Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 a ' Metsölubók Kauöur Stormur eftir Tom Clancy Bókin segir frá “þriðju heimsstyrjöldinni“. Aðalátökin eru milli. Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Stór hluti bókarinnar gerist á íslandi. Rauður stormur hefur trónað á metsölulistum \bók í dag fímmtudaginn 3. desember verður 75 ára heiðursmaðurinn Sig- urfínnur Einarsson í Fagradal, Vestmannaeyjum. Með þessum fáu orðum langar mig til að óska þessum góða vini mínum til hamingju með daginn. Hann á það svo sannarlega skilið fyrir vináttu við mig og mína allt frá þvi á unglingsárum mínum til dagsins í dag. Sigurfínnur er fædd- ur á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaftafellssýslu, og voru foreldr- ar hans hjónin Gíslrún Sigurbergs- dóttir og Einar Sigurfínnsson. Finnur á tvo bræður, Sigurbjöm biskup og Guðmund garðyrkju- bónda í Hveragerði. Finnur hefur komið nálægt ýmsu um ævina og unnið bæði við land- búnað og sjávarútveg. Hann er fæddur í sveit og fram á fullorðins- ár var hann meira og minna í sveitinni. Hann missti móður sína bamungur og flutti þá til Reykjavíkur með foður sínum, en eftir fermingu fór Finnur í sveitina og var fljótlega sendur á vertíð í Þorlákshöfn. Frá árinu 1929 og næstu 10 árin á eftir er Finnur hjá föður sínum á sumrin á Iðu í Bisk- upstungum, en sótti á vertíð til Vestmannaeyja eins og algengt var með ungt fólk af Suðurlandi. Og það varð með Finn eins og svo margt gott fólk, sem kom hingað til Eyja á vertíð, að hann settist hér að. Hér fann Finnur góðan lífsföru- naut og kvæntist árið 1941 Önnu Sigurðardóttur sem ættuð er úr Eyjum. Það var mikið gæfuspor. Það var almannarómur að þar fóru glæsileg hjón þar sem Finnur og Anna fóru. Árið 1941 keypti Finnur Svefnvokar ajungiIaJk. Skátabúðin selur hina heims- . þekktu Ajungilak svefnpoka, en Ajungilak er einn stærsti svefn- pokaframleiðandi í heimi. Við hjá Skátabúðinni aðstoðum við val á þeim poka er hentar þínum þörfum. Okkar ráðlegg- ingar eru byggðar á reynslu. Skátabúðin — skarar framúr. SKÁTABÚÐIN Snorrabraut 60 sími 12045 BIFREIÐASMIÐJA BIFREIÐA- OG VÉLAVERKSTÆÐI SÍMi 95-6119 - 560 VARMAHLÍÐ - SKAGAFJÖRÐUR Bitreiðasmiðja Bílaréttingar: Réttum allar gerðir bíla. Jafnt lítil sem stór tjón. Höfum góðan verktærakost fyrir erfið verkefni. Bílayfirbyggingar og klæðningar: Byggjum yfir allar gerðir Pickup og • 4 ^ ^ fólksflutningabíla. ______ Klæðum allar gerðir bíla: Fólksbíla, jeppa, fólksflutningabíla. Bræðum dúka í bíla. Bflagler: Skerum gler í bíla og vinnuvélar. Bifreiðamálun Almálum allar gerðir bíla - blettum bíla - skreytum bíla ATH.: Fullkominn sprautuklefi með yfirþrýstingi og þurrkun. Tökum stóra sendibíla í klefann. Autolack-Systeme Lögum liti á allar bílategundir. í samráði við Remaco hf. höfum við tekið í notkun lakkbar frá þeim. Öll undirefni og lökk Fagradal við Bárustíg og átti þar heimili í meira en aldarfjórðung og var Finnur jafnan kenndur við Fagradal. Anna og Finnur eignuð- ust þijú böm en þau em: Einar, sendibflstjóri hjá Vömsölu SÍS í Vestmannaeyjum. Hann er ókvænt- ur og á tvo syni. Sigurfínnur er kennari og myndlistarmaður í Eyj- um, kvæntur Þorbjörgu Júlíusdótt- ur og eiga þau þrjú böm. Yngst er Þorbjörg, húsmóðir í Eyjum, gift Viðari Sigurbjömssyni og eiga þau þijú böm. Anna og Finnur fluttu að Hásteinsvegi 55 árið 1960, en eftir gos var heimili þeirra að Faxa- stíg 35. Finnur var sjómaður frá 1939 til ársins 1955. Lengst var hann á vb. Lunda með Þorgeiri Jóelssyni og einnig um árabil með Eyjólfi for- manni frá Búastöðum. A sumrin vann Finnur í landi. Árið 1955 varð hann fyrir slysi þar sem hann var við vinnu við byggingu Naustham- arsbryggju og slasaðist Finnur á fótum og var frá vinnu mánuðum saman. Það var þáttur í lækningu og þjálfun að Finnur átti að vera duglegur að ganga og eitt sinn er hann var á gangi við höfnina þá kallar Siguijón Auðunsson verk- stjóri (Siggi Auðuns) í ísfélagi Vestmannaeyja til hans og segir að fyrst hann geti verið þetta á röltinu þá geti hann eins komið til sín 0g séð um að brýna fyrir stúlk- umar. Þetta var tilboð sem Finnur hvorki gat né vildi hafna og var þetta upphaf að farsælu starfí hans hjá ísfélaginu, en þar átti hann eftir að vera lengi og una sér vel. Alla tíð bar hann mikla virðingu fyrir Sigga Auðuns og var honum þakklátur. Eins og þeir vita sem þekkja Finn þá er hann lífsglaður og hæfileikarfkur og það átti ekki við hann að sitja hjá og brýna hnífa og það leið ekki á löngu þar til Finnur var orðinn aðstoðarverk- stjóri hjá Sigga Auðuns og var í verkahring hans að líta eftir hjá stúlkunum og það átti vel við Finn. Menn sáu og fundu að Finnur var góður starfskraftur og árið 1962 var hann sendur á vegum ísfélags- ins til Reykjavíkur á Fiskmatsskól- ann sem stóð í 3 mánuði. Með hægð og Ijúfmennsku stjómaði Finnur og náði meiri árangri en margur sem voru háværari og með gassaskap. Finnur er þannig maður að hann kallar fram það besta í hveijum manni. Finnur, eins og aðrir Vestmann- eyingar, varð að yfírgefa kæra Fáskrúðsfj örður: Línuveiðar hafnar Fáskrúðsfirði. VÉLSKIPIÐ Guðmundur Krist- inn hefur hafið róðra með línu frá Fáskrúðsfirði. Síðastliðinn þriðjudag, kom hann úr fyrsta róðrinum með um 13 lestir af mjög fallegum þorski á 80 linur. Hugmyndin er að Guðmundur Kristinn afli fyrir erlendan markað og verður hann trúlega fljótur að því, þegar svona vel gengur. Vél- skipið Þorri landaði síðustu sfldinni sinni f dag og verður hún frystuð til beitu. Það er ætlunin að hann hefji einnig línuróðra. Frá því í byijun nóvembermánaðar hafa margir opnir bátar stundað neta- veiðar á Pollinum og hefur aflinn hjá þeim verið alveg sæmiiegur og stundum mjög góður. Mönnum fínnst dálítið undarlegt ef á að fara að banna netaveiðar þessara litlu báta innanQarðar vegna þess að það sé nú allt í einu orðið hættulegt. - Albert Afmæliskveðja: Sigurfiiinur Einars- son, Fagradal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.