Morgunblaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
Slmamynd/Reutor
ÞÝSKA tennisstjarnan Borls Backer varS að taka á öllu sem hann átti tll að vinna Spánvjerjann,
Emilio Sanchez, ( keppninni um Davfðs-blkarinn ( Barcelona á Spáni (gœr. Viðureign þeirra stóð yfir
( fjórar klukkustundlr og 12 mínútur. Becker sigraði en tœpara mátti það ekki standa, leikirnir fóru
þannig: 6:4, 7:6, 6:7, 3:6, 6:3. Becker, sem er annar á lista yfir bestu tennisleikara heims, hefur ekki
náð sár vel á strik eftir að þjálfari hans hœtti.
Knattspyrna:
íþróttir
helgarinnar
Knattspyrna
Leiknir og Ármann leika um laust
saeti i 2. deild á gervigrasvellinum í
daq klukkan 14.
Urslitaleikur um Allison-bikarinn, ÍK
og Augnablik á Vallargerðisvelli í dag
klukkan 13.
Körfubolti
Úrvalsdeild, sunnudagur
Hagaakóll: KR-Vaiur kl. 20.00
Hafnarqörður Haukar-ÍBK kl. 20.00
Njarðvfk: UMFN-Fram kl. 20.00
Handbolti
Laugardagur
KR-IBV, 1 .d.kv., Seljaskóll kl. 14.00
KR-Stjaman, l.fl.k.,
Seljaskóli kl. 16.16
Valur-Afteld., 1 .fl.k.,
Seljaak. kl. 16.30
Sunnudagur
Vík.-Haukar, 1 .d.ka., Höllln kl. 20.00
Valur-FH, 1 .d.ka., Höllln kl. 21.16
Fylklr-HK, 2.d.ka., Seljask. kl. 16.16
Þróttur-UBK, 2.d.kv.,
Seljask. kl. 16.30
Stj.-Valur, blkark. kv.,
Dlgran.kl. 21.30
Skfði
Pepsi-Cola bikarmót SKÍ 13-14 ára
á Akureyri í dag og á morgun. Keppni
kefst klukkan 10 báða dagana.
Reykjavíkurmót í skfðagöngu hefst
í Bláfjöllum klukkan 14 f dag.
Keppni i norrraenum greinum ungl-
inga á Ólafsfirði [ dag og á morgun.
Frjálsar (þróttir
Selfosshlaupið verður á morgun og
hefst við Heilsusport á Selfossi klukk-
an 14.30. Hlaupnir verða fjórir km I
flokkum meyja, kvenna og drengja,
en átta km í karlafiokki.
Frjálsiþróttamót fyrir öldunga ( öll-
um aldursflokkum karla (35 ára og
eldri) og kvenna (30 ára og eldri) fer
fram í Baldurshaga í dag klukkan
14-16 og i íþróttahúsi KR á morgun
klukkan 13.30-16 og fer skráning fram
á mótsstöðum.
Glfma
Landsflokkaglíma GLÍ hefst i
íþróttaskemmunni á Akureyri i dag
klukkan 14. Glímt verður í þremur
þyngdarflokkum fullorðinna og fimm
aldursflokkum undir tvítugsaldri.
Badminton
Reykjavíkurmótið í badminton fer
fram í TBR-húsinu i dag og á morgun.
Keppt verður í öllum greinum i meist-
araflokki, A-flokki, öðlingaflokki og
aeðsta flokki. Allir bestu badminton-
spilarar landsins verða á meðal
þátttakenda, en mótið hefst í dag
klukkan 15.30 og á morgun kiukkan
14.
Borðtennis
fslandsmót fullorðinna í seinni hluta
flokkakeppninnar verður i Laugardals-
höll i dag og á morgun og hefst
klukkan 13.30 báða dagana.
Pdukast
Tvimenningsmeistaramótið í pílu-
kasti verður í dag og á morgun í
fólagsheimilinu Festi, Grindavík,
klukkan 13-18 báða dagana.
VÍKINGAR gœtu tryggt sór fs-
landsmeistaratrtilinn f meistara-
flokki karla ( handknattieik á
morgun. Ef Vfkingur vinnur
Hauka og Valur vinnur FH eru
Vfkingar orðnir íslandsmeistarar.
Það eru aðeins UBK og FH sem
geta hugsanlega náð Víkingum að
stigum eins og staðan er í dag.
Víkingur hefur nú 25 stig og á eft-
ir fjóra leiki, Breiðabiik er með 20
stig og á eftir þrjá leiki og FH er
með 19 stig og á eftir fjóra leiki.
Víkingar eiga eftir leiki við Hauka
(á morgun), FH, Fram og KA.
Breiðablik á eftir KR, Val og Ár-
mann og FH á eftir Val (á morgun),
Víking, Armann og Fram.
Víkingur hefur annað hvort orðið
bikar- eða íslandsmeistari í hand-
knattleik frá því 1978. Kristján
Sigmundsson, markvörður, getur
státað af því að hafa verið í liðinu
þann tíma. Ef Víkingur verður ís-
landsmeistari er það í sjöunda sinn
í sögu félagsins. íslandsmeistarar:
1975, 1980, 1981, 1982, 1983 og
1986. Bikarmeistarar: 1978, 1979,
1983, 1984, 1985 og 1986.
• Fagna Vfkingar íslandsmeistaratrtlinum á sunndagskvöld? Ef
Vfkingur vinnur Hauka og Valur FH verða Vfkingar meistarar.
Handknattleikur:
Tryggja Víkingar
sér meistara-
titilinn á morgun
Snævar til
Völsungs
SNÆVAR Hreinsson, miðvallar-
leikmaður úr Val, hefur ákveðið
að leika með Völsung frá Húsavfk
( 1. deildinnl ( knattspyrnu á
nœsta keppnistímabili.
Snævar lék nokkra leiki með Val
í fyrra en var aðallega á vara-
mannabekknum. Hann er sterkur
miðvallarleikmaður og kemur til
með að styrkja Völsung, sem nú
leikur í fyrsta sinn ( 1. deild.
Völsungar hafa einnig fengið til
liðs við sig Hörð Benediktsson
sem lék með HSÞ-b í Mývatns-
sveit í fyrra. Auk þess verða þeir
Ómar Rafnsson og Helgi Helgason
með á fullu.
• Snævar Hreinsson lelkur með
Völsung frá HÚsavík ( sumar.
Tryggvi í
verðlaunasæti
í bringusundi
Árni Sigurðsson varð níundi
Satfossi.
TRYGGVI Helgason varð 3. í 100
yarda bringusundi og Árni Sig-
urðsson 9. á bandanska meist-
aramótinu ( sundi, 2. deild, sem
fram fer þessa dagana f Los
Angeles. Tryggvi synti á 57,92
sek. og bætti tíma sinn úr 58,79
sek. Árni náði 3. sæti í B-úrslitum
og synti á 58,9 sek., en hann
missti af A-úrslitunum með
þremur hundraðshiutum, varð 7.
(undanrásum.
100 yarda bringusundið vannst
á 55,7 sekúndum en sigurvegarinn
er mjög sterkur sundmaður sem
varð 4. á vináttuleikunum í
Moskvu. Eftir tveggja daga keppni
er háskóli Tryggva, Bakersfield, í
fyrsta sæti með 181 stig, Oakland
í öðru sæti með 132 stig, North-
wich er með 75 stig og skóli Árna,
Tampa, er í fjórða sæti með 61
stig.
Tryggvi sagðist gera ráð fyrir
því eftir árangurinn í 100 yarda
bringusundinu að hann væri inni í
boðsundssveit skólans. Þeir
Tryggvi og Árni keppa báðir í 200
yarda bringusundi í dag. Þeir þurfa
báðir að ná sínu besta til að kom-
ast í úrslit. Tryggvi er með 8. - 9.
besta tímann og Árni aðeins neð-
ar. Tryggvi sagði keppnina mjög
stífa, byrjað væri klukkan 10 á
morgnana og menn yrðu að vera
vel upp lagðir til að allt gengi upp.
Sig.Jóns.
Guðmundur leikur sinn
fyrsta leik með Offenbach
GUÐMUNDUR Steinsson leikur sinn fyrsta leik með Kickers Offen-
bach í dag. Hann átti reyndar aö leika sinn fyrsta leik um síðustu
helgl en honum var frestað. Hann hefur nú æft með liðinu (viku
og Ifkað vel. Liðið er nú f efsta sæti f Oberligunni og er stefnan
tekin á tryggja sæti ( 2. Bundesligu á næsta ári. Gumðumdur er
hór við komuna til Vestur-Þýskalands ásamt forráðamönnum fó-
lagsins.