Morgunblaðið - 31.08.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1989
n
standby
momo cancel
Verið örugg með tvær
stöðvar
- TREYSTIÐ PHILIPS.
cosMtta rocomer ’ Vf»W4fl
Viö höfum fengiö nýja sendingu af
hágæöamyndbandstækjunum frá PHILIPS
sem slógu svo eftirminnilega í gegn í vetur.
- Enn bjóöum viö þessi einstaklega góöu
tæki á frábæru verði vegna hagstæðra
samninga.
• HQ kerfi tryggir fullkomin myndgæöi
• Mjög góö kyrrmynd
• Hægurhraöi
• Leitarhnappur
• Fullkomin sjálfvirkni í gangsetningu,
endurspólun og útkasti snældu
• Sjálfvirk endurstilling á teljara
• Fjarstýring á upptökuminni
• 365 daga upptökuminni.
• Upptökuskráning i minni samtimis
fyrir 8 dagskrárliöi
Sextan stöðva geymslurymi
20 mínútna öryggisminni
Ótal fleiri möguleikar sem aöeins
Philips kann.tökin á
Verðiö kemur þér á óvart.
ár á óvart. 1 1
ÍÍ
Heimilistæki hf
Sætuni8 • Kringlunm
SÍMI: 69 15 00 SIMI. 69 15 20
Vúð e/uwoSueáyh/dfegA L samuHyuttv
ÍVÍÍSJ HQ
Skellefteá:
Tékkóslóvakía:
I U L L
L iii J
feHMWÍim
Friðsöm 13. umferð
á heimsbikarmótinu
Portisch T/z vinning, 6.-7. Salov
og Andersson 7 vinninga, 8. Sax
614 vinning, 9.-11. Ehlvest, Tal og
Ribii 6 vinninga, 12.-14. Hiibner,
Kortsnoj og Nunn 5/ vinning, 15.
Nikolic 5 vinninga og 16. Vaganj-
an 4 vinninga.
GARRÍ Kasparov heldur enn
forystunni á heimsbikarmótinu
í skák'en í gær gerði hann jafii-
tefli við Seirawan.
Urslitin í gær urðu þessi: Nunn
— Tal 14-14, Ehlvest — Portisch 0 -
1, Vaganjan — Salov 1 - 0, Seiraw-
an — Kasparov 14-14, Ribli — Sax
'/2-14, Nikolic — Andersson ‘/2-14,
Kortsnoj — Short 14-14, Karpov —
Hiibner 14-14.
Staðan að loknum 13 umferðum
af 15 er þessi: 1. Kasparov með
S4 vinning 2.-3. Karpov og Short
8 vinninga, 4.-5. Seirawan og
14. umferðin verður tefld í dag
og sú 15. og síðasta á laugardag.
Kasparov hefur þegar tryggt sér
flest stig á heimsbikarmótunum.
Karpov hefði þurft 3 „heimsbikar-
stigum“ meira en Kasparov á
mótinu í Skelefteá til að hreppa
heimsbikarinn.
Flóttinn frá Austur-Þýskalandi:
Lestarslys íAusturríki
Reuter
Járnbrautarstarfsmaður stendur á þaki svissneskrar eimreiðar
sem rakst á hraðlest í Bregenz í Austurríki í gær. Einn maður
fórst í slysinu og 15 slösuðust.
Borið til baka að Ungveijar
hyggist opna landamærin
Bonn. Reuter.
HÁTTSETTUR, ónafhgreindur vestur-þýskur embættismaður sagði
í gær að sljórnvöld í Ungverjalandi ætluðu að hleypa öllum austur-
þýskum flóttamönnum yfir landamæri sín til vesturs. Vestur-þýska
utanríkisráðuneytið hefiir vísað þessari staðhæfingu alfarið á bug.
Vestur-Þjóðveijar eru að koma upp flóttamannabúðum fyrir hátt í
4.000 Austur-Þjóðverja, sem búist er við að fari yfir landamæri
Ungverjalands til Austurríkis og þaðan til Vestur-Þýskalands.
„Ungveijar eru reiðubúnir að staðhæfmgu til baka. „Það er ekki
hleypa austur-þýskum þegnum
jafnvel þeim sem hafa vestur-þýsk
vegabréf útgefin í Ungverjalandi,
yfir landamærin til Austurríkis,“
sagði embættismaðurinn við Reut-
ers-fréttastofuna. Síðar bar tals-
maður vestur-þýska utanríkisráðu-
neytisins, Júrgen Chrobog, þessa
flugufótur fyrir þessari frétt,“ sagði
í yfirlýsingu ráðuneytisins.
Embættismaðurinn sagði að
220.000 Austur-Þjóðveijar væru nú
í sumarleyfi í Ungveijalandi.
„Ríkisstjórn Vestur-Þýskalands er
reiðubúin að hleypa 20.000 þeirra
inn í landið," sagði hann.
Hátt í 2.000 Austur-Þjóðveijar
eru enn í flóttamannabúðum í Ung-
veijalandi og enn aðrir hafast við
í sendiráðsskrifstofum Vestur-
Þýskalands í Austur-Berlín og
Prag.
Hans Klein, talsmaður vestur-
þýsku ríkisstjórnarinnar, sagði að
verið væri að reisa Tjórar flótta-
mannabúðir með aðstoð Rauða
krossins í suðurhluta landsins. Dag-
blöð í Vestur-Þýskalandi segja að
vænta megi hátt í 15.000, flótta-
manna frá Ungveijalandi á' næst-
unni. Talsmaður Rauða krossins í
Múnchen sagði að von væri á 4.000
flóttamönnum. 4. september og
sagði hann að flestir þeirra Austur-
Þjóðverja sem væru í Ungveijalandi
hefðu þá annaðhvort flúið vestur
eða snúið aftur til heimalands síns.
Heimildarmenn innan vestur-
þýsku leyniþjónustunnar sögðust
óttast að á meðal þeirra þúsunda
Austur-Þjóðverja sem hefðu komið
til Vestur-Þýskalands að undan-
förnu leyndust njósnarar á snærum
austur-þýskra stjórnvalda. Austur-
þýska öryggismálaráðuneytið hefði
áður sent þjálfaða njósnara undir
því yfirskini að þær væru löglegir
útflytjendur, sögðu þeir.
Starfsemi
stjórnarand-
stöðuaflá
áhyggjuefhi
Prag, Búdapest. Reuter.
JAN Fojtik, hugmyndafræðingur
tékkneska kommúnistaflokksins,
sagði á mánudag á fundi flokks-
bræðra sinna, að hann hefði
áhyggjur af starfsemi stjórnar-
andstöðuafla í Póllandi og Ung-
veijalandi. Hann sagði að þessi
öfl drægju taum Vesturlanda, sem
vildu koma kommúnísku stjórn-
skipulagi í Austur-Evrópu á kné.
Tveimur dögum áður viðurkenndi
Fojtik í fyrsta sinn að stjórn-
málaumbæturnar í Sovétríkjunum
líktust í mörgu umbótunum í
Tékkóslóvakíu árið 1968, sem
kenndar voru við Vorið í Prag.
„Starfsemi stjórnarandstöðu-
flokka í þessum löndum, sem draga
ekki dul á þá fyrirætlan sína að efna
til ágreinings um sósíalismann,
stundum með fulltingi borgaralegra
stjórnmálamanna, sér í lagi frá
Bandaríkjunum, er mikið áhyggju-
efni,“ var haft eftir Fojtik í tékk-
neska útvarpinu. „Auk þess hafa
kapítalístaríkin sett þau skilyrði fyrir
efnahagsaðstoð við Úngveija og Pól-
veija, að stjórnmálaumbætur verði í
þessum löndum, og í því tilliti treysta
þau á hægfara upplausn sósíalis-
mans,“ sagði Fojtik ennfremur.
•Á mánudag bar Gyula Horn, ut-
anríkisráðherra Ungveijalands, fram
mótmæli við tékkneska sendiráðsrit-
arann í Búdapest, vegna handtöku
tveggja Ungveija sem sakaðir hafa
verið um ólæti á almannafæri á
mótmælafundi í Prag í síðustu viku.
Þá var þess minnst að 21 ár var lið-
ið frá innrás Varsjárbandalagsheija
í Tékkóslóvakíu.
Hin opinbera ungverska frétta-
stofa MTI hafði það eftir Horn að
þátttakendum í mótmælafundinum
sem handteknir voru, hefði öllum
verið sleppt að Ungveijunum tveimur
undanskildum.
PHILIPS VR-6448
MYNDBANDSTÆKIÐ