Morgunblaðið - 19.03.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987
Ný bandarísk skýrsla:
Aldrei meira smygl-
að inn af eiturlyfjum
- þrátt fyrir andófsaðgerðir stjórnvalda
Washington. Reuter.
Nigel Lawson, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti fjárlagafrumvarp
rikisstjórnarinnar á þriðjudag. Hér otar hann snjáðri rauðlitaðri
skjalatösku sinni að ljósmyndara Reuters.
Bretland:
Bankar lækka vexti
London, AP, Reuter.
FJÓRIR helstu bankar á Bret-
MEIRA er nú smyglað af ólögleg-
um eiturlyfjum til Bandarikjanna
en nokkru sinni fyrr þrátt fyrir
viðleitni sijórnvalda til að
stemma stigu við straumi þeirra
inn í landið, sölu og neyslu, að
og sex særðust alvarlega, þegar
stifla brast í Sovétlýðveldinu
Tadzhikistan i Mið-Asíu á mánu-
dag, að þvi er sagði i Moskvu-
blaðinu Sotsialisticheskaya
Industriya í gær. Um 500 manns
misstu heimili sin.
Stíflan gaf sig, þegar aurskriða
féll á hana, og skall flóðbylgja á
þorpinu Sargazan, þar sem um
1600 bjuggu. Fjögurra er enn sakn-
að. Embættismenn í Tadzhikistan
því er fram kemur í þingskýrslu,
sem birt var í gær.
í skýrslunni segir, að auknar
stjórnvaldsaðgerðir hafí sáralítið
dregið úr framboði eiturlyfja.
„Þrátt fyrir tvöföldun ríkisfjár-
sögðu, að 53 hús hefðu algjörlega
eyðilagst.
í Pravda, málgagni kommúnista-
flokksins, sagði, að gerð nýs
uppistöðulóns í nágrenni Dushanbe,
höfuðborgar Tadzhikistan, hefði
verið ákveðin án nægilegrar opin-
berrar umræðu meðal íbúanna og
mundi ógna byggðinni í kring vegna
mikillar jarðskjálftahættu á þessum
slóðum.
Þorpið Sargazan er um rúmlega
100 km suðaustur af Dushanbe.
veitinga tii fyrirbyggjandi aðgerða
á síðastliðnum fímm árum, er eitur-
lyfjainnflutningurinn meiri en
nokkru sinni," segir í skýrslunni.
„Ólöglgegur innflutningur kók-
aíns, sem stjórnvöld hafa mestar
áhyggjur af, hefur um það bil tvö-
faldast frá árinu 1981, neytendum
hefur farið sífjölgandi, en verðið
fallið vegna hins aukna framboðs,"
segir enn fremur í skýrslu þingsins.
Höfundar skýrslunnar áætla, að
sala kókaíns og heróíns í Banda-
ríkjunum hafí numið 50 milljörðum
dala á árinu 1985 og ágóði smyglar-
anna um sjö milljörðum dala það ár.
Bandaríkjaþing samþykkti í okt-
óber á síðasta ári lagafrumvarp
geg^n misnotkun eiturlyfja. Var þar
lögð áhersla á að koma í veg fyrir
innflutning ólöglegra eiturlyíja er-
lendis frá.
Meginniðurstaða skýrslunnar er,
að fyrmefnd lög muni ein og sér
„að öllum líkindum aðeins hafa
skammtímaáhrif og sáralítið draga
úr framboði eiturlyQa".
í skýrslunni sagði enn fremur,
að starfsemi ríkisstofnana, sem
vinna ættu fyrirbyggjandi starf á
þessu sviði, væri brotakennd og illa
skipulögð.
landi lækkuðu útlánsvexti um
hálft prósentustig í gær og eru
þeir nú tíu prósent. Enn er ekki
Ijóst hvort byggingarfélög lækka
vexti vegna íbúðakaupa en búist
er við almennum vaxtalækkun-
um eftir að Nigel Lawson lagði
fram fjárlagafru m varp bresku
ríkisstjórnarinnar á þriðjudag.
Englandsbanki tilkynnti fyrstur
lækkun vaxta og skömmu síðar
voru vextir National Westminster
Bank og Barclays Bank lækkaðir
að sama skapi. Almennt er búist
við að byggingarfélög, sem lána fé
til húsnæðiskaupa, fylgi fordæmi
bankanna verði vextir lækkaðir enn
frekar. Tvær af hverjum þremur
breskum fjölskyldum búa í eigin
húsnæði þannig að lækkun vaxta
snertir allan þorra almennings. Þá
var ekki gripið til þess gamalkunna
ráðs að hækka skatta á áfengi,
bensíni og tóbaki til að auka tekjur
ríkissjóðs. Stjómmálaskýrendur
hafa bent á að fjárlagafrumvarpið,
og einkum lækkun vaxta, muni
styrkja stöðu stjómarinnar og hefur
þvi verið spáð að Margaret Thatc-
her forsætisráðherra boði til kosn-
inga í júnímánuði ári áður en
kjörtímabili hennar lýkur.
Samkvæmt frumvarpinu verður
tekjuskattur lækkaður um tvö pró-
sent og dregið verulega úr lántök-
um ríkissjóðs. Síðamefnda atriðið
er forsenda vaxtalækkunarinnar og
er búist við að vextir muni lækka
enn frekar, hugsanlega síðar í þess-
ari viku.
Stjómarandstæðingar segja
frumvarpið kosningabrellu, sem
bæti í engu hag atvinnulausra.
Stjómarliðar fullyrða hins vegar að
minni lántökur ríkissjóðs og lækkun
vaxta muni styrkja efnahagslífíð
og auka atvinnu.
Norska Stórþingið:
Konur hlut-
gengar til
ríkiserfða
Osló, Reuter.
NORSKI Hægri flokkurinn hefur
lagt til að stjórnarskrá landsins
verði breytt í þá veru að konur
verði hlutgengar til ríkiserfða.
Talið er að frumvarp þetta hljóti
almennan stuðning í þinginu.
Samkvæmt frumvarpinu mun
elsta bam þjóðhöfðingja erfa ríkið
líkt og sænsk lög kveða á um. Ekki
er gert ráð fyrir að lögin verði aftur-
virk þannig að Haraldur krónprins
mun ekki þurfa að sjá á bak krún-
unni í hendur eldri svstram sjnum,
þeim Ragnhildi og Astríði. Ólafur
Noregskonungur er 83 ára gamall
og er elsti þjóðhöfðingi í Vestur-
Evrópu.
Eru Finnar að losa sig und-
an áhrifavaldi Sovétmanna?
Kosningasignr hægrimanna kann að
marka tímamót í finnskum síjórnmálum
Helsinki. AP.
Hægrímenn voru sigurveg-
arar kosninganna í Finnlandi
eins og fram hefur komið í
fréttum og telja margir stjórn-
málaskýrendur, að sú niður-
staða bendi til, að Finnar séu
nú loksins að draga sig út úr
skugga nágranna síns í austri,
Sovétríkjanna. Að undanfömu
hefur gætt vaxandi erfiðleika
í viðskiptum þjóðanna og kann
það að verða ein af afleiðingum
kosninganna, að Finnar taki
upp nánari efnahagssamvinnu
við Norðurlðnd og Evrópu-
bandalagsrikin.
Sameiningarflokk hægri-
manna, Kookomus, sem Sovét-
menn hafa löngum amast við,
vantar nú aðeins þijú þingsæti til
að vera jafn stór Jafnaðarmanna-
flokknum, fékk 53 þingmenn af
200 eða níu fleiri en í síðustu
kosningum. Ilkka Suominen,
formaður flokksins, sagði þegar
hann hrósaði sigri að kosningun-
um loknum, að „nú mun öðram
flokkum reynast það erfítt að ýta
okkur til hliðar. Fólkið hefur kraf-
ist þess, að nýir og ferskir vindar
fái að blása í stjómmálunum og
landsstjóminni".
Kookomus, sem var við völd
árið 1944 þegar Sovétmenn réð-
ust inn í Finnland, hefur lengst
af síðan verið í pólitískri einangr-
un vegna nokkurs konar tilskipun-
ar frá Urho heitnum Kekkonen,
forseta, sem í því efni fór að vilja
Sovétmanna. I Finnlandi er það
forsetinn, sem ber ábyrgð á ut-
anríkisstefnunni og getur haft
mikil áhrif á stjómarmyndun.
Hægrimenn hafa reynt eftir
fremsta megni, með misjöfnum
árangri að vísu, að fela andúð
sína á Sovétríkjunum og óeðlileg-
um áhrifum þeirra á fínnsk
innanríkismál og hafa í því skyni
lýst yfír stuðningi við hlutleysis-
yfírlýsingu Kekkonens. Sú stefna
er enn sem fyrr homsteinninn í
utanríkisstefnu Finna.
Raunveraleg afstaða hægri-
manna kemur hins vegar betur
fram í efnahagsmálunum. Suom-
inen hefur hvatt til endurskipu-
lagningar í fínnsku efnahagslífí,
að vestrænum ríkjum verði auð-
velduð meiri fjárfesting í landinu
og að ýtt verði undir aukinn sam-
keppnisiðnað. Hann hefur einnig
lagt til, að svokallaðir jaðarskatt-
ar verði lækkaðir en með þeim
er fínnska velferðarríkið að
nokkra leyti fjármagnað. Jaðar-
skattamir era teknir af þeim
tekjum, sem menn hafa af eftir-
vinnu og aukavinnu annars staðar
en á eiginlegum vinnustað. Hafa
margir orðið til að gagnrýna þessa
Mauno Koivisto forseti i kjörklefanum.
skattlagningu og halda því fram,
að hún letji menn og drepi fram-
tak þeirra í dróma.
Hægrimenn stefna að því leynt
og ljóst að segja upp vöraskipta-
samningnum við Sovétmenn en
samkvæmt honum á vera jafn-
ræði með þjóðunum í vöraskiptum
án þess að nokkrir peningar komi
við sögu. Megininnflutningur
Finna hefur verið orka en vegna
verðfallsins á olíu hafa Sovétmenn
ekki getað greitt fyrir allar
fínnsku vöramar með þeirri vöra-
tegund og skulda því Finnum
umtalsvert fé. Vegna þess hefur
útflutningurinn til Sovétríkjanna
minnkað og atvinnuleysið aukist,
stendur nú í 6,4%.
Kalevi Sorsa, forsætisráðherra
jafnaðarmanna í fráfarandi stjóm,
hefur lagt til, að þetta misvægi
verði lagfært með því að ráðast
í ýmis samstarfsverkefni með
Sovétmönnum en jafnvel mið-
flokksmenn, samstarfsmenn
Sorsa í stjóm, hafa sakað hann
um að vera með þessu að leita
gervilausna á vandanum. Mið-
flokksmenn eru sammála hægri-
mönnum um, að Finnar verði að
tengjast öðram Norðurlöndum
nánari böndum og beina útflutn-
ingnum meira til Vestur-Evrópu.
Ýmis önnur teikn era á lofti
um, að Finnar vilji losa sig við
áhrifavald Sovétmanna. Eftir lát
Kekkonens og raunar strax eftir
að hann dró sig í hlé fóra finn-
skir fjölmiðlar að Qalla ftjálslegar
en áður um sovésk málefíii en
áður fyrr var það algengt, að
Kekkonen kallaði fyrir sig og
skammaði þá ritstjóra, sem bára
ábyrgð á andsovéskum skrifum.
Finnar urðu líka fyrstir þjóða til
að kalla heim þegna sína í Kiev
eftir Chemobyl-slysið og áður en
Sovétmenn sjálfír viðurkenndu,
að það hefði átt sér stað. í sovésk-
um fjölmiðlum var þá mikið
kvartað undan þessu „óðagoti" í
Finnunum.
Sovétríkin:
31 lét lífið þegar
stíflugarður brast
Moskvu. Reuter.
ÞRJÁTÍU og einn maður lét lífið