Morgunblaðið - 16.05.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.05.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ1981 27 Þórdís Gestsdótt- ir — Minrdngarorð í dag verður kvödd hinstu kveðju móðursystir mín, Þórdís Gestsdóttir. Hún var dóttir hjón- anna Guðrúnar Stefánsdóttur og Gests Bjarnasonar, að Miðdalskoti í Kjós. Hún var þriðja elst af átta börnum þeirra og eru fimm þeirra á lífi í dag. Dísa, eins og hún var ávallt kölluð, fluttist með foreldrum sínum að Hjarðarholti í sömu sveit 1921. Á sumrin gerðist hún kaupakona á Meðalfelli í Kjós. Til Reykjavíkur fluttist hún um tví- tugt og réðst í vist til Vigdísar Pétursdóttur og Einars Einars- sonar á Klapparstíg 20. Hún lærði fatasaum og var það hennar aðal- atvinna, þá aðallega í heimahús- um. Síðan fer Dísa til dóttur Vigdísar, frú Valgerðar Einars- dóttur og manns hennar, Þorláks Björnssonar, að Hávallagötu 39. Þar átti hún heimili síðan, eða í um 50 ár hjá sömu fjölskyldunni, við einstaklega gott atlæti og góðvild í gegnum árin. Dísa var alla tíð ógift og barnlaus, en hún var í miklu uppáhaldi hjá öllum börnum er henni kynntust vegna sinnar miklu hjartahlýju í þeirra garð. Á sumrin dvaldist Dísa í Hjarð- arholti meðan foreldrar hennar bjuggu búi, því sveitinni sinni unni hún, og þar óskaði hún að vera lögð til hinstu hvílu, að Reynivöllum í Kjós, við hlið for- eldra sinna. Þann 24. október 1978 fluttist hún að Vistheimilinu Kumbara- vogi á Stokkseyri, þá farin að heilsu, og var henni hjúkrað þar af mikilli hlýju, enda Dísa sérstak- lega elskuleg og jákvæð kona, sem kom sér alls staðar jafn vel og öllum þótti vænt um, er henni kynntust. Sérstakar þakkir eru færðar hér til Kristjáns Friðbergssonar og alls hans starfsfólks, sem annaðist Dísu á Kumbaravogi í veikindum hennar, en þar andaðist hún 8. maí síðastliðinn. Nú Ickk ck auKun aftur ó. kuó. þinn náóarkraftur mín veri vörn i nótt. /E. virst mÍK aó þcr taka mcr yfir láttu vaka þinn cnKÍI svo ck sofi rótt (Sálmur) Guð blessi Disu mína. Erna Ilelgadóttir Ferming í Kálfatjarn- arkirkju Ferming i Kálfatjarnarkirkju sunnudaginn 17. mai 1981, kl. 2. e.h. Bára Einarsdóttir Ægisgötu 36, Vogum. Jóhannes Hafberg Jónsson Kirkjugerði 11, Vogum. Jón Ingi Guðbjörnsson Heiðargerði 30, Vogum. Sigtryggur Ólafsson, Vogagerði 22, Vogum. Steinar Smári Guðbergsson, Smáratúni, Vatnsleysuströnd. Vilhjálmur Agnar Erlendsson, Hofgerði 3, Vogum. Kaffisala á vegum Kven félags Hallgrímskirkju Á MORGUN, sunnudag 17. mai, að lokinni guðsþjónustu i Ilallgrímskirkju, sem hcfst kl. 2 verður kaffisala á vegum kvenfé- lags kirkjunnar. Þar verða góðar veitingar á borðum að venju, seldar á hóflegu verði. Vinir kirkjunnar og safnaðarfólk ætti að fjölmenna til þessarar samkomu og njóta andlegrar og líkamlegrar hressingar. Þeir eru margir sem finna hjá sér löngun til að fara í kirkju og viðurkenna að það sé heilsubót fyrir sinn innri mann, en vegna anna og umsvifa hins daglega lífs verða kirkjuferðir færri en skyldi, Það er stundum talað um meiri kirkjusókn hér áður fyrr en nú er, meðan íslenska þjóðin var bændasamfélag, og er þá vitnað til þess, að menn hafi gjarnan hist eftir messu og rabbað saman yfir kaffiborðum á prest- setri eða kirkjustað. Það er áhugamál margra presta í þéttbýli að taka upp þennan gamla og góða íslenska sið, að hafa kirkjukaffi í safnaðarheimilinu eftir síðdegismessu. Og sumstaðar er þetta að ryðja sér til rúms. Þetta eykur kynni safnaðarfólks innbyrð- is og einnig kynni við prestinn. Á sunnudaginn er tækifæri til þess að gera þetta og styrkja gott málefni, þar sem er bygging lands- kirkjunnar. Kvenfélagið hefir frá fyrstu tíð verið óþreytandi í fjár- öflun fyrir kirkjubygginguna og stutt allt safnaðarstarf með ráðum og dáð. Hafa konurnar þannig lagt drjúgan skerf til kirkjubyggingar- innar og ég hefi stundum sagt við þær, að ennþá vantaði eitthvað á hæð turnsins, ef þeirra hefði ekki notið við. Ég vil hvetja vini Hall- grímskirkju að koma í kirkju á sunnudaginn og gleðja með því kvenfélagskonurnar og láta þær hafa nóg að starfa, því að það vilja þær, svo að sjóður þeirra verði gildur. Ragnar Fjalar Lárusson Mývatnssveit: Sauðburðurinn stendur sem hæst Mývatnssvcit. 14. maí. SAUÐBURÐUR stendur nú sem hæst hcr í Mývatnssveit og er allt látið bera i húsi. Ekki er annað vitað en sauð- burður gangi vel að þessu sinni. Tíð var hér hagstæð í apr- ílmánuði framyfir páska og sást jafnvel nokkur gróðurlit- ur á jörð. Síðan hefur verið mjög kalt og margar frostnæt- ur. Gróður hefur því algerlega staðið í stað og mikill ís er enn þá á Mývatni, enda var hann talinn um 80 sentimetrar í vetur. Menn vona nú samt, að nú fari að breyta til betri tíðar. í dag er hér hlýjasti dagurinn, sem komið hefur um langan tíma. Komst hitinn yfir 15 stig. Mönnum finnst Vegagerðin hafa trassað að hefla vegi hér um sveitir. Vegurinn yfir Hólasand til Húsavíkur var fyrst heflaður sl. nótt. Sá vegur hafði þá ekki verið heflaður síðan í september. Þó er öllum ljóst, að um þann veg fer mikill þungaflutningur dag hvern. Búið er að flytja gufuborinn norður í Kröfíu og gekk það vel. Gert er ráð fyrir, að borun hefst þar um næstu helgi. Rafmagnsframleiðsla í Kröflu LANDSSAMTÖKIN Þroska hjálp halda opinn fund um „Barnið og fjölskylduna á ári fatlaðra“ á morgun að Ilótel Esju. Ávarp flytur Svavar Gests- son, félagsmálaráðherra og síðan flytja erindi foreldrar frá eftirtöldum félögum: For- eldrasamtökum barna með sérþarfir, Foreldra- og styrkt- arfélagi blindra og sjón- er nú 11,5—12 megawött. Þá framleiðir gufustöðin í Bjarn- arflagi um 3 megawött. Hafin er nú stækkin á Hótel Reynihlíð. Það voru verktakar frá Sauðárkróki, sem tekið hafa að sér þá byggingu. — Kristján skertra, Styrktarfélagi lam- aðra og fatlaðra, Styrktarfé- lagi vangefinna og Umsjónar- félagi einhverfra barna. Þá verða flutt erindi frá Félagi íslenzkra sérkennara, Félagi þroskaþjálfa og Félagi þroska- þjálfanema. Pallborðsumræður verða á eftir erindunum og umræðu- stjóri verður Margrét Mar- geirsdóttir, deildarstjóri í fé- lagsmálaráðuneyti. Opinn fundur Landssamtakanna Þroskahjálp: „Barnið og f jölskyld an á ári fatlaðra44 Borgnesingar takið eftir Þann 20. maí nk. á að vera lokið allri lóðahreinsun í Borgarnesi. Verum samtaka að gera fallegan bæ fallegri. Meö sumarkveöju, Heilbrigöiafulltrúi. Akranes nágrenni Sölusýning Japönsk grafik (tréskurðarlist), myndir í litum meö möttu gleri. Álmyndir sem vekja athygli auk þess aörar myndir smáar og stórar í úrvali. Hagstætt verð. Opið laugardag 16/5 og sunnudag 17/5 kl. 14 til 22 báða dagana, í bókasafni Akraness (niðri), Heiðar- braut 40. Vilmundur Jónsson, sími 1346, Akranesi. Vöruskemma Skipaútgerðar ríkisins Tilboð óskast í byggingu vörugeymsluhúss á Grófar- bryggju í Reykjavík. Skemman, sem er um 48,5x 50,9 fm. aö stærö, er byggö úr forsteyptum útveggjaeiningum og for- steyptum buröarvikjum í þaki. Auk byggingar hússins, skal verktaki annast vatns-, skolp- og hitalagnir utanhúss, ásamt snjóbræöslukerfi. í gólfi hússins og kringum það, svo og malbikun utanhúss. Hluti skemmunnar skal vera tilbúinn til afnota 1. okt 1981, en verkinu skal aö fullu lokiö 15. nóv. 1981. Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu vorri gegn 1.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama staö, föstudaginn 5. júní 1981. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 MORGUNBLAÐIÐMOR MORGUNBLADIÐMOR MORGUhRLAOIÐMQ!?; MORGUV MORGl/ £ MOR< MOR/ MO^ M\ M(X MO\ mof\ MOR< MORG\ morgJi mí M(' MÖ MO MORf/ MOR MOF/; MOF/^ M Cj M MORGUf^ MORGUNI MORGUNBLA Blað- burðar- fólk óskast OlDMORGUNBLAÐlU ^QMORGUNBLAÐIÐ y/- —^^GUNBLAÐIÐ LNBLADIÐ LAOIO BLAÐIÐ .LAOIÐ L\.AOIÐ OIO »ÐIÐ bio íBLADID J.AÐIO ÐIÐ IO DIÐ IO Úthverfi Smálönd Hringið í síma 35408 MORGUNBLAÐIÐMbi^ (NBLAÐIOMí [ÐIÐ \\DID KOIÐ oumOIO ÍBLADID ^LAÐIO ^BLAÐIÐ /0NBLAOIO /iUNBLADID (gunblaðið tGUNBLADID

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.