Morgunblaðið - 31.08.1989, Page 1
196. tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Heuter
Brosmildur byltingarleiðtogi
Annasamt hefiir verið í Tripoli, höfuðborg Líbýu, að undanförnu
enda stendur mikið til. Á morgun eru 20 ár liðin síðan Muammar
Gaddafi hrifsaði til sín völdin í landinu og breytti þvi í „paradis
ájörðu“. Verður þess minnst með miklum hátíðahöldum en skreyt-
ingarnar eru aðallega fólgnar í stórum myndum af landsföðurnum
Ijúfa.
ers, að markmiðið væri að endur-
skipuleggja reksturinn áður en fyrir-
tækin yrðu gjaldþrota. Sagði hann,
að um væri að ræða 30% fyrirtækj-
anna.
Samkvæmt lögum, sem taka gildi
um næstu áramót, eiga tékknesk
fyrirtæki að bera sjálf ábyrgð á
rekstrinum en ýmsir tékkneskir hag-
fræðingar segja, að aðgerðirnar
muni mistakast verði ekki jafnframt
komið á umbótum í iýðræðisátt.
Kunnur þjóðfélagsfræðingur, Mil-
os Zeman, segir í grein, sem birtist
í ágústhefti tékkneska tímaritsins
Technicky, að Tékkóslóvakía, sem
áður var meðal fremstu iðnríkja Evr-
ópu, sé á góðri leið með að verða
að vanþróaðasta ríki í álfunni og
geti ekkert orðið til bjargar nema
róttæk breyting á núverandi stjórn.
Umrætt tímarit er lítið og næsta
óþekkt utanlands en greinin er talin
endurspegla verulega óánægju innan
kommúnistaflokksins með stöðnun-
ina í landinu.
Tékkóslóvakía:
Þriðjungur atvinnu-
rekstrarins vonlaus
Prag. Reuter.
UM það bil þriðjungur tékkneskra
iðnfyrirtækja er svo úr sér geng-
inn og ónýtur, að ekki er um ann-
að að ræða en hætta rekstrinum
eða endurskipuleggja frá grunni.
Jaromir Matejka, sem hefur það
erfiða verkefni að hleypa nýju lífi í
miðstýrt efnahagslífið án þess að
ganga á svig við kommúnismann,
sagði í viðtali við fréttamann Reut-
Sorpeyðing:
Gífurlegnr
vandi fyr-
ir dyrum
Ottawa. Reuter.
Umhverfissérfræðingar eru á
einu máli um að gífurlegur vandi
blasi við i sorpeyðingarmálum í
Norður-Ameríku. Margar borgir
þar séu hreinlega að drukkna í
eigin úrgangi.
í New York-borg hefur sorpi
verið hrúgað í háar hæðir á Staten-
eyju, sem borgarbúar kalla nú ekki
annað en Soipíjallið, en embættis-
menn í New York og öðrum borgum
Bandaríkjanna segja, að eftir fáein
ár verði allir sorphaugar yfirfullir.
Árið 1986 féllu til 16 milljónir
tonna af sorpi í Kanada eða 1,8 kg
á hvert mannsbarn. í Bandaríkjun-
um var sorpið 145 milljón tonn, 1,6
kg á mann, en í Vestur-Þýska-
landi, Svíþjóð og Japan mun minna
eða 1 kg á hvern íbúa.
Aðeins 2% alls sorps í Kanada
er endurunnið en 15% þess sem til
fellur í Bandaríkjunum. Vestur-
Þjóðveijar endurvinna sömuleiðis
15% sorpsins en Japanar hvorki
meira né minna en 50%.
Eiturlyfjasalarnir biðja um
ftiðarviðræður við stjómvöld
- en hóta ella að siga morðsveitum á blaðamenn og dómara
1—jL —
- ^ # Reuter
Utgöngubann er í Medellin og heldur herinn uppi gæslu um alla borgina. Hafa 17 sprengjur sprungið
í þessari viku en í gær tókst að koma í veg fyrir, að útsendarar eitursalanna sprengdu upp eldsneytis-
tank við áfengisverksmiðju í borginni.
Fíkniefinastríðið 1 Kólombíu:
París, Bogota. Reuter.
LEIÐTOGI Medellin-eiturlyQa-
hringsins í Kólombíu hefur farið
fram á frið við sfjórnvöld í
landinu en segist ella munu siga
morðsveitum sínum á kólombíska
blaðamenn og dómara. Dóms-
málaráðherra Kólombíu sagði
hins vegar á blaðamannafundi í
Washington, að aldrei yrði sest
að samningaborði með eitursöl-
um. I Medellinborg ríkir nú um-
sátursástand og útgöngubann
eftir fjöldamörg sprengjutilræði
eiturlyfjasalauna í þessari viku.
Franska blaðið Liberation sagði
í gær og hafði eftir kólombískum
leyniþjónustumönnum, að Pablo
Escobar, æðsti maður Medellin-
eiturlyfjahringsins, hefði farið fram
á frið við stjórnvöld í Kólombíu.
Sagði hann í símtali, sem var hljóð-
ritað, að eiturlyfjasalarnir ættu sér
aðeins þá einu ósk „að fá að lifa í
friði í eðlilegu samfélagi". Að öðrum
kosti kvaðst hann mundu skipa
sveitum sinum að heija allsheij-
arstríð og drepa einkum blaðamenn
og dómara.
Virgilio Barco, forseti Kólombíu,
lýsti yfir stríði á hendur eiturlyfja-
kóngunum 18. ágúst sl. en þá höfðu
þeir myrt frambjóðanda í væntan-
legum forsetakosningum, dómara
og lögreglustjóra. Síðan hafa þús-
undir manna verið handteknar. Eit-
ursalarnir hótuðu á móti miklu blóð-
baði en virðast þó vera farnir að
ugga um sinn hag. Óttast þeir eink-
um framsal til Bandaríkjanna. Til
marks um það er tíka opið bréf frá
Fabio Ochoa Restrepo, föður
þriggja eiturkónga, þar sem hann
bað um friðarviðræður við stjórn-
völd.
í Medellin hafa sprungið 17
sprengjur í þessari viku og hefur
verið sett á útgöngubann í borg-
inni. Síðan stríðið hófst við eitursal-
ana hafa stjórnvöld lagt hald á 346
flugvélat', 464 búgarða og aðrar
byggingar, rúmlega 1.300 bifreiðar,
mikið af vopnum og nokkur tonn
af kókaíni.
Monica de Grieff, dómsmálaráð-
herra Kólombíu, sagði í gær, að því
færi fjarri, að Kólombíustjórn ætl-
aði að semja sátt við „sölumenn
dauðans“. Kom þetta fram á blaða-
mannafundi í Washington en
Bandaríkjastjórn ætlar að styðja
baráttuna gegn eiturlyflasölunum í
Kólombíu með 65 milljónum dollara.
Opinberir sjóðir að
tæmast í Færeyjum
Kaiipmannahöfn. Frá N. .1. Bruun, fréttaritara Morg^inblaðsins.
KREPPAN í færeysku eftiahagslífi birtist meðal annai-s í því, að
ýmsir opinberir sjóðir eru að tæmast eða eru þegar tómir. Á það
til dærnis við um lánasjóð húsbyggjenda sem getur ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Færeyska landstjórnin hefur nú á prjónunum
að afnema veröbætur á laun og skera niður barnabætur.
BygginKarsjóður landstjórnar- nú með því skilyrði, að þeir geti
innar, sem veitt hefur ódýr lán til
íbúðarbyggjenda og -kaupenda, er
tómur. I þessari og næstu viku
áttu þeir, sem fengið hafa lánslof-
orð, að fá í hendurnar um 48 millj-
ónir ísl. kr. en af því verður ekki
að sinni. Mun það valda mörgum
verulegum vandræðum því að
byggingarsjóðslánin, sem bera 8%
vexti, fara yfirleitt til að greiða
skammtímabankalán, sem eru á
13% vöxtum. Hefur sjóðsstjórnin
því í hyggju að taka 400 millj. kr.
lán til að greiða úr vandanum.
Aðrar færeyskar lánastofnanir
eru einnig illa staddar og hafa
lánareglur verið hertar af þeim
sökum. Lán til húsbyggjenda eru
sjálfir lagt fram 2,4 millj. ísl. kr.
en byggingarkostnaður einbýtis-
húsa í Færeyjum er yfirleitt á bil-
inu 10-12 millj. kr.
Verkalýðsfélögin í Færeyjum
hafa brugðist hart við fréttum um
að landstjórnin ætli að afnema visi-
tölutryggingu launa, og ráðgera
sólarhringsverkfall ef af því verð-
ur. Segja talsmenn þeirra, að sú
ráðstöfun og aðrar geti rýrt tekjur
hverrar §ölskyldu um 120-160.000
kr. Landstjórnin hyggst þó gera
betur því að til stendur að lækka
barnabætur verulega ,og greiða
þær aðeins með þeim, sem eru á
barnaskólaaldri.