Morgunblaðið - 19.03.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 19.03.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987 39 Astandið verður ekki verst fyrstu dagana," sagði Páll Gíslason yfírlæknir á handlækn- ingadeild 1. „Við þurfum að geta sinnt bráðavöktum og þeim sjúkl- ingum sem verða lagðir inn næstu daga. Fram að mánaðamótum er hægt að kalla inn fólk í bráðatilvik- um en hvað þá tekur við veit enginn. Vandræðin munu því vaxa dag frá degi." Aðgerðir liggja niðri og bið- listar lengjast Páll sagði að hætt hefði verið við allar meiriháttar skurðaðgerðir í síðustu viku. Á meðan á verkfallinu stæði lægju allar erfíðar aðgerðir, svo sem hjartaskurðlækningar, niðri og biðlistar héldu áfram að lengjast. Þó mætti veita undanþágu til þess að gera aðgerðir þar sem líf sjúklings væri í hættu. „Það sem við berum mestan kviðboga fyrir er að uppsagnimar gangi í gildi. Maður spyr sig hvort þetta fólk komi aftur," sagði Páll. Hann sagði að læknar hlytu að styðja kröfur hjúkrunarfólks um betri laun og bindu vonir við að deilan hlyti farsælan endi. Níutíu sjúkrarúm þurfti að rýma á Landsspítalanum í gær. Tvær deildir standa auðar eftir og hluti af þeirri þriðju. Einnig vom sjúkl- ingar sendir þeim af Bamaspítala Hringsins. „Á öllum deildum eru sjúklingar sem geta ekki farið heim," sagði Anna Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri. „Við höfum því þurft að færa fólk til með tilheyr- andi raski og óþægindum. Þær deildir sem standa opnar verða mannaðar hjúkrunarfræðing- um sem ekki em með háskólapróf, auk þeirra háskólamenntuðu hjúk- mnarfræðinga sem koma til með að vinna á undanþágu. Við getum aðeins sinnt lágmarks þjónustu og vandræðin hefjast strax klukkan átta á fimmtudagsmorgun þegar Landsspítalinn á bráðavakt sjúkra- húsanna í Reykjavík." Byijað að gera áætlun um viðbrögð í janúar Anna sagði að byijað hefði verið að gera áætlun um viðbrögð í verk- faili í janúar þegar uppsagnarfrest- ur hjúkmnarstétta var framlengd- ur. I síðustu viku var hætt að gera skurðaðgerðir og ekki tekið inn af biðlistum til þess að færra yrði á deildunum þegar verkfallið hæfíst. Hún sagði að þessar áætlanir mið- uðu að því að hægt yrði að sinna allri nauðsynlegustu þjónustu fram að mánaðamótum. „Ef ekki verður búið að semja og uppsagnir taka gildi er hjúkmnarfólkið ekki lengur í starfi hér á spítalanum og hefur engum skyldum að gegna. Spitalinn yrði í raun lamaður og við það skap- ast að sjálfsögðu hættulegt ástand. Við getum bara ekki hugsað svo langt," sagði hún. Ekkert frumkvæði af hálfu ríkisins í hálft ár „Við föram öragglega í verkfall í kvöld. Ríkið hefur ekki haft neitt fmmkvæði að viðræðum við hjúk- mnarfræðinga á því hálfa ári sem liðið er síðan við sögðum upp,“ sögðu Oddfríður Jónsdóttir og Elín Guðmundsdóttir hjúkmnarfræðing- ar á handlækningadeild 1. Þær sögðu að hjúkmnarfræðingar vildu' fyrst. og fremst gmnnkaupshækkun og að gengið yrði að sérkröfum um áhættuþóknun, styrki til endur- menntunar og fleira. „Okkar starf krefst háskóla- menntunar og það þarf að meta í samræmi við það. Við miðum okkur að sjálfsögðu við hinn almenna markað og sjáum að við höfum dregist stórlega afturúr í launum undanfarin ár,“ sagði Oddfríður. Þær sögðu að hjúkmnarfræðing- ar væm famir að leita að annarri vinnu vegna uppsagnanna. Þeim biðust til dæmis hátt launuð störf hjá lyfjafyrirtækjum, eða úti á landi þar sem betra kaup og ókeypis húsnæði væri í boði. Ljóst væri að ef uppsagnir tækju gildi kæmu margir ekki aftur til starfa. „Það ríkir gífurleg samstaða í okkar hópi. Við emm hörð á því að hvika ekki fyrr en við emm búin að fá okkar LANDSPITALINN UNDIRBYR VERKFALLID „Ástandið versn- ar dag frá degi“ - sagði Páll Gíslason yfirlæknir á handlækningadeild UNNIÐ VAR að því að rýma sjúkradeildir og útskrifa þá sjúklinga sem voru nógu frískir til að fara heim þegar Morgun- blaðsmenn komu á Landsspítalann í gærdag. Hvarvetna blöstu við auðar sjúkra- stofur, táknrænar fyrir það ástand sem er á ríkisspítölunum vegna yfirvofandi verk- falls háskólamenntaðra hjúkrunarfræð- inga og sjúkraþjálfa. Viðmælendur blaðamanns sögðu útlitið svart. Komi verk- fallið til framkvæmda gæti það aðeins orðið byijunin, því hópuppsagnir heilbrigðis- stétta taka gildi um næstu mánaðamót verði ekki samið fyrir þann tíma. . 'mm jjgum „Við förum örugglega i verkfall í kvöld,“ sögðu Elín Guðmundsdóttir og Oddfríður Jónsdóttir sem eru b&ðar háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar. „Vandræðin hefjast strax á fimmtudagsmorgun- inn þegar við eigum bráðavakt," sagði Anna Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri. „Ég styð kröfur þjúkrunarfólks í einu og öllu,“ sagði Einar Baldvin Bessason. Þuriður Sæmundsdóttir sem er á 84 aldursári sagðist hafa feng- ið hjartaáfall fyrir 10 dögum. Hún var send heim i gær. Sigriður Þórarinsdóttir, Sigriður Kristinsdóttir og Kristin Guðmundsdóttir sem sátu á fundi með öðrum trúnaðarmönnum sjúkraliða á spítalanum sýna lista með nöfnum þeirra rúmlega 200 sjúkraliða sem sagt hafa upp störfum um næstu mánaðamót. Morgunblaðið/Þorkell Hinum ungu skjólstæðingum Olgu Guð- mundsdóttur og Ásdísar Steingrímsdóttur þóttu blossamir frá leifturljósi ljósmyndara blaðsins heldur óþægUegir. „Það sem við berum mestan kvíðboga fyrir er að uppsagn- imar taki gildi,“ sagði Páll Gíslason yfirlæknir handlækn- ingadeildar 1. Deildin var öll rýmd i gær vegna verkfallsins. í gegn,“ sögðu þær Oddfríður og Elín. Fékk hjartáfall fyrir 10 dög- um en er send heim Á setustofu beið Þuríður Sæ- mundsdóttir þess að sjúkrabíll flytti sig af spítalanum. Hún sagðist hafa fengið hiartaáfall að heimili sínu fyrir 10 dögum. „Maður er auðvitað hvorki í standi til þess að tala við blaðamenn eða fara heirn," sagði Þuríður sem er á 84 aldursári. „En hér sit ég - það'gerir kæmleysið," bætti hún við og brosti. Þuríður sagðist búa með dóttur sinni sem ynni í verslun allan dag- inn. Því gæti hún ekki farið heim til sín en myndi dveljast hjá tengdadóttur sinni, sem er hjúk- ranarfræðingur, fram í miðjan næsta mánuð. Hún mun þarfnast lytjagjafar og umönnunar nokkra hríð eftir áfallið. „Mér fínnst þetta algjör hneisa að hjúkmnarfólk fái ekki mann- sæmandi kaup. Þetta er krefjandi starf og þárfnast mikillar menn- tunnar. Mér finnst þau vel eiga skilið þau laun sem farið er fram 1 sagði Þuríður. Styð kröfur hjúkrunarfólks í einu og öllu Einar Baldvin Bessason beið þess einnig að halda heim á leið. Hann tók undir orð Þuríðar. „Ég bara skil þetta ekki,“ sagði Einar. „Ég styð kröfur hjúkmnarfólksins í einu og öllu og vona svo sannarlega að ríkisvaldið sjái að sér og gangi að kröfum þeirra." Einar sagðist hafa verið viðloð- andi Landsspítalann undanfama þijá áratugi. Hann er blæðari og verður því að fá svonefndan storku- þátt í blóðið þrisvar í viku. Hann hefur einnig oft dvalið á spítalanum vikum og mánuðum saman vegna sjúkdóms síns. „Ég er háður spítal- anum í einu og öllu. Án þessarar þjónustu er ég mjög hætt kominn því fái ég ekki storkuþáttinn á rétt- um tíma getur mér byijað að blæða með afdrifaríkum afleiðingum. Ég fékk mína lyfjagjöf í dag og get komið aftur á föstudaginn,“ sagði Einar. „Hvað þá tekur við veit ég ekki,_“ sagði hann. Nu stefnir allt í að um mánað- mótin taki uppsagnir rúmlega fimmhundmð sjúkraliða ríkisspítal- anna_ gildi. Olgu Guðmundsdóttur og Ásdísi Steingrímsdóttur sem starfa á Bamaspítala Hríngsins þótti fátt um viðbrögð ríkisvaldsins fram að þessu. „Málefni sjúkraliða hafa hlotið litla umfjöllun í fjölmiðl- um þótt það vofí yfír að við gögnum út um næstu mánaðamót," sagði Ásdís. „Það er hálft ár liðið síðan við sögðum upp og ekkert hefur enn gerst.“ Sjúkraliðar hafa sífellt verið að dragast afturúr Þær sögðu að álag á sjúkraliða hefði sífellt verið að aukast. Vegna lágra launa fengist fólk ekki til starfa og deildimar væm því undir- mannaðar.„Óánægja okkar er meiri vegna þess að við höfum sífellt ve- rið að dragast aftur úr hjúkmnar- fræðingum í launum undanfarin tíu ár,“ sagði Olga. „Ofan á það bætist að launin em langlægst hér í Reykjavík. Úti á landi geta yfír- borganir og hlunnindi hækkað launin um allt að helming." Trúnaðarmenn sjúkraliða á spftalanum sátu á fundi þegar Morgunblaðsmenn bar að garði og var þar farið yfír stöðu mála í kjara- deilunni. Þær sögðust hafa verið að skoða samninga Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar, en þar virtist fátt hafa verið bætt nema launin. Sjúkraliðar hefðu hinsvegar farið fram á að hafa jafnan rétt til dagvistarrýmis og hjúkmnarfræð- ingar, auk þess sem að þeim verði greiddir þrír tímar aukalega fyrir útköll eins og þeim. Þetta væra einföld réttindi sem þyrftu að nást í gegn. Yfir 200 sjúkraliðar tilbúnir að ganga út „Lágmarkslaun okkar em nú þau lægstu í landinu eða 27.000 krón- ur, en hæstu laun eftir 18 ára starf 34.000 krónur. Okkar kröfur em í raun ákaflega hógværar, við fömm fram á 35.000 krónu grannlaun," sagði Sigríður Kristinsdóttir. Trúnaðarmennimir lýstu yfír furðu sinni á því að ríkisvaldið hefði ekki sýnt neinn samningsvilja þótt hálft ár væri liðið frá hópuppsögn- um sjúkraliða. „Hér á spítalanum em yfír 200 sjúkraliðar sem sagt hafa upp störfum. Við könnuðum hug fólks til uppsagnanna í dag og það var engin uppgjöf í liðinu. Okk- ur er ekki að sjálfsögðu ekki ljúft að ganga úr störfum okkar og vitum mjög vel að það mun koma harðast niður á sjúklingum. En önnur leið virðist ekki fær,“ sögðu talsmenn þeirra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.