Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 27

Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989 27 Hermálanefiid NATO: Norskur herforingi kjörinn formaður VIGLEIK Eide, hershöfðingi og yfirmaður herafla Noregs, hefur verið kjörinn formaður hermálanefiidar Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í stað Wolfgangs Altenburgs firá Vestur-Þýskalandi. Eide mun taka við formannsstöðunni i september. Vigleik Eide er 55 ára gamall og kom val hans nokkuð á óvart, að sögn heimildarmanna í höfuð- stöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Almennt hafði verið búist við því að ítalski flotaforing- inn Marío Porta yrði fyrir valinu. Sir John Fieldhouse, fyrrum for- seti breska herráðsins, baðst und- an kjöri af heilsufarsástæðum en hann var einnig talinn eiga góða möguleika. Vigleik Eide var kjörinn for- maður nefndarinnar með öllum greiddum atkvæðum. Hann var yfírmaður herafla Atlantshafs- bandalagsins í Norður-Noregi frá 1986 til 1987. Að auki hefur hann gegnt ijölmörgum ábyrgðarstöð- um innan norska hersins en feril sinn hóf hann í fótgönguliðinu. Hann stundaði nám í háskóla hersins í Hamborg í Vestur- Þýskalandi og í vamarmálaskóla Atlantshafsbandalagsins f Róm á Ítalíu auk þess sem hann hefur sótt námskeið í stjómun og skipu- lagi landvama í Bandaríkjunum. Formaður hermálanefndarinn- ar er kjörinn til þriggja ára í senn. Vigleik Eide. Hermálanefndin gerir tillögur um ráðstafanir er þykja nauðsynlegar í þágu sameiginlegra vama aðild- arrílgá Atlantshafsbandalagsins og era þær lagðar fyrir Atlants- hafsráðið, sem er æðsti vettvang- ur ákvarðana og ráðuneytis hjá bandalaginu og Nefndina um vamaráætlanir. Formaðurinn stjómar daglegum störfum nefnd- arinnar og kemur fram sem mál- svari hennar. Þá er hann fulltrúi nefndarinnar á fundum Atlants- hafsráðsins auk þess sem undir hann heyra ýmsar hemaðarstofn- anir Atlantshafsbandalagsins. Heimild:/ane’s Defence We- ekly. Norðursjorinn: Minni hætta á mengunarslysi Staíangxi. Reuter. TALSMENN norska olíufyrirtækisins Saga Petroleum segja, að hættan á að öryggisloki við einn oliubrunn félagsins bresti fari minnk- andi og kveðast þeir þess fullvissir, að búið verði að koma öðrum fyrir í vikulok. Olíubrannurinn, sem er á Eko- físksvæðinu, er nærri fimm km djúpur og olían og gasið undir mikl- um þrýstingi. Lá við, að illa færi sl. föstudag en þá tókst þó að loka branninum með öiyggisloka. Síðan hafa menn óttast, að lokinn þyldi ekki þrýstinginn með þeim afleið- ingum, að allt að 50.000 olíuföt streymdu út í Norðursjóinn dag- lega. Talsmenn félagsins segja, að nú sé mesta hættan liðin hjá og verði það ekki neinum vandkvæðum bundið að ganga tryggilega frá branninum með öðram loka. Þiýstingurinn í branninum hefur ekki aukist og er nú 10.000 pund á ferþumlung en lokinn þolir 15.000 punda þiýsting. • t T0LVUNAMSKEH) Sækið námskeið hjá traustum aðila Haldin verða á næstunni eftirfarandi námskeið: Námskeið Dagsetning Grunnnámskeið í einkatölvum......28.-29. janúar WordPerfect (Orðsnilld) - byrjun.4.-5. febrúar WordPerfect (Orðsnilld) - framhald.11 --12. febrúar Multiplan - töflureiknir.......11.-12. febrúar Ópus - fjárhags- og viðskiptamannabókhald.18.-19. febrúar dBase IV - gagnagrunnur........25.-26. febrúar Öll tölvunámskeiðin eru um helgar og byrja kh 10.00 árdegis. Ýmis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku. Skráning og frekari upplýsingar: Sími 91-688400. Verzlunarskóli íslands Það eru ekki allir svo heppnir - eða eigum við að segja lánsamir - að finna hvergi til í skrokknum, þegar þeir eru komnir á miðjan aldur, og flest okkar finnum greinilegan mun á vellíðan þann og þann daginn þegar við höfum sofið vel. Það er að segja - sofið í einum dúr frá kvöldi til morguns. WkSlannslíkaminn er undursamleg „vél“, er virðist þola sitt af hverju sem við leggjum á hana tímabundið, hvort sem það heit- ir skortur, t.d. (strangur megrunarkúr), mikið erfði eða ofát. Og við misbjóðum þessari vél nánast á hveijum degi á einhvern hátt. |itt er þó alveg víst. Mannslíkaminn þolir ekki, hvort sem það er í stuttan tíma eða til lengdar, að vera án nauðsynlegrar hvíldar - fá ekki nægan svefn. Hvort sem það er barn eða gamal- menni, æsku- eða hreystiskrokkur, þá kemur strax í ljós ýmiskon- ar vanlíðan, ef á svefninn vantar. Bfflm þetta þarf ekki að fjölyrða. Þetta vita allir. En hvað veldur óværnm - slæmum - svefni? Jú, við vitum að það er ekki gott að kýla vömbina áður en við förum í háttinn, þamba kaffi, að fara upp í rúm með áhyggjur sínar af morgundeginum eða liggja á einhverju svo hörðu eða mjúku, að eðlileg blóðrás líkamans hindrist. EcJinir fornu Rómverjar sögðu: Besta krydd matar er svengd- in. Eins er hægt að segja að besta svefnmeðalið sé notaleg þreyta. En því miður, notaleg þreyta er ekki nóg til þess að þú sofir vel - EFDÝNAN ÞÍN ER VOND DÝNA. Uið getum ekki ráðlagt þér hvaða dýna er best fyrir þig. Það er svo einstaklingsbundið hvað hentar hverjum. Þess vegna bjóðum við upp á í verslun okkar nokkra tugi dýnugerða og ótak- markaðan skiptirétt þangað til þú finnur dýnuna sem þú sefur vel á. Þetta kostar þig ekki neitt - VIÐ SKIPTUM UM DÝNUR ÞANGAÐ TIL ÞU ERT ÁNÆGÐ(UR). EÍJvernig væri að byrja á því að prófa dýrustu fjaðradýnuna sem hægt er að kaupa á Islandi - Lux-Ultraflex dýnuna okkar frá Scapa verksmiðjunum í Svíþjóð? Stífa dýnu eða mjúka Lux- Ultraflex dýnu? Hún kostar að vísu 28.900,- í stærðinni 90x200 cm, en verðið gleymist fljótt ef þú verður ánægð(ur). Þeir, sem eru undir þrítugsaldri eða mjög léttir, ættu hugsanlega frekar að byija á að prófa Lux-Komfort fjaðradýnuna okkar frá Scapa, sem kostar 10.620,- í sömu stærð. LUX ULTRAFLEX Fjaðradýna, stífeð mjúk, með tvöfalt fjaðrakerfii tréramma. í efri fjaðramottunni eru 240 LFK fjaðrirá fermetra og í neðri mottunni 130Bonell fjaðrirá fermetra. Dýnunni fylgir þvottekta yfirdýna. Krónur 28.900,- íi Húsgagna-lwllin REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.