Morgunblaðið - 09.08.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
23
Kastrup-flugvöllur:
Handtek-
inn með
2,7 kg
af heróíni
Kaupmannahöfn, AP.
Lögregluyfirvöld í Kaup-
mannahöfn sögðu í gær að
Vestur-Þjóðveiji hafi verið í
haldi þar í borg, síðan um
miðjan júlímánuð, grunaður
um smyggl á 2,7 kílóuiii af
hreinu heróíni.
Ekki var getið um nafn manns-
ins, sem sagður var 33 ára gamall
og hafa búið í Thailandi um tíma.
Hann var handtekinn á Kastrup-
flugvelli, er hann var á leið til
Kanada og fannst heróinið, sem
álitið er jafnvirði rúmlega 70,2
milljóna ísl. kr., í plastpokum, er
límdir höfðu verið á líkama hans.
Bent Ejlerskov, lögregluforingi,
sagði að lögreglan þættist viss um
að eiturlyfið hafi ekki verið ætlað
fyrir danskan markað og að engum
dönskum vitorðsmönnum væri til
að dreifa. Hann sagði einnig að
vitað væri að eiturlyfjasmyglarar
á leið til Ameríku og ýmissa Evr-
ópulanda færu oft um Kastrup-
flugvöll.
Þjóðfrelsisherinn á fimleikaæfingv
Kínverski herinn, sem ennþá heitir opinberlega
„Þjóðfrelsisherinn", hefur undanfarið unnið að
undirbúningi margra tilkomumikilla sýningarat-
riða. Voru þau sýnd almenningi víða um landið
í gær, á degi hersins. Eitt af athyglisverðustu
atriðunum sjáum við á myndinni hér fyrir ofan,
þar sem fimmtíu hermenn eru að æfa fimleika
og erfið dansspor uppi á háum trjástólpum.
Nikaragua:
Eyðilegging
á ritstjórnar-
húsi La Prensa
Managua, AP.
UM ÞÚSUND stuðningsmenn
sandinista eyðilögðu á miðviku-
dag gaflinn á húsinu, sem eina
stjórnarandstöðublaðið i Nik-
aragua hefur aðsetur sitt í, eftir
að lögregla hafði leyst upp mót-
mælagöngu stjórnarandstæðinga
við bygginguna.
Lögreglan skarst ekki leikinn
meðan spjöllin á húsi dagblaðsins
La Prensa voru framin.
Sandinistastjórnin lét loka blað-
inu 26. júní eftir að samþykkt hafði
verið í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings að veita skæruliðum, sem
beijast gegn henni, hundrað milljón
dollara fjárstuðningur. Ritstjórar
blaðsins voru sakaðir um að hafa
stutt frumvarpið.
Flóttamannastraumurinn til V-Berlínar:
Kohl deilir hart á
Austur-Þióðveria
Bonn, AP. U
HELMUT KOHL kansiari Vest-
ur-Þýskalands sagði í gær að
Tolentino sver
Aquino hollustueið
Manila, AP.
ARTURO TOLENTINO, sem gerði misheppnaða tilraun til valdaráns
á Filippseyjum 6. júlí sl., viðurkenndi stjórn Corazon Aquino opin-
berlega í gær, en hélt því fram að hann sjálfur og Ferdinand Marcos
fyrrum forseti landsins væru hinir lögmætu valdhafar.
Tolentino, sem var varaforseta- ins, þar sem hún hefði aldrei verið
sívaxandi flóttamannastraumur
til Vestur-Berlínar gegnum
austurhluta borgarinnar gæti
haft slæm áhrif á samskipti
þýsku ríkjanna.
I viðtali við vestur-þýska dag-
blaðið Die Welt voru þau ummæli
höfð eftir Kohl að austur-þýskum
yfirvöldum bæri skylda til að
stemma stigu við flóttamanna-
straumnum. Austur-þýsk og
sovésk flugfélög hafa undanfarið
flutt flóttamenn frá þróunarríkjum
til Austur-Berlínar, þar sem þeir
eru sendir áfram til Vestur-Berlín-
ar ínnan sólarhrings. Þar hafa
þeir sótt um hæli sem pólitískir
flóttamenn. Að sögn vestur-þýskra
stjórnvalda sóttu 3.710 flóttamenn
um landvistarleyfi í Vestur-Þýska-
landi og Vestur-Berlín á þessari
forsendu í júli. Er það mesti fjöldi
á einum mánuði síðan árið 1980.
Kohl sagði að héldu Austur-
Þjóðveijar áfram að koma flótta-
mönnunum áleiðis til Vestur-
Berlínar gæti það staðið í vegi
fyrir bættum samskiptum Vestur-
Þýskalands og Austur-Þýskalands.
Kólumbía:
Lögreglu-
stjóri myrtur
Bogota, AP.
VINSTRI sinnaðir skæruliðar
réðust inn í lítinn bæ í Kól-
umbíu, drápu lögreglustjórann
og sprengdu upp lögreglustöð-
ina, kvöldið áður en Virgilio
Barco, hinn nýi forseti sór emb-
ættiseið sinn í höfuðborg lands-
ins.
Skæruliðarnir særðu einnig tvo
lögreglumenn og tvo almenna borg-
ara og stálu vopnum og skotfærum
áður en þeir hurfu til fjalla, þar sem
herinn leitaði þeirra ákaft. Hringt
var til útvarpsstöðvarinnar í Bogota
og sagt að skæruliðar er kenna sig
við 19 apríl, hafi verið þama að
verki og viljað með því vekja at-
hygli hins nýja forseta á sér. Barco
forseti hafði lýst því yfír að hann
myndi taka hart á skæruliðum, þvi
helgasta skylda sín væri að veija
líf borgaranna.
efni Marcosar í síðustu forsetakosn-
ingum, kvaðst á fréttamannafundi
hafa gengið að málamiðlunarsam-
komulagi. Það felur í sér að
Tolentino skuldbindur sig til að
sverja Aquino hollustueið með því
skilyrði að stjómin falli frá ákæm
á hendur honum fyrir valdaránstil-
raunina.
Hann sagðist þó ekki ætla að
viðurkenna nýja stjómarskrá lands-
staðfest af þjóðinni. „Ef ég gerði
það mundi ég breyta gegn betri
vitund og samvisku minni,“ sagði
Tolentino.
Hann bætti því við að hann ætti
enn aðild að stjóm Marcosar, þar
sem þeir hefðu verið réttkjömir af
þjóðinni. „Við látum ekkert á okkur
kræla nú, þar sem önnur stjóm er
við völd,“ sagði Tolentino.
Khomeini:
Pílagrímar snúist gegri
óvinum trúarinnar
Mekka, AP.
KHOMEINI, hæstráðandi í íran,
réðst harkalega á Hassan Mar-
okkókonung, Hussein Jórdaníu-
konung og Mubarak Egyptalands-
forseta á fimmtudag, í ræðu yfir
pílagrimum á leið til Mekka í
Saudi-Arabiu og kallaði leiðtog-
ana “svikara við múhameðstrú".
Hann sagði einnig að Saddam
'Hussein, forseti íraks, Bandaríkja-
menn og Sovétmenn væm óvinir
trúarinnar og hvatti pílagrímana til
þess að gera Mekka að miðpunkti
sameiginlegs átaks gegn slíkum
aðilum. Khomeini hefur oft hótað
að stuðla að því, að strangtrúaðir
múhameðstrúarmenn næðu völdum
í Saudi-Arabíu og öðmm araba-
löndum.
Nokkrum klukkustundum áður
hafði innanríkisráðherra Saudi-
Araba, Nayef prins, varað við því
að pílagrímsferðirnar væm notaðar
í pólitískum tilgangi og sagt að slíkt
yrði ekki þolað. Um 2,1 milljón
múhameðstrúarmanna koma til
Mekka árlega og nær straumurinn
hámarki 14. ágúst.
Khomeini sagði einnig að refsa
ætti Hassan Marokkókonungi harð-
lega fyrír að hitta að máli Peres,
forsætisráðherra Israels og hönd
hans er tekið hefði í hönd Peresar
ætti að höggva af.
Vígbúnaðarmál:
Boða fund
í Moskvu
Washington, AP.
BANDARÍSKIR sérfræðingar og
sovéskir embættismenn munu á
mánudag eiga fund í Moskvu um
takmörkun kjarnorku- og geim-
vopna. Fundur þessi er liður í
undirbúningi fyrir samningavið-
ræður stórveldanna í Genf og
fund þeirra Eduard Shevard-
nadze og George Schultz, sem
fram fer í Washington í næsta
mánuði.
I fréttatilkynningu frá Hvíta hús-
inu sagði að sérfræðingar myndu á
mánudag koma saman „til að ræða
ýmis mál sem tengjast samninga-
viðræðum um kjarnorku- og
geimvopn". Formaður bandarísku
sendinefndarinnar verður Paul
Nitze, helsti ráðgjafi Reagans
Bandaríkjaforseta í vígbúnaðarmál-
VERKSMWJU
OPIÐ1 DAG
að norðan
frá 10
16
ODYR FATNA-ÐUR
Á ALGJÖRU LÁGMARKSVER-ÐI
húsið
AUGB R E K KU - KOPAVOGI i
Opið: 10-19 virkadaga/10-16á laugardögum