Morgunblaðið - 09.08.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
5
„Lífið í fjölleika-
húsinu hefur gengið
í arf milli kynslóða“
Listamenn í „Cirkus Arena“ teknir tali
FJÖLLEIKAFLOKKURINN “Circus Arena“ frá Dan-
mörku hefur slegið upp búðum sínum i Laugardal og
ekki er laust við að fólk fyllist forvitni þegar það á leið
þar hjá. Þeir áhugasömustu voru komnir í röð við miða-
söluvagninum er blaðamann Morgunblaðsins bar að
tveimur tímum fyrir sýningu í gær en annars var rólegt
um að litast. Inn í stóra tjaldinu virtist allt tilbúið og fjöl-
listafólkið var að tínast þangað frá húsvögnum sínum til
að sinna sinni daglegu æfingu. Börnin sem enn ekki hafa
aldur til að taka þátt í sýningum hlupu um allt tjaldið og
ærsluðust enda ekki veður til að leika sér úti.
Eitt atriði sirkusfólksins
Við hittum fyrst 19 ára stúlku
frá Belgíu, Aline Gombert, en á
sviðinu kallar hún sig Line Car-
oll. “Það hljómar betur," sagði
hún til útskýringar. “ Og svo
passar það líka betur við það sem
ég geri. Eg er með atriði þar sem
ég kasta upp boltum og kylfum,
svo sýni ég fimleika, leik á
trommur og dansa. Öll flölskylda
mín vinnur hér og erum við með
trúðaatriði saman. Pabbi sér um
fyndna hlutann og við mamma
um þann alvarlega.
Lífið í fjölleikahúsinu er í blóð-
inu á okkur í báðar ættir og hefur
gengið í arf milli kynslóðanna
allt frá tímum Napóleons þriðja.
Ég byijaði mína þjálfun þegar ég
var sex ára og byijaði að sýna
þegar ég var þrettán ára. Við
störfum með fjöleikahúsum um
alla Evrópu og ferðumst mikið.
Okkur finnst gaman að ferðast
og erum reyndar alveg ómöguleg
öðruvísi. Það hefur verið alveg
sérstaklega gaman að fara um
ísland. Ég sendi tuttugu póstkort
til vina minna í dag til að sýna
þeim hvað landslagið hér væri
stórbrotið. Ferðalagið hingað var
að vísu langt og erfitt og við urð-
um sjóveik á leiðinni. Við komum
við í Færeyjum og sýndum þar
fyrir fullu tjaldi og eftir fimmtán
tíma á sjó í viðbót komum við
hingað. Én þetta tókst svo nú
verður þú endilega að koma og
sjá sýninguna okkar,“ og með það
var hún rokin til að hita upp.
Næst trufluðum við Angelu
Huesea tuttugu og þriggja ára
írska stúlku við æfingar sýnar,
en hún sýnir jafnvægislist með
sverð. “Ég er alin upp í írska
Fossett sirkusnum sem faðir minn
stjómar en á næsta ári á sá sirk-
us hundrað ára starfsafmæli
undir þessu nafni ættar minnar.
Ég er gift ítölskum manni sem
ég kynntist í fjölleikahúsi föður
míns og vinnum við nú saman.
Við eigum tveggja ára dreng sem
mér sýnist hafa sannkallað sirk-
usblóð í æðum, því hann æðir hér
um allt eins og Iítill apaköttur,
veltir sér kollhnísa og spriklar
allan daginn. Það er erfitt að ala
barn upp í fjölleikahúsi, sérstak-
lega þegar það kemst á skólaald-
ur, en sem betur fer eru nokkur
ár i það.“
„Okkur finnst gaman að ferðast og erum reyndar ómöguleg öðru
vísi.“ Gambert fjölskyldan og Aline lengst til hægri.
„Það er erfitt að ala upp barn í sirkus," sagði Angela Huesca
sem er hér ásamt tveggja ára syni sínum Giovanni.
Morgunblaðið/Helena
Ungir áhorfendur fylgjast með brögðum fjöllistafólksins á Akur-
eyri á dögunum.
BILASYNING
1987
ARGERDIRNAR
FRÁ
MITSUBISHI
Á laugardag kl. 10 - 5 og sunnudag kl. 1 - 5 sýnum viö
1987 árgerðirnar frá MITSUBISHI - hlaönar endurbótum og nýjungum -
í Heklubílasalnum, Laugavegi 170.
NOTAÐiR BÍLAR:
Bílasalan BJALLAN verður opin á sama tima
TÖLVUVÆDD BÍLAVIÐSKIPTI