Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 30. OKTÓBER 1980 Vilhjálmur Eyþórsson: Vandræðaleg þögn vinstri- manna um Víetnam-stríðið hefur verið rofin. Stofnað hefur verið vináttufélag við Hanoi-stjórnina. Vegna þessa finnst mér tilvalið að rifja upp í stuttu máli nokkur helstu atriði Indó-Kína-styrjald- arinnar, sem þessir nýju vinir okkar hafa haldið gangandi und- anfarna áratugi, reyna að skilja, hvers vegna svo margir hafa orðið að deyja á hrísgrjónaekrum Suð- austur-Asíu: VINIR VORIR „Þjóðfrelsis- hreyfingar“ Snemma á sjötta áratugnum komst til valda í Norður-Víetnam einræðisherra nokkur, Ho-Chi- Minh að nafni og stuðnngsmenn hans. Ho þessi hafði í æsku sannfærst um ágæti efnahags- kerfis, sem soðið er saman af Marx, Lenín o.fl. Skömmu eftir að hann hafði komið kerfi þessu á hjá sér, með alræði því, fangabúðum og fólksflótta (um ein milljón), sem einkenna slík þjóðfélög, hóf hann að boða nágrannalöndunum trú sína. Kommúnistar ætluðu sér frá upphafi að ná völdum í öllu Indó-Kína, en íbúarnir voru hins vegar flestir á öðru máli, enda ýmist búddistar eða kaþólskir. Þjóðernissinnasamtökin Viet Minh höfðu haft verulegt fylgi í baráttunni gegn Frökkum, og hafa kommúnistar ætíð látið svo, sem þetta væru stuðningsmenn þeirra. Alþýða manna í löndunum var með öllu ókunnug fræðum „herra Marx Leníns", sem hún kallaði svo. Var því gripið til þess ráðs, að koma upp morðsveitum, Viet Cong, Pathet Lao og Rauðum Kmerum, sem kommúnistar nefndu með dæmigerðri og dæma- lausri ósvífni „þjóðfrelsishreyf- ingar". Hlutverk þjóðfr^sismanna var, í stuttu máli, að neyða íbúa iandanna til stuðnings við sig eða drepa þá ella. Ég vil undirstrika þetta, því þó það virðist augljóst, hefur vafist fyrir ýmsum að skilja. Viet Cong (FNL) höfðu það hlut- verk að drepa fólk, sem ekki vildi vera kommúnistar. Þeir voru alltaf fáir, og höfðu mikinn meirihluta íbúanna á móti sér, sem fólksflóttinn til borganna sannar, en með því að vega alltaf úr launsátri tókst þeim að valda ógn og skelfingu sem dró úr mótstöðuafli og baráttuvilja íbú- anna. Til þess að skýra betur hvers eðlis „hernaður" kommúnista var, má hugsa sér hliðstæðu: Austur- Þjóðverjar héldu úti hryðjuverka- mönnum (frelsissveitum), sem færu sprengjandi og myrðandi (barátta gegn kúgun alþýðunnar) um borgir og sveitir Vestur- Þýskalands til þess að þvinga menn til sameiningar við „lýðræð- islýðveldið" í austri. Hætt er við að fátt yrði um varnir, a.m.k. ef marka má reynsl- una af baráttunni gegn Baader- Meinhof-flokknum. Bandaríkjamenn Því skal ekki á móti mælt, að afskipti Bandaríkjamanna af stríðinu urðu til ills eins enda fór þar saman léleg herstjórn og hin mesta óráðsía í flestum hlutum. Menn mega þó ekki missa sjónir á því, að Bandaríkjamenn hófu þátttöku í stríðinu í því skyni að stöðva útþenslu Norður-Víetnama og hindra þá þróun mála sem nú er orðin. Markmið þeirra var fyrst og fremst að reyna að halda Norður-Víetnömum innan landa- mæra sinna. Þetta hlaut að mis- takast. Ástæðan er einföld: Þó að kjarni Víetnamstríðsins vær inn- rás Norður-Víetnams í öll ná- grannalönd sín á skaganum, vildu Bandaríkjamenn ekki svara í sömu mynt með innrás í Norður- Víetnam. Þessu svipar til að Bandamenn hefðu ætlað sér að sigra Hitler án þess að ráðast á Þýskaland sjálft. “Barátta“ Þótt útþensla ríkis síns og trúar væri aðalmarkmið Hanoi-manna, kom þó fleira til, t.d. sú áhersla, sem kommúnistar leggja jafnan á „baráttu" ýmiss konar, en þetta er í rauninni kænlega dulbúinn ofbeldisáróður og hliðstæður rausi Hitlers (Mein Kampf). Miklu hefur einnig vafalaust ráðið þörfin fyrir óvin til þess að þjappa þjóðinni saman, blóra- böggul, sem menn gætu sameinast gegn, á sama hátt og t.d. þýska, rússneska og nú síðast íranska þjóðin sameinuðust um Hitler, Stalín og Khomeini. Bandaríkja- menn fullnægðu þessari þörf að- dáanlega. Eftir að þeir hófu þátt- töku í stríðinu varð auðveldara að fá fólk til að trúa því að þjóðfrels- isherirnir berðust hinni góðu bar- áttu gegn erlendum „heimsvalda- sinnum". Síðan 1975 hafa ýmsir minni- hlutahópar í landinu, einkum Kin- verjar, tekið við hlutverki því, sem gyðingar gegndu hjá Hitler (innri óvinur). Með styrjöld í Kambódíu er fullnægt þörfinni fyrir „bar- áttu“ (ytri óvinur). Allt minnir þetta á hina ágætu bók Orwells, 1984. „Lýðræðis- Kamputsea“ í Kambodíu fengu fáráns- eða skegg-vinstrimenn völdin skamma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.