Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 35 Gengisspá Privatbanken Gjaldeyrisspá Nýlpsa skýrði danski bank- inn „Privatbanken“ frá væntan- legri KenKÍsþróun mánuóina október ok nóvember ok Kefa örvarnar í skyn þróun eftirtal- inna gjaldmiðla i hlutfalli vió fimm lykil-gjaldmiöla ($, DM. Sfr., £ ok yen): Dollar Verðbólgan í Bandaríkjunum virðist nú vera í rénun og er talið að hækkun framfærslukostnað- ar á ársgrundvelli verði u.þ.b. 13—14%. Þess er vænst, að viðskiptajöfnuður verði hag- stæður um 2—3 milljarða doll- ara. Af greindum ástæðum og vegna þess að menn búast við hækkandi vöxtum í Bandaríkj- unum, er gert ráð fyrir að alþjóðlegt verðgildi á dollar munu hækka lítillega. Pund Núverandi styrkleika punds- ins verður að miklu leyti að þakka miklu innstreymi á fjár- magni sökum spákaupmennsku og stafar það einkum af háum vöxtum. Verðbólgan er enn mik- il. Heildsöluverð hækkaði þannig í júlí um 16% á ársgrundvelli. Búist er við hægfara vaxtalækk- un og samfara því lækkandi verðgildi á pundinu. V-þýsk mörk (DM) Þriggja milljóna DM halli varð á viðskiptajöfnuði Vestur- Þýskalands í júní sl., en það var tvöfaldur halli maímánaðar. Yf- ir árið í heild er búist við að hallinn verði ca. 25 milljónir DM. Iðnaðarframleiðslan stóð í stað í júní, en framleiðslupant- anir drógust saman um 2,5%. Atvinnuleysið eykst, en er þó ennþá frekar lítið. í júlí voru 850.000 manns atvinnulausir, sem jafngildir 3,7% á móti 3,4% í júní. Neysluvöruverðlag í júlí í ár var 5,5% hærra en í júlí árið áður, á móti 6% hækkun frá júní árið 1979 til júnímánaðar í ár. Væntanlega mun verðgildi á DM verða stöðugt. Svissneskir frankar (Sfr.) Halli verður á viðskiptajöfn- uði í Sviss í ár, sem ásamt allnokkru fjármagnsútstreymi þýðir að ganga þarf á gjaldeyris- forðann. Verðbólga fer vaxandi, en er þó áfram mjög hófleg. Heildsöluverð í júlí í ár hækkaði um 4,8% frá sama tíma í fyrra. Reiknað er með að gengi Sfr. verði stöðugt. Franskir frankar Gert er ráð fyrr 25 milljóna fr. halla á viðskiptajöfnuði Frakka í ár, en hann var hagstæður um 5,1 milljón fr. árið 1979. Verð- bólgan er áfram meiri en meðal- talið í EBE. í júní var neyslu- vöruverðlag 13,6% hærra en á sama tíma í fyrra. Þegar litið er til hinnar efnahagslegu þróunar er þess vænst, að verðgildi frankans fari lækkandi. Norskar krón- ur (Nkr.) Halli var á norska vöruskipta- jöfnuðinum í júlí sl., en hann var þó aðeins tæplega 800 milljónir nkr. Fyrstu sjö mánuði ársins reyndist vöruskiptajöfnuðurinn jákvæður um hálfan mia. nkr. Atvinnuleysi jókst í júlí, en er þó áfram tiltölulega lítið, 17.400 manneskjur eða 1% á móti 0,9% í júní. Verðbólgan verður í ár um 10% á móti 8% í fyrra. Vegna styrkrar undirstöðu efnahags- lífsins er búist við að alþjóðlegt verðgildi norsku krónunnar fari vaxandi. Sænskar krón- ur (Skr.) I Svíþjóð búast ráðamenn við halla á vöruskiptajöfnuði upp á ca. 10 milljónir skr. í ár, en hann var í fyrra neikvæður um 4,6 milljónir skr. Jafnframt er búist við að halli á viðskiptajöfnuði verði um 20 milljónir skr. og m.a. bendir hinn vaxandi halli gagnvart útlöndum til að verð- gildi sænsku krónunnar muni fara minnkandi. Danskar krón- ur (Dkr.) Viðskiptajöfnuður Dana var neikvæður um rúmlega 10 millj- ónir dkr. fyrstu sex mánuði ársins. Nettó vaxtagjöld þjóðar- innar eru talin vera 4,7 milljónir dkr., miðað við 3,2 milljónir dkr. í fyrra. Neysluvöruverðlag apríl- mánaðar reyndist 14,3% hærra en í sama mánuði í fyrra. Hækkunin í júlí reyndist hins vegar ekki nema 12,8% á árs- grundvelli. Framleiðslupantanir í iðnaði dragast sífellt saman og samhliða því er við vaxandi atvinnuleysi að stríða. Talið er, að verðgildi dönsku krónunnar muni fara lækkandi. Þrengingar fyrirsjáanlegar í vestur-þýzku efnahagslífi Efnahagssérfræðingar gera tillögu um lækkun gengis marksins SAMKVÆMT niðurstöð- um athugunar fimm virt- ustu efnahagsstofnana Vestur-Þýzkalands mun verða stöðnun í vestur- þýzku efnahagslífi á næsta ári, hagvöxtur mun standa í stað, þjóðarframleiðsla eykst nánast ekkert, og verðbólga mun aukast eitt- hvað. Þá er það samdóma álit stofnana, að jafnvel þurfi að grípa til gengis- lækkunar vestur-þýzka marksins, sem hefur verið allra gjaldmiðla sterkast- ur að undanförnu, til að sporna við þessari óheilla- þróun efnahagslífsins. I niðurstöðum athugunarinn- ar segir, að fyrstu sex mánuði ársins 1981 megi búast við um 1% samdrætti, en síðar muni eitthvað úr rætast á seinni helmingi ársins, þannig að út- koman verði nálægt núllinu. Gert er að tillögu, að gengi vestur-þýzka marksins verði lækkað til að bæta samkeppnis- aðstöðu vestur-þýzkra iðnfyrir- tækja, sem hafa farið nokkuð halloka að undanförnu vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Þá gera efnahagsstofnanirnar það að tillögu sinni, að vextir verði lækkaðir frá því sem nú er, en þær telja vexti vera of háa í dag, séu reyndar fyrst og fremst miðaðir við, að laða að erlent fjármagn, en miðist ekki við þarfir innanlandsmarkaðarins. Gert er ráð fyrir því, að neytendaverð hækki um tæplega 4% á næsta ári samanbprið við um 5,5% á þessu ári. Á sama tíma er gert ráð fyrir því að neytendaverð í Bandaríkjunum og Bretlandi hækki um 11%, 18% á ítaliu og um 5% í Japan. Norbert Walter, forstöðumað- ur efnahagsstofnunar Kielar- háskóla, sagði á fundi með fréttamönnum, að þótt það væri álit hagfræðinganna, að lækka bæri gengi vestur-þýzka marks- ins, þá væru þeir vissir um, að það myndi ná fyrri styrkleika þegar á árinu 1982, ef rétt væri á málum haldið, en þessi athug- un fór einmitt fram, að frum- kvæði ríkisstjórnar Helmuts Schmidts, sem hefur sagt muni nota niðurstöðurnar til hliðsjón- ar við efnahagsráðstafanir á komandi mánuðum. Fréttir frá Noregi... ÚTFLUTNINGUR á timbri jókst um nærri 9% á fyrstu sex mánuðum þessa árs í Noregi. Rúmlega 258 þúsund rúmmetrum timburs var skipað út frá Noregi, en það er að verðmæti liðlega 230 milljóna norskra króna, eða sem næst 25,5 milljörðum íslenzkra króna. IÐNAÐARFRAMLEIÐSLA jókst um tæplega 5,7% fyrstu níu mánuði ársins í Noregi, en hafði aukizt um nærri 4,5% á sama tíma í fyrra. Framleiðsla í samkeppnisiðngreinum dróst hins vegar saman um tæplega 1,4% á fyrstu níu mánuðunum, en hafði aukist um 0,9% á sama tíma í fyrra. KAUPSKIPAFLOTI Norðmanna hefur stöðugt verið að minnka undanfarin ár, og á fyrstu sex mánuðum þessa árs minnkaði hann um sem svarar 300 þúsund GWT og er heildarfjöldi skipa eftir þessa minnkun 1711. / Aurrwr hnmul Ióunn Ný bók: Meðganga og fæðing Út er komin á vegum Iðunnar bókin Meðganga og fæðing. svör við spurningum verðandi móður, eftir Laurence Pernoud. Sigurður Thorlacius læknir þýddi. — Höf- undur bókarinnar er Svisslending- ur að uppruna en búsett í París og samdi bókina á frönsku. Hefur hún komið út í mörgum útgáfum og verið þýdd á mörg tungumál. í íslensku þýðingunni hefur efni bókarinnar verið staðfært þar sem við á. Guðjón Guðnason, yfirlækn- ir við Mæðradeild Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur og Fæð- ingarheimili Reykjavíkur, ritar formála að bókinni og er þar meðal annars að finna yfirlit um sögu mæðraverndar á íslandi. Þýðing bókarinnar er gerð með hliðsjón af enskri þýðingu sem nokkuð er breytt frá frumútgáfu. Meðganga og fæðing skiptist í níu aðalkafla. Þeir heita: Er ég barnshafandi?, Heilsufar þitt, Út- lit þitt, Barnið þitt fram að fæðingu, Stóru spurningarnar þrjár, Fæðingin, Barnið þitt er fætt, Þú og maki þinn og Hagnýt- ar ráðleggingar. Hver aðalkafli greinist í marga undirkafla og greinar þar sem svarað er fjöl- mörgum spurningum sem verð- andi mæðrum liggur á hjarta. í bókinni eru allmargar skýr- ingarmyndir. Hún er 285 blaðsíð- ur, aftast skrá um atriðisorð. Oddi prentaði. Nóvember- kvöld MÍR 63 ÁRA afmælis Októberbylt- ingarinnar í Rússlandi og 100 ára afmælis rússneska byltingar- skáldsins Alexanders Blok verður minnst á Nóvemberkvöldi MÍR, Menningartengsla tslands og Ráð- stjórnarríkjanna. í veitingahúsinu Snorrabæ miðvikudagskvöldið 5. nóvember kl. 20.30. Þar flytja ávörp í tilefni bylt- ingarafmælisins þeir Nikolaj Streltsov sendiherra Sovétríkjanna á íslandi og Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur og tveir ungir hljómlistarmenn, Einar Einarsson og Hróðmar Sigurbjörnsson, flytja gítartónlist. Þá les Baldvin Hall- dórsson leikari upp úr þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar á kvæðinu „Tólfmenningarnir" eftir Alexand- er Blok, en hinn 16. nóvember nk. verða 100 ár liðin frá fæðingu skáldsins. Alexander Blok er talinn í hópi bestu Ijóðskálda Rússa eftir daga Púskins og Lérmontovs og hann er oft nefndur einn af 3—4 helstu brautryðjendum sovéskrar ljóðagerðar. Utan Sovétríkjanna mun Blok kunnastur fyrir kvæða- flokkinn „Tólfmenningarnir" sem Magnús Ásgeirsson þýddi á sínum tíma. Á Nóvemberkvöldi MÍR liggja frammi til sýnis allmörg auglýs- ingaspjöld (plaköt) eftir eistneska myndlistarmenn. Efnt verður til skyndihappdrættis og kaffiveit- ingar verða að dagskráratriðum loknum. Aðgangur að Nóvemberkvöldi MÍR í Snorrabæ 5. nóv. er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning frá MÍR) GRAM FRYSTIKISTUR FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX HÁTÚNI 6A,SÍMI 24420 í Kuupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI MYNDAMÓTHF. PRENTMYNDAGIRÐ AÐALSTRETI • SlMAR: 17152- 17355

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.