Morgunblaðið - 31.08.1989, Síða 27
Þorgeirs Ljósvetningagoða minnst:
Þorgeirskirlga reist að Ljósavatni
í tileftii kristnitökuafinælisins
ÞORGEIRS Ljósvetningag-oða verður minnst á þúsund ára afmæli
kristnitöku á Islandi, með því að reisa nýja kirkju í Iandi Ljósavatns
sem bera á heitið Þorgeirskirkja. Að Ljósavatni var þingstaður um
langt skeið og þar reisti Þorgeir fyrstu kirkju staðarins, en sem kunn-
ugt er var það Þorgeir Ljósvetningagoði sem fleygði goðum sinum í
Goðafoss og kvað uppúr með að á Islandi skyldi þaðan í fi-á ríkja einn
siður.
Á héraðsfundi Þingeyjarprófasts-
dæmis sem haldinn var á Skútustöð-
um haustið 1987 var kosin fimm
manna afmælisnefnd sem veg og
vanda skyldi hafa að undirbúningi
hátíðarhalda norðanlands vegna
kristnitökuafmælisins. Formaður
nefndarinnar er séra Bolli Gústafs-
son sóknarprestur á Laufási og aðrir
í nefndinni eru Árni Jónsson á Frem-
stafelli, Margrét Bóasdóttir, Grenjað-
arstað, Atli Sigurðsson á Ingjalds-
stöðum og Þorsteinn Jónsson á
Húsavík.
Séra Bolli sagði að afmælisnefndin
hefði einkum starfað á þessu ári og
væru menn búnir að fara á vettvang
og skoða aðstæður með staðsetningu
hinnar nýju kirkju í huga. Nefndin
hefði mælt með því að kirkjan yrði
reist á hól norðan heimreiðarinnar
að Ljósavatni, en þaðan sæist hún
vel frá þjóðveginum. Það er svo safn-
aðarfundar Ljósavatnssóknar að
ákveða staðsetninguna endanlega og
munu menn koma saman fljótlega
eftir mánaðamót og ræða hana.
„Það er okkur mikið metnaðarmál
að Þorgeirskirkja rísi. Það sem fyrir
okkur vakir er að byggð verði kirkja
sem þjóni söfnuðinum, en einnig að
þar geti ferðamenn staldrað við og
skoðað bygginguna og íhugað um
leið upphaf kristni á Islandi," sagði
séra Bolli. Hann sagði að ekki væri
í bígerð að reisa stórt hús, en menn
vildu fyrir alla muni að það yrði list-
rænt og fallegt þannig að það vekti
athygfi.
Hrafnkell Thorlacius arkitekt í
Reykjavík hefur boðist til að teikna
húsið endurgjaldslaust, en hann á
ættir sínar að rekja í sóknina. Hvað
fjármögnun vegna kirkjubyggingar-
innar varðar sagði Bolli að til væri
fé svo hefjast mætti handa við verk-
ið. Þorgeirskirkjusjóður hefði verið
stofnaður fyrir alilöngu síðan, en það
voru systkinin- Friðrika Jónsdóttir
ljósmóðir og Kristján Jónsson á
Fremstafelli og kona hans Rósa Guð-
laugsdóttir sem stofnuðu þann sjóð.
Þá sagði Bolli að leitað yrði til Jöfn-
unarsjóðs kirkna, Kirkjubygginga-
sjóðs og ríkissjóð varðandi fjármögn-
un og þegar hefði komið fram vilji
meðal Eyfirðinga um að styðja
kirkjubygginguna. Að auki yrði leit-
að fijálsra framlaga um land allt.
„Það er stórt atriði að sýslurnar
hér norðanlands sameinist um að
reisa kirkjuna og ég vona að vel
verði tekið í málaleitan okkar, þann-
ig að við getum haldið þar veglega
hátíð þegar afmælisins verður
minnst,“ sagði séra Bolli.
Morgunblaðiö/Bolli Gústafsson
Kirkja sú sem nú er við Ljósavatn var byggð árið 1892, en nú er
fyrirhugað að reisa nýja kirkju, Þorgeirskirkju, til minningar um
Þorgeir Ljósvetningagoða í tilefni af þúsund ára afinæli kristnitöku
á íslandi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fallbyssuskot
Þó nokkur Qöldi manna safnaðist saman á flötinni neðan Minja-
safhsins á Akureyri í gær, en þá hleypti Halldór Baldursson
af púðurskoti úr fallbyssu í tilefni 127 ára afinælis Akureyrar-
bæjar sem var í fyrradag, 29. ágúst. Fallbyssan hefiir lengst
af þjónað sem bryggjupolli á Torfiinefsbryggju, en hefiir verið
gerð upp. Fyrst var skotið af byssunni á þjóðhátíðardaginn,
17. júní síðastliðinn.
opið tóugatdaS®
Makita verkfærín
eru á góðu verði hjá EUingsen
Þrautreynd verkfæri með tvöfaldri einangrun
\
Makita höggborvél M 802.
Snúningur 1 báðar áttir, stlg-
laus rofi, W patróna, 430w,
kr. 9.980,-
Maldta snúrulaus rafhlöðuborvél
6012 HDW. Snúnlngur f báðar
áttlr, stlglaus rofl, átaksstlllir f.
skrúfur, lOmm patróna, kr. 14.345,-
Slíplrokkur 9005 B með
125mm skffu, I020w, 10900
snúnlngar/mín., kr. 12.322,-
Makita höggborvél HP20I0,
fyrir iðnaðarmenn, snún. í
báðar áttir, stiglaus rofi, V*"
patróna, 750w, kr. 17.900,-
Maldta sög 5801 B með
185mm blaði, 960w og 4500
snúningar/mfn. kr. 13.140,-
Maklta fræsari 3608 B með
%” tönnum, 500w, 23000
snúningar/mfn., kr. 12.665,-
Makita pússari 4510BO fyrir
heimlllð og léttan iðnað,
180w, kr. 7.700,-
Makita stingsög 4301 BV fyrir
atvinnumenn, stiglaus rofi,
390w, stlllanlegur skurður,
kr. 19.265,-
Maklta skrúfuvél DP4700,
með 13mm patrónu, snúning-
ur í báðar áttir, stiglaus rofi,
kr. 12.450,-
Maklta sifpirokkur 9607 B
með 180mm skífu, 2000w,
8000 snúningar/mfn. kr.
18.800,-
Þú færð að auki 10% tilboðsafslátt af öllum þessum verkfærum og öllum öðrum USAG og MAKITA verkfærum
út vikuna, eða til 2. september nk. Notaðu tækifærið.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855