Morgunblaðið - 09.08.1986, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
Toppuppgjör
' á morgun
A sunnudaginn klukkan 19
eigast við í 1. deildinni í knatt-
spyrnu tvö efstu lið deildarinn-
ar, Fram og Valur. Knatt-
spyrnuáhugamenn bíða þessa
leiks með ofvæni enda kemur
leikurinn til með að ráða miklu
um úrslit mótsins. Fram hefur
nú fjögurra stiga forskot á Val.
íslandsmeistararnir geta
minnkað muninn niður í eitt stig
með sigri. Vinni Fram hinsvegar
hefur liðið sjö stiga forskot í
deildinni. Þorgrímur Þráinsson,
fyrirliði Vals, og Guðmundur
Torfason, Fram, koma báðir til
með að verða í sviðsljósinu á
sunnudaginn og við heyrðum
hljóðið í þeim félögum í gær-
kvöldi.
„Fram hefur verið besta liðið í
mótinu til þessa og við hlökkum
til að mæta þeim. Eftir því sem
Paris
SG með
fullt hús
ÖNNUR umferð var leikin í fyrstu
deildinni frönsku í gærkvöldi.
Racing Paris, með stjörnur á borð
við Francescoli og Pierre Litt-
barski innanborðs, vann sinn
fyrsta sigur á heimavelli gegn Le
Havre, og hefur tvö stig. Paris
Saint Germain heldur áfram þar
sem frá var horfið á síðasta
keppnistímabili og trónir efst í
deildinni með fjögur stig.
Nice- Rennes 1-0
Toulouse - Monaco 2-1
Laval - Lens 1-1
Auxerre - Paris SG 1-2
Brest - Marseille 0-0
Saint-Etienne - Nancy 0-0
Metz - Sochaux 5-1
RC Paris - Le Havre 2-1
Lille - Bordeaux 0-0
Toulon - Nantes 1-1
andstæðingarnir eru sterkari því
betur leikum við og því á ég von
á að Framarar þurfi að hafa fyrir
hlutunum gegn okkar,“ sagði
Þorgrímur.
„Við vorum með pálmann í hönd-
unum mest allt keppnistímabilið í
fyrra en misstum titilinn síðan úr
höndunum á okkar á endasprettin-
um. Við byrjuðum að æfa seinna
núna og það hefur verið góður
stígandi í leikjum okkar á þessu
keppnistímabili. Valsliðið er búið
að vera í mikilli framför í síðustu
leikjum og sóknarmenn liðsins
virðast vera búnir að ná sér á
strik. Liðið skoraði sjö mörk gegn
Breiðablik og fimm gegn FH. Eg
held því að það fari ekkert á milli
mála að þetta verður hörkuleikur,"
sagði Guðmundur sem hefur verið
mjög markheppinn í sumar.
Hann hefur skorað fjórtán mörk
á keppnistímabilinu og haldi hann
uppteknum hætti við markaskorun
kemur hann til með að hnekkja
meti Péturs Péturssonar.
„Ég ætla að reyna allt hvað ég
get til þess að skora á sunnudag-
inn. Það yrði frábært ef það tækist
en það fer einungis eftir því hvern-
ig liðið spilar. Valsvörnin er sterk
en samt óttumst við ekki Þorgrím
og félaga. Við munum leika okkar
leik, ekki reyna að hanga á öðru
stiginu. Það er bara óskandi að
fólk fjölmenni á völlinn á einn af
stórleikjum sumarsins," sagði
Guðmundur.
Hálfdán
hættur
Hálfdán Örlygsson, hinn sókn-
djarfi bakvörður KR, mun ekki
leika meira með liði sínu á þessu
keppnistímabili. Hálfdán hefur
staðið í húsbyggingu og lítill timi
er fyrir knattspyrnuiðkun sam-
fara því. Hann hefur ekki æft með
liði sínu síðasta mánuðinn en
mætir væntanlega í slaginn á ný
fyrir næsta keppnistímabil.
^tttlfe
ES •
• Leikmönnum gekk misvel að fóta sig f vætunni og rokinu í gærkvöldi eins og þessi mynd af Lofti
Óiafssyni og Siguróla Kristjánssyni ber með sér.
Markalaust í
Laugardalnum
- hjá KR og Þór
Laugardalsvöllur 1. deild
KR-Þór 0-0
Gul spjöld: Nói Björnsson og Sigurbjörn Við-
arsson Þór.
Dómari: Þorvarður Björnsson. Hann hefði
mátt taka fastar á brotum en komst annars
þokkalega frá erfiöum leik.
Áhorfendur: 176.
EINKUNNAGJÖFIN:
KR: Stefán Jóhannsson 3, Jósteinn Einarsson
2, Stefán Pótursson 2, Loftur Ólafsson 2,
Gunnar Skúlason 4, Gunnar Gíslason 2, Guö-
mundur Magnússon 2, Ásbjörn Björnsson, lék
of stutt, Björn Rafnsson 2, Heimir Guömunds-
son 2, Sæbjörn Guðmundsson 2.
Þór: Baldvin Guömundsson 3, Sigurbjörn Viö-
arsson 2, Júlíus Tryggvason 2, Nói Björnsson
3, Árni Stefánsson 2, Baldur Guönason 2,
Kristján Kristjánsson 3, Hlynur Birgisson 2,
Jónas Róbertsson 2, Siguróli Kristjánsson 2,
Halldór Áskelsson 2, Einar Arason vm. lók
of stutt.
Einkunnagjöf miöast viö aöstæöur.
Það var veðrið sem var í öllum
aðalhlutverkunum í fyrri hálfleik.
Leikmönnum liðanna gekk illa að
hemja knöttinn og KR-ingum sem
léku með sterkan vindinn í bakið
tókst ekki að nýta sér vindinn sem
skyldi. KR varð fyrir miklu áfalli á
G
Texti: Frosti Eiðsson
Mynd: Börkur Arnarson
Atli skoraði fyrsta markið
í v-þýsku deildakeppninni
Uerdingen vann, en Stuttgart tapaði
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaðsins í V-Þýsfcalandi.
ATLi Eðvaldsson skoraði fyrsta
mark V-þýsku Bundesligunnar í
knattspyrnu í gærkvöldi - í annað
sinn á knattspyrnuferlinum sem
hann vinnur þaö afrek. Hann
skoraði mark fyrii lið sitt, Bayei
Uerdingen, þegai 12 mínútur
vorn liðnar af leiknum gegn nýlið-
um Homburg. Uerdingen vann
góðan 0:2 útisigur, en lið Ásgeirs
Sigurvinssonar, Stuttgart, tapaði
hinsvegar fyrir Mannheim 3:2, í
stórkostlega skemmtilegum og
vel leiknum leik.
Atli gerði mark sitt með fallegu
skoti frá vítapunkti eftir fyrirgjöf.
Eftir að hafa náð forystu lagðist
Uerdingen í vörn og hélt spenntum
nýliðunum frá marki sínu með
skipulögðum, en heldur leiðinleg-
« um varnarleik. Inn á milli áttu þeir
þó skyndisóknir og úr einni slíkri
skoraði Funkel annað mark Uerd-
ingen á lokamínútunum. Jafntefli
hefði verið sanngjarnt, en Uerding-
en lék árangursríkari knattspyrnu,
þó ekki væri hún fögur. Atli átti
mjög góðan leik - skoraði markið
og var síðan klettur í varnarmúr
liðs síns í síðari hálfleik.
Gæfan vár ekki eins hliðholl
Stuttgart í útileiknum í Mannheim.
Liðið hefur aldrei náð að sigra
þessa nágranna sína á útivelli, og
ekki tókst það heldur í gærkvöldi,
þó aðstæður allar væru hinar
ákjósanlegustu. Sól og blíða og
31 þúsund æstir áhorfendur. En
knattspyrnan sem liðin sýndu þótti
stórkostleg, og allur annar bragur
á leiknum en hjá Homburg og
Uerdingen. Lítið fór fyrir Ásgeiri í
fyrri hálfleik, en í þeim síðari sótti
hann í sig veðrið og í heild lék
hann vel.
Stuttgart byrjaði leikinn með
þriggja manna framlínu, sem er
óvenjulegt á útivelli i Þýskalandi,
og þegar staðan var 2:2 um miðjan
síöari hálfleik hélt liðið áfram að
sækja, staðráðið í að vinna leikinn.
En sóknarknattspyrnan getur
stundum verið varasöm, og Mann-
heim náði að skora sigurmarkið
• Atli Eðvaldsson skoraði fyrsta mark Budesligunnar þegar hann
hóf atvinnumannsferil sinn 1981 og hann endurtók það i gærkvöldi.
undir lokin. Buchwald og nýi mið-
herjinn Bunk gerðu mörk Stutt-
gart, það síðara eftir góða
stungusendingu Ásgeirs. Fritz
Walter (2) og Trieb gerðu mörkin
fyrir Mannheim.
Sem fyrr segir léku bæði liðin
vel, en Mannheim hefur tak á
Stuttgart og knúði fram heldur
óréttlátan sigur.
17. mínútu er Ásbjörn Björnsson
meiddist illa á ökkla eftir samstuð
við leikmann Þórs. Ásbjörn var
borinn að velli og flest bendir til
þess að liðbönd hafi slitnað. Sé
raunin sú mun hann ekki leika
meira með liðinu það sem eftir er
sumars.
Það var aðeins á síðustu fimm
mínútunum að hætta skapaðist
upp við mörkin. í bæði skiptin
slapp Þór fyrir horn, í fyrra skiptið
náði Baldvin Guðmundsson mark-
vörður að blaka skoti Gunnars
Skúlasonar yfir þverslá og í síðara
skiptið komst Björn Rafnsson einn
og óvaldaður inn í vítateig Þórs
eftir að hafa leikið á varnarmann.
Baldvin sá hinsvegar við honum
og náði að verja af stuttu færi.
Flestir áhorfendur hafa eflaust
ætlað að Þór mundi ná að nýta
sér vindinn í síðari hálfleiknum en
það fór á annan veg. KR var betri
aðilinn ef eitthvaö var. Þeir náðu
undirtökunum á miðjunni. Leik-
menn Þórs áttu hinsvegar hættu-
legar skyndisóknir. Á 12. mínútu
mátti engu munu upp við KR-
markið eftir eina slíka. Kristján
Kristjánsson gaf þá góða sendingu
á Hlyn Birgisson sem var einn og
óvaldaður í vítateignum. Stefáni
markverði tókst hinsvegar að verja
skot hans.
Litlu munaði að Gunnari Skúla-
syni tækist aö næla í stigin þrjú á
lokamínútunum fyrir KR er hann
náði að leika á Baldvin markvörð,
skot hans af þröngu færi hafnaði
hinsvegar í hliöarnetinu. Stuttu
áður hafði Gunnar einnig verið á
ferðinni með gott skot sem fór
rétt framhjá.
Þrír nýliðar spreyttu sig í KR-
liðinu í gærkvöldi. Heimir Guðjóns-
son og Gunnar SKúlason voru í
fyrsta sinn i byrjunarliði félagsins
og Stefán Steinssen tók stöðu
Ásbjörns. Liðiö lék án Ágústar Más
Jónssonar og Willums Þórssonar
en þeir afplánuðu báðir leikbönn.
Þórsliðið var hinsvegar óbreytt
frá því fyrir sumarfrí. Kristján
Kristjánsson var besti maður liðs-
ins. Hann átti góða spretti á vinstri
kantinum sem sköpuðu usla í KR-
vörninni.