Morgunblaðið - 16.05.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.05.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ1981 23 Eldgos á Kyrrahafí: Ekkert hefur f rést af íbúum eynnar Tókýó, 15. mal. AP. ELDGOS hólst árla i dag á eynni Pagan, afskekktri eyju i Marí- ana-eyjaklasanum i vesturhluta Kyrrahafsins. Ekkert er vitað um afdrif ibúa eynnar, en þeir eru 54 talsins, allt sjómenn og bændur. Gosmökkurinn steig í 23.000 feta hæð yfir sjávarmál. Banda- rískir sjóliðsforingjar á Guam, sem er í 500 kílómetra fjarlægð, sögðu að erfitt væri að fljúga í nágrenni gosstöðvanna vegna slæmra sjóflugsskilyrða. Tvo skip eru á leið til eyjunnar frá Saipan, en öðrum björgunaraðgerðum hef- ur verið frestað til laugardags. P-3 Orion eftirlitsflugvél komst nálægt gosstöðvunum og varð áhöfn vélarinnar ekki vör við hraunrennsli, né heldur báta er gætu verið til merkis um að eyverjar væru að flýja gosið . Reynt verður að lenda Herkúles C-130 flugvél á eynni í fyrramálið. Geimskutlan: Næsta ferð í septemberlok WashinKton. 15. maí. AP. FORMÆLENDUR bandarísku geimvisindastofnunarinnar, NASA, skýrðu frá því i dag, að geimskutlan Kólumbia hefði staðið sig framar vorum i jóm- frúrferð sinni út i geiminn, og hefði næsta för skutlunnar verið ákveðin 30. september næstkom- andi. „Skutlan er í bezta ásigkomu- lagi,“ sagði formælandi stofnunar- innar, en skoðun á skutlunni eftir jómfrúrferðina er nú lokið. Bilan- irnar voru smávægilegar og kís- ilflögurnar, sem vörðu skutluna ofhitnun á leið til jarðar, gegndu sínu hlutverki miklu betur en gert hafði verið ráð fyrir. Aðeins þarf að skipta um 10 til 12 flögur af yfir 30 þúsundum. Gert er ráð fyrir að næsta ferð skutlunnar taki fimm daga, en jómfrúrferðin stóð í rúma tvo sólarhringa. Að þessu sinni verða rannsóknartæki til vísindarann- sókna með í ferðinni. Sutcliffe geðveikur London, 15. maí. AP. GEÐLÆKNIR sem bar vitni í Veður víða um heim Akureyri 14 hélfskýjað Amsterdam 21 skýjað Aþena 26 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Berlín 26 heiðskírt Brússel 22 heiöskírt Chicago 9 heiðskírt Denpasar 31 heiðskírt Dyflínni 14 skýjað Feneyjar 20 rigning Frankfurt 15 skýjaö Færeyjar 10 hálfskýjað Genf 18 skýjað Helsinki 21 heiðskirt Hong Kong 26 skýjað Jerusalem 23 heiðskírt Jóhannesarborg 17 heiðakirt Kaupmannahöfn 21 heiðskírt Kairó 27 heiðskírt Las Palmas 21 léttskýjað Lissabon 18 heiöskirt London 19 heiðskirt Los Angeles 20 skýjaö Madrid 20 heiöskírt Mallorka 21 léttskýjað Mexicoborg 28 heiöskirt Miami 27 skýjað Moskva 17 heiðakírt Nýja Delhi 42 heiðskírt New York 24 skýjað Osló 21 skýjað París 18 skýjað Reykjavík 8 skýjað Perth 18 heiöskirt Rió de Janeiro 33 heiðskirt Rómaborg 21 heiðskírt San Francisco 14 skýjað Stokkhólmur 18 skýjað Sydney 22 heiðskírt Tel Aviv 24 heiðskírt Tókýó 24 heiðskírt Vancouver 16 rigning Vinarborg 18 skýjað máli Peter Sutcliffes, sem kallað- ur var „The Yorkshire Ripper“ og myrti þrettán konur, lýsti þvi yfir i dag að hann teldi ekki að Sutcliffe væri að gera sér upp geðveiki, eins og ýmsir höfðu haidið fram. Sutcliffe hafði skýrt frá því að „raddir frá guði“ hefðu fyrirskipað honum að myrða kon- urnar. Dr. Malcoim Macculloch geðlæknir sem kunngerði þessa skoðun sina i dag, sagðist ekki hafa verið nema hálfa klukku- stund að komast að þeirri niður- stöðu að Sutcliffe væri haldinn geðklofa og ofsóknaræði. Úti fyrir réttarsalnum söfnuð- ust konur saman í dag og báru spjöld þar sem látin var í ljós andúð á morðunum. Varð lögregl- an að beita valdi til að dreifa hópnum. Þar bar mikið á gleði- konum en þær hafa áður haft sig í frammi úti fyrir dómshúsinu. Chad: Bardagar breiðast út Khartoum, 15. mai. AP. BARDAGAR milli stjórnarher- manna í Chad og lýbískra hers- vcita hafa breiðst út til borgar- innar Mao i norðurhluta Chad, en áfram er barist hart við Abeche, að sögn flóttamanna, sem streymt hafa til Súdan frá Chad. Hin opinbera fréttastofa Súdan hafði það eftir ónafngreindum heimildum, að „yfir 40 hermenn" hliðhollir Goukouni Oueddi for- seta Chad hefðu fallið fyrir lýbísk- um hersveitum, er væru hliðhollar Ahmat Acyl fyrrum utanríkisráð- herra, við Abeche. Vestrænir aðilar, er starfa að flóttamannahjálp, hafa staðfest, að flóttamönnum frá Chad hafi fjölgað upp á síðkastið. Bardagar hafa blossað upp öðru hverju frá því í síðasta mánuði við Abeche, sem er hernaðarlega mik- ilvæg, þar sem Mig-23 orrustuþot- ur geta athafnað sig á flugvelli borgarinnar. nniiiijsg i Ju ihi ■4 Tíu flugmenn Flugleiða hafa að undanförnu verið i flugþjálfun á Boeing-þotu og hefur hún farið fram bæði við Keflavíkur- og Reykjavikurflugvelli, en þotuflugið er þó takmarkað við ákveðna tíma á Reykjavikurflugvelli. Leyft er hins vegar að æfa aðflug og tók Olafur K. Magnússon þessa mynd á miðvikudag er þotan renndi sér yfir miðbæinn í átt að vellinum. Björgunaræf- ing í Grindavík á sunnudag MARKÚS B. borgeirsson mun verða með björgunaræfingu með net sin i Grindavik á sunnudag klukkan 15, við höfn- ina. Þetta er fyrsta æfingin af mörgum, sem Markús mun halda nú viða um land, en hann hefur fengið styrk frá Alþingi til þess að kynna björgunarnet sitt. Björgunaræfingin fer fram i samvinnu við slysavarnadeild- ina Þorbjörn i Grindavik. Markús sagði í símtali við Morgunblaðið að hann væri nú með 60 til 70 net í pöntun og hefði því mikil verkefni við gerð þeirra, en hann er 6 til 7 klukkustundir að gera hvert net. Stærstu pantanir, sem hann hefur fengið, eru frá Eimskipa- félagi ísiands, sem pantaði 46 net, Aðalsteini Jónssyni, Hval hf., Haraldi Böðvarssyni & Co., á Akranesi og fleiri. Kvaðst Mark- ús brátt þurfa að fá aðstoð við gerð björgunarneta sinna og hefði hann þá hug á að fá til aðstoðar við sig sjómenn með skerta starfsorku, sem gætu hnýtt með sér björgunarnetin. Þá sagði Markús að fyrir dyrum stæði að hann færi á Ólafsvökuna í Færeyjum í sumar til þess að kynna björgun- arnetið. Hvassaleitis- skóli 15 ára í vor eru liðin 15 ár frá því Hvassaleitisskóli í Reykjavík tók til starfa. Til að minnast þessara tímamóta verður sýning á vinnu nemenda í dag, laugardaginn 16. maí, kl. 10—18. Einnig verða fluttir leikþættir, tónlistar- og fræðsluþættir úr vetrarvinnu nemenda. Keflvíkingar í Bústaðakirkju A sunnudaginn kemur, þann 17. maí, koma góðir gestir í heimsókn í Bústaðakirkju. Er þar á ferð sóknarpresturinn í Keflavíkurkirkju, séra Ólafur Oddur Jónsson, með kirkjukórn- um og organistanum, Siguróla Geirssyni. Er hér um að ræða endurgjald fyrir heimsókn heimamanna í Bústaðakirkju til Keflavíkur á aðventunni á liðn- um vetri. Við guðsþjónustu í Bústaðakirkju kl. 2 síðdegis mun séra Ólafur Oddur predika, en kirkjukór Keflavíkurkirkju mun syngja, auk þess sem kórar kirknanna beggja munu syngja saman. Það er mikils virði fyrir alla aðila að efla samstarf milli safnaða og starfsfólks, bæði eyk- ur það kynni og svo er alltaf hægt að læra af slíkri samvinnu. Er ekki að efa, að margir munu leggja leið sína i Bústaðakirkju á sunnudaginn kemur og sýna þannig, að Keflvíkingarnir eru miklir aufúsugestir í höfuðborg- inni. (FrýttatilkynninK) Stuðningsmenn Árna Sigfússonar halda sigurhátíð Stuðningsmenn Árna Sig- fússonar, sem kjörinn var for- maður Heimdallar um síðustu helgi, efna til hófs eða sigurhá- tíðar í kvöld, laugardagskvöld. Hófið verður haldið í samkomu- sal að Borgartúni 22, og hefst klukkan 20.30. Allir stuðningsmenn Árna Sigfússonar og gestir þeirra eru velkomnir, en ýmislegt verður til skemmtunar og veitingar seldar á kostnaðarverði. (Fréttatilkynninit) Fundur um at- vinnumál í Reykjavík ATVINNUMÁL í Reykjavík verða rædd á almennum fundi, sem atvinnumálanefnd borgar- innar boðar til í Súlnasal Hótel Sögu í dag, laugardag, og hefst hann klukkan 14. Flutt verða sex framsöguer- indi og stuttar fyrirspurnir leyfðar að þeim loknum, en siðan verða almennar umræður. Rík- harð Jónsson, framkvæmda- stjóri Harðfrystihúss Kirkju- sands, hefur framsögu um sjáv- arútveg, Guðjón Jónsson, for- maður sambands málm- og skipasmiða, ræðir um málmið- nað, Magnús Gústafsson, for- stjóri Hampiðjunnar, hefur framsögu um almennan iðnað, Þorbjörn Guðmundsson, vara- formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, ræðir um byggingariðnað, Valtýr Hákon- arson framkvæmdastjóri Eim- skipafélags íslands, ræðir um viðskipti og samgöngur, og Guð- mundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambands íslands, ræðir stöðu ófaglærðs verkafólks. Fundarstjórar verða Barði Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Vinnuveitendasambandi ís- lands, og Þórunn Valdimarsdótt- ir, formaður Verkakvennafélags- ins' Framsóknar, en þau sitja bæði í atvinnumálanefnd Reykjavíkurborgar. Formaður nefndarinnar er Guðmundur Þ. Jónsson og setur hann fundinn í dag. Aðrir nefndarmenn eru Magnús L. Sveinsson og Páll R. Magnússon. Eggert Jónsson er framkvæmdastjóri nefndarinn- ar. Basar og kaffisala Skóladagheimilið að Auð- arstræti 2 heldur basar og kaffi- sölu laugardaginn 16. maí klukk- an 14. Á boðstólum verður margt eigulegra muna, svo sem hljómplötur, pottablóm, lukku- pakkar o.fl. Fundur um Vetrarbraut- arsamfélagið BÓKIN Vetrarbrautarsamfélag- ið eftir bandaríska stjörnufræð- inginn R. Bracewell verður um- ræðuefni á almennum fundi fé- lags Nýalssinna að Álfhólsvegi 121 í dag kl. 15.00. Frummælandi verður Þór Jakobsson veður- fræðingur. Skíðaganga í Bláf jöllum Skíðafélag Reykjavíkur efnir til skemmtiskíðagöngu í Blá- fjöllum klukkan 14 á sunnudag fyrir alla sem áhuga hafa á slíku og er þátttaka ókeypis. Leiðbein- andi verður Ágúst Björnsson og verður gengið í tvær klukku- stundir. Þátttakendur þurfa að snúa sér til Ágústs, sem verður við borgarskálann í Biáfjöllum, fyrir klukkan 14. Prestskosning- ar á Þingeyri á sunnudaginn Prestskosningar fara fram næstkomandi sunnudag, 17. maí, í Þingeyrarprestakalli í ísafjarð- arprófastsdæmi. Einn umsækj- andi er um prestakallið, Torfi Hjaltalín Stefánsson, en hann lauk guðfræðiprófi sl. vor. Kosið verður á fjórum stöðum í presta- kallinu. ae a if>n» lil 1/11 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.