Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 31 Nú er sterka ryksugan ennþá sterkari. Nýr súper-mótor: áður óþekktur sogkraftur. Ný sogstilling: auðvelt að tempra kraftinn Nýr ennþá stærri pappírspoki með hraðfestingu. Ný kraftaukandi keiluslanga með nýrri festingu. Nýr vagn sameinar kosti hjóla og sleða. Auðlosaður í stigum Meistarinn Sýninfcarstaður: Gamla bíó Leikstjóri: Franco Zeffirelli Músik: Dave Grusin Kvikmyndun: Fred J. Koenekamp Nafn á frummáli: The Champ Italski leikstjórinn Franco Zeffirelli er þekktur fyrir áferð- arfallegar myndir svo sem Róm- eó og Júlíu sem hann stýrði ’68 og stórmyndina Jesús frá Naz- aret sem mig minnir hann hafi gert ’77. Það kemur því ekki á óvart að nýjasta mynd hans Meistarinn sé falleg mynd og hugljúf. Það sem gerir þessa Kvlkmyndir eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON mynd svo ljúfa er fyrst og fremst mildur litblær, má þar glöggt merkja hinn ítalska upp- runa leikstjórans. Þannig eru viss atriði myndarinnar, til dæmis á fyrstu mínútunum, er flamingóarnir hefja sig til flugs, líkt og sprottin beint úr mál- verkum feneysku meistaranna Tiepolo og Pellegrini. Er ekki óhugsandi að borinn og barn- fæddur Ameríkani velji þvílíkt litróf? Einhvern veginn finnst manni litskyn þeirrar þjóðar nær frumstæðum mönnum sem vilja sterka æpandi liti. Sér- staklega virðist þessi litagleði ríkjandi á vesturströndinni. Hver skýringin er verður látið liggja á milli hluta en gæti ekki hugsast að auglýsingaiðnaður- inn spili hér inní. í rándýrum auglýsingum þar sem sjón- varpsmínútan getur farið allt upp í 150.000 dollara duga ekki mildir litir til að fanga athygl- ina. En fleira er að finna í þessari kvikmynd sem vekur ljúfar kenndir, sérstaklega litli strákurinn sem leikur T.J., hann er fullur af lífsgleði, leikgleði og augun blá af sakleysi. Reyndar er mótleikari hans Jon Voight, „meistarinn" með sama augna- lit, sem þrátt fyrir næturlanga drykkju leikarans og spilavítis- dvöl fölnar ei. Fay Dunaway er hins vegar heimskona með eldskörp, reynslumikil augu, sem eru dálítið farin að láta á sjá vegna fitufellinga sem gera þessa glæsikonu ofurlítið kell- ingarlega. Raunar fjallar þessi mynd um baráttu þessara þriggja einstaklinga, drengsins sem er alinn upp hjá föður sínum .fyrrum heimsmeistara í boxi —/ skilningsríkum manni með vægar heilaskemmdir er vill syni sínum allt hið besta en á erfitt með að keppa við móður- ina (Fay Dunaway) sem birtist eftir 7 ára fjarvist og vill drenginn aftur, ef ekki með góðu þá með peningum. Faðirinn finnur vanmátt sinn sérlega á efnalega sviðinu og hyggst bæta sér tapið með því að vinna aftur „boxtitilinn". Ef dæma á af undirtektum bíógesta var þetta atriði myndarinnar hápunktur- inn. Um leikslok verður ekki fullyrt, en á þeirri stundu rudd- ust ýmsir út úr Gamla bíói með undarlegum hlátrasköllum. Má sjá að hér er hreinræktuð vasa- klútamynd á ferð. Menn mega ekki skilja orð mín svo að sorg og sút sé inntak myndarinnar, þvert á móti, hún er yfirfull af fögru fólki, fallegum bílum, stífkembdum veðhlaupahestum, drifhvítum lystisnekkjum, pálmatrjám og sól. Vasa- klútaatriðin eru bara krydd á þessa saklausu fegurð. Hér er sem sagt „mynd fyrir alla fjöl- skylduna" nema þau allra minnstu, til þess er atburðarásin of flókin. Hins vegar skilur amma vel þessa hluti, nefnilega að peningar geta ekki keypt þér ást. SOGGETA I SÉRFLOKKI F.inslakur niótor. cfnisgicði, niark- visst byggingarlag, afbragðs sog- slykki já. hvcrl smáatriói sluðlar að soggctu i sérflokki. fullkominni orkunýtingu. fyllsta notagildi og dæmalausri cndingu. GERIÐ SAMANBURÐ: Sjáið t.d. hvcrnig stærð. lögun og staðsctning nvja Nilfisk-risapokans tryggiróskert sogafl þótt í hann safnisf. GÆÐI BORGA SIG: Nilfisk er vönduð og tæknilega ósvikin. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár. með lág- marks truflunum og tilkostnaði. Varanleg: til lengdar ódýrust. Afborgunarskilmálar. Traust þjónusta. 11 I méF heimsins besta ryksuga ■■IT Stór orð, sem reynslan réttlætir. FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX /rönix HÁTÚNI — SÍMI 24420 Hreinsar tennur Styrkir tannhold Tandhygiejnisk tyggegummi V6 fæst aðeins í apótekum. Inniheldur brintoverilte sem er sótthreinsandi. V6 er sykurlaust og án litar- efna. Hiö frískandi bragö endist lengi. Nýjungí tannvernd Umboö LYF s.f. Al't.l.VSINCASIMtVN KR: 22410 JH»rflunbl«btt> Pharmacia 75stk. NÝ NILFISK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.