Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 48
AKAI HLJÓMTÆKI GRUPDIG LITTÆKI 100.000 kr. staögr afsláttur eða 300.000 kr. útborgun f flestum samstæðum AKAI er hégnAa merki á góöu veröi. 100.000 kr. staögr. afsláttur eöa 300.000 kr. útborgun. Gildir um öll littæki GRUNDIG vegna gaeöanna. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 Dánarbú Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar: 30—40 þús. rúm- metra húsnæði selt í þágu lista EINS ok sagt hefur verið frá í Moruunhlaðinu malti erfðaskrá þeirra hjóna. Helgu Jónsdóttur ok SÍKurlióa Kristjánssonar, svo fyrir aó miklir fjármunir skyldu renna til ákveóinna Kreina i listalífi þjoóarinnar. leiklistar. tónlistar ok myndlistar ok mun féð áa-tlaó til upphyKKÍnKar hjá I.eikfélaKÍ Reykjavíkur, íslenzkri óperu ok listasöfnum. Hér er um að ræða 3—4 millj- arða króna sem bundið er í fasteignum og verða þessar fast- eignir auglýstar til sölu á næst- unni. Hér er um að ræða 5—6 kunn hús í borginni og er Glæsibær lang stærst þeirra eða um 30 þús. rúmmetrar. Þá er m.a. um að ræða húsið við Laugaveg 82 sem er íbúða- og verzlunarhúsnæði, verzl- unarhúsnæði við Háteigsveg 2, Ásgarð 24 og Hringbraut 49. Alls eru þessar húseignir að stærð milli 30—40 þús. rúmmetrar. Yenið hefur hækkað um 54% á 7 mánuðum VERÐ á hverjum Handarikjadollar hefur ha-kkaó um 39.30% frá ára- mótum. eða úr 395,40 krónum í 550,80 krónur. en verð á hverju vestur-þýzku marki hefur hækkað mun minna. eða liðlega 26.5% á sama tíma. Frá 31. marz sl., þegar ríkis- stjórnin felldi gengi íslenzku krón- unnar, hefur verð á Bandaríkjadoll- ar hækkað um 28,18%, en verð á vestur-þýzku marki hins vegar um 32,52%. Bandaríkjadollar kostaði 31. marz sl. 429,70 krónur, en vestur-þýzkt mark hins vegar 221,32 krónur. Frá gengisfellingunni hefur hækkunin -orðið langmest á jap- anska yeninu, eða um 54,38%', úr 167,20 krónum í 258,14 krónur. Afleiðingar þessarar miklu hækk- unar yensins sjá Islendingar helzt í mjög hækkuðu verði japanskra bíla, sem hafa verið bíla vinsælastir hér á landi, m.a. vegna hins lága verðs, sem verið hefur á þeim. Framan af ágústmánuði var gengi Bandaríkjadollars haldið mjög stöð- ugu, eða hver dollar kostaði lengi vel í kringum 496 krónur. 21. ágúst fór svo gengið að síga og frá þeim tíma hefur hver Bandaríkjadollar hækkað um tæplega 1% í verði, eða úr 496,60 krónum í 550,80 krónur. Á sama tíma hefur vestur-þýzka markið hækkað úr 275,7 krónum í 293,29 krónur, eða sem næst 6,38%. Japanska yenið hefur hins vegar hækkað um 16,4% á þessu sama tímabili, eða úr 221,75 krónum í 258,14 krónur. Aí örygKÍ lætur hann hjúlhestinn prjóna. en öruggara er nú eflaust að láta ha-ði hjolin snúast. Rotterdam- markaðurinn: Enn hækkar svartolían ENN hafa orðið hækkanir á svartolíu á Rotterdammarkaðn- um. Samkvæmt nýjustu skráningum er hvert tonn svartolíu selt á 213 dollara eða nær 70 dollara meira en þegar gasolíu- og bensínverð var sem hæst á Rotterdammark- aðnum. Síðan þá hefur svartolíu- notkun stóraukist hér á landi, einkum hjá skipaflotanum. Skráð bensínverð í Rotterdam er nú 346,50 dollarar hvert tonn og gasolíuverð er 309 dollarar hvert tonn. Ófært um Ólafs- víkurenni vegna grjóthruns ÝMSIR, sem leið áttu um Ólafs- víkurenni í gærkvöldi lentu í hinum mestu erfiðleikum vegna skriðufalla og grjóthruns. Sam- kvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk hjá lögreglunni í Ólafsvík í gærkvöldi höfðu ekki borizt til- kynningar um tjón, en vegurinn var orðinn ófær af þessum sökum. Mjög hvasst var í Ólafsvík í gær og um kvöldið gerði úrhellisrign- ingu. Fjármagnsþörf Flugleiða: „Ekkert á móti því að senda beiðni til Landsbankans“ -segir Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra Jötunn borar í Bjarnarflagi Bjork. Mývatnssveit. 29. október. BÚIÐ er að flytja gufuborinn Jötunn frá Kröflu og setja hann upp í Bjarnarflagi. Borun hefst þar í kvöld. Boruð verður ein hola og ef allt gengur samkvæmt áætlun ætti því verki að vera lokið í byrjun desember. Þessi hola er staðsett austan við aðal- sprungusvæðið í Bjarnarflagi, en nokkru sunnar er síðasta hola, sem boruð var þar og hefur hún reynzt mjög vel. - Kristján Mosfellssveit: Felldu útsvör HREPPSNEFND Mosfellshrepps samþykkti einróma á fundi í gær að fella niður útsvör á þau börn i hreppnum. sem skattlógð voru nýverið cins og önnur 14 — 16 ára börn i landinu. Salome Þorkelsdóttir alþ.m. og varaoddviti hreppsins tjáði Mbl. í „ÚT AF fyrir sig held ég að beiðni Flugleiða um peninga- fyrirgreiðsiu nú þegar sé borft- liggjandi með frumvarpi ríkis- stjórnarinnar sem allir flokkar segjast styðja og ég hef rætt við Landshankann um þetta mál. en formleg ósk Flugleiða um það að ríkisstjórnin heindi því til Landshankans að hlaupa undir bagga nú þegar. barst mér í byrjun vikunnar og það mál verður raút á ríkisstjórn- arfundi á morgun,“ sagði Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra í samtali við Mhl. í gærkvöldi um heiðni Flugleiða. niður á börn gærkvöldi að um væri að ræða 42 börn í hreppnum og næmu álögð útsvör á þau 837 þúsund krónum. Sagði Salome að hreppsnefndin hefði talið rétt að fella útsvörin niður þar sem álagningin væri svo seint á ferðinni og hún hefði komið börnunum og foreldrum þeirra algerlega í opna skjö.ldu. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða að samkvæmt þeim svörum sem þeir hefðu fengið frá Landsbankanum sæi bankinn sér ekki fært að afgreiða málið fyrr en beiðni kemur um það frá ríkisstjórninni, en hann kvað mikla þörf á skjótri lausn. „Ég hef ekkert á móti því að senda beiðni til Landsbankans vegna þessa máls,“ sagði Stein- grímur, „en ég held að Lands- bankinn hafi eins miklar upplýs- ingar og við þótt við vitum ekki matið ennþá. Það er hins vegar von á því um helgina, en munn- lega er ég búinn að mælast til þess að Landsbankinn kanni málið til þess að afgreiða það.“ Jón Helgason um kjaraskerðingaráform rikisstjórnarinnar: Kaupmáttur rýrni ekki frá því sem núna er JÓN Ilelgason, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri, sagði í samtali við Morgunblaðið. að sér væri ekki kunnugt um fyrirhugaða vísi- töluskerðingu ríkisstjórnarinn- ar, „en auðvitað reynir maður að grennslast fyrir um. hvort eitthvað slikt sé í bígerð og hvort þær liggi að baki þvi. að svo skyndilega var stigið þetta skref til samninga. Maður get- ur vart trúað þvi að menn ætli að taka kauphækkunina strax, og að þar séu einhverjir bak- samningar.“ „Ég hefi ekki mótað mér skoð- un um það, hvort gera eigi kröfu til þess að þessar tillögur verði lagðar fram. Hitt er svo annað mál, að ef einhverjar aðgerðir eru í bígerð, sem verkalýðshreyfingin getur haft áhrif á, þá hefur það alltaf verið mín skoðun, að verka- lýðshreyfingin eigi að vera til- búin til að skoða slíkt." Að lokum var Jón Helgason spurður að því, hvort hann myndi berjast gegn kjaraskerðingar- áformum stjórnvalda á sama hátt og 1978. Hann svaraði: „Þ^ið er mér höfuðmál, að sá kaupmáttur, sem við höfum rýrni ekki frá því sem hann er og við hljótum að standa á því að hann fari ekki neðar. Alla vega a.m.k. að kaup- máttur þess fólks, sem ég er umbjóðandi fyrir verði ekki skertur. Ég tel það sem gert hafi verið fyrir lægst launaða fólkið sé í algjöru lágmarki og það hefðu betur verið farnar aðrar leiðir til þess að tryggja kaupmátt þess. En úr því sem komið var, var ekki um annað að ræða en reyna að minnka eitthvað bilið milli al- mennra launþega og opinberra starfsmanna. Þar vantar enn mikið á og eru lífeyrismálin þar algjör forsmán."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.