Morgunblaðið - 09.08.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
31
Þórhildur Sigurð-
ardóttir—Minning
Fædd 3. október 1900
Dáin 19. júlí 1986
Þann 19. júlí sl. lést í Sjúkrahúsi
Akraness frú Þórhildur Sigurðar-
dóttir fv. húsmóðir á Stórufellsöxt
í Skilmannahreppi. Hún gekk undir
skurðaðgerð og lézt eftir stutta
veru á sjúkrabeði. Þórhildur fæddist
að Rauðholti í Hjaltastaðaþínghá í
Norður-Múlasýslu, ein af mörgum
börnum þeirra Sigurðar Einarsson-
ar og Sigurbjargar Sigurðardóttur
búandi hjóna þar. Ung að árum
hrífst Þórhildur af hinni alþekktu
fegurð fóstuijarðarinnar, þá ekki
síst af hinum fagra Hallormsstaða-
skógi. Ung að árum mun hún hafa
unnið að skógrækt. En eins og
æskufólki er eiginlegt hleypti hún
heimdraganum og hélt til Borgar-
fjarðar, settist á skólabekk í
Hvítárbakkaskóla, þar sem á vegi
hennar varð ungur efnispiltur,
Magnús Símonarson íþróttakennari
skólans, af þekktum borgfirskum
ættum. Þau bundust ástarböndum
og gengu í það heilaga að nokkrum
tíma liðnum eða árið 1929. Þau
fluttu að Korpúlfsstöðum og gerðist
Magnús bústjóri á búi Thors Jen-
sen, síðan bjuggu þau 2 ár í
Reykjavík, en á vordögum 1934
kaupa þau jörðina Stórufellsöxl í
Skilmannahreppi, ásamt þeim Jóni
Símonarsyni bróður Magnúsar og
Jóni Sigurðssyni bróður Þórhildar.
Þangað flytja þau þetta vor og hefja
félagsbúskap, sem varð þeim ekki
aðeins til gagns og ánægju heldur
til sóma og heilla á allan hátt. Þau
sönnuðu samtíð sinni svo ekki varð
um villst að samvinnubúskapur er
eitt það viturlegasta búskaparform
sem æskilegast má teljast; vegna
öryggis, ef óhöpp henda, vegna
meira fijálsræðis til frístunda og
vegna betri nýtingar á vinnuvélum
og tækjum auk þess sem góð sam-
vinna skilar oftast meiri og betri
afköstum. Búskapurinn fór þessu
fólki vel úr hendi og þarna leið því
vel. Þarna var ræktað stórt tún og
jörðinni margt gott gert. Þess skal
einnig getið að elsti sonur þejrra
hjóna, Sigurður og hans kona, Ólöf
Sigursteinsdóttir, reistu nýbýli á
jörðinni og nefndu Fellsenda. Ónnur
böm Þórhildar og Magnúsar eru
Ingi Garðar rafvirki á Húsavík,
Símon trésmiður á Akureyri og
Sigríður húsmóðir. Öll eru börnin
fjölskyldufólk og afkomendur því
orðinn stór hópur. Jón Símonarson
átti fyrir konu, Ólöfu Elíasdóttur,
þau voru bamlaus, Jón Sigurðsson
bróðir Þórhildar var ógiftur og
bamlaus.
Stómfellsaxlarfólkið var vel Iátið
fólk í sinni sveit og kosið til ýmissa
trúnaðarstarfa fyrir sveit sína. Það
sem fyrst og oftast mun minna
okkur á verk þessa fólks er félags-
heimilið að Fannahlíð og fallegi
skógarlundurinn þar rétt hjá. Þess
var getið á kveðjustund Þórhildar
hve stóran hlut hún átti þarna að
máli og þau hjón bæði. Ég minnist
þess hve Magnús var glaður, líkleg-
ast á fyrsta opinbera fundinum sem
haidinn var í félagsheimilinu þeirra,
að þetta hús skyldi orðið að veru-
leika og það á þann hátt að ekki
átti að hafa áhyggjur af fjármálun-
um, og er það nokkuð sérstakt.
Þetta fólk sem þessum félagsmálum
stjómaði var hyggið og sneið sér
stakk eftir vexti. Nú er búið að
stækka húsið þeirra og er þetta
samkomuhús sveitarprýði og þá
ekki síður skógarmnninn. Stóra-
fellsöxl er falleg jörð, landið liggur
frá Eiðisvatni uppí Akrafjall, mikið
grasi vaxið og hallar mót austri og
norðaustri. Þeim hjónum Þórhildi
og Magnúsi þótti vænt um þessa
fögm jörð og þetta fólk allt unni
þessari fallegu sveit, morgunninn
er oft fagur við sólaruppkomu á
Stómfellsöxl, óvíða fegurri.
Marga bar að garði á Stómfells-
öxl, þar var íslensk gestrisni í
hásæti höfð, þarna mættu gestir
glöðu fólki og góðu, sem vildi hvers
manns erindi leysa á farsælan hátt
með glöðu geði, því munu margir
eiga kærar minningar frá þessu
heimili og því heiðursfólki, sem þar
mætti hveijum manni með dáð og
drengskap í huga og mátti segja
útrétta vinarhönd til allra sem að
garði bar, þar tala ég af eigin
reynslu. Árið 1978, þegar Magnús
var farinn að heilsu, fluttu þau hjón-
in á Dvalarheimilið Höfða á
Akranesi. Magnús dó fyrir nokkmm
ámm, en Þórhildur bjó ein í íbúð
síðustu árin og undi hag sínum
vel. Hún var dáð af öllum, sem af
henni höfðu kynni. Andlega fersk
og hress, aldrei kvartað yfir hlutun-
um, glöð í sinni og góð við alla.
Hún kunni vel að meta allt sem
fyrir hana var gert og góðan hug
sem samferðafólkið sýndi henni.
Þórhildur var stórmyndarleg kona
á vöxt og að vallarsýn, fríð kona-
sýnum ogglaðleg í viðmóti, hispurs-
laus og ákveðin, þó geðgóð og allra
hugljúfi. Við hjónin lögðum leið
okkar stundum til þessarar heiðurs-
konu og alltaf var sömu gestrisninni
ogglaðværðinni að mæta. Þórhildur
naut þess að fá gesti í heimsókn,
hún hafði oft á orði hve sonarsonur
hennar væri nærgætinn og liti oft ■■
til sín, hún bar mikinn kærleik í
bijósti til fólksins síns og samfylgd-
arfólksins, reyndar var söknuður
sár hjá mörgum við fráfall hennar.
Það bar líka nokkuð fljótt að, hún
bjó jafnan við góða heilsu og kvart-
aði aldrei, en lögmálið er eitt og
því lúta allir, kveðja og hverfa, en
minningin Iifir á meðal þeirra sem
í samfylgdinni vom og eftir standa
á ströndinni um sinn. Flestir lifa í
voninni um að mega hittast á ný,
og margir vildu gjaman mega taka
upp þráðinn þar sem frá var horfilík.
Þórhildur kvaddi áreiðanlega sátt
við lífið og þakklát samtíð sinni,
þakklát fyrir þann hlut sem hún
hlaut í lífinu, þakklát ástvinum
sínum, vinum og samferðafólki, hún
var þeirrar gerðar að sjá alltaf
bjartar hliðar lífsins þó á móti blési.
Hún var andlega heil og hraust, vel
gerð kona, sem allir dáðu. Hún á
þökk okkar allra fyrir góð kynni,
Ijúfa lund og góðvild í hvers manns
rann.
Blessuð sé minning hennar.
Ástvinum hennar sendum við
hjónin samúðarkvoðiur.
Valgarður L. Jónsson frá
Eystra-Miðfelli. *
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
inum i sima 25619 í siðasta lagi
á miðvikudag.
Stjórn FKL.
Félag kaþólskra
leikmanna
Sumarferö félags kaþólskra leik-
manna verður farin laugardag-
inn 16. ágúst.
Þátttaka tilkynnist sóknarprest
23732 og 14606
Dagsferðir sunnudag
10. ágúst
Kl. 8.00 Þórsmörk, einsdags-
ferð. Verð 800 kr. Stansað 3-4
klst. í Mörkinni.
Kl. 10.30 Hvalfell - Glymur,
(hœsti foss landsins). Góð fjall-
ganga. Verð 500 kr.
Kl. 13.00 Marfuhöfn - Búöa-
sandur. Létt ganga. Minjar um
kaupstað frá miðöldum. Verð kr.
450.
Kvöldferð um Laugarnesland á
miövikudagskvöldið í tilefni 200
ára afmælis Reykjavikurborgar.
Fritt fyrir börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSf, bensínsölu.
Sjáumst!
Útivist ferðafélag.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag
10. ágúst
1) kl. 08 Þórsmörk — dagsferð
á kr. 800. Ath.: Sumarleyfi i
Þórsmörk er góð hvíld og að-
staöan i Skagfjörðsskála sú
besta sem völ er á í óbyggöum.
2) kl. 10 Bruarárskörð — Högn-
höfði (1030 m). Ekiö að Laugar-
vatni og gengiö um Brúarár-
skörð og á Högnhöfða. Verö kr.
750.
3) M. 13 Glymur — Botnsdalur.
Glymur er í Botnsá og er hæsti
foss Islands, 198 m á hæð. Verð
kr. 500.
Miðvikudagur 13. ágúst.
1) kl. 08 Þórsmörk — dagsferö
á kr. 800.
2) kl. 20 Óttarstaðir — Lónakot
(kvöldferð). Brottför frá Umferö-
armiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl. Fritt fyrir börn
i fylgd með fullorönum.
Ferðafélag fslands.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
.....
Utboð
Baðhús við Bláa Lónið
útboðsverk II
Hitaveita Suðurnesja óskar hér með eftir til-
boðum í byggingu baðhúss við Bláa Lónið,
útboðsverk II.
Um er að ræða byggingu 110 fm baðhúss
úr timbri ásamt tilheyrandi frágangi innan-
og utanhúss.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja, Brekkustíg 34, Njarðvík og Verk-
fræðistofu Suðurnesja, Hafnargötu 32,
Keflavík, gegn kr. 3000,- skilatryggingu frá
og með þriðjudegi 12. ágúst.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu hitaveitunnar
þriðjudaginn 20. ágúst 1986 kl. 16.00.
Hitaveita Suðurnesja.
I
11
Skrifstofuhúsnæði
í Austurstræti 10a er laust. Um það bil 40
fm herbergi á 3. hæð og tvö herbegi um 40
fm samtals á 5. hæð. Laus nú þegar. Nán-
ari upplýsingar í síma 20123.
til sölu
Verkfæri og vélar til sölu
Til sölu eru ýmis verkfæri og vélar tengdar
bifreiða- og járnsmíði. Óskað er eftir til-
boðum í stærri vélar og einnig í bifreið, sem
er Toyota Hiace Pickup árg. 1977.
Til sýnis og sölu í dag, laugardag og mánu-
dag að Hamarshöfða 9, kl. 9-17.
Nýja bílasmiðjan hf.,
Hamarshöfða 9.
húsnæöi óskast
Æ
Oskum eftir að leigja
4ra-5 herb. íbúð í Kópavogi.
Upplýsingar í símum 96-24006 og 91 -41137.
Húseigendur
Höfum á skrá traust fólk sem leitar að öllum
stærðum leiguhúsnæðis. Leigumiðlunin,
Skiphoiti 50c.
Sími 36668.
Okkur vantar 4ra herb.
kjallaraíbúð. Erum tvö fullorðin í heimili.
Einhver fyrirframgreiðsla kemur til greina.
Upplýsingar í síma 34339.
Hrossíóskilum
Rauðstjörnótt hryssa 9-10 vetra (mark: sneitt
aftan hægra) í óskilum í Landmannahreppi,
Rangárvallasýslu.
Hreppstjórinn.
ói
Leigubíll
Oska eftir að kaupa leigubíl. Æskilegt að
stöðvarleyfi fylgi.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 14. ágúst
merkt: „P — 982“.
Vestfjarðakjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi
verður haldinn i félagsheimilinu Hnifsdal laugardaginn 16. ágúst nk.
Dagskrá: 1. Kl. 9.30 Aðalfundarstörf. 2. Ræður þingmanna kjör-
dæmisins — almennar umræður. 3. Kl. 16.00 Ályktun fundarins.
4. Kosning til trúnaöarstarfa. 5. Fundarslit áætluð kl. 18.00.
Stjóm kjördæmisráðs.
T