Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 75 HANDKNATTLEIKUR / LOTTÓ-MÓTIÐ Markvörður Júgó- slava varði 27 skot! íslendingar betri aðilinn í 1yrri hálfleik en Júgóslavar nýttu sér mistök þeirra í þeim seinni — skoruðu þá úr hverju hraðaupphlaupinu af öðru ÍSLENDINGAR töpuðu fyrsta leik sínum á Lottó-mótinu í Noregi stórt í gœrkvöldi. Mœttu þá heims- og ólympíu- meisturum Júgóslava, sem sigruðu 24:17. Staðan íhálfleik yar 10:10 og höfðu íslendingar þá leikið vel, haft yfirhöndina lengst, en frábœr markvarsla Júgóslavans Velic og klaufar íslensku strákanna komið í veg fyrir að ísland hefði örugga forystu. Síðari hálfleikurinn var svo „ömurlegur" svo vitnaði sé í Þorgils Ottar Mathiesen, fyrirliða. Ifyrri hálfleiknum stóðu íslend- ingar sig vel, voru mun betri en Júgóslavar. Leikurinn var mjög hraður, sóknarleikur íslenska liðsins giBBII fjölbreyttur, en upp- FráJóni lögð færi fóru Óttari forgörðum hvað eft- Karissyni ;r. Vömin náði sér iNoregi vel á strik og var vel á verði og Einar var traustur í markinu. í seinni hálfleik gekk svo hvorki né rak. Geir skoraði 11. markið strax í upphafi, en síðan gerði íslenska liðið ekki mark í tíu mínút- ur. Staðan breyttist þá í 11:16. Liðið náði síðan að rétta úr kútnum á tímabili en aftur seig á ógæfuhlið- ina. íslendingar klúðruðu dauða- Páll Ólafsson var markahæstur íslendinganna í gær. færum hvað eftir annað — Júgóslavar nýttu sér það til hins ýtrasta með því að skora hvert markið af öðru úr hraðaupphlaup- um. Markvörður Júgóslavanna, Ermin Velic, lék frábærlega í gær. Hann varði 27 skot þannig að lið hans náði boltanum, sem er ótrúlegt. Hann varði 13 skot af línu og 2 víti! Þorgils Óttar var að vonum ekki hress eftir leikinn. „Fyrri hálfleik- urinn þolanlegur en við klúðruð- um samt allt of mörgum færum. Seinni hálfleikur var ömurlegur. Úrslitin urðu ekki svona fyrir það hve Júgóslavarnir spiluðu vel, heldur hve illa við spiluðum. Við vorum áhugalausir og náðum ekki að einbeita okkur. Ég veit ekki hvað skal segja eftir svona leik; ég er er orðlaus,“ sagði landsliðsfyrirliðinn. Það eina sem Einar Þorvarðarson markvörður gat sagt á eftir var: „Þetta gat ekki verið lélegra". Það var greinilegt í þessum leik hve mikilvægur hlekkur Kristján Ara- son er í landsliðinu. Allir vita hve gífurlega sterkur hann getur verið í sókninni, en í vamarleiknum er hann ætíð sem klettur og var sárt saknað. Einnig var ljóst að fjarvera Alfreðs Gíslasonar hafði sitt að segja. Guðmundur Guðmundsson lék sinn 150. landsleik í gær og fékk blóm- vönd áður en viðureignin hófst. „Þetta var gott í fyrri hálfleik og þá áttum við að gera út um leikinn. Við réðum ferðinni allan tímann, en náðum ekki að nýta færin nógu vel. í seinni hálfleik Ísland-Júgósl. . 17:24 Lottó keppnin, Ringerikshallen í Höne- foss, miövikudaginn 2. desember 1987. Gangur leiksina: 1:0, 5:5, 7:7, 9:8, 9:10, 10:10, 11:11, 11:16, 13:16, 14:17, 16:20, 17:23, 17:24. Mörk íslands: Páll ólafsson 4, Valdi- mar Grímsson 2, Sigurður Gunnarsson 2, Guðmundur Guðmundsson 2, Geir Sveinsson 2, Sigurður Sveinsson 2, Atli Hilmarsson 2, Jakob Sigurðsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 9. Samtals útaf: 4 mínútur. Mörk Júgóslavfu: Zlatko Portner 7, Goran Perkovac 5, Jovica Cvetkovic 3, Mirzet Uzeirovic 3, Josef Holpert 2, Boris Jarak 2, Slobodan Kuzmanow- ski 1, Irfan Smajlagic 1. Varin skot: Ermin Velic 27. Samtals útaf: 6 mínútur. Áhorfendur: 300. Dómarar: Olsen og Walstad frá Nor- egi og stóðus sig vel. gekk ekkert upp, og við gáfum Júgóslövunum möguleika á hrað- aupphlaupum. Það skipti sköp- um, þannig náðu þeir að sigla fram úr.“ íslendingar mæta ísraelsmönnum í kvöld á mótinu og ættu að sigra þá auðyeldlega. Svisslendingar sigruðu ísraelsmenn 26:13 í gær- kvöldi og þá töpuðu Norðmenn 21:23 fyrir Hollendingum. Kristján Arason. Kristján Arason í Saudi Arabíu % Kristján Arason og félagar í Gummersbach eru nú staddir í Saudi-Arabíu, þar sem liðið leik- ur einn vináttuleik. Liðið verður komið aftur til Þýskalands í tæka tíð til þess að Kristján komist til Noregs á morgun. Þeir verða sam- ferða, hann og Alfreð Gíslason, og leika því þijá síðustu leiki ís- lands í Lotto Pólar keppninni. Alfreð hefur legið í flensu í nokkra tl daga og æfði ekki með Essen f gær, en sagðist í gærkvöldi ör- ugglega verða orðinn hress á morgun. 1.DEILD KVENNA Stjaman vann Hauka óvænt Liðið hefur ekki tapað leik síðan Erla Rafnsdóttir meiddist TVEIR leikir fóru fram í 1. deild kvenna í gærkvöldi. FH vann öruggan sigur á Vfking 22:14 og Stjarnan sigraði Hauka með 20 mörkumgegn 18. Sigur FH á Viking var aldrei í hættu. FH-stúlkumar höfðu yfirhöndina allan leikinn. Staðan í leikhléi var 10:7 fyrir FH. BBBi í seinni hálfleik Katrín keýrði FH-liðið upp Friðríksen hraðann og þegar skrífar Upp var staðið var munurinn 8 mörk. Leikurinn endaði sem fyrr segir 22:14. Mðrk Vfkings: Inga Þórisdóttir 6/4, Eirfka Ásgrfmsdóttir og Valdls Birgisdóttir 3 mörk hvor, Svava Baldvinsdóttir og Jóna Bjama- dóttir eitt mark hvor. Mörk PH: Kristín Pétursdóttir 5, Eva Bald- ursdóttir og Hildur Harðardóttir 4 mörk hvor, Inga Einarsdóttir 3, Heiða Einars- dóttir 2, Rut Baidursdóttir 2/1, Berglind Hreinsdóttir og Helga Sigurðardóttir eitt mark hvor. Haukar - Stjaman 18:20 Ungu Stömumar héldu áfram sig- urgöngu sinni þegar þær unnu góðan sigur á Haukum í gær. Leik- urinn endaði 20:18 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 11:10 fyrir Stjömunni. Lokamínútumar vom æsispenn- andi. Þegar 3 mínútur vom eftir var Herdísi Sigurbergsdóttir Stjöm- ustúlku vikið af leiksvelli. Haukar fengu víti og þar með tækifæri til þess að jafna metin 19:19, en Fjóla Þórisdóttir markmaður gerði sér lítið fyrir og varði glæsilega frá Margréti Theódórsdóttur. Herdís skoraði síðan lokamark leiksins á síðustu sekúndunum, þegar hún kom aftur inn á. Mörk Hauka: Margrét Theeódórsdóttir 9/6, Steinunn Þorateinsdóttir 4, Elva Guð- mundsóttir og Halldóra Mathiesen 2 mörk hvor og Ragnheiður Júlfusdóttir eitt mark. Mörk Stjörminnar: Ragnheiður Stephens- en 8/5, Herdfs Sigurbergsdottir og Drffa Gunnaredottir 4 hvor, Guðný Gunnsteins- dóttir 2, Hrund Grétarsdóttir og Ingibjörg Andrésdóttir eitt mark hvor. 1. deild kvenna Haukar - Stjarnan 18:20 Víkingur - FH 14:22 Fj.lalkja u J T Mörtc Stls Fram 7 6 1 0 150: 96 13 FH 8 6 0 2 158: 114 12 Valur 7 5 0 2 132: 101 10 Stjaman 8 5 0 3 174: 155 10 Haukar 8 3 1 4 157: 140 7 Vikingur 8 3 0 5 151: 149 6 KR 7 1 0 6 94: 165 2 Þróttur 7 0 0 7 98: 194 0 KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNIN Markalaust jafn- tefli Skota og Lúxemborgara SKOTAR gerðu markalaust jafntefli við Luxemborgara í 7. riðli Evrópukeppnl lands- llða í knattspyrnu í Luxem- borg í gærkvöldi. í 8. riðli sömu keppni sigruðu Ung- verjar Kýpurbýua 1:0. Keppni í 7. riðli er nú lokið, og er lokastaðan þannig: írland.........8 4 8 1 10:5 11 Búlgarfa.......8 4 2 2 12:6 10 Belgfa..........8 3 3 2 16:8 9 Skotland........8 3 3 2 7:5 9 Lúxemborg.......8 0 1 7 2:28 1 Tveir leikir em eftir í 5. riðli. Staðan er þannig eftir leikinn Holland.........6 4 2 0 8:1 10 Grikkland......7 4 1 2 12:10 9 Ungvetjaland...8 4 0 4 13:11 8 Pólland.........8 3 2 3 9:11 8 Kýpur...........7 0 1 6 3:12 1 Holland og Kýpur leika 9. des- ember og Grikkir fá Hollendinga í heimsókn 12. desember. Roy Altken, einn skosku leik- mannanna, í baráttu um knöttinn við Carlo Weis (4) í liði Lúxem- borgar. Aitken og félagar höfðu ekki erindi sem erfiði 1 leiknum. HANDBOLTI ísland mætir Noregr fkvökl j KVÖLD verður fyrsti lelkur íslenska landsliðsins skipuðum leikmönnum 21 árs og yngri á heimsmeistaramótinu f Júgó- slavíu. Islendingar mæta Norðmönnum í kvöld. Friðrik Guðmundsson, fararstjóri, sagði íslendinga hæfi- legja bjartsýna fyrir viðureignina. „Þetta er liðið sem sló okkur út iþt keppninni upphaflega, en nú eí stund hefndarinnar mnnin upp. Þeir hafa að vísu haft betri tíma til undirbúnings, en við vonum það besta," sagði Friðrik í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. íslend- ingum var boðin þátttaka á mótinu fyrir skömmu, eftir að Argentlnu- menn afboðuðu komu sína. KNATTSPYRNA / ÍTALÍA Juventus missti tvö stig ÍTALSKA liðið Juventus missti í gær tvö stig f 1. deildarkeppn inni þarflandi. Liðið sigraði Cesena 2:1 á dög- unum en úrslitum leiksins var í gær breytt í 2:0 Cesena í hag, sem hlýtur því stigin. Ástæðan er sú að einn leikmanna Ceseana, Darie Sanguin, fékk flugeld í höfuðið og meiddist, er hann gekk af velli í leikhléi. Juventus var einnig dæmt til að greiða andvirði tæplega 600.000 íslenskra króna í sekt. Ju- ventus dettur niður í 5. sæti við þetta, hefur 12 stig. Cesena færist hins vegar úr 3. neðsta sæti í það 10. Liðið hefur 9 stig.» '■■r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.