Morgunblaðið - 26.01.1989, Page 42

Morgunblaðið - 26.01.1989, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989 Stiörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Meyja og Steingeit Meyja (23. ágúst — 23. sept- ember) og Steingeit (22. des- ember — 20. janúar) eru lík merki, enda tvö jarðarmerki, og eiga því að geta átt ágæt- lega saman. Einkennandi fyr- ir samband þeirra er áhersla á hagnýt mál, á vinnu og al- mennt það að koma sér vel fyrir I tilverunni. Samband þeirra einkennist af töluverðri alvöru og raunsæi. Alvara og raunsœi Bæði þessi merki þurfa ör- yggi, vilja hafa fætuma fasta á jörðinni og fást við mál sem eru skynsamleg og uppbyggj- andi. Ef þau vinna ekki að gagnlegum og áþreifanlegum málum tapa þau lífskrafti. Meyja og Steingeit eru í grunnatriðum varkárir og hlé- drægir persónuleikar, eru frekar fhaldssöm, alvörugefín og ábyrgðarfull. Þau eru bæði töluvert gefín fyrir líkamleg og jarðnesk þægindi, s.s. góð- an mat, gott heimili, fjár- hagslegt öryggi og reglu- bundið daglegt líf. Vinna Meyja og Steingeit þurfa að vara sig á ýmsu eins og marg- ir aðrir. Þau þurfa t.d. að varast að láta tilfínningalegar þarfír sitja á hakanum vegna of mikillar vinnu og veraldlegs metnaðar. Þyngsli Þar sem þessi merki eru þung og alvörugefin er hætt við að sambandið verði frekar traust en spennandi og getur, ef þau gæta sin ekki, orðið að leiði- gjömum vana, sem hvomgt þorir að brjóta. Meyju og Steingeit getur því einfaldlega Ieiðst saman til langframa. Einhæfni Þar sem þessi merki em bæði jarðbundin og trúa fyrst og fremst á hið áþreifanlega og „skynsamlega" er hætt við að líf þeirra verði of þröngt og sjóndeildarhringurinn tak- markaður. Þau þurfa t.d. að varast að lifa um of fyrir hið lfkamlega og efnislega og loka augunum fyrir því skemmti- lega, jákvseða og andlega í tilvemnni. Fullkomnunarþörf Meyja og Steingeit þurfa einnig að varast að vera of stíf eða gagnrýnin á hvort annað og umhverfíð. Bæði merkin hafa sterka fullkomn- unarþörf og vilja vera pott- þétt og hafa röð og reglu í umhverfí sfnu. Það er ágætt ef ekki er gengið of langt. Líkáhugamál Það framantalda er fyrst og fremst það sem merkin þurfa að varast. I samvinnu þeirra búa einnig margir jákvæðir möguleikar. Það mát.d.'nefna að þegar tveir duglegir og raunsæir einstaklingar taka saman höndum þá ætti árang- urinn ekki að láta á sér standa. Það jákvæða er einnig að viðhorfín em lík og þvi eiga þessi merki gott með skilja hvort annað, tala saman og vinna saman. Þau em einn- ig góð þegar rómantík er ann- are vegar ef þau gæta þess að slaka á og losa sig annað slagið við erlgur og vanabind- ingu, ferðast, skemmta sér og horfa á léttari hliðar til- vemnnar. Svipuð bylgjulengd Til að báðum líði vel er síðan æskilegt að þau skapi sér góða og ömgga lífsafkomu. Eins og áður sagði em merk- in á líkri bylgjulengd. Sam- band þeirra ætti því að vera varanlegt og veita gagn- kvæmt öryggi og ánægju. GARPUR BRENDA STARR Æ£TT A EF~T/R. ■ ■ SLEPP//ZÐO S//AKNU/M ÞEttíöer H/IMS- /ME/P/ £H BE/N/ HEFU/Z T/UAÐ S/c/Pfö Sée HF KONUHSSRl'ler £F ÞÚ e/FTlF P/tÐ SEM ÉG S/fGB/, <SÆT/ tMÐSUTID HJÓNABAND! OK/C4F /YtANFREDS OS ETDII-AGT KÖSZ/NGABAe HAUS.^ -=;== FERDINAND SMÁFÓLK ALL RléHT^UC^LET'SLOOK ALIVE 0UTTI4EKEÍ &E KEAPYÍ PAY ATTENTION! CONCENTRATE! Jæja, Lúlla, vertu lífleg á Til hvers? Það er góð spurning ... vellinum! Viðbúin, taktu eftir! Einbeittu þér! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Einföld kastþröng gengur ekki upp nema sagnhafí eigi alla slagina nema einn. Eigi vömin fleiri slagi, þarf því að „leiðrétta talninguna", eins og stundum er sagt (“rectify the count" á ensku), þ.e.a.s. gefa vöminni þann slag eða slagi sem hún á, til að kastþröngin geti virkað. En það er ekki allfaf mjög auð- velt. Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♦ 954 VG42 ♦ ÁK86 ♦ G76 Vestur Austur ♦D876 ... ♦- ♦ KD108753 ¥96 ♦ G ♦ D10954 ♦ 3 ♦KD10542 Suður ♦ ÁKG1032 ♦ Á ♦ 732 ♦ Á98 Vestur Norður Austur Suður 3 hjörtu Pass Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: hjartakóngur. Þetta er eitt af frægustu spil- um ítalans Pietro Forquet. Eins og sést em flórir tapslagir yfír- vofandi, einn á tromp, einn á tígul og tveir á lauf. En þar eð austur valdar láglitina einn, er kannski hægt að þvinga þar fram 10. slaginn. Vandinn er að koma á réttri hiynjandi til að þvingunin virki. Ekki er hægt að dúkka tígul og lauf, því aust- ur getur þá rofíð sambandið við blindan með þvf að spila tígli um hæl. Þegar spaðalegan kom f ljós í öðmm slag vissi Forquet allt um spilið. Hann spilaði strax litl- um spaða á nfu blinds til að skapa þar innkomu. Vestur drap á drottningu og spilaði tígli. Drepið á ás, HJARTAGOSA spilað og laufí kastað heima! Austur fékk á drottninguna og spilaði trompi. Þá innkomu not- aði Forquet til að spila þriðja hjartanu og fleygja tígii. Þar með var tempóið rétt fyrir kast- þröngina og 10. slagurinn skil- aði sér sjálfkrafa. Umsjón Margeir Pétursson f undanrásum fyrir næsta Skákþing Sovétríkjanna kom þessi staða upp í skák alþjóðlega meistarans E. Vladimirov, sem hafði hvítt og átti Ieik, og Zagreb- elny. Svartur lék sfðast 36. — Rb6-c8? 37. Dxa6-i-! - Kxa6, 38. Ha3+ og svartur gafst upp, því eftir 38. - Kb6, 39. Ba5+ - Ka7, 40. Bac7 er hann mát.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.