Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 KR sigraði með 43 stiga KR-INGAR unnu mikinn yfir- hurOasÍKur á ÁrmrnninKum 105 síík KCtfn fi2. í úrvalsdrildinni i korfuknattlrik i _ íþróttahúsi llaKaskólans. Lið Ármanns lék án þrss að fá til liðs við si>? hlökkumanninn Hrrrlrr rins ok Ármann — KR 62:105 talað hafði vrrið um. Iiins vr>{ar var Boh Starr ma'ttur ok stjórn- aði hann liði Ármanns i Iriknum. Boh lét þau orð falla að Brrrlrr hrfði áhuga á að ma'ta ok rnn Ka4i því farið svo að hann myndi Irika mrð Ármanni. „Brrrlrr rr hrsti miðhrrji í hrimi srm nú lrikur utan Bandaríkjanna" saKði Bob. En snúum okkur að leiknum. Það voru Ármenninfíar sem áttu frumkvæðið fyrstu mínúturnar ok léku vel. Þeir náðu forystunni og lomust í 12—8. En síðan ekki söguna meir. KR-ingar tóku öll völd í sínar hendur. Og þrátt fyrir að liðið sýndi engan stórleik í fyrri hálfleiknum höfðu þeir örugga forystu í hálfleik 42—36. Einar Bollason þjálfari KR skipti mikið inn á í leiknum og allir leikmenn fengu að spreyta sig. Það sama var reyndar líka upp á teningnum hjá liði Ármanns þegar ljóst var að þeir áttu aldrei neina mögu- leika í KR. Síðari hálfleikur var algjör ein- stefna að hálfu KR-inga. Þó sér í lagi síðustu 10 mínútur leiksins. Þá léku KR-ingar mjög hratt og hvert hraðaupphlaupið af öðru heppnaðist. Voru sendingr leik- manna og gegnumbrot á þessum tíma oft stórglæsileg hjá KR-lið- inu. Enda var 43 stiga munur á liðunum þegar flautað var til leiksloka. Lið KR sýndi engan stórleik framanaf. Það var einna helst Keith Yow sem gerði baggamun- inn í leik liðanna. En í síðari hálfleiknum tóku allir leikmenn vel við sér og yfirspiluðu Ármenn- inga algjörlega. Bestu menn í liði mun KR voru Keith Yow, Ágúst Líndal, Bjarni Jóhannsson, og Jón Sig- urðsson. Lið Ármanns er stórefnilegt og hefur góðum leikmönnum á að skipa. En Kanalausir gera þeir ekki stóra hluti í úrvalsdeildinni í ár. Liðið barðist vel framan af í leiknum, en þegar staðan var orðin vonlaus kom losarabragur á leik liðsins. Bestu leikmenn Ár- manns voru þeir Davíð Arnar, Valdimar Guðlaugsson og Krist- ján Rafnsson. Stig KR: Keith Yow 26, Ágúst Líndal 22, Bjarni Jóhannsson 12, Jón Sigurðsson 12, Eiríkur Jó- hannesson 9, Garðar Jóhannsson 8, Guðjón Þorsteinsson 10, Ásgeir Hallgrímsson 4 og Gunnar Jóa- kimsson 2. StÍK Ármanns: Davíð Arnar 19, Valdimar Guðlaugsson 12, Atli Arason 12, Kristján Rafnsson 9, Hörður Arnarson 7, Hannes Hjálmarsson 2, Guðmundur Sig- urðsson 1. — þr. Bob Starr er mættur til landsins og stjórnaði liði Ármanns gegn KR í gærkvöldi af röggsemi. Enn sigrar IVIan. City SLÆÐINGUR kom fram af óva'ntum úrslitum í 16 liða úrslit- um ensku deildarbikarkeppninn- ar í knattspyrnu. sem fram fór i gær ok fyrrakvöld. Mest á óvart kom skellur Forest Kegn 2. deild- ar liði Watford. Forest tapaði 1—4 ok skoraði Ross Jenkins þrennu fyrir Watford. Luther Blisset hætti fjórða markinu við. cn Wallace skoraði eina mark Forest. Mjög á óvart kom einnig stórsigur Manchester City kckö Notts County, efsta liðinu i 2. deild. Denis Tueart skoraði fjög- ur mörk fyrir City. Dave Bennett Ovæntur sigur Norðmanna NORÐMENN unnu mjöK óvænt- an sÍKur Kt‘«n Svisslendingum í landsleik í knattspyrnu sem fram fór í Bern í gærkvöldi. Leikurinn var liður í i-riðli undankeppni IIM og eftir 2—1 sÍKur Norð- manna telja menn Svisslendinga ekki líklega til afreka í næstu leikjum. Aage Ilereidc og Svein Mathiesen skoruðu mörk Norð- manna sitt í hvorum hálfleikn um. en Umberto Barberis skoraði mark Svisslendinga. Sigur Nor- egs var að sögn fréttaskeyta mjög sanngjarn. það fimmta. Annars urðu úrslit leikja sem hér segir. Man.City — Notts County 5—1 WBA — Preston 0—0 Coventry — Cambridge 1 — 1 Birmingham — Ipswich 2—1 Watford — Forest 4 — 1 Liverpool — Portsmouth 4 — 1 West Ham — Barnsley 2—1 1. deild: Norwich — Cr. Palace 1 — 1 Tap Ipswich kom að sjálfsögðu á óvart. fyrsta tap liðsins gegn ensku liði á þessu keppnistíma- bili. Worthington og Ainscow skoruðu. en Wark svaraði fyrir Ipswich. Dave Johnson (2). Ken Dalglish og Graeme Souness skoruðu mörk Liverpool gegn Portsmouth. en Alan Kennedy svaraði með sjálfsmarki. Þá má geta þess að David Cross skoraði sigurmark West Ham gegn Barnsley. Cambrigde á mögu- leika á þvi að slá þriðja 1. deildar félagið út úr keppninni. eftir jafntefli á Highfield Road í Cov- entry. Thompson skoraði fyrir Coventry, en Spriggs jafnaði. í 1. deild nældi Crystal Palace sér i dýrmætt stig i hotnbaráttunni. Clive Allen og Vince Hilaire voru settir út úr liði Palace, en engu að síður náði liðið forystu á 10. minútu með marki Gerry Fran- cis. Justin Fashanu jafnaði skömmu síðar og þar við sat. t Geir Hallsteinsson tryggir FH annað stigið í leiknum með marki undir lok leiksins. Ilaukum tókst ekki að komast yfir aftur þótt rúm mínúta væri til stefnu. Ljósm. Mbl. Kristján Elísson. Stigum var deilt bróð- urlega í Hafnarfirði Geysilegum baráttuleik Ilauka og FII i 1. deild íslandsmótsins í handknattleik. lauk þannig að liðin deildu bróðurlega með sér stigunum. Það var sanngjarnt eftir atvikum. lokatölurnar urðu 18 — 18. eftir að staðan í hálfleik hafði verið 9—7, Haukum í vil. Síðustu 90 sekúndurnar var knötturinn í vörslu Ilauka og þreyfuðu þeir fyrir sér ákaflega. Á síðustu sckúndunni gaf vörn FII sig í öðru horninu. Sigurður Sigurðsson vatt sér inn raeð knöttinn. en góður markvörður FH. Gunnlaugur Gunnlaugsson varði sautjánda skot sitt i leiknum. Handknattleikurinn var langt frá því að vera burðugur, en eins og oft áður bætti spennan og baráttan það að einhverju leyti upp. Yfirvegun var orð sem leik- menn beggja liða virtust ekki vita að væri til og ekki tóku menn til greina að bíða þess í sóknarleikn- um, að smugur opnuðust. Var pumpað skotum úr alls kyns færum, bæði góðum og slæmum, aðallega þó slæmum. Fyrir vikið var markvarslan yfir meðallagi og mjög góð hjá FH. Það voru FH-ingar sem gáfu tóninn og nýttu betur sín færi framan af, þeir komust í 4—1 og 7—4, en Haukarnir voru ekki lengi að jafna í 7—7, og gerðu svo enn betur, komust í 9—7. Síðari hálfleikur var í járnum eftir að Kristján Arason og Geir Hallsteinsson höfðu skorað tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks fyrir FH. Á sama tíma voru Haukarnir óheppnir og áttu tvö stangarskot. Eftir þetta var jafnt á flestum tölum, Haukarnir komust þó einu sinni tveimur mörkum yfir, 13— 11, og FH-ingar gerðu slíkt hið sama, er þeir komust í 17—15. Þegar þannig stóð, voru 6 mínútur til leiksloka. Þá misstu FH-ingar mann út af og Kristján Arason skaut meter fram hjá úr vítakasti. Haukarnir gengu á lagið og skor- uðu tvívegis. Síðan gekk á ýmsu þar til að Árni Sverrisson skoraði 18 mark Hauka úr horninu, er 1,45 mínúta var eftir. Geir jafnaði í hvelli fyrir FH og síðustu sekúnd- unum hefur þegar verið lýst. Markvarsla Gunnlaugs Gunn- laugssonar var hæsti tindurinn í þessum leik og var hún méð ágætum allan leikinn. Auk hans átti Geir besta leik sinn á þessu hausti. Annars var lið FH mjög slakt þó að annað stigið hafi náðst með baráttu. Gunnar Einarsson varð fyrir einhverjum meiðslum snemma í leiknum og gat lítið leikið, en sáralítið kemur út úr leikmönnum eins og Árna Árna- syni, Guðmundi Magnússyni, Sæ- mundi Stefánssyni og Valgarði Valgarðssyni. Sæmundur og Árni voru þó traustir í vörninni. Með allan sinn góða mannskap ætti FH að geta leikið miklu betur, en eitthvað alvarlegt er að og stigin verða ekki mörg í vetur ef haldið er áfram á sömu braut. Gunnar Einarsson stóð lengst af í marki Hauka og varði mjög vel framan af. Hann dofnaði er á leið og Ólafur Guðjónsson náði ekki að sýna ýkja mikið. Hörður Harðar- son var nokkuð sprækur hjá Haukum, svo og Árni Sverrisson, sem var besti maðurinn í liði Hauka. Viðar Símonarson stjórn- aði spili Hauka og lék með höfð- inu. En hann var heldur staður, hreyfði sig lítið. í stuttu máli: Mörk FH: Kristján Arason 9/6 víti, Geir Hallsteinsson 5, Sæ- mundur Stefánsson 2, Guðmundur Magnússon og Valgarður Val- garðsson eitt hvor. Mörk Hauka: Hörður Harðarson 7/5 víti, Árni Sverrisson 4, Árni Hermannsson og Sigurður Sig- urðsson 2 hvor, Júlíus Pálsson, Viðar Símonarson og Sigurgeir Marteinsson eitt hver. Brottrekstrar: Óttar Matthísen, Sæmundur Stefánsson og Theodór Sigurðsson FH í tvær mínútur hver. Júlíus Pálsson Haukum einnig í tvær. Víti í vaskinn: Kristján Arason brenndi einu af og lét Ólaf Guð- jónsson verja frá sér annað. Dómarar voru Árni Tómasson og Jón Friðsteinsson. Þeir voru lélegir. —gg. Frakkar sigruðu FRAKKAR sigruðu fra 2—0 í undankeppni IIM i knattspyrnu í fyrrakvöld, en leikurinn fór fram i Paris. Sigurinn var of stór miðað við ganK leiksins, en mestu munaði um, að framherjar irska liðsins voru slakir og nýttu ekki nokkur ákjósanleg færi. Frakk- arnir nýttu færin betur og hlutu því að sigra. Michel Platini skor- aði fyrra markið á 10. minútu og varamaðurinn Zimako siðara markið á 75. minútu. Er þetta annar leikurinn i röð sem Zim- ako þessi kemur inn á sem varamaður og skorar mark. Stefán Halldórsson klæðist Vik- inKspeysunni á nýjan leik í kvöld. Skyldi hann fá að koma inn á i leiknum? 1. deildin í handknattleik: Efstu liðin bítast í kvöld EFSTU liðin i 1. deild íslands- mótsins i handknattleik. VíkinK- ur og Þróttur, leiða saman hesta sina i stórleik fimmtu umferðar- innar í kvöld ok fer leikurinn fram i Höllinni. Hefst hann klukkan 20.00. VikinKar hafa forystuna í mótinu, hafa 7 stig að fjórum leikjum loknum. Þróttar ar, sem komu upp úr 2. deild á siðasta keppnistimabili, hafa að- eins leikið þrjá leiki, en unnið þá alla. Ba'ði liðin áttu leikmenn i landsliðinu, sem keppti á NM i Noregi fyrir fáum döKum. Þeir eru vafalaust þreyttir eftir erfitt ferðalaK og reynir því á hversu góðri þjálfun leikmenn liðanna eru. Búast má við hörkuleik þar sem ekkert verður gefið eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.