Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 Þorvaldur Garðar Kristjánsson, um Flugleiöafrv.: Stjórnarliðar taka ekki mark á staðhæfingum Ólafs Ragnars Það sýnir frumvarp ríkisstjórnarinnar Fyrstu umræðu um stjórn- arfrumvarp um málcfni Flugleiða hf. lauk í efri deild Alþinsis í gær og var því vísað til umfjöllunar fjárhags- og viðskipta- nefndar deildarinnar. Lyktir umræðunnar verða lítillega raktar, efnislega, hér á eftir. Hófsemi ráðherra, óhóf Ólafs Ragnars Porvaldur Garðar Kristjánsson (S) sagði fjármálaráðherra hafa komið sér hjá að svara kjarnaatrið- um í máli sínu á þeim forsendum, sem réttar væru, að Flugleiðafrum- varpið væri brýnt og koma þyrfti því tafarlítið til nefndar. Hitt væri verra, að hófsemi ráðherra á upp- lýsingar til þingdeildarinnar væri unnið fyrir gýg með maraþonræð- um Ólafs Rágnars Grímssonar, sem höggvið hefði á báðar hliðar, þ.e. í efri deild og Sameinuðu þingi. Fjórum spurningum hefði ráð- herra þó svarað, ef svar skyldi kalla. Spurt hefði verið, hversvegna samþykkt ríkisstjórnarinnar um þriggja ára aðstoð við Flugleiðir hefði skroppið saman í eins árs aðstoð í frumvarpinu. Afsökun ráðherra var sú, að aðstoð Luxem- borgar væri til eins árs. Islenzka ríkisstjórnin hefði þurft að fara eins að. Hefði nú ekki verið traustvekjandi út á við, ekki sízt gagnvart Luxemborg, að frumvarp- ið hefði náð til þriggja ára, eins og samþykkt stjórnarinnar stóð til? Ónnur spurning, sem ráðherra svaraði, var þess efnis, hvort hann héldi, að eins árs aðstoð nægði og ef ekki, hvort ráðherra myndi beita sér fyrir framhaldi aðstoðar. Þess- ari spurningu svaraði ráðherra út í hött; að hann gæti ekki einu sinni sagt fyrir um, hvort þessi flug- rekstur yrði til staðar að ári liðnu. Þó reiknaði hann ekki með að eins árs stuðningur væri nægilegur. Spurt var, hvort það samræmd- ist íslenzkum hagsmunum, að að- stoð íslenzkra stjórnvalda frá október í ár til jafnlengdar á næsta ári væri mun minni í reynd en stjórnvalda í Luxemborg. Aðstoð Luxemborgar felst í fyrsta lagi í þriggja milljóna dala beinu fjár- framlagi og í öðru lagi í niðurfell- ingu lendingargjalda. Aðstoð ís- lenzkra stjórnvalda, samkvæmt þessu frumvarpi felst ekki í fjár- framlagi, heldur aðeins í niðurfell- ingu lendingargjalda. Abyrgð, sem Spurningin um framhald eða lyktir millilandaflugs hefur verið sá möndull, sem umræða á þingi og með þjóðinni hefur snúizt um. Þessi mynd segir okkur vonandi ekki að kvölda taki og sezt sé sól islenzkrar flugsögu. ef af sama toga og mörg önnur fyrirtæki hafa fengið, væntanlega gegn fullu veði í eignum, er svo af öðrum toga. Fjórða spurningin fékk hinsveg- ar ákveðið svar: hvort ríkisstjórnin stefndi að 20% eignarhlut í Flug- leiðum. Þeirri spurningu svaraði ráðherra undanbragðalaust ját- andi. Þá vaknar óhjákvæmilega önnur spurning hjá landsfólkinu, er það stefna stjórnvalda að „leysa rekstrarvanda" annarra fyrir- tækja, sem í rekstrarerfiðleikum kunna að vera, með eignaraðild ríkisins? Málgleði þing- flokksformanns Þá vék Þorvaldur Garðar að málflutningi Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hefði, þrátt fyrir orðgnótt, hvergi komið nálægt efn- isatriðum frumvarpsins, sem til umræðu væri. Meginhluti ræðu hans í þingdeildinni hefði farið í að rekja einar fimm, sex þingræður, sem fluttar voru árið 1975! Síðan hefði hann lagt út af þeim með þeim hætti sem honum væri lagið. Þingflokksformaðurinn hefði hlaðið forystumenn Flugleiða margs konar aðfinnslum, sem hefðu verið þess eðlis, að ekki ætti að vera „heil brú í stjórnun fyrir- Fyrirspurn á Alþingi: Hyggst ríkisstjórn- in endurskoða gjald- miðilsbreytinguna? FRAM er komin á Álþingi fyrir- spurn til viðskiptaráðherra varðandi breytt verðgildi ís- lenzks gjaldmiðils. Fyrirspurnin fjallar um, hvort „ríkisstjórnin vilji taka til endur- skoðunar fyrirætlanir um breytt verðgildi íslenzks gjaldmiðils, með tilliti til þess, að sú aðgerð sé ekki liður i víðtækri stefnumótun og framkvæmd til að ráða bót á verðbólgunni og koma á stöðug- leika í efnahagslífi þjóðarinnar“. Þar sem breytingin tengist ekki slíku markmiði geti hún aukið á upplausn og vantrú manna á gjaldmiðlinum í stað þess að treysta hann. Fyrirspyrjandi er Þorvaldur Garðar Kristjánsspn. Viðskipta- ráðherra, Tómas Árnason, mun væntanlega svara f.h. ríkisstjórn- arinnar áður en langur tími líðnr. tækisins". Hjá þeim hefði hann ekki fundið neitt jákvætt, ekki agnarögn. Ef einhver fótur er fyrir því, sem þingmaðurinn staðhæfir hversvegna er þá ríkisstjórn, sem Ólafur Ragnar telst styðja, að flytja þetta frumvarp til aðstoðar Flugleiðum og stjórnendum þess? Er þá nokkuð vit í þeirri stjórn- argjörð? Ég hlýt að skilja háttvirta ríkisstjórn á þá leið, að hún sýni, með frumvarpsflutningnum, trú á það, að ekki sé vonlaust verk að styðja Flugleiðir, jafnvel endur- reisa Atlantshafsflugið. Þá gagnrýndi Þorvaldur Garðar, ef skilja mætti orð Ólafs Ragnars sem formanns fjárhags- og við- skiptanefndar þingdeildarinnar á þann veg, að hann myndi með fyrirspurnaaðferð tefja framgang stjórnarfrumvarpsins í þingnefnd. Eðlilegt væri að þingnefnd fengi nauðsynlegar upplýsingar, en það sé hinsvegar hvorki nefndarinnar né formanns hennar að kveða upp úr um, hvort upplýsingar eru nægar, heldur þingdeildarinnar. Formaður nefndarinnar getur ekki gert sig að litlum Stalín í þessu máli, enda eru í þingnefndinni ýmsir, s.s. forsætisráðherra þeirrar stjórnar er frumvarpið ber fram, er væntanlega láta ekki bjóða sér slíka starfshætti. Þorvaldur sagði að 5. gr. frum- varpsins, sem fjallaði um hugsan- leg skilyrði fyrir aðstoðinni, væri ekki nógu upplýsandi. Þingdeildin ætti kröfu á því að ríkisstjórnin gerði henni grein fyrir því í hverju þessi skilyrði myndu fólgin. Að lokum gerði ÞGKr grein fyrir samþykkt þingflokks Sjálfstæðis- flokksins þetta mál varðandi og ítrekaði, að ef boðuð aðstoð ætti að koma í tæka tíð þyrfti hún að berast hið allra fyrsta. Ónógar upplýsingar, rangar upplýsingar ólafur Ragnar Grimsson (Abl) sagði þá ásökun hafa komið fram í Sameinuðu þingi að það væri rangt að leggja þetta stjórnarfrumvarp fram í efri deild, enda líklegt, að málið gengi ekki eðlilegan gang í fjárhags- og viðskiptanefnd deild- arinnar. Spurði hann Þorvald Garðar, hvort hann hefði sama álit á efri deild og kæmi fram í þessum getgátum. Þá sagði Ólafur að fáir þingmenn hefðu verið viðstaddir Vaxandi rekstrar- halli ríkisútvarps: Aðflutn- ingsgjöld af sjónvarps- tekjum til út- varps á ný Breytingartillaga Þorvaldar Garðars ÞORVALDUR Garðar Kristjánsson (S) hefur flutt beytingartillögu við frum- varp Eiðs Guðnasonar um tekjur ríkisútvarps'. Breyt- ingartillaga Þorvalds Garð- ars felur það í sér að að tekjur af aðflutningsgjöld- um af sjónvarpstækjum og hlutum í þau skulu vera viðvarandi tekjustofn og ganga til stofnkostnaðar sjónvarpsins. Frumvarp Eiðs fól það í sér að þessi tekjustofn. sem útvarpið hafði á árahilinu 1968 til 1976, renni til þess á ný næstu þrjú árin. Rekstrarhalli Ríkisút- varps-Sjónvarps var 358,5 milíjónir krona 1979 en rekstrarhalli 1980 stefnir í tvöfalt hærri upphæð. umræður í Sameinuðu þingi, jafn- vel ekki þeir sem mest töluðu um áhuga sinn á Flugleiðamálinu. Ef Þorvaldur Garðar hefði hlýtt á umræður þar hefði hann fengið svör við ýmsu því, sem hann hefur spurt um nú. Samgönguráðherra hefði t.d. skýrt, hversvegna Iscargo hefði fengið farþegaflugsleyfi á Holland. Þar hefði glöggt komið í ljós, að ríkisstjórnin hefði síður en svo tafið Flugleiðamálið, heldur verið snögg í snúningum borið saman við ríkisstjórnina 1975. Hann sagði gagnrýni sína á stjórn- endur F’lugleiða nánast hafa verið til staðfestingar á orðum Eiðs Guðnasonar, sem hann hefði látið falla í þeirra garð hér í þinginu. Þá hefði samgönguráðherra tjáð þing- inu að svör Flugleiða hefðu verið á ýmsa lund ófullnægjandi — og ókomin enn, varðandi mikilvægar spurningar. Þannig væri enn ekki komin umbeðin endurskoðuð rekstraráætlun eða endurskoðuð áætlun um Atlantshafsflugið. Það er svör við þessum grund- vallaratriðum og fleiri hliðstæðum sem ég sem formaður fjárhags- nefndar vil að séu til staðar. Hér getur verið um klukkustunda- spursmál að ræða Karl Steinar Guðnason (A) sagði vanda flugrekstrar á íslandi hluta af fjölþjóðlegum vanda, sem rætur ætti í gjörbreyttum rekstr- araðstæðum. Sjálfsagt mætti tí- unda sitthvað, sem betur hefði mátt fara á heimavettvangi en menn skyldu þó gæta hófs í hvers- konar aðför að flugrekstrinum við ríkjandi aðstæður. Hann sagði Al- þýðuflokkinn myndu styðja frum- varpið, þó fyrirvari væri við ein- stök atriði, einkum 5. grein, þ.e. óskilgreind skilyrði, en um það mál þyrfti að takast á í þingnefnd. Hundruð manna hafa misst at- vinnu sína í þessari atvinnugrein. Það getur verið klukkustunda- spursmál, hvort allir hinir, sem við þennan rekstur starfa, og starf- semi tengda honum, missi líka sína atvinnu. Þess vegna þarf skjót viðbrögð á Alþingi. Ég skora á fjárhags- og viðskiptanefnd deild- arinnar, að taka rögg á sig ög skila málinu eins fljótt og kostur er. Ef málið dregst á langinn getur það valdið skaða, sem verður meiri en svo, að upp verði unninn. Þar með lauk fyrstu umræðu. Var málinu síðan vísað, sem venja er, til fjárhags- og viðskiptanefnd- ar. Efri deildin allra best Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) sagðist ekki ætla að orðlengja um það, hversvegna fáliðað hefði verið í Sameinuðu þingi daginn áður, er Ólafur Ragnar hélt ræðu sína þar, en þar hefði verið vant fleiri þingmanna en úr Sjálfstæðis- flokki. En þó hafi verið fylgst með ræðunni og að því er sér hefði verið tjáð hefði fátt nýtt komið fram í henni. Spurningu Ólafs Ragnars v um, hvort efri deild væri góður vettvangur til að flytja mál, svar- aði Þorvaldur á þá leið, að þrátt fyrir allt væri efri deild beztur vettvangur til þess arna. Hann kvaðst heldur ekki trúa því að Ólafur Ragnar tefði jafn þýð- ingarmikið mál og hér um ræddi, flutt af hans eigin stjórn, í fjár- hagsnefnd. Þeirri spurningu, hvort veiting samgönguráðherra á flug- leyfi til handa Iscargo til Hollands styrkti eða veikti Flugleiðir, gæti hver og einn svarað fyrir sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.