Morgunblaðið - 09.08.1986, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
#
AMEnSKIMA
ERFALUNII
Bhagwan hefur snúið aftur til Indlands
Paradísin er fallin, a.m.k. í Banda-
ríkjunum, og hefur Bhagwan Shree
Rajneesh snúið aftur til heimalands
sins, Indlands. Hann hefur dvalið sl.
fimm ár í Dallas í Oregon-fylki á vest-
urströnd Bandaríkjanna og óhætt er
að segja að á þeim tíma hafi hann sóp-
að að sér auðæfum. Fylgjendur hans
hafa sett upp kommúnur víða í Evrópu
I anda „meistarans“, flestar þó í Þýska-
landi og hefur rekstur þeirra gengið
með ágætum þó kommúnu-meðlimir
hafi lifað hátt og vel. Rekstrarafgang-
ur, sem sagður er nema 200 milljónum
dollurum, hefur síðan verið sendur til
aðalstöðvarinnar í Oregon-fylki þar
sem Rajneesh drottnar sem Guð. Orðið
„Bhagwan“ þýðir reyndar „Guð“ á
máli Hindúamanna og er hann kallaður
það í daglegu tali.
Rekinn frá
Bandaríkjunum
Rajneesh var gerður burtrækur
frá Bandaríkjunum í desember sL,
þegar yfirvöld Dallas-bæjar í Oreg-
on höfðu fengið nóg af yfirgangi
leiðtogans enda var hann kominn
með puttana í flest það sem við kom
stjómun og skipulagi staðarins.
Eitt sinn átti t.d. að byggja kirkju
í Dallas. Rajneesh leist fremur illa
á fyrirætlanimar og skipaði svo
fyrir að hún fengist byggð aðeins
ef hún yrði látin standa í hæfílegri
fjarlægð frá bænum.
Rajneesh var handtekinn ( lok
sl. árs og leiddur í handjámum til
fangageymslunnar þar sem hann
dvaldi í 17 daga enda á hann yfír
höfði sér (jölda ákæra, sem varða
innflytjendalög Bandaríkjanna og
gætu brot þessi leitt til allt að 175
ára fangelsisvistar þar í landi. Til
að koma indverskum áhangendum
sínum til fyrirheitna landsins, hafði
hann samið við bandaríska fylgj-
endur sína um að giftast þeim
indversku sem gerði þeim kleift að
flytjast til vesturheims.
Nú em hinsvegar flestar eignir
hans komnar á söluskrá og máttur
hans hefur farið dvínandi á þessum
tíma. Ríkidæmið var mikið. Talið
var að verðmæti eigna kommún-
unnar í Bandaríkjunum hafi verið
á bilinu 30 og 60 milljónir dollara,
en skuldir um 35 milljónir dollara.
Rajneesh viðurkennir þreytu, þrátt
fyrir baráttu fyrir tilvem sinni í
Bandaríkjunum á sínum tíma. Hann
sagðist vera líklegur til alls ef hann
fengi ekki hið svokallaða „græna
kort“ sem veitir útlendingum dval-
arleyfi þar í landi. Hann nefndi þó
að Ástralía myndi vel koma til
greina sem úrslitakostur fyrir sig
ef Bandaríkjastjóm myndi alfarið
loka á sig.
„Þetta hefur í raun verið ferð til
helvítis. Núna fínnst mér ég kominn
í það umhverfi sem ég tilheyri,"
segir Rajneesh í viðtali við tímaritið
„India Today“ á dögunum er hann
var sestur að á hóteli í Manali í
Himachal Pradesh-fylki í norður-
hluta Indlands. „Fólkið í Banda-
ríkjunum er yndislegt. Landið er
fagurt. Ég kvarta aðeins í garð
stjómmálamanna. Reyndar em
stjómmálamenn slæmir alls staðar,
en í Bandaríkjunum fyrirfmnast
þeir allra verstu."
Rajneesh segist fínna fyrir
nokkmm jákvæðum breytingum í
heimalandi sínu nú frá því er hann
var þar síðast fyrir fimm ámm, en
vandamálið væri fólksfjölgunin.
„Breytingar í jákvæða átt verða að
engu ef fólksfjölguninni verður ekki
stjómað. Hinsvegar fagna ég því
að sjá mann eins og Rajiv Gandhi
við völd. Hann er ungur, hafði enga
reynslu á sviði stjómmála er hann
tók við stjómartaumunum svo mað-
ur gæti jafnvel átt von á að eitthvað
gott geti af honum leitt," sagði
Rajneesh og blaðamaðurinn spyr
hann áfram um fólksfjölgunina —
hvort hann telji ekki óhæft að ætla
að fara að stjóma fólksfjölguninni
með t.d. getnaðarvamarpillunni þar
sem læknar telji hana geta orsakað
krabbamein. „Þetta em aðeins hug-
myndir komnar frá páfanum og
móður Teresu — þau hafa verið að
hvetja fólk til bameigna. Árið 2001
mun fólksfjöldi Indlands verða einn
milljarður ef fram heldur sem horf-
ir og hálf þjóðin, í þokkabót, þá
sveltandi. Engin læknir getur þá
bjargað málunum. Og hvað ef pillan
Rajneesh handtekinn f Oregon-
fylki i Bandaríkjunum fyrir inn
flytjendabrot.
Bhagwan Shree
Rajnesh
Frá útisviði I
Poona þar sem allt
að 5.000 manns
komu saman kl.
8.00 á hveijum
morgni til að
hlusta á „meist-
arann".
íhugunaraðferðir Bhag-
wans eru mikið til byggðar
upp á dansi og tónlist og
falla margir fylgjenda í yfir-
Uð á meðan á þeim æfingum
stendur. Myndin er frá
kommúnunni í Poona.
er krabbameinsvaldandi," spyr Raj-
neesh, „er krabbamein verra en
hungursneyð og það sem henni
fylgir."
93 Rolls Royce
bifreiðir
Eignir þessa mikla veldis eru all-
verulegar, m.a. 93 bifreiðir af gerð-
inni Rolls Royce, sem sérhver var
hannaður sérstaklega með tilliti til
þæginda. Nú eru Rolls Roycamir
til sölu — allir nema sex, sem send-
ir hafa verið til Indiands til einka-
nota fyrir Rajneesh. Hann býr nú
í Manali í Himachal Pradesh-fylki
í norðurhluta Indlands eftir að hafa
haft viðkomu m.a. á írlandi og
Grikklandi á leið sinni frá Banda-
ríkjunum, en hvar sem hann kom