarorð Fa'ddur 27. nóvcmlx'r 1919. Dáinn 2. ágúst 1980. Þriðjudaginn 12. águst var Sig- urður Gunnarsson til moldar bor- inn. Hafði hann átt við veikindi að stríða en ekki óraði okkur fyrir því að hann ætti svo skammt eftir ólifað. Sigurður fæddist þann 27. nóv- ember árið 1919 að Einarsstöðum í Núpasveit, N-Þingeyjarsýslu. For- eldrar hans voru Gunnar Sigurðs- son bóndi á Einarsstöðum og kona hans, Sigurlaug Halldórsdóttir. Þau eru bæði iátin; Sigurlaug lést árið 1942 og Gunnar árið 1973. Eignuðust þau þrjú börn: Hólm- fríði, Haildór og Sigurð. Hólmfríð- ur do mjög ung að aldri. Halldór kvæntist Jónönnu S. Ingi- marsdóttur og búa þau að Ási, rétt hjá Kópaskeri. Árið 1939 fluttist Siggi frá Einarsstöðum til Þórshafnar og bjó hann þar í fjögur ár. Síðan lá leið hans til Reykjavíkur. Fyrstu árin þar fékkst hann við húsa- smíðar og að því búnu tók hann að aka leigubíl fyrir Bifreiðastöð Hreyfils. Stundaði hann það starf um 15 ára skeið. Árin þar á eftir var hann á sjó, fyrst vann hann hjá Landhelgisgæsiunni og síðar hjá Hafskip hf. Síðan réðist hann til Almenna bókafélagsins og nú + Maöurinn minn, SIGURSTEINN GUÐJÓNSSON, Laugarnesvegi 108, tézt ( Borgarspítalanum 4. þ.m. Fyrir hönd barna minna, og tengdabarna. Sigurbjörg Marteinsdóttir. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma BRYNDÍS HELGADÓTTIR Ljósheimum 6 andaöist aö morgni 5. september. Halldór Ágúat Gunnarsaon, Svavar örn Höskuldason, Kristrún Ása Kristjánsdóttir, Auður Halldórsdóttír, Helga Halldórsdóttir, Hugrún Halldórsdóttir Halla Halldórsdóttir, Sígrún Halldórsdóttir, Gunnar Halldórsson, Sssvar Halldórsson, og barnabörn. Halldór Guómundsson, Auðunn S. Hinriksson, Andrés Garðarson, Óskar Valgeirsson, Halldór Kristjénsson, + Eiginkona mín, móöir okkar og amma, REGÍNA EINARSDÓTTIR, sem lést þann 1. sept., veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju mánudaginn 8. sept. kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á samtök mígrenisjúklinga. Minningarspjöld fást í bókaverstuninni Laugavegi 100., Langholtsvegi 150 og Mál og menning. Eggert Bjarnason, Einar Eggertsson, Unnur Eggertsdóttir, Ásta Eggertsdóttir, Birna Eggertsdóttir, Helga Eggertsdóttir, og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför föður okar. tengdafööur og afa, KARLS BJÖRNSSONAR, gullsmiðs. Björn Karlsson, Hilma Magnúsdóttir, Jens Karlsson, Jónína Magnúsdóttir, Karl V. Karlsson, Anna Oliversdóttir, Garóar Karlsson, Sigríöur 1. Jónsdóttír, og barnabörn. + Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför, mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa. KRISTJÁNS HARALDSSONAR, fré Nýp. Sérstakar þakkir viljum viö færa læknum og starfsfólki á sjúkrahúsi Sólvangs í Hafnarfiröi. Ásta Sturlaugsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur okkar, DAVÍDS BJARNASONAR, Vesturbergi 181. Fyrir hönd vandamanna. Ása Skaftadóttir og börn. r hin síðustu ár starfaði hann á Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar. Árið 1957 kvæntist Siggi Maríu Níelsdóttur og gekk hann dóttur hennar, Hafdísi Hönnu Moldoff, í föðurstað. Hafdís er gift Ragnari Jóhannessyni og eiga þau þrjú börn: Maríu, Guðbjörgu Rósu og fimm mánaða gamlan óskírðan son. Eiga þau heimili í Mosfells- sveit. Siggi átti einn son, Gunnar Sigurðsson, og er hann kvæntur Guðrúnu Isaksdóttur. Þau eiga þrjú börn, Valborgu, Örnu og Sigurð og búa á Grenivík. María dó árið 1973 aðeins 56 ára gömul. Varð mér ljóst við fyrstu kynni af Sigga að hann bjó yfir sérstök- um persónuleika. Hreifst ég sér- staklega af hreinskilni hans og 3amviskusemi. Stundaði hann störf sín ætíð af alúð og kost- gæfni. Mikill hagleiksmaður var Siggi og fór honum verk ætíð vel úr hendi. Smíðaði hann margan góðan gripinn um ævina. Glað- lyndur var hann og kom kímni hans öllum í gott skap. Var ánægjulegt að heimsækja hann í litiu vinalegu íbúðina hans og spjaila um daginn og veginn. Barnabörnum sínum var hann alltaf mjög góður og vildi allt fyrir þau gera. Okkur, sem urðum svo gæfusöm að kynnast Sigga, finnst að með fráfalli hans standi opið skarð og ófylit eftir. Minnnig hins góða drengs mun þó lifa í hjörtum okkar um ókomna framtíð. Góð- mennska hans og lífsgleði mun verða okkur leiðarljós sem lýsir veg lífshamingjunnar og beinir huga okkar að því fallega op góða í veröldinni. Með þessum minningarorðum votta ég hans nánustu mína innstu samúð. Megi Guð veita þeim styrk í þeirra miklu sorg. Böðvar Friðriksson. Mig langar til að minnast Sig- urðar mágs míns, eða Sigga eins og hann var alltaf kallaður af fjölskyidunni. Við vissum öll, að hann gekk ekki heill tii skógar, en ekki grunaði okkur, að þetta yrði síðasti laugardagurinn, sem við ættum eftir að vera honum sam- tíða í sumarbústaðnum kát og hress um margt að spjaila eins og gengur og gerist. Hann kátur og spaugsamur enda alltaf í góðu skapi. Sigurður Gunnarsson var fædd- ur 27. nóvember 1919 að Einars- stöðum í Presthólahreppi í Norður-Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans voru hjónin Sigurlaug Hall- dórsdóttir.og Gunnar Sigurðsson bóndi á Einarsstöðum. Þau áttu tvo syni og eina dóttur; Halldór og Sigurð og Hólmfríði, sem lézt ung að aldri. Haildór er giftur Jón- önnu S. Ingimarsdóttur og búa þau í Ási við Kópasker. Siggi vann ýmist til ajós eða lands eftir að hann flutti til Reykjavíkur, t.d. keyrði hann ieigubíl í mörg ár á Bifreiðastöð Hreyfils. Síðustu árin vann hann hjá Vélamiðstöð Reykjavíkurborg- ar. Hann þótti góður verkamaður og vann öil sín störf af vandvirkni og stakri trúmennsku. 26. des. 1957 giftist Siggi systur minni, Maríu Njálsdóttur, elsku- legri og góðri konu, sem bjó honum fallegt heimili, enda voru þau samstillt um að fegra allt í kringum sig. Þeirra sambúð varð því miður allt of stutt, því að María lézt 10. ágúst 1973, aðeins 56 ára að aldri. Þeim varð ekki barna auðið saman, en áttu sitt barnið hvort, áður en þau giftust. Siggi átti son, Gunnar Sigurðs- son, sem giftur er Guðrúnu Isaks- dóttur og eiga þau þrjú börn, tvær dætur, Valborgu og Örnu, og einn son, Sigurð. Þau búa á Grenivík. María átti dóttur, Hafdísi Hönnu Moldoff, sem Siggi gekk í föðurstað og leit á sem sína eigin dóttur. Hafdís er gift Ragnari Jóhannessyni, bifreiðasmiði, og eiga þau þrjú börn. Tvær dætur, Maríu og Guðbjörgu Rósu og nokkurra mánaða gamlan óskírð- an son. Þau búa í Mosfellssveit. Sigga er sárt saknað af börnum og afabörnum, enda lét hann sér mjög annt um þau og vildi allt fyrir þau gera. Guð styrki þau í þeirra miklu sorg og gefi þeim trú á annað líf. Eg þakka Sigga fyrir alla vinsemd hans við mig og mína fjölskyldu. Blessuð sé minning hans. Ingunn Níelsdóttir. Hlynur Júlíusson. Guðrún Auðunsr dóttir - Minning Fædd 25. desember 1880 Dáin 31. ágúst 1980 Guðrún Auðunsdóttir, frænka mín, er látin og vantaði aðeins tæpa fjóra mánuði í að fylta hundrað ára lífsskeið. Guðrún fæddist að Kílhrauni á Skeiðum á jóladag árið 1980 (þótt „Ættir Síðupresta" og þá væntan- lega kirkjubækur segi annað). Foreldrar hennar voru Auðunn Ólafsson og Þorbjörg Brynjólfs- dóttir, sem þar hófu búskap sama ár. Guðrún var elst þriggja systk- ina, en hin tvö voru Ólafur, trésmiður í Reykjavík um nær sjö áratuga skeið, fæddur 6. mars 1882 (ekki 16. mars að eigin sögn), dáinn 31. desember 1969 og Val- gerður, húsfreyja á Kálfhóli á Skeiðum, fædd 29. maí 1885, dáin 17. ágúst 1945. Guðrún giftist árið 1923, Friðrik Filippussyni frá Litla-Leðri í Sel- vogi og eignuðust þau tvo syni: Auðun, f. 9. ágúst 1923, kvæntur Kolbrúnu Sveinbjarnardóttur frá Vesturkoti á Skeiðum og eiga þau sjö börn: Gunnar Filippus, f. 24. desember 1925, kvæntur Guðnýju Alexíu Jónsdóttur frá Reykjavík og eiga þau tvö börn á lífi. Guðrún og Filippus hófu búskap sinn á Njálsgötunni í Reykjavík en fluttust árið 1929 að Kálfhóli, þar sem þau urðu ábúendur að hluta á móti Gesti Ólafssyni mági Guð- rúnar og Valgerði systur hennar. Á Kálfhóli bjuggu þau til ársins 1937, er þau hófu búskap að Björnskoti í Ólafsvallahverfi í sömu sveit. Guðrún og Filippus brugðu búi árið 1942, fluttust til Selfoss og byggðu sér hús við Kirkjuveginn. Hefur Guðrún átt heima á Selfossi síðan. Friðrik veiktist af berklum og dvaldi oft langdvöum á Vífil- stöðum, en var þess á milli á Selfossi og stundaði ýmsa vinnu. Hann lést 2. júní 1957. Eftir að synirnir stofnuðu eigin heimili, dvaldi Guðrún hjá þeim til skiptis, nú síðast hjá Auðuni. Eg man Guðrúnu frænku mína vel þegar þau Friðrik bjuggu í austurbænum á Kálfhóli, dvaldi enda um árabil á sumrum hjá Gesti og Valgerði frænku minni í vesturbænum. Það var oft fjör á Kálfhóli í þá daga, enda barnmargt á sumrin og reyndar mannmargt við þá bú- skaparhætti, sem þá tíðkuðust og nú eru sýndir okkur í sjónvarpi sem fornleg vinnubrögð en þóttu það síður en svo fyrir 40 árum. Guðrún var einkar fjörmikil kona, brosmild og góð okkur börnunum, veitui með afbrigðum svo á stundum sást hún varla fyrir en þetta var henni eðlislægt eins og stórhuga fólki er gjarnt og öll voru þau systkin stórhuga eins og þau áttu ætt til. Guðrún var ættfróð vel, afar frændrækin og sannur vinur vina sinna. Henni þótti mjög vænt um heimsóknir skyldmenna sinna og vina og hlýjar voru móttökur hennar þegar ég og fjölskylda mín heimsóttum hana á Selfossi eftir að hún flutti þangað. Því fleiri sem við vorum, því glaðari varð hún. Móttökurnar lýstu eðli henn- ar og mannkostum einkar vel. Mér eru ógleymanlegar þær stundir, þegar faðir minn og Guðrún hitt- ust, sem var nokkuðoft, á sjöunda áratugnum og þau rifjuðu upp gamlar endurminningar úr barn- æsku. Minni Guðrúnar var þá með þeim afbrigðum og frásagnargleði hennar þvílík, að unun var á að hlýða. Guðrún var að eðlisfari heilsu- hraust og naut þess ríkulega alla æfi. Hún hafði mikla ánægju af ferðalögum og stundaði þau eftir mætti fram á síðustu ár. Minni hennar og heilsu hrakaði þó allra síðustu árin. Guðrún naut góðrar umönnunar sona sinna og fjölskyldna þeirra í ellinni og ber þeim þakkir fyrir það. Hvíli hún í friði. Helgi ólafsson og f jölskylda. + Hugheilar þakkir færum viö öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö hiö sviplega fráfall elskulega drengsins okkar, RÚNARS INGA BJÖRNSSONAR, Grundarstíg 18, Sauöérkróki. Sérstakar þakkir færum við stjórn og félögum Tindastóls, bekkjarsystkinum hans öllum og skátafélögunum þá viröingu, er þau sýndu viö jaröarför hans. Guö veri meö ykkur, Lilja Ingímarsdóttir, Björn Bjarnason, Linda Björnsdóttir, Sméri Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.