Morgunblaðið - 16.05.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.05.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ1981 Sérstakur búnaður verði settur upp í Hvíta húsinu WashinKton. 15. maí. AP. RfíNALD ReaKan Bandaríkjaforseti helur farið fram á fjöKurra milljón dollara fjárveitinKU BandarikjaþinKs til að setja upp ok starfrækja sérstakan útbúnað til að fyÍKjast með ferðum túrista um Hvíta húsið. Er þetta fram komið i kjölfar morðtilræðisins við ReaKan ok væntanleKa hefur atlaKan K«Kn Jóhannesi Páli páfa II svo riðið haKKamuninn. Inni i kostnaði við þennan nýja búnað eru laun 58 sérstakra öryKKÍsvarða sem ráðnir yrðu. Reagan forseti og kona hans ýkja langt frá Hvíta húsinu. fóru út að borða í gærkvöldi og er Gríðarlegar öryggisráðstafanir það í fyrsta skipti síðan forsetan- voru gerðar við brottför forsetans um ve.r sýnt banatilræði. Voru og svæðið allt nánast lokað af og forsetahjónin gestir í einka- ekin önnur leið til veitingastaðar- samkvæmi í veitingahúsi ekki ins en fréttamenn höfðu ætlað. Handtökur í Rúmeníu Patrick Hughes, faðir hungurfangans Francis Hughes, horfir á liðsmenn írska lýðveldishersins skjóta að hermannasið yfir kistu sonar hans. Mikill viðbúnaður við útför Hughes Búkarest. 15. maí. AP. NOKKRIR framkvæmdastjórar rúmensks námavinnslufyrirtæk- is hafa verið handteknir ok öðr- um sagt upp störfum vegna gassprenginKar i kolanámu i nóvember. en þá fórust a.m.k. 49 námaverkamenn. samkvæmt opinherri tilkynningu í daK. Óstaðfestar fregnir hermdu á sínum tíma, að a.m.k. 100 náma- verkamenn hefðu farist í spreng- ingunni í Livezeni námunni í Jiu-dalnum í suðurhluta Rúmeníu, en þar eru auðugustu kolasvæði Rúmeníu. Slysið er eitt hið alvarlegasta sem skýrt hefur verið frá opinber- lega. Orsakir slyssins voru „alvar- legt brot á öryggisráðstöfunum við kolavinnslu í neðanjarðar- námu,“ sagði í tilkynningu, sem birt var í dag. Sagði í tilkynning- unni, að metangas hefði safnast fyrir í hættulegum mæli í nám- unni, og trúlega hefði hlaupið neisti úr illa frágengnum rafkapli. k,s953 Ekki kom fram hversu margir námastarfsmenn sætu í varðhaldi, en meðal þeirra eru yfirmaður námavinnslunnar í Jiu-dal. Þá hefur mörgum emb- ættismönnum verið sagt upp störfum vegna atviksins, þar á meðal aðstoðarolíuráðherra. Brllaxhy. 15. mal. AP. ÞÚSUNDIR syrgjenda irska hryðjuverkamannsins Francis Hughes. er lézt eftir hungurverk- fall i fangelsi, tróðu yfir tún og akra til að fylgjast með útför hans, sem fór fram með svipuðu sniði og útför hryðjuverkamanns- ins Bobby Sands, sem fézt einnig úr hungri 5. mai síðastfiðinn. Lögregla og hermenn voru með öflugan viðbúnað, umkringdu, og lokuðu mörgum götum í Bellaghy, heimaþorpi Hughes. Var líkfylgd- inni beint frá þorpsmiðjunni. Tal- ið er að um 10.000 manns hafi verið viðstaddir útförina, en í þorpinu búa um 800 manns. Þegar kista Hughes, sem var lengi eftirlýstur sem hættulegasti glæpamaður hins ólöglega írska lýðveldishers, IRA, var látinn siga í gröfina, sveimuðu þrjár þyrlúr brezka hersins yfir kirkjugarðin- um. Grímuklæddir liðsmenn IRA skutu skotum i loft upp yfir kistu Hughes í heiðursskyni. Tékkóslóvakía: Praie. 15. maí. AP. TÉKKNESK stjórnvöld greindu frá því í dag að fyrir átján dögum hefðu verið teknir höndum tveir franskir horgarar, sem hefðu ætlað að smygla inn i landið and-tékkneskum plöggum og skrifum. { opinberri tilkynningu sagði að í sambandi við handtöku Frakkanna tveggja hefðu nokkr- ir tékkneskir borgarar verið handteknir og ákærðir fyrir starfssemi sem beindist gegn hagsmunum rikisins. Heimildir meðal tékkneskra út- flytjenda höfðu fyrir satt fyrr í þessum mánuði, að allt upp í 30 tékkneskir andófsmenn hefðu ver- í Belfast fylgdu þúsundir syrgj- enda þremur mönnum, mjólkur- pósti úr röðum mótmælenda, hryðjuverkamanni INLA og kaþ- ólskri stúlku, er létust í óeirðum síðustu daga, til grafar. ið handteknir í þessum mánuði og hefði það verið ein mesta hand- tökuherferð lögreglunnar gegn andófsmönnum í háa herrans tíð. Meðal þeirra sem voru teknir voru Jiri Hajek, fyrrverandi utan- ríkisráðherra og kona hans, svo og bróðir leikskáldsins Vaclav Hav- els. Hajek og fleiri voru síðan látnir lausir og ákærðir formlega. Ekki er ljóst hvenær réttarhöld muni hefjast gegn þeim, en refs- ing sú sem viðkomandi eiga yfir höfði sér er frá 3—10 ára fangelsi. Varðandi Frakkana tvo hefur ekki verið skýrt frá því, hvenær þeir verði formlega ákærðir. Hundar spekjast - en mannabit verða æ almennari Now Vork. 15. maí. AI*. IIEILBRIGÐISDEILD New York horgar birti skýrslu um bitmál í borginni á sl. ári og kcmur þar upp úr dúrnum, að hundahitum hefur fækkað stórlega. en aftur á móti virð- ast menn gerast æ grimmari og var tikynnt um 1207 bit af mannavöldum á sl. ári. Ilafði talan hækkað um 24 prósent. Aftur ámóti fækkaði þeim hundum sem fundu hvöt hjá sér til að bíta, um 16,7 prósent. Samt eru hundarnir enn snöggtum athafnamsamari mönnum, því að skráð hunda- bit í New York á sl. ári urðu rösklega þrettán þúsund. V-þýzka lögreglan fékk oft upplýsingar um tilræðismann páfa: Leitin að Mehmet bar engan árangur Tveir franskir borgarar teknir - og 30 andófsmenn gripnir á skömmum tima VESTUR-Þýska lögreglan skýrði frá því í dag, að hún hefði fengið upplýsingar um það á siðastliðnu hausti. að Tyrkinn Mchmet Ali Agca. sem reyndi að ráða Jóhann- es Pál páfa af dögum á þriðjudag, væri i landinu. en við nákvæma eftirgrennslan hefði ekki hafst upp á honum. Formælandi tyrkneska sendi- ráðsins í Bonn sagði, að fjórum Árásin á páfa: • • Onnur konan enn í lífshættu RómaborK. 15. mai. AP. ANN ODRE frá Buffalo í Bandaríkjunum, önnur tveggja bandarískra kvenna sem særðust þegar Jóhannesi Páli páfa var sýnt banatilræði á Péturstorgi, er enn sögð i lífsha ttu. en þó sögðu læknar að svo virtust sem hún sýndi eilítil batamerki. Hún þjáist enn af mjög alvarlegum inn- vortis hlæðingum, sem hefur ekki tekizt að stöðva. Hin konan, Rosa Ilall. er hins vegar úr allri hættu. sinnum hefði lögreglunni verið skýrt frá ferðum Mehemets í V-Þýzkalandi. Jafnframt skýrðu félagar í vinstrisinnuðum samtökum, sem sögð eru í forsvari fyrir 1,5 miiljón tyrkneskum „farandverka- mönnum" í V-Þýzkalandi, að þeir hefðu talað „fyrir daufum eyrum“ er komið hefði verið á framfæri við lögreglu upplýsingum um at- hæfi Mehmets í landinu, en upp- lýsingum af því tagi hefði marg- sinnis verið komið á framfæri. Formælandi innanríkisráðu- neytisins í Bonn sagði, að upplýs- ingar sendiráðsins og annarra aðila hefðu verið „of óljósar". Mehmet tókst að flýja úr ramm- gerðu fangelsi í Istanbul í nóv- ember 1979. Hann var dæmdur að honum fjarverandi í fyrra fyrir morð á ritstjóra tyrknesks blaðs 1. febrúar 1979. Grunur leikur á, að Mehmet hafi verið viðriðinn morð á tyrkn- eskum verzlunareiganda í Kempt- en í Bæjaralandi í nóvember 1980. Byssumaðurinn komst undan, en verziunareigandinn dó ekki fyrr en níu dögum eftir árásina, og nefndi hann nafn Mehmets á banasænginni. Tyrkneskur sálfræðingur sagði í dag, að Mehmet Ali Agca hefði að öllum líkindum verið geðklofi, er vonast hefði til að verða hetja meðal múslima með því að ráða páfa af dögum. Agca lýsti því yfir á sínum tíma, að hann hefði flúið úr fangelsi til þess eins að ráða páfa af dögum. Sálfræðingurinn sagði, að rekja mætti sálarástand Agca til uppeldisins sem hann hefði hlotið. Hann hefði mátt þola ofríki ofbeldishneigðs óg drottn- andi föður í æsku, og væri algengt, að unglingar er hefðu liðið örlög af þessu tagi, hafi látið andúð á föður sínum bitna á öðrum, og þá oftast þeim sem eiga sér veikar varnir. Brezkir þingmenn fái 18% launahækkun l»ndun. 15. mai. AP. BREZKIR þingmenn munu á næstunni fá 18 prósent launa- hækkun, en verða eftir sem áður lægst launuðu þingmenn í Evrópu. Eftir hækkunina munu þeir hafa í árslaun sem svarar um 95.300 krónur (9,5 millj. gkr.). Búizt er við að þessi hækkun muni engu að síður vekja mikla mótmælaöldu og reiði meðal ýmissa stétta í Bret- landi, svo sem opinberra starfs- manna, lækna, yfirmanna í hern- um, lækna ofl. vegna þess að stjórn Margaret Thatcher hefur ákveðið að þeir fái 7—10 prósent kauphækkun. f ■■ ERLENT . Soyuzi 40. skotið á loft Moskvu. 15. mai. AP. SOVÉTMENN skutu á loít í dag geimfari númer 40 af Soyuz-gerð, en það verður tengt SaIyut-6 geimvisindastöðinni, sem er á braut umhverfis jörðu. Tveir sov- ézkir geimfarar eru þar fyrir, en þeir hafa verið i stöðinni frá 14. marz sl. Annar geimfarinn í Soyuzi 40. er rúmeni að nafni Dumitru Prun- ariu, en hann er einn yngsti geimfari sögunnar, aðeins 28 ára að aldri. Hann tók sýnishorn af rúmenskri mold með sér út í geiminn. Leiðangursstjóri er Leonid Popov, en hann hefur áður farið út í geiminn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.