Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OltTÓBER 1980 17 Cokuð inni meira en helming sólarhringsins Midhúsum. Reykhólasveit. 27. okt. Slátrun: Nýlega er slátrun lokið í Króksfjarðarnesi og var slátrað 11221 dilk og 927 fullorðnum kindum. Dilkarnir voru 755 færri en í fyrra. Meðalþungi var 16,078 kg en var í fyrra 14,108 kg og hefur því þyngdaraukning verið 1,97 kg að meðaltali. Þrátt fyrir fækkun um 755 dilka hefur heildarkjötþungi aukist um 11457,8 kg. Þangmjöl: Á bænum Grund í Reykhólasveit voru kartöflur sett- ar niður í gamlan garð í vor, en þeir eru jafnan arfasæknir. í sumar sást þar varla arfakló og mun það vera hægt að rekja til þess að þangmjöli var dreift yfir garðinn í vor á sama hátt og þegar tröllamjöl er notað. Ef rétt reynist, að hér sé á ferðinni lífrænn arfaeyðir sem er um leið fjölþættur steinefnagjafi, þá er hér um framfaraspor í ræktunarmálum okkar. Skólastjóraskipti á Reykhól- um: í haust fóru í ársfrí skóla- stjórahjónin, Kolbrún Ingólfsdótt- ir sk'ólastjóri og Hermann Jó- hannesson kennari. Þau hafa starfað við Reykhólaskóla í 4 ár. Við skólastjórn tók Unnar Þór Fréttasam- tíningur að vestan Böðvarsson. Tveir nýir kennarar komu að skólanum í haust. Árgæði til iands og sjávar: Sjaldan hefur verið eins góð upp- skera og sjávarafli og í ár en í' öfugu hlutfalli við árgæsku er afkoma atvinnuveganna. Allir tala um gæludýr sitt, verðbólguna, gefa henni að éta og eru svo undrandi hve óseðjandi hún er, en á flestum heimilium er hún stofustáss. Ég man vart eftir öðru en barlómi í stjórnmálum en ég hygg að síðustu 20 árin hafi íslensku þjóðinni aldrei liðið bet- ur. Rafiínan: Nú er lokið við lagn- ingu raflínu vestur á firði, en það er mikið mannvirki. Hins vegar verður ekki fram hjá því gengið að nýta hefði mátt fjármagn sem í þetta fór miklu betur, en svo virðist að ríkisstofnanir bauki hver í sínu horni og algert sam- bandsleysi sé á milli þeirra. Það hefði verið hægt að sameina raflögn og vegagerð bæði í Gils- firði og Þorskafirði, ef samvinna KJARASAMNINGARNIR, sem undirritaðir voru í fyrrakvöld, gefa eins og komið hefur fram ákvæðisvinnu byggingmanna minni hækkun en öðrum launa- kerfum. Um leið og ákvæðis- vinnan hækkar um 8,12% hækk- ar viðmiðunartaxtinn um ná- lega 17%, en þess ber þá að gæta að við útreikning tíma- vinnutaxtans eru teknar inn yfirborganir og taxtinn færður nær raunverulegu greiddu kaupi og er þvi hlutfallshækk- un taxtans meiri en hækkun raunlauna. Viðmiðunartala trésmiða var fyrir þessa samninga 1.403,02 krónur. Hún hækkar samkvæmt samningunum um 6%, þannig að hún fer í 1.487,20 krónur. Við þessa tölu bætist síðan við % ferða- og fæðisgjalds, sem er í tímavinnunni nú 327 krónur. Viðbótin, sem færist sem krónu- tala inn í taxtann er 217,65 krónur og þar til viðbótar kemur verkfæra- og fatagjald, sem er 130,15 krónur. Þannig verður ákvæðisvinnutalan sem slík, sem kemur til grundvallar mælingar- einingunum eða á hverjum 60 mínútum er 1.835 krónur á móti tölu, sem var fyrir þessa samn- inga 1.697,52 krónur. Því verður hækkunin í heild nokkru meiri en 6%, sem kemur til vegna þess að viðmiðunartaxtinn vegna ferða- og fæðisgjalds og verk- færa- og fatagjalds, sem er tímavinnutaxti, hækkar það mikið í kjarnasamningnum, að heildarhlutfallshækkun verður 8,12%. Viðmiðunartaxti tré- smiða í ákvæðisvinnu er 14. launaflokkur kjarnasamnings- ins, sem jafnframt er lægsti taxti trésmiða. Viðmiðunarflokkurinn í tíma- vinnu sem slíkur hækkar um nálega 17% borið saman við taxta fyrir og eftir gerð kjara- samningsins. Samkvæmt upp- lýsingum Gunnars S. Björnsson- ar, formanns Meistarasambands byggingamanna verður að gæta þess, að þegar bornir eru saman taxtar fyrir og eftir samningana kemur út hærri hlutfallshækk- un, þar sem í kjarnasamningi eru teknar inn yfirborganir í tímavinnu og því hækkar hlut- fallið. Grundvöllur þeirrar við- miðunar er könnun, sem gerð var í allmörgum fyrirtækjum, þar sem borið var saman taxta- kaup og raunveruleg greidd laun, og verður niðurstaðan nokkuð lægri kauphækkun, en ofan- greindar tölur gefa til kynna. hefði verið um þessi mál. Að nokkru leyti má enn bjarga mál- unum við í Þorskafirði ef strax er gripið í taumana. Gilsfjarðarvit- leysan verður ekki bætt. Stjórnarskrármálið: Við hér fyrir vestan höfum skoðanir á stjórnarskrármálinu, en það verð- ur að bíða betri tíma að fjalla um það mál. Staðreynd er að það er miklu erfiðara að vera þingmaður í fámennum stórum kjördæmum en þar sem þéttbýlið er mest. Ég hygg að erfitt verði að gera svo öllum líki í þessu máli sem öðrum. Síminn: Enginn sjálfvirkur sími er í sýslunni og „frábærlega" léleg þjónusta. Þar á ég ekki við starfsfólkið. Það gerir sem það getur. Við erum sem sagt lokuð inni meira en helming sólar- hringsins og við getum ekki náð til læknis eftir lokun símans. Hér er verkefni fyrir þingmenn okkar að leysa fljótt og vel. Fréttaritari í 25 ár: 25 ár er alllangt tímabil í starfsævi hvers manns og í 25 ár hef ég sent fréttir héðan að vestan. Ég byrjaði þetta starf eftir beiðni Sigurðar Bjarna- sonar, þáverandi ritstjóra Morg- unblaðsins. Á þessu tímabili hef ég móðgað einhverja, sært metnað annarra og glatt fáa, en þannig er nú þetta starf í sjálfu sér, því að stakkur- inn er þröngur, en það hefur verið látið afskiptalaust þó ég hafi sett á hann mislitar bætur. Ég hef sett minn eigin svip á þessar fréttir og skiptir þá litlu hvort svipurinn er broshýr eða ýrður. Annars getur almennt orðalag farið fyrir brjóstið á sumum lesendum ef þeir eru ekki samþykkir efnisvali. Ég get þó glatt lesendur með því að ég hef aldrei lagt flokkspóli- tískt mat á fréttir eða menn þá, er ég skrifa um. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka starfsfólki Morgun-^ blaðsins mjög gott samstarf og leiðbeiningar. Það er gott að koma þar inn og finna þann góða anda er þar ríkir. Lesendur góðir! Kærar þakkir! Án örvunar frá ykkur væri ég löngu hættur þessu starfi. Sveinn Guðmundsson BENCO 01-600A 2x40 rásir, AM/FM. Fullur styrkur. Sérsmíöuö fyrir ís- land. Verö kr. 138.600. Toppurinn í CB Talstöðvum í dag BENCO Bolholti 4, sími 2.1945 Ákvæðisvinnu- taxti trésmiða hækkar um 8,12% 3,6 milljarðar endurgreiddir ÞEIR 3,6 milljarðar króna, sem Seðlabankinn greiðir nú útflutn- ingsatvinnuvegunum vegna af- urðalána, eru endurgreiðsla til umræddra aðila úr sjóði þar sem gengismunur er húsaður, en þessi upphæð er það sem bar að endurgreiða og eru þetta um 8% af þeim peningum sem eru í sjóði gengismunar. L/ SKIPHOLTI7 ’ SÍMI 28720 NÝJAR VÖRUR Fyrir herra: Ullarfrakkar og rykfrakkar, úlpur og buxur í úrvali. Fyrir dömur: Ullarkápur, dragtir og pils, jakkar, margar síddir. Buxur í úrvali. Fyrir börn: Drengjaföt og úlpur. Flannels-, flauels- og denimbuxur í úrvali. Spariö og geriö góö kaup á 1. flokks vöru á verksmiöjuveröi. Opiö virka daga kl. 9—18 laugardaga kl. 9—12. Elgurhf MEZ zOFORT TONLEIKAR A HOTEL BORG I KVÖLD 30. OKT. Gestur kvöldsins: ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR — ROKKÓTEK FRÁ KL. 21.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.