Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 Varnarmálaráðherrar NATO: Samstarf um þróun og smíði venjulegra vopna Brilssel. Reuter. V arnarmálaráðherrar NATO samþykktu á fundi sínum f Briissel í gær að hefja nánara samstarf um þróun og Gorbatsjov í sjón- varpsviðtali vestra: Mannréttinda- samtök reiðast New York, Reuter. UMMÆLI Michaels Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, f sjón- varpsviðtali f Bandaríkjunum á mánudag þar sem hann gaf f skyn að Bandarfkjamenn væru að reyna að skipuleggja „atgjör- visflótta“ frá Sovétríkjunum, vöktu reiði sovéskra flóttamanna f Bandaríkjunum, gyðingasam- taka og mannréttindasamtaka. Morris Abram, formaður sam- taka sovéskra gyðinga í Banda- ríkjunum, sagði staðhæfingu Gorbatsjovs vafasaman málflutn- ing, sem enginn sovéskur leiðtogi hefði látið sér til hugar koma að bera á borð. Jiri Pehe, sérfræðingur um mál- efni Sovétríkjanna, starfar innan mannréttindahreyfingar, sagði það af og frá að taía um „atgjörvis- flótta" þar sem iítill hluti þeirra sem sækja um að fara frá Sovétríkjun- um eru háskólamenntaðir. „Þetta er ekki raunveruleg ástæða þess að sovésk yfírvöld vilja ekki að fólk fari úr landi," sagði Pehe. smfði hefðbundinna vopna. Luku ráðherrarnir fundi sínum með þvf að lýsa yfir stuðningi við samkomulag risaveldanna um útrýmingu meðaldrægra kjarnaflauga. Skoruðu þeir á Oldungadeild Bandaríkjaþings að staðfesta það. í tilkynningu, sem gefín var út í fundarlok sagði, að á næsta ári myndu NATO-ríkin hrinda í fram- kvæmd áætlun, sem gerði ríkjun- um kleift að eiga náið samstarf á sviði rannsókna, hönnunar og smíði hefðbundinna vopna. Ætti þetta fyrirkomulag að bæta áætla- nagerð á sviði vamarmála. Ráðherramir fögnuðu þeim ár- angri, sem orðið hefði að þeirra sögn í viðræðum í Vín um meiri jöfnuð í hefðbundnum herafla í Evrópu, en á því sviði hafa Var- sjárbandalagsríkin yfírburði á NATO-ríkin. í fyrradag sögðust Bandaríkjamenn hafa í undirbún- ingi tillögur um veralega fækkun venjulegra vopna í Evrópu og að þeir myndu leita eftir stuðningi annarra NATO-rílg'a við þær áður en tillögumar yrðu lagðar fyrir Sovétmenn. Ættingjar farþeganna sem voru um borð f suður-Kóresku flugvelinni sem fórst yfir Burma á sunnudag bíða milli vonar og ótta á flugvellinum í Seoul Japanskt par grunað um aðild að flugslysinu yfir Burma: Beðið eftir að konan komi til meðvitundar Böndin berast að norður-kóreskum njósnahring Bahrain og Tókíó, Reuter. HERMENN með alvæpni gættu f gær konunnar, sem talin er kunna skýringar á hvarfi suður- kóreskrar farþegaþotu um helgina. Hún liggur nú meðvit- undarlaus á sjúkrahúsi f Bahrain eftir að hafa reynt að fremja sjálfsmorð ásamt fylgdarmanni sínum á flugvellinum þar. Hon- um tókst ætlunarverk sitt. Konan er talin ná sér fljótlega, en þangað til bíða embættismenn Skýringa leitað á niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu í Póllandi: „Pólverjar eru svo óvanir leynilegnm kosningnma Varsjá, Reuter. STJÓRNVÖLD f Póllandi segja að þau muni halda fast við áformaðar efnahagsaðgerðir Og pólitískar tilslakanir þrátt fyrir niðurstöðuna f þjóðarat- kvæðagreiðslunni á sunnudag. Þá voru einungis 44.28% kjós- enda hlynnt efnahagsaðgerð- unum og aðeins fleiri eða 46.29% studdu pólitísku tilslak- animar. Þessi niðurstaða kom mjög á óvart og er nú leitað ýmissa skýringa á henni. „Pólska stjómin gæti hafa tap- að kosningunni vegna þess að sumir kjósendur greiddu atkvæði vitlaust fyrir mistök," segir Albin Kania sem sér um skoðanakann- anir fyrir pólska sjónvarpið. Spumingin á kjörseðlinum var þannig orðuð að menn áttu að merkja við „nei“ ef þeir væra hlynntir tillögum stjómarinnar. Jerzy Urban talsmaður stjómar- innar viðurkenndi á mánudag að þessi háttur væri raglandi. í öðra lagi benti Kania á að Pólveijar „era svo óvanir leynileg- um kosningum, þeir gerðu mistök bak við tjöldin". Hann bætti við að líklega hefðu þeir raglast í ríminu við það að þurfa nú að fara inn í kjörklefa. Aðspurður um hvers vegna skoðanakönnun sjónvarpsins sem gerð var fyrir kosningamar hefði verið svo §arri lagi en hún spáði stíóminni meirihluta sagði Kania: „Eg myndi vilja kalla það „lottó- áhrif": milljónir manna era vanar að velja númer með því að merkja við það“. Einnig hefði ein milljón kjósenda skilað auðu á sunnudag- inn. Fram til þessa hefur auður atkvæðaseðill í kosningum þar sem einungis er kosið um einn mann verið túlkaður sem stuðn- ingur við frambjóðandann. Ef menn vildu lýsa óánægju með frambjóðandann þá var til siðs að rífa kjörseðilinn eða skila auðu umslagi. Stjómin var svo viss í sinni sök að nokkur dagblöð höfðu skrifað fregnir af kosningunni áður en úrslit lágu fyrir. Til dæmis birti Express Wieczomy flennifyrir- sögn á mánudag sem hljóðaði svo: „Við höfum valið þróun í landi okkar“. Kjörstjóm á vegum ríkisstjóm- arínnar fundaði klukkustundum saman eftir að úrslit lágu fyrir. Jerzy Urban las svo tilkynningu hennar fyrir fréttamenn á mánu- dagskvöld: „Það er enginn ljóður á áætlunum stjómvalda að lög- lega bindandi meirihluti náðist ekki við þessar aðstæður. Mikil- vægt er að mikill meirihluti kjósenda sýndi áætlununum vel- vilja sinn.“ Hann bætti við að stjómin myndi ekki hækka verð á vöram og þjónustu eins mikið og áformað var fyrir atkvæða- greiðsluna. þess að geta yfirheyrt hana. Hún mun þó vera mjög veikburða og er ennþá í öndunarvél. Konan og maðurinn, sem var kominn af léttasta skeiði, létu sem þar væra feðgin á ferð, en þau höfðu fölsuð japönsk vegabréf und- ir höndum. Þau vora stöðvuð á flugvellinum í Bahrain á þriðjudag þar sem þau hugðust taka flugvél til Rómar. Skötuhjúin fengu sér þá sígarettu. í þeim var falið blásýra- hylki sem þau tuggðu með fyrr- greindu afleiðingum. Parið var um borð í suður-kór- esku flugvélinni, sem hvarf ásamt 115 farþegum hennar á sunnudag, en fór úr henni þegar vélinni var millilent í Abu Dhabi. Þaðan hélt vélin áleiðis til Bangkok, en hún hvarf yfír Burma. Starfsmenn suð- ur-kóreska flugfélagsins halda að spengju hafí verið komið fyrir um borð í vélinni en engar leifar henn- ar hafa enn fundist. Talsmenn suður-kóreska flugfélagsins í Bag- dað sögðu að parið hefði komið frá Belgrad og eytt einungis þremur stundum í flughöfninni í Bagdað áður en þau stigu upp í vélina til Abu Dhabi. Japanskir embættismenn hafa beðið yfirvöld í Bahrain um fingra- för parsins svo unnt verði að komast að því hver þau raunveralega séu. Japanskir Qölmiðlar segja að þau kunni að tengjast norður-kóreskum njósnahring sem komst upp um í Japan árið 1985. Varaformaður samtaka kóreskra innflytjenda í Japan, Pak Zae-ro, segir þetta fjar- stæðu og sakaði stjómvöld í Suður-Kóreu og forsetaframbjóð- anda þeirra Roh Tae-woo um að hafa valdið hvarfi vélarinnar. „Roh Tae-woo er í erfíðri stöðu í forseta- kosningabaráttunni. Orðrómur hefur verið á kreiki um að hann myndi valda einhveiju Qaðrafoki meðal fólksins til að fá betri vígstöðu," sagði Pak Zae-ro. Tals- maður Rohs segir að ekki sé orðum eyðandi á þessar fullyrðingar Paks. Israelar seldu Irönum mikið af skotfærum Stokkhólmi og Belgrad. Reuter. ÍSRAELAR seldu írönum vopn og skotfæri fyrir milljónir dollara á árunum frá 1984-86 með aðstoð sænsks milligöngumanns, að þvi er fram kemur í skjölum, sem tollgæslan í Sviþjóð hefur undir höndum. Sænskir tollverðir fundu þúsundir skjala í skyndileit, sem þeir gerðu nokkrum sinnum á áranum 1984-86 á skrifstofum Karls-Eriks Schmitz, forstjóra fyrirtækisins Scandinavian Commodity í Málmey. Schmitz hefur verið ákærður fyrir vopnasmygl. Hann hefur viðurkennt að hafa út- vegað írönum vopn, en segir, að það hafí verið gert á löglegan hátt. í einu af skjölunum, sem fundust á skrifstofum Schmitz, kemur fram, að ísraelska ríkisfyrirtækið Israel Military Industries hafí selt írönum vopn fyrir 42 milljónir dollara á fyrr- nefndu árabili. ísraelar neita að hafa selt þeim vopn nema með vitund og vilja Bandaríkjanna. Samkvæmt skjalinu voru vopnin send til júgó- slavnesku borgarinnar Bar, áður en þeim var komið með leynd til írans. Þessu neita Júgóslavar og segja, að staðhæfíng sænsku tollgæslunnar sé alröng. JÓLABINGÓ Verðmæti vinninganna er- 750 ÞÚSUND KRÓNUR -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.